Messing wrote:
Komme mit den Zahlen bei dem Diagrammen nicht klar. Wo kann man sich darüber belesen?
04.03.2018 - 14:09DROPS Design answered:
Liebe Frau Messing, hier lesen Sie mehr über die Grössen und Diagramme. Viel Spaß beim häkeln!
05.03.2018 - 09:07YUTING wrote:
Re bonjour, j'ai trouvé l'une de vos anciennes réponses concernant la diminution 1 : En début de rang, remplacer la 1ère B par 2 ml (au lieu de 3) pour la diminution uniquement. Mais je n'aurai qu'une boucle sur le crochet puis comment je dois faire la B suivante? Dois je faire le premier jeter pour garder 3 boucles sur le crochet? Merci
06.02.2018 - 18:34DROPS Design answered:
Bonjour Mme Yuting, en début de rang, vous remplacez la 1ère bride par 2 ou 3 ml (en fonction de la hauteur de vos ml) et crochetez la bride suivante et, au dernier jeté, écoulez les 2 boucles sur le crochet - en fin de rang, vous aurez bien 3 boucles à écouler (celle sur le crochet + les 2 brides). Bon crochet!
07.02.2018 - 08:29Yu-Ting wrote:
Bonjour, je suis en train de faire la robe en 1/3 mois et j'ai des questions sur la dimunition 1 et j'ai vu votre réponse à Vanessa ci-dessus. Mes questions sont : 1/ Faut-il diminuer en début du 1er rang de diminution, càd démarre avec 3ml et puis suivre la diminution 1 2/ En fin du rang, je ne fais rien. Je tourne le travail pour faire le 2ème rang sans diminution ?
06.02.2018 - 17:03DROPS Design answered:
Bonjour Yu-Ting , pour les diminutions-1, on diminue 1 B de chaque côté, c'est-à-dire en début et en fin de rang, on commence par 2 brides écoulées ensemble et on termine le rang par 2 brides écoulées ensemble. Pour les emmanchures (diminutions-2), on commence par des mailles coulées et on termine en laissant le nbe de mailles à diminuer. Bon crochet!
07.02.2018 - 08:25Aline Soulard wrote:
Bonjour, je suis rendu à l'assemblage de la robe et j'aimerais savoir quel genre de couture vous prenez pour les côtés de la robe. Est-ce mieux avec une aiguille ou un crochet. Merci
08.11.2017 - 17:43DROPS Design answered:
Bonjour Madame Soulard, vous pouvez utiliser la technique que vous préférez, en général nos ouvrages sont assemblés avec une aiguille et la laine utilisée pour l'ouvrage. Bon crochet!
09.11.2017 - 08:37Birgit Kirmse wrote:
Vielen Dank für die Antwort bei dem Kleidchen mache ich das genauso es verwirrt mich etwas sorry 1FMa 4 Lma = 1Dstb. dann 2Dstb in dieselbe Ma aber dann 3Lma und 3Dstb auch in dieselbe ma oder in die nächste????
24.03.2017 - 13:27DROPS Design answered:
Liebe Frau Kirmse, Am Anfang beginnen Sie mit 1 fM, dann 4 Lm (= ersezt das 1. D-Stb), 3 Lm, 2 D-Stb in das gleiche Masche, und 3 D-Stb in das gleiche Masche, so haben Sie in dem 1. Masche: 4 Lm, 2 D-Stb, 3 Lm, und 3 D-Stb, wie im Video für die Mütze gezeigt. Viel Spaß beim häkeln!
24.03.2017 - 14:30Birgit Kirmse wrote:
Hallo wenn ich dir 2 Reihe mache in jedes Stb ein Stb ergibt es kein Lochmuster??
23.03.2017 - 18:22DROPS Design answered:
Liebe Frau Kirmse, die 2 letze Reihe am Ende der Mütze werden gehäkelt, wie im Video unten gezeigt. Viel Spaß beim häkeln!
24.03.2017 - 08:51Georgina Inwards wrote:
I would like to make this dress in cotton for summer . Please could you recamend the correct yarn to use. Thank you.
15.02.2017 - 18:58Alex wrote:
Hallo, ich bin gerade dabei dieses wunderschöne Kleidchen zu häkeln und frage mich, was es bedeutet:" es wird in die Stäbchen und nicht dazwischen gehäkelt"? Vielen Dank für eine rasche Antwort. Und weiter so mit den tollen Modellen! LG Alex
19.09.2016 - 10:10DROPS Design answered:
Liebe Alex, Sie müssen jedes Stäbchen in das Stäbchen von der vorrigen Reihe häkeln (dh wie üblich, durch die ganze Maschenglied).
19.09.2016 - 10:20Vigdis Oven Sørensen wrote:
Hei. Jeg har heklet ferdig både kjole og hatt. Og er oppskriften feil? Det står at man skal hoppe over 2-2.5 cm på borden mellom dobbeltstavene. Er det riktig? Og er det riktig å bare hekle en rad? Hvordan får man da bremmen til å stå ut? Det blir jo mer en lue enn hatt !!!
28.06.2016 - 20:33DROPS Design answered:
Hej Vigdis. Du hekler to omg af blondekanten og 2-2.5 passer.
29.06.2016 - 12:45
Little Miss Berry |
|
|
|
Heklaður kjóll fyrir börn og sumarhattur úr DROPS Alpaca. Prjónuð og þæfð taska úr DROPS Alaska. Stærð 1 mán - 4 ára.
DROPS Baby 14-4 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KJÓLL: AFFELLING-1: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla saman 2 stuðla, þ.e.a.s. heklið 1 stuðul en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur eftir á heklunálinni), heklið 1 stuðul í næsta stuðul og dragið þráðinn í lokin í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. AFFELLING-2: Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig: Skiptið út 1 fastalykkju/stuðli með 1 keðjulykkju. Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Snúið stykkinu þegar eftir er sá fjöldi fastalykkja/stuðla sem fækka á og heklið til baka. LEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og í lok umferðar er síðasti stuðull heklaður í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. Heklað er í hvern stuðul (ekki á milli). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er framstykkið heklað og síðan bakstykkið. Stykkið er saumað saman í lokin. FRAMSTYKKI: Lesið LEIÐBEININGAR! Heklið 106-116-126 (135-145) frekar lausar loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 3 og litnum millibleikur. Fyrsta umferðin er hekluð þannig: 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina en í stærð 1/3 mán + 12/18 mán er endað með 1 stuðul í hverja af síðustu 5 loftlykkjum (í stað síðustu3 loftlykkjum) og í stærð 2 ára er endað með 1 stuðul í hverja af síðustu 6 loftlykkjum (í stað 3 síðustu loftlykkjum), í stærð 3/4 ára er endað með 1 stuðul í hverja af síðustu 4 loftlykkjum = 79-86-94 (101-108) stuðlar, snúið stykkinu. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul jafnframt því sem felldur er af 1 stuðull í hvorri hlið alls 12 sinnum – sjá AFFELLING-1: Í stærð 1/3 mán: til skiptis í hverri og annarri hverri umferð, í stærð 6/9 + 12/18 mán: í annarri hverri umferð, stærð 2 + 3/4 ára: í 3. hverri umferð = 55-62-70 (77-84) st. Þegar stykkið mælist ca 17-18-21 (24-26) cm fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð – sjá AFFELLING-2: 5 stuðlar 1 sinni, 2 stuðlar 1 sinni og 1 stuðull 3 sinnum = 35-42-50 (57-64) stuðlar. Þegar stykkið mælist ca 23-29-35 (40-44) cm setjið 1 prjónamerki mitt í stykkið (í stærð 1/3 mán og 2 ára er prjónamerkið sett í miðju stuðul). Fækkið nú lykkjum fyrir hálsmáli þannig: Heklið frá öxl og inn að hálsmáli þar til eftir eru 2-3-5 (5-6) stuðlar á undan prjónamerki (í stærð 1/3 mán og 2 ára á þetta við á undan stuðli með prjónamerki í), snúið stykkinu. Fækkið lykkjum við hálsmál í hverri umferð – sjá AFFELLING-2: 2 stuðlar 2 sinnum og 1 stuðull 3 sinnum = 8-11-13 (16-19) stuðlar eftir á öxl. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist ca 27-33-39 (45-49) cm. Endurtakið í hinni hlið á hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp og heklið á sama hátt og framstykki – setjið 1 prjónamerki mitt í stykkið (í stærð 1/3 mán og 2 ára er prjónamerkið sett í miðju stuðul). Fellið af fyrir handveg eins og á framstykki, en þegar stykkið mælist 19-25-31 (37-41) cm skiptist stykkið við miðju að aftan fyrir op og hvor hluti er heklaður áfram hvor fyrir sig (í stærð 1/3 mán og 2 ára er ekki heklað áfram yfir miðju lykkju með prjónamerki í). Þegar stykkið mælist ca 25-31-37 (43-47) cm fækkið lykkjum fyrir hálsmáli að aftan þannig: Heklið 9-12-14 (17-20) stuðla frá öxl og inn að hálsmáli, snúið stykkinu og fækkið um 1 stuðul í næstu umferð – sjá AFFELLING-2. Heklið út umferðina, klippið frá og festið enda, stykkið mælist ca 27-33-39 (45-49) cm. Endurtakið á hinni hlið á hálsmáli. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma kant í kant með smáu spori. KANTUR: Heklið kant meðfram öllu hálsmálinu (og opi að aftan) og í kringum báða handvegi með heklunál 3 með litnum millibleikur þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 6 loftlykkjur, hoppið yfir ca ½ - 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 6 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Saumið 2 tölur meðfram hægra opi að aftan (ca ½ cm inn á stykki) – efsta talan er staðsett ca ½ - 1 cm ofan frá, notið loftlykkjubogana í gagnstæðri hlið fyrir hnappagöt. BLÚNDA: Heklið kant neðst á kjól með heklunál 3 og litnum millibleikur þannig: HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar hekla á saman nokkra tvíbrugðna stuðla þá er það gert þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið næsta tvíbrugðna stuðulinn en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 lykkjur á heklunálinni), haldið svona áfram þar til heklaður hefur verið sá fjöldi tvíbrugðna stuðla sem hekla á saman og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni. UMFERÐ 1: Byrjið í hlið. Heklið 1 fastalykkju í fyrsta stuðul, 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull), heklið saman 2 tvíbrugðna stuðla í sama stuðul, 3 loftlykkjur og 3 tvíbrugðnir stuðlar saman áfram í sama stuðul, * hoppið yfir ca 2 - 2½ cm, í næsta stuðul eru heklaðir 3 tvíbrugðnir stuðlar saman, 3 loftlykkjur og 3 tvíbrugðnir stuðlar saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju sem var hekluð í byrjun umferðar. UMFERÐ 2: Heklið keðjulykkju fram að fyrsta loftlykkjuboga, 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull), 3 tvíbrugðnir stuðlar saman um sama loftlykkjuboga, 4 loftlykkjur, 4 tvíbrugðnir stuðlar saman um sama loftlykkjuboga, * í næsta loftlykkjuboga eru heklaðir 4 tvíbrugðnir stuðlar saman, 4 loftlykkjur og 4 tvíbrugðnir stuðlar saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju sem var hekluð í byrjun á umferð. UMFERÐ 3: Heklið eins og umferð 2. UMFERÐ 4: Heklið eins og umferð 2, nema 5 loftlykkjur í hvern loftlykkjuboga (í stað 4 loftlykkjur). UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju efst í fyrsta stuðlahóp, * 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja í næsta tvíbrugðna stuðlahóp *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 6 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. HEKLAÐ BLÓM: Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og litnum ljós bleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 5 loftlykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 4 loftlykkjum sem eru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og llitinn lime og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 5 fastalykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, heklið 3 stuðla í fyrstu af 4 loftlykkjum sem voru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Festið blómið í litnum ljós bleikur ofan á blómið úr litnum lime og saumið blómið mitt framan á kjólinn. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HATTUR: Stærð: 1/3 - 6/18 mån (2/4) ára Höfuðmál: ca 40/42 - 44/46 (48/50) cm LEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er 1. stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. HATTUR: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3 og litnum millibleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 12 stuðla um hringinn – sjá LEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla í hvern stuðul = 24 stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul = 24 stuðlar. UMFERÐ 4: * 1 stuðull í hvorn af fyrstu 2 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 32 stuðlar. UMFERÐ 5: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 3 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 40 stuðlar. UMFERÐ 6: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 4 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 stuðlar. UMFERÐ 7: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 5 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 56 stuðlar. UMFERÐ 8: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 6 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 64 stuðlar. UMFERÐ 9: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 7 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 72 stuðlar. UMFERÐ 10: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 8 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 80 stuðlar. Endið útaukningu hér í stærð 1/3 mán. UMFERÐ 11: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 9 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 88 stuðlar. Endið útaukningu hér í stærð 6/18 mán. UMFERÐ 12: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 10 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 96 stuðlar. Endið útaukningu hér í stærð 2/4 ára. Allar stærðir. Haldið áfram hringinn með stuðlum án þess að auka út þar til stykkið mælist ca 13-14 (16) cm ofan frá. Heklið nú 1 umferð með stuðlum með 2 stuðla í 8. hvern stuðul = 90-99 (108) stuðlar í umferð. Heklið 1 umferð með stuðlum án þess að auka út, heklið síðan 1 umferð með stuðlum og með 2 stuðla í 6. hvern stuðul (í stærð 6/18 mán verða 3 stuðlar eftir í umferð á eftir síðustu útaukningu í stað 6) = 105-115 (126) stuðlar í umferð. KANTUR MEÐ BLÚNDU: UMFERÐ 1: Heklið 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull), 2 tvíbrugðnir stuðlar saman – sjá HEKLLEIÐBEININGAR undir kjóll, 3 loftlykkjur og 3 tvíbrugðnir stuðlar saman í fyrsta stuðul, * hoppið yfir ca 2 - 2½ cm, í næsta stuðul eru heklaðir 3 tvíbrugðnir stuðlar saman, 3 loftlykkjur og 3 tvíbrugðnir stuðlar saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju sem var hekluð í byrjun umferðar. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju efst í fyrsta tvíbrugðna stuðlahópinn, * 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja í næsta tvíbrugðna stuðlahóp *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 6 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda, hatturinn mælist ca 18-19 (21) cm ofan frá. HEKLAÐ BLÓM: Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og litnum ljós bleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 5 loftlykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 4 loftlykkjum sem eru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og llitinn lime og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 5 fastalykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, heklið 3 stuðla í fyrstu af 4 loftlykkjum sem voru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Festið blómið í litnum ljós bleikur ofan á blómið úr litnum lime og saumið blómið niður á hattinn. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- TASKA: Mál: Fyrir þæfingu: ca 16 cm á breidd og 24 cm á hæð. Eftir þæfingu: ca 12 cm á breidd og 15 cm á hæð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin. TASKA: Fitjið laust upp 27 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 5,5 með litnum natur Vienna. Prjónið 2 umferðir slétt, skiptið yfir í Alaska og prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist ca 47 cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Skiptið til baka yfir í litinn natur Vienna, prjónið 2 umferðir slétt og fellið laust af. HANDFANG: Fitjið upp 5 lykkjur á prjón 5,5 með Alaska og prjónið sléttprjón þar til handfangið mælist ca 25 cm, fellið af. Leggið handfangið saman tvöfalt á lengdina með röngu að röngu og saumið saman í ystu lykkjubogana. FRÁGANGUR: Brjótið uppá töskuna tvöfalt og saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið handfangið í hvora hlið á töskunni. Þæfið töskuna í þvottavél – sjá ÞÆFING! ÞÆFING: Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm. Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi. Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott. EFTIR ÞÆFINGU: Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott. Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík. HEKLAÐ HJARTA: Heklið 2 loftlykkjur með heklunál 6 og litnum bleikur Vienna og heklið 1 fastalykkju í fyrstu af 2 loftlykkjum, snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, síðan eru heklaðar 3 fastalykkjur í fastalykkju frá fyrri umferð, snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju og 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju = 5 fastalykkjur, snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju og 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkjur = 8 fastalykkjur, snúið stykkinu. * Heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 3 fastalykkjum, snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju og 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á fyrri umferð, klippið frá og festið enda *. Endurtakið frá *-* á hinni hliðinni á hjartanu og saumið síðan hjartað á töskuna. HEKLAÐ BLÓM: Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum ljós bleikur Alpaca og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 5 fastalykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 4 loftlykkjum sem voru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Saumið blómið mitt á hjartað. Peysa sjá DROPS Baby 14-5 Skór sjá DROPS Baby 14-5 |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Bernadette Fleischmann wrote:
Gerade rechtzeitig zum Osterfest das Kleid und Schuhe fertig bekommen. Super Anleitung, tolle Hilfsvideos
26.03.2016 - 14:40