Silver Night Cardigan#silvernightcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Polaris eða 2 þráðum DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópsku berustykki, v-hálsmáli, i-cord og kantlista að framan. Stærð XS - XXXL.
DROPS 271-42 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. 2 LYKKJUR I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 – í skiptingu yfir í stroff: Þegar lykkjur eru auknar jafnt út í skiptingunni yfir í stroff, þá verður útaukningin jafnari ef aukið er út þar sem lykkjurnar verða síðan prjónaðar brugðið, sléttprjónuðu lykkjurnar koma þá til með að halda fallega áfram yfir í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Þegar fækkað er um 1 lykkju er lykkjum fækkað til skiptis á undan og á eftir merkiþræði. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1. BAKSTYKKI: Fitjið upp lykkjur aftan í hnakka og prjónið bakstykkið fram og til baka niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2. FRAMSTYKKI: Byrjað er á að prjóna kantlista. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. 3. BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Prjónið lykkjur frá öðru framstykkinu, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, prjónið lykkjur frá bakstykki, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á hinu framstykkinu og prjónið síðustu lykkjur frá framstykki = síðan er berustykkið prjónað yfir allar lykkjur fram og til baka frá miðju að framan. 4. ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað er lykkjum aukið út fyrir v-hálsmáli, fram- og bakstykki og ermar. 5. FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin er prjónað belti. ------------------------------------------------------- BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 13-14-13-14-14-16-16 lykkjur á hringprjón 15 með 1 þræði DROPS Polaris eða 2 þráðum DROPS Snow. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 1 lykkju brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 1 lykkju brugðið. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið eins og UMFERÐ 2. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið eins og UMFERÐ 3. UMFERÐ 6 (= rétta): Prjónið eins og UMFERÐ 2. UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið eins og UMFERÐ 3. UMFERÐ 8 (= rétta): Prjónið eins og UMFERÐ 2. Útaukningu er nú lokið í stærð XS og S. Í öðrum stærðum er UMFERÐ 3 prjónið 1 sinni til viðbótar = 27-28-29-30-30-32-32 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. HÆGRI KANTLISTI AÐ FRAMAN: Fitjið upp 6 lykkjur á hringprjón 15. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 2 LYKKJUR I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist ca 8-8-8-8-8-9-9 cm – stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð frá röngu. Klippið þráðinn – látið lykkjurnar hvíla á þræði eða á hjálparprjóni. HÆGRA FRAMSTYKKI: Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt á borð með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði/hjálparprjóni snúi að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónað umferð innan við ystu lykkju (= 8-8-9-9-9-9-9 lykkjur fyrir öxl, endið með að prjóna yfir hægri kantlista að framan eins og áður (= 6 kantlykkjur að framan) = 14-14-15-15-15-15-15 lykkjur. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál, á milli axlar og kants að framan. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið 5 umferðir sléttprjón og kantlista að framan eins og áður (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Stykkið mælist ca 5 cm frá merki. Síðan eru lykkjur auknar út við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, endið með kantlista að framan eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kantlista að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir, endið með kantlista að framan eins og áður. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið kantlista að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 2 sinnum (= 8 umferðir prjónaðar) = 16-16-17-17-17-17-17 lykkjur. Stykkið mælist ca 14 cm. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstri öxl prjónuð meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI KANTLISTI AÐ FRAMAN: Fitjið upp 6 lykkjur á hringprjón 15. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= rétta): 2 lykkjur i-cord, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist ca 8-8-8-8-8-9-9 cm – stillið af að síðasta umferðin sé frá röngu. Ekki klippa þráðinn – látið lykkjurnar hvíla á þræði eða á hjálparprjóni. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Byrjið á að nota hringprjón 15, prjónið lykkjur frá kantlista að framan frá réttu eins og áður (= 6 lykkjur), haldið síðan áfram að prjóna upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju meðfram öxl niður að handvegi (= 8-8-9-9-9-9-9 lykkjur) = 14-14-15-15-15-15-15 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál á milli kantlista að framan og axlar. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið 5 umferðir sléttprjón og kantlista að framan eins og áður (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Stykkið mælist ca 5 cm frá merki. Síðan eru lykkjur auknar út við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kantlista að framan eins og áður, prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið kantlista að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið kantlista að framan eins og áður, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið kantlista að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 2 sinnum (= 8 umferðir prjónaðar) = 16-16-17-17-17-17-17 lykkjur. Stykkið mælist ca 14 cm. Nú eru framstykkin og bakstykkið sett saman og prjóna á lykkjur upp fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kantlista að framan eins og áður, prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á framstykki, setjið 1 merki í umferð, prjónið 1 lykkju slétt (= tilheyrir ermi), prjónið upp 10 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), prjónið fyrstu lykkju frá bakstykki slétt (= tilheyrir ermi), setjið 1 merki í umferð, prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á bakstykki, setjið 1 merki í umferð, prjónið 1 lykkju slétt (= tilheyrir ermi), prjónið upp 10 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), prjónið fyrstu lykkju frá hægra framstykki slétt (= tilheyrir ermi), setjið 1 merki í umferð, prjónið slétt yfir framstykki þar til 7 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 1 lykkju slétt, endið með kantlista að framan eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kantlista að framan eins og áður, prjónið brugðið þar til 6 lykkjur eru eftir, endið með kantlista að framan eins og áður. Aukið hefur verið út alls 3 sinnum fyrir v-hálsmáli. Það eru 12 lykkjur fyrir hvora ermi, 25-26-27-28-28-30-30 lykkjur fyrir bakstykki og 16-16-17-17-17-17-17 lykkjur fyrir hvort framstykki = 81-82-85-86-86-88-88 lykkjur. Nú er prjónað áfram með útaukningu eins og útskýrt er að neðan. Aukið er út á fram- og bakstykki og ermar innan við 2 lykkjur sléttprjón á framstykkjum/bakstykki og ermum. Prjónið þannig – JAFNFRAMT er haldið áfram að auka út fyrir v-hálsmáli í 4. hverri umferð 3-3-3-3-3-4-4 sinnum til viðbótar (= alls 6-6-6-6-6-7-7 sinnum í hvorri hlið fyrir v-hálsmáli). Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merki yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður út umferðina (= 8 lykkjur fleiri) – ATH: Munið eftir að auka út fyrir v-hálsmáli eins og útskýrt er að ofan. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kantlista að framan eins og áður, prjónið brugðið þar til 6 lykkjur eru eftir, endið með kantlista að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-7-8-8-9-10-11 sinnum (= 12-14-16-16-18-20-22 umferðir). Útaukningu fyrir v-hálsmáli er einnig lokið. Það eru 24-26-28-28-30-32-34 lykkjur fyrir hvora ermi, 37-40-43-44-46-50-52 lykkjur fyrir bakstykki og 25-26-28-28-29-31-32 lykkjur fyrir hvort framstykki = 135-144-155-156-164-176-184 lykkjur. Ermin mælist ca 13-16-18-18-20-22-24 cm – þegar peysan er brotin saman tvöföld við öxl, á stykkið að mælast ca 20-23-25-25-27-29-31 cm frá yst á öxl og niður meðfram handvegi. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið að tilgreindu máli án útaukninga. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 25-26-28-28-29-31-32 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 24-26-28-28-30-32-34 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 2-2-2-4-6-6-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 37-40-43-44-46-50-52 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki), setjið næstu 24-26-28-28-30-32-34 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 2-2-2-4-6-6-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 25-26-28-28-29-31-32 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 91-96-103-108-116-124-132 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlista að framan eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62-64 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-3-4-3-3-3-3 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjur eru ekki auknar út yfir kantlista að framan), lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 og prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 8, prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt og 1 lykkja brugðið) – munið eftir útaukningunni, þar til 9 lykkjur eru eftir, endið með 3 lykkjur slétt og 6 kantlykkjur að framan eins og áður = 95-99-107-111-119-127-135 lykkjur. Prjónið alls 6 umferðir stroff – þ.e.a.s. síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 57-59-61-63-65-67-69 cm frá miðju að aftan og 60-62-64-66-68-70-72 cm frá efst á öxl. ERMAR: Setjið 24-26-28-28-30-32-34 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á prjón 15 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 2-2-2-4-6-6-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 26-28-30-32-36-38-42 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 2-2-2-4-6-6-8 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 0-0-0-1-2-2-2 sinnum, fækkið síðan um 1 lykkju til skiptis á undan og á eftir merkiþræði í 5. hverjum cm alls 2-2-2-2-2-2-4 sinnum = 24-26-28-28-30-32-34 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 38-36-34-34-33-31-30 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8 og prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-2-4-4-2-4-2 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 = 28-28-32-32-32-36-36 lykkjur. Prjónið alls 6 umferðir stroff. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist 43-41-39-39-38-36-35 cm frá skiptingunni og ca 56-57-57-57-58-58-59 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp á öxl. BELTI: Prjónið snúruprjón með 3 lykkjur á hringprjón 15 þannig: Fitjið upp 3 lykkjur og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan þannig: * Lyftið öllum 3 lykkjunum aftur yfir á vinstri prjón, herðið á þræði og prjónið slétt yfir allar lykkjur *, prjónið frá *-* þar til beltið mælist 170-180-190-200-215-230-245 cm – togaðu aðeins af og til í beltið á meðan þú prjónar. Klippið og festið þráðinn. Hægt er að draga beltið í gegnum nokkrar lykkjur í hvorri hlið á fram- og bakstykki. FRÁGANGUR: Saumið saman kantlista að framan frá hvoru framstykki – saumur = miðja að aftan, saumið síðan kantlistann við lykkjur aftan í hnakka. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #silvernightcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 271-42
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.