Lucia skrifaði:
Scusi io le ho chiesto come mai il grafico fa vedere che il davanti e il dietro sono uguali ma le istruzioni dicono che il davanti è più scollato del dietro grazie
18.05.2026 - 23:15
Lucia skrifaði:
Buongiorno, sto facendo questa maglia, dalle foto non si vede il dietro della maglia. È più scollata davanti che dietro? Dal grafico sembrano uguali. Nmion avete una foto del dietro? Grazie
17.05.2026 - 23:15DROPS Design svaraði:
Buonasera Lucia, al momento non sono disponibili ulteriori foto. Buon lavoro!
18.05.2026 - 22:38
Ariane skrifaði:
Bonjour, combien de pelotes environ pour ce modèle avec la laine que vous indiquez ? Merci !
13.04.2026 - 18:09DROPS Design svaraði:
Bonjour Ariane, vous trouverez la quantité requise pour chaque taille, du XS au XXXL, sous l'onglet "Explications" en haut de page, en même temps que les aiguilles et l'échantillon. Il faudra par ex en XS et S 150 g DROPS Safran/50 g la pelote = 3 pelotes Safran pour ces 2 tailles. Bon tricot!
14.04.2026 - 08:39
Quiet Break Top#quietbreaktop |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður toppur úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-17 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka hvort fyrir sig fram og til baka. Hlýrar á öxlum á framstykki eru saumaðir saman við affellingarkantinn á bakstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 214-234-258-280-308-342-376 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Safran. Skiptið yfir í hringprjón 2,5 og prjónið stroff í hring (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Skipið yfir í hringprjón 3,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 30-34-38-40-44-50-56 lykkjur jafnt yfir í umferð = 184-200-220-240-264-292-320 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 27-28-29-30-31-32-33 cm frá uppfitjunarkanti. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið nú stroffprjón í hliðunum þannig: Prjónið 25-25-33-37-45-49-53 lykkjur stroffprjón (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt – þ.e. fyrsta og síðasta lykkjan eru 1 lykkja brugðin), prjónið 67-75-77-83-87-97-107 lykkjur sléttprjón, prjónið 25-25-33-37-45-49-53 lykkjur stroffprjón (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt – þ.e. fyrsta og síðasta lykkjan eru 1 lykkja brugðin), prjónið 67-75-77-83-87-97-107 lykkjur sléttprjón. Haltu áfram í hring svona í 2 cm, stykkið mælist ca 29-30-31-32-33-34-35 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið nú af fyrir handveg og skiptið stykkinu í framstykki og bakstykki þannig: Prjónið 9-9-11-11-13-13-13 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, fellið af næstu 7-7-11-15-19-23-27 lykkjur, prjónið 9-9-11-11-13-13-13 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, prjónið 67-75-77-83-87-97-107 lykkjur sléttprjón, prjónið 9-9-11-11-13-13-13 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, fellið af næstu 7-7-11-15-19-23-27 lykkjur, prjónið 9-9-11-11-13-13-13 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, prjónið 67-75-77-83-87-97-107 lykkjur sléttprjóni, prjónið 9-9-11-11-13-13-13 lykkjur sléttprjón eins og áður. Það eru 85-93-99-105-113-123-133 lykkjur bæði fyrir framstykki og bakstykki og 9-9-11-11-13-13-13 lykkjur stroffprjón í hvorri hlið. Prjónið síðan framstykkið og bakstykkið fram og til baka hvort í sínu lagi. BAKSTYKKI: = 85-93-99-105-113-123-133 lykkjur. Prjónið svona jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir handveg, bæði frá réttu og röngu: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 lykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið 8-8-10-10-12-12-12 lykkjur stroffprjón eins og áður, 2 lykkjur brugðið saman, prjónið sléttprjón þar til 11-11-13-13-15-15-15 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman, prjónið 8-8-10-10-12-12-12 lykkjur stroffprjón eins og áður, prjónið 1 lykkju garðaprjón (= 2 lykkjur færri). UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið 8-8-10-10-12-12-12 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna, prjónið eins og áður þar til 11-11-13-13-15-15-15 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 8-8-10-10-12-12-12 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni (= 2 lykkjur færri). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-1-1-2-4-6-8 sinnum (= 2-2-2-4-8-12-16 umferðir) = 81-89-95-97-97-99-101 lykkjur. Fækkið síðan lykkjum aðeins frá réttu þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, prjónið 8-8-10-10-12-12-12 lykkjur stroffprjón eins og áður, prjónið sléttprjón þar til 9-9-11-11-13-13-13 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 8-8-10-10-12-12-12 lykkjur stroffprjón eins og áður, prjónið 1 lykkju garðaprjón. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, prjónið 8-8-10-10-12-12-12 lykkjur stroff eins og áður, takið 1 lykkju af prjóninum, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið mynstur eins og áður þar til 11-11-13-13-15-15-15 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 8-8-10-10-12-12-12 lykkjur stroff eins og áður, prjónið 1 lykkju garðaprjón (= 2 lykkjur færri). Prjónið umferð 1 og 2 alls 6-8-9-9-7-7-6 sinnum (= 12-16-18-18-14-14-12 umferðir) = 69-73-77-79-83-85-89 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón, stroffprjón og garðaprjón eins og áður án þess að fækka lykkjum þar til stykkið mælist 41-43-45-47-49-51-53 cm frá uppfitjunarkanti – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Prjónið nú stroff. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 1 lykkja er eftir í umferð, prjónið 1 lykkju garðaprjón. Prjónið stroff með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið fram og til baka í 2 cm. Fellið af. Stykkið mælist 43-45-47-49-51-53-55 cm frá uppfitjunarkanti. FRAMSTYKKI: = 85-93-99-105-113-123-133 lykkjur. Prjónið á sama hátt og bakstykkið þar til stykkið mælist 38-39-40-41-43-44-45 cm frá uppfitjunarkanti – prjónið síðustu umferð frá röngu = 69-73-77-79-83-85-89 lykkjur í umferð. Prjónið nú stroff. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 1 lykkja er eftir í umferð, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið fram og til baka í 2 cm – prjónið síðustu umferð frá röngu. Stykkið mælist 40-41-42-43-45-46-47 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið nú af fyrir hálsmáli, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 8-8-10-10-12-12-12 lykkjur (= 9-9-11-11-13-13-13 lykkjur fyrir vinstri hlýra), fellið af næstu 51-55-55-57-57-59-63 lykkjur – það eru 9-9-11-11-13-13-13 lykkjur eftir í umferð, prjónið stroffprjón eins og áður yfir næstu 8-8-10-10-12-12-12 lykkjur, endið með 1 lykkju garðaprjón (= 9-9-11-11-13-13-13 lykkjur fyrir hægri hlýra). HÆGRI HLÝRI: Prjónið með fyrstu umferð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 7-7-9-9-11-11-11 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, 1 lykkja í garðaprjóni. Prjónið svona fram og til baka án þess að fækka lykkjum þar til stykkið mælist 49-51-53-55-57-59-61 cm frá uppfitjunarkantinum. Fellið af. VINSTRI HLÝRI: Prjónið á sama hátt og hægri hlýri. FRÁGANGUR: Saumið hlýrana yst í hvora hlið á bakstykki – saumið lykkju á móti lykkju. Ca 3 cm að hlýra kemur til með að teygja sig yfir á bakhlið á stykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #quietbreaktop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.