Sunset Sorbet Sweater#sunsetsorbetsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð stór / oversize peysa úr DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og röndum í litatónum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-17 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR-1 (berustykki og fram- og baksykki): Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni með 3 þráðum DROPS Kid-Silk í eftirfarandi litum: 12 cm með 3 þráðum í litnum Ljós Ferskja, 4 cm með 2 þráðum í litnum Ljós Ferskja + 1 þræði í litnum Ljós Lavender, 4 cm með 2 þráðum í litnum Pastelbleikur + 1 þræði í litnum Ljós Lavender, 12-14-16-17-19-21-23 cm með 3 þráðum í litnum Pastelbleikur (skipting fyrir fram- og bakstykki og ermar er gerð í þessari rönd), 4 cm með 2 þráðum í litnum Pastelbleikur + 1 þræði í litnum Ljós Lavender, 4 cm með 2 þráðum í litnum Ljós Lavender + 1 þræði í litnum Pastelbleikur, prjónið að tilgreindu loka máli með 3 þráðum í litnum Ljós Lavender. RENDUR-2 (= ermar): Haldið áfram með síðasta lit í síðustu röndinni frá berustykki, þ.e.a.s. 3 þræðir í litnum Pastelbleikur, þar til ermin mælist 24-23-22-23-23-21-22 cm frá skiptingunni, 4 cm með 2 þráðum í litnum Pastelbleikur + 1 þræði í litnum Ljós Lavender, 4 cm með 2 þráðum í litnum Ljós Lavender + 1 þræði í litnum Pastelbleikur, prjónið að tilgreindu loka máli með 3 þráðum í litnum Ljós Lavender. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þegar lykkjum er aukið út jafnt yfir út í skiptinguna yfir í stroff er mikilvægt að auka út þar sem lykkjurnar verða síðar prjónaðar brugðið, sléttprjónið heldur þá fallega áfram inn í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72-76-76-84-84-88-88 lykkjur á hringprjón 4 með 3 þráðum DROPS Kid-Silk í litnum Ljós Ferskja. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2-2-2-2-3-3-3 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 25-26-26-29-29-30-30 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 5,5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 13-13-13-15-15-15-15 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 21-23-23-25-25-27-27 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 13-13-13-15-15-15-15 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 21-23-23-25-25-27-27 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Nú er prjónað sléttprjón og RENDUR-1 hringinn jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan með útskýringu hvernig auka á út og útskýringu á röndum, prjónið eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og RENDUR-1 og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir lykkju með 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan lykkju með 1. merki. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og rendur (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 6-5-5-9-14-14-16 sinnum (= 12-10-10-18-28-28-32 umferðir prjónaðar) = 120-116-116-156-196-200-216 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og rendur og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og rendur. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og rendur og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjum er ekki aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón og rendur. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 8-9-10-8-6-7-7 sinnum (= 32-36-40-32-24-28-28 umferðir prjónaðar = 8-9-10-8-6-7-7 sinnum útaukning á ermum og 16-18-20-16-12-14-14 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 216-224-236-252-268-284-300 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út 22-23-25-25-26-28-30 sinnum á framstykki/bakstykki og 14-14-15-17-20-21-23 sinnum á ermum. Stykkið mælist ca 23-24-26-26-27-29-29 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkinu er skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að vera aðeins staðsettar inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT því sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1-1-1-2-3-4-5 lykkjur sléttprjón (þessar lykkjur tilheyra bakstykki), setjið næstu 41-41-43-47-51-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 67-71-75-79-83-91-97 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 41-41-43-47-51-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 66-70-74-77-80-87-92 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 150-162-174-186-198-218-234 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 8-10-12-14-16-18-20 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Byrjið umferð við merki og haldið áfram í sléttprjóni og RENDUR-1 hringinn. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-55-56-58-60 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 30-32-34-36-38-40-46 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 180-194-208-222-236-258-280 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5, prjónið 1 umferð slétt og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist 52-54-56-57-59-61-63 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 56-58-60-62-64-66-68 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 41-41-43-47-51-51-53 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 49-51-55-61-67-69-73 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón og RENDUR-2 hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2-2-2-3-5-4-4 sinnum í annarri hverri umferð = 45-47-51-55-57-61-65 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 42-41-40-41-40-38-39 cm frá skiptingunni – munið eftir röndum. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 9-9-9-9-11-11-13 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 54-56-60-64-68-72-78 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5, prjónið 1 umferð slétt og fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 44-43-42-43-43-41-42 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunsetsorbetsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.