Jebel Saghro skrifaði:
I've reached the part where I need to divide body and sleeves in the yoke. And I can't tell where the new chain stitches go. Is there a diagram please as im a bit stuck here
20.02.2026 - 20:46
Christina Dam skrifaði:
Forstår ikke denne sætning hækl til sidst 2 halvstangmasker om de 2 luftmasker fra begyndelsen af omgangen = 108-112-116-122-128-132-136 halvstangmasker
16.01.2026 - 22:22DROPS Design svaraði:
Hei Christina. På begynnelsen av 1. omgang startet du med 2 luftmasker, deretter hekles det halvstangmaske i hver maske omgangen rundt. På slutten av omgangen hekles det 2 halvstangmaske om/rundt (ikke i) de 2 luftmaskene du startet omgangen med. mvh DROPS Design
29.01.2026 - 14:12
Liz skrifaði:
The neck is too tight so it will not go over my head I would have to double my chain stitches to get ir wide enough to fit over the head . There is no stretch to the yarn .
04.01.2026 - 23:57DROPS Design svaraði:
Dear Liz, the number of stitches should be correct. Sometimes the crochet gauge may get too tight, so you need to ensure that you are not tightening the stitches too much, or the head won't fit. Ensure that the chain stitch is as long as the width of the half-treble crochets. If this still won't fit, you can work extra chain stitches and then skip them on the first round to ensure that you have the correct number of half-treble crochets. You can also make the initial chain stitches with a bigger hook, to ensure that they aren't too tight. Happy crochetting!
05.01.2026 - 00:03
Liz skrifaði:
When I do the first row after chain row I can’t put it over my head what am I doing wrong .
04.01.2026 - 12:59DROPS Design svaraði:
Dear Liz, could you specify what problem you have with the first round? You start with a chain and 1 slip stitch in the first chain stitch, to form a ring. Work 2 chain stitches to elevate the round for working half-treble crochets, then work 1 half treble crochet in each chain stitch and finish with 2 half-treble crochets around the initial 2 chain stitches of this round. Happy crochetting!
04.01.2026 - 23:50
Ela skrifaði:
Dobrý den, když mám u sedla svetru přidávat například po 4 cm, mám přidat v řadě kde doháčkovávám do 4 cm nebo až po uháčkování 4 cm dlouhých sloupků? Děkuji
22.12.2025 - 14:18
Émeline skrifaði:
Bonjour, Après avoir crocheté l'empiècement jusqu'à 23 cm (sous aisselles) et divisé le dos/devant des manches, je continue en spirale le dos/devant. Cependant mon ouvrage s'agrandit naturellement !! Je ne comprends pas pourquoi, pourriez vous m'éclairer sur mon erreur svp ? Merci bien .
18.12.2025 - 20:46DROPS Design svaraði:
Bonjour Émeline, vous devez toujours bien conserver le bon nombre de mailles (soit, sauf erreur de ma part 236 brides dans la 3ème taille); peut-être que cette vidéo peut vous aider? Bon crochet!
19.12.2025 - 17:15
Jiwon skrifaði:
Thx
08.10.2025 - 17:06
Seafoam Serenity Sweater#seafoamserenitysweater |
|
![]() |
![]() |
Hekluð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er heklað ofan frá og niður í stuðlum með hringlaga berustykki og krabbahekli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-33 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR (stuðlar í spíral): Þegar heklað er í hring í spíral án þess að enda umferðina, setjið 1 merkiþráð eða merki í byrjun á umferð til að auðveldara sé að sjá hvar umferðin byrjar. Umferðin endar ekki á venjulegan máta, heldur er 1. stuðull í byrjun á næstu umferð heklaður í 1. stuðul frá fyrri umferð. Í síðustu umferð er heklað til að koma í veg fyrir hak í skiptingunni þannig: Heklið þar til 2 stuðlar eru eftir, heklið 1 hálfan stuðul í næsta stuðul, heklið 1 fastalykkju í síðasta stuðul og endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. stuðul í byrjun á umferð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju. Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út yfir (t.d. 116 stuðlar) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 26) = 4,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla til skiptis í 4. og 5. hvern stuðul. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um fram- og bakstykki): Aukið út 1 lykkju hvoru megin við hvern merkiþráð með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju þannig: Byrjið 4 stuðlum á undan 1. merkiþræði, heklið 2 stuðla í næsta stuðul, heklið 6 stuðla eins og áður (merkiþráðurinn situr fyrir miðju í þessum 6 stuðlum), heklið 2 stuðla í næsta stuðul. Endurtakið við merkiþráðinn í gagnstæðri hlið (= 4 lykkjur fleiri). KRABBAHEKL (fastalykkjur): Heklið fastalykkjur, en lykkjurnar eru heklaðar frá vinstri til hægri. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um ermar): Þegar heklað er í hring þá kemur umferðin til með að færast til. Setjið merkiþráð fyrir miðju undir ermi, á milli 2 lykkja og látið þennan merkiþráð fylgja áfram með lóðrétt fyrir miðju undir ermi – það á að færa merkiþráðinn til þannig að hann verði allan tímann lóðréttur neðan / undir ermi. Leggið stykkið flatt og athugið að merkiþráðurinn sé fyrir miðju undir ermi þegar lykkjum er fækkað. Lykkjum er fækkað hvoru megin við 2 stuðla við merkiþráðinn þannig: Heklið þar til 3 stuðlar eru eftir á undan merkiþræði, heklið 2 stuðla saman – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2, heklið 2 stuðla (merkiþráðurinn situr á milli þessa stuðla), heklið 2 stuðla saman (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman í 1 lykkju þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum fyrstu 2 lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er heklað í hring frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið heklað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið og ermar er síðan heklað í hring hvort fyrir sig. Í lokin er heklaður kantur í hálsmáli. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BERUSTYKKI: Heklið 106-110-114-120-126-130-134 LOFTLYKKJUR – lesið leiðbeiningar að ofan, með heklunál 3,5 með DROPS Alpaca og tengið lykkjurnar í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 2 loftlykkjur, heklið 1 hálfan stuðul í hverja af 106-110-114-120-126-130-134 loftlykkjum í loftlykkjuhringnum, heklið í lokin 2 hálfa stuðla um 2 loftlykkjur frá byrjun umferðar = 108-112-116-122-128-132-136 hálfir stuðlar. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 36-37-39-41-43-44-45 hálfa stuðla í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið síðan í hring með stuðlum í spíral. Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern hálfan stuðul og aukið út 26-26-28-30-32-34-36 stuðla jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 = 134-138-144-152-160-166-172 stuðlar. Heklið hringinn með 1 stuðul í hvern stuðul. Munið að fylgja heklfestunni. Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-5-5-5 cm frá merki, aukið út 36-38-42-48-52-56-60 stuðla jafnt yfir í umferð = 170-176-186-200-212-222-232 stuðlar. Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-8-8-8 cm frá merki, aukið út 44-48-54-58-62-66-70 stuðla jafnt yfir í umferð = 214-224-240-258-274-288-302 stuðlar. Þegar stykkið mælist 10-11-12-12-13-13-13 cm frá merki, aukið út 36-40-44-48-54-60-62 stuðla jafnt yfir í umferð = 250-264-284-306-328-348-364 stuðlar. Þegar stykkið mælist 14-15-16-16-17-18-19 cm frá merki, aukið út 22-24-28-30-34-40-46 stuðla jafnt yfir í umferð = 272-288-312-336-362-388-410 stuðlar. Þegar stykkið mælist 18-19-21-21-22-23-25 cm frá merki, aukið út 18-20-24-26-30-34-38 stuðla jafnt yfir í umferð = 290-308-336-362-392-422-448 stuðlar. Heklið síðan í hring með stuðla í spíral. Þegar berustykkið mælist 20-21-23-23-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að framan skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er hekluð, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið 12-14-14-16-18-20-22 nýjar loftlykkjur (= í hlið fyrir miðju undir ermi), hoppið yfir fyrstu 56-58-64-70-76-80-82 stuðla í umferð (= fyrir ermi), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 89-96-104-111-120-131-142 stuðlum, heklið 12-14-14-16-18-20-22 nýjar loftlykkjur (= í hlið fyrir miðju undir ermi), hoppið yfir næstu 56-58-64-70-76-80-82 stuðla (= fyrir ermi) og heklið 1 stuðul í hvern af síðustu 89-96-104-111-120-131-142 stuðlum (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú heklað hvert fyrir sig og byrjun á umferð er í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið síðan í hring í spíral með 1 stuðul í hvern stuðul, í umferð 1 er einnig heklaður 1 stuðull í hverja af 12-14-14-16-18-20-22 nýjar loftlykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi = 202-220-236-254-276-302-328 stuðlar. Heklið stuðla í hring þar til stykkið mælist 30-31-32-33-34-35-36 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú á að setja 1 merkiþráð í hvora hlið þannig: Leggið stykkið flatt og setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi á milli 2 stuðla. Aukið er út um 1 stuðul hvoru megin við hvorn merkiþráð (= 4 lykkjur fleiri) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Aukið svona út alls 2-2-3-3-3-3-3 sinnum í 5. hverjum cm = 210-228-248-266-288-314-340 stuðlar. Heklið stuðla hringinn eins og áður þar til stykkið mælist 26-27-27-28-29-29-29 cm frá þar sem nýjar loftlykkjur voru fitjaðar upp undir ermi – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR þegar enda á síðustu umferð. Peysan mælist ca 51-53-55-57-59-61-63 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Nú er heklað í 56-58-64-70-76-80-82 lykkjurnar sem hoppað var yfir fyrir ermi í annarri hliðinni á stykkinu þannig: Festið þráðinn með 1 fastalykkju í 7-8-8-9-10-11-12 loftlykkjur af 12-14-14-16-18-20-22 loftlykkjum sem heklaðar voru fyrir miðju undir ermi, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 4-5-5-6-7-8-9 loftlykkjum, heklið síðan 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í síðust loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar á sama hátt um stuðul í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (þetta er gert til að það verði eins lítið op og mögulegt er í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi), heklið 1 stuðul í hvern af 56-58-64-70-76-80-82 stuðlum frá berustykki fram að loftlykkjum í annarri hliðinni á erminni, heklið 2 stuðla saman á sama hátt í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi, í lokin er heklaður 1 stuðull í hverja af síðustu 5-6-6-7-8-9-10 loftlykkjum undir ermi = 68-72-78-86-94-100-104 lykkjur. Það á að hekla stuðla hringinn í spíral án þess að enda umferðina á sama hátt og á fram- og bakstykki, byrjið næstu umferð með að hekla 1. stuðul í 1. fastalykkju frá fyrri umferð. Heklið hringinn með 1 stuðul í hvern stuðul – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 stuðla í hverjum 10-10-8-5-3½-3-2½ cm alls 2-3-5-8-11-13-14 sinnum = 64-66-68-70-72-74-76 stuðlar. Heklið síðan þar til ermin mælist 44-44-42-43-43-41-40 cm frá skiptingunni. Heklið 1 umferð þannig: * 1 stuðull í hvern og einn af næstu 5-6-6-6-6-7-7 stuðla, heklið 2 stuðla saman – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 * heklið frá *-* alls 8 sinnum þar til eftir eru 8-2-4-6-8-2-4 stuðlar í umferð, heklið 1 stuðul í hvern og einn af næstu 6-0-2-4-6-0-2 stuðlum, heklið 1 hálfan stuðul í næsta stuðul, heklið 1 fastalykkju í síðasta stuðul = 56-58-60-62-64-66-68 og endið umferðina með því að hekla 1 keðjulykkju í 1. stuðul í byrjun umferðar. Heklið 1 umferð KRABBAHEKL – lesið leiðbeiningar að ofan. Ermin mælist ca 45-45-43-44-44-42-41 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið heklunál 3,5 og byrjið frá réttu fyrir miðju að aftan og heklið 1 stuðul í hvern hálfan stuðul umferðina hringinn = 108-112-116-122-128-132-136 stuðlar. Endið umferð með að hekla 1 keðjulykkju í fyrsta stuðul í umferð. Síðan er hekluð 1 umferð KRABBAHEKL. Klippið og festið þráðinn. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seafoamserenitysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.