Thi San Pham skrifaði:
Hallo, gibt es eigentlich einen Video zu diesem symmetrischen zunahmen? Ich verstehe die Beschreibung nicht? Vielen Dank schon mal im voraus. LG San
07.02.2026 - 21:34
Anne-Marie skrifaði:
For: Marshmallow Muse Sweater I would love to make this with a drops single yarn....would you have recommendations . Thankyou in advance!
30.01.2026 - 17:40
Ginette Archambault skrifaði:
What do you mean by knitting 3 strands of kid silk a+a+a . are these knit together or one at a time
17.01.2026 - 14:48DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Archambault, kid-Silk belong to our yarn group A (read more about groups here) and the sweater is here worked with 3 strands of yarn worked together (see video here), so you can use any other yarn same group, use the yarn converter if needed. Happy knitting!
19.01.2026 - 08:50
Berit S Brygard skrifaði:
Finnes det oppskrift på denne genseren hvor jeg kan begynne nede på genseren ?
10.01.2026 - 15:16DROPS Design svaraði:
Hei Berit, Vi har ikke akkurat denne oppskriften strikket nedenfra og opp, men her er en lenke til en som er ganske lik: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=12172&cid=1 Hilsen Drops Team.
12.01.2026 - 07:18
Svitlana skrifaði:
Witam, ile włóczki drona kid silk potrzebuje zamówić na ten sweterek w rozmiarze L?
02.01.2026 - 12:45DROPS Design svaraði:
Witaj Svitlano, na rozmiar L potrzebujesz 300 g włóczki DROPS Kid-Silk co daje 12 motków. Pozdrawiamy!
02.01.2026 - 12:51
Bourlet skrifaði:
Bonjour Est il possible de tricoter ce pull avec 2 fils de brushed alpaca silk car je ne supporte pas le mohair Merci d’avance pour votre réponse
24.11.2025 - 18:13DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bourlet, vous pouvez bien sur. N'oubliez pas de faire un echantillon et adapter le numero des aiguilles si necessaire. Bon tricot!
30.11.2025 - 18:45
Tillie skrifaði:
Hello! Since this is knitted 3 strands together does that mean I need to 225 of yarn times 3 or 225 total?
18.11.2025 - 19:39DROPS Design svaraði:
Hi Tillie, You need 225g in total. Regards, Drops Team.
19.11.2025 - 06:59
Marshmallow Muse Sweater#marshmallowmusesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki og hringlaga affellingu. Stærð XS - XXXL.
DROPS 264-9 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þessi samhverfa útaukning býr til 1 nýja lykkju. Fylgdu leiðbeiningum 1 - 4 að neðan: 1. Haldið þræðinum sem prjónað er með aftan við stykkið. Lyftið yfir fyrstu lykkju á vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. 2. Stingið vinstri prjóni aftan við lyftu lykkjuna og inn á milli lyftu lykkjunnar og næstu lykkju á hægri prjóni. 3. Myndið nýja lykkju með uppslætti með þræðinum sem prjónað er með utan um hægri prjón og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna þannig að það myndast 1 ný lykkja á hægri prjóni. 4. Sleppið fremri lykkjuboganum á vinstri prjóni af og prjónið síðan 1 lykkju slétt í fremri hlutann á hinum lykkjuboganum. Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HRINGLAGA AFFELLING – (lykkjurnar eru teknar upp frá röngu og affellingin gefur hringlaga kant á réttu þannig að stykkið rúllast ekki upp): Affellingsumferð: Finnið lykkjuna sem liggur 2 umferðum beint fyrir neðan næstu lykkju á prjóni. Takið þessa lykkju upp í efsta lykkjubogann frá röngu og lyftið henni upp á vinstri prjón. Prjónið lykkjubogann og fyrstu lykkju slétt saman. * Takið upp næstu lykkju í lykkjubogann á sama hátt og prjónið hana saman með næstu lykkju í umferð. Fellið af með því að lyfta 1. lykkju yfir 2. lykkju *. Endurtakið frá *-* þar til allar lykkjur hafa verið felldar af. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 74-76-80-84-88-90-94 lykkjur á hringprjón 4,5 með 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 4 umferðir slétt. Prjónið 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Setjið 1 merki eftir ca 25-26-27-28-30-30-32 lykkjur (= ca fyrir miðju að framan), merkin eru notuð til að mæla frá. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 7-14-16-21-20-24-29 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 81-90-96-105-108-114-123 lykkjur. Prjónið 2-2-2-2-2-2-2 cm sléttprjón. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið næstu umferð þannig: * 2 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju í næstu lykkju – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING *, prjónið frá *-* alls 27-30-32-35-36-38-41 sinnum = 108-120-128-140-144-152-164 lykkjur. Prjónið 3-3-3-3-3-3½-4 cm sléttprjón. Prjónið næstu umferð þannig: * 3 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju í næstu lykkju *, prjónið frá *-* alls 27-30-32-35-36-38-41 sinnum = 135-150-160-175-180-190-205 lykkjur. Prjónið 3-3-3-3-3-3-4 cm sléttprjón. Prjónið næstu umferð þannig: * 4 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju í næstu lykkju *, prjónið frá *-* alls 27-30-32-35-36-38-41 sinnum = 162-180-192-210-216-228-246 lykkjur. Prjónið 3-3-3-3-3-3-4 cm sléttprjón. Prjónið næstu umferð þannig: * 5 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju í næstu lykkju *, prjónið frá *-* alls 27-30-32-35-36-38-41 sinnum = 189-210-224-245-252-266-287 lykkjur. Prjónið 3-3-3-3-3-3-4 cm sléttprjón. Prjónið næstu umferð þannig: * 6 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju í næstu lykkju *, prjónið frá *-* alls 27-30-32-35-36-38-41 sinnum = 216-240-256-280-288-304-328 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni án þess að auka út þar til berustykkið mælist 19-20-23-23-23-25-26 cm frá merki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 42-48-52-56-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 66-72-76-84-88-94-102 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 42-48-52-56-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 66-72-76-84-88-94-102 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-156-168-184-196-212-228 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 46-48-50-51-53-55-57 cm frá merki fyrir miðju að framan. Fellið af með HRINGLAGA AFFELLING – lesið leiðbeiningar að ofan. Peysan mælist 47-49-51-53-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 42-48-52-56-56-58-62 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 48-54-60-64-66-70-74 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur í hverjum 15-11-5-4½-4-3½-3 cm alls 3-4-7-8-9-10-11 sinnum = 42-46-46-48-48-50-52 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 47-46-44-45-45-44-43 cm frá skiptingunni. Fellið af með hringlaga affellingu. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #marshmallowmusesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.