Blue Coast Cardi#bluecoastcardigan |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er heklað ofan frá og niður með laskalínu, kanti að framan og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 259-33 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Munið að mynsturteikningin er lesin frá hægri til vinstri frá réttu og frá vinstri til hægri frá röngu. LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. 2 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Til að loka gati, er heklað um hvern loftlykkjuboga þannig (á við um berustykki) eða í ystu loftlykkju (á við um ermi): * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni um loftlykkjubogann / í loftlykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum fyrstu 2 lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, það eru 3 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja). HEKLLEIÐBEININGAR (á við um ermar): Hver umferð byrjar með 3 loftlykkjum, þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðuls. Í lok umferðar er hekluð 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar, áður en stykkinu er snúið þannig að næsta umferð er hekluð frá hinni hliðinni á stykki. Umferðin er hekluð til skiptis frá réttu og frá röngu. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Lykkjum er fækkað í byrjun og lok umferðar þannig: Heklið fyrsta stuðul eins og áður (þ.e.a.s. 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul), heklið næstu 2 stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum fyrstu 2 lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, það eru 3 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri). Heklið eins og áður þar til 3 stuðlar eru eftir í umferð, fækkið um 1 stuðul til viðbótar á sama hátt og heklið 1 stuðul í síðasta stuðul í umferð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Öll peysan er hekluð fram og til baka frá miðju að framan og heklað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið heklað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað til loka niður á við og fram og til baka, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermarnar heklaðar í hring til skiptis frá réttu og röngu. Í lokin er heklaður kantur í kringum hálsmál. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BERUSTYKKI: Notið DROPS Cotton Merino og heklunál 4,5 og heklið 92-96-100-104-108-112 LOFTLYKKJUR – lesið leiðbeiningar að ofan. Allt stykkið er heklað í stuðlum til skiptis frá réttu og röngu - lesið MYNSTUR. Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 6 loftlykkjur (= kantur að framan), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 11-12-12-13-14-15 loftlykkjur (= hægra framstykki), A.2 í næstu loftlykkju (= laskalína), 1 stuðull í hverja af næstu 16-16-18-18-18-18 loftlykkjur (= ermi), A.3 í næstu loftlykkju (= laskalína), 1 stuðull í hverja af næstu 22-24-24-26-28-30 loftlykkjur (= bakstykki), A.2 í næstu loftlykkju (= laskalína), 1 stuðull í hverja af næstu 16-16-18-18-18-18 loftlykkjur (= ermi), A.3 í næstu loftlykkju (= laskalína), 1 stuðull í hverja af næstu 11-12-12-13-14-15 loftlykkjur (= vinstra framstykki), heklið A.4 yfir síðustu 6 loftlykkjur (= kantur að framan). Á eftir fyrstu umferð eru 2 stuðlar (= 6 lykkjur í hvorum kanti að framan), 84-88-92-96-100-104 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð. Haldið áfram fram og til baka þar til A.2 og A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina – munið eftir kanti að framan í hvorri hlið eins og áður. Þeru 140-144-148-152-156-160 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð + 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið, lykkjurnar skiptast niður á milli loftlykkjuboga þannig: 32-32-34-34-34-34 stuðlar fyrir hvora ermi, 38-40-40-42-44-46 fyrir bakstykki og 25-26-26-27-28-29 lykkjur fyrir hvort framstykki ásamt kanti að framan. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. Nú er heklað með A.5 yfir A.3 og A.6 yfir A.2 alls 9-10-11-12-13-15 sinnum á hæðina og heklaðar eru alls 14-15-16-17-18-20 umferðir frá byrjun á stykki. Það eru 248-264-280-296-312-340 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð + 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið og lykkjur skiptast niður á milli loftlykkjuboga þannig: 50-52-56-58-60-64 stuðlar fyrir hvora ermi og 74-80-84-90-96-106 stuðlar fyrir bakstykki og 43-46-48-51-54-59 lykkjur fyrir hvort framstykki meðtalinn kantur að framan. Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul og kanta að framan eins og áður, en til að loka gatinu þá er heklað 2 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN – lesið leiðbeiningar að ofan, um hvern loftlykkjuboga = 264-280-296-312-328-356 stuðlar meðtaldir kantar að framan. Stykkið mælist ca 19-20-21-23-24-26 cm miðja að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er hekluð, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið kant að framan eins og áður, heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 38-41-43-46-49-54 stuðla (= framstykki), hoppið yfir 50-52-56-58-60-64 stuðla (= ermi), heklið 4-4-6-8-12-12 loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 76-82-86-92-98-108 stuðla (= bakstykki), hoppið yfir 50-52-56-58-60-64 stuðla (= ermi), heklið 4-4-6-8-12-12 loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 38-41-43-46-49-54 stuðla (= framstykki). Nú er fram- og bakstykkið heklað til loka á meðan ermar eru látnar bíða. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 172-184-196-212-232-252 lykkjur. Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul / loftlykkju og kanta að framan eins og áður þar til peysan mælist ca 47-49-50-52-54-56 cm miðja að aftan. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá efst á öxl. ERMAR: Stillið umferðin af frá réttu eða röngu þannig að áferðin sem er á berustykki haldi áfram eins og áður á ermum. Byrjið með 1 keðjulykkju í 3-3-4-5-7-7 loftlykkju sem fitjuð var upp í hlið undir ermi á fram- og bakstykki (= ca fyrir miðju undir ermi), heklið 3 loftlykkjur (= jafngilda fyrsta stuðli), heklið 1 stuðul í hverja af 0-0-1-2-4-4 næstu loftlykkjur, heklið 2 stuðla saman í síðustu loftlykkju, heklið 1 stuðul í hvern 50-52-56-58-60-64 stuðlum sem hoppað var yfir á ermi, heklið 2 stuðla saman í fyrstu loftlykkju og heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 1-1-2-3-5-5 loftlykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-56-62-66-72-76 stuðlar. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan og endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. Setjið eitt merki í byrjun á stykki (= fyrir miðju undir ermi). Heklið hringinn til skiptis frá réttu og frá röngu í stuðlum eins og áður. Þegar ermin mælist ca 2 cm er fækkað um 1 stuðul hvoru megin við merki fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í ca hverjum 8-8-0-0-0-0 cm alls 2-2-1-1-1-1 sinnum = 50-52-60-64-70-74 stuðlar. Heklið þar til ermin mælist ca 16-16-16-14-14-12 cm frá skiptingunni Klippið frá og festið þráðinn. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið heklunál 4,5 og heklið 1 keðjulykkju í loftlykkju yst í hálsmáli í hægri kanti að framan. Heklið 1 loftlykkju,* hoppið yfir 1 loftlykkju frá uppfitjunarkanti og heklið 1 fastalykkju í næstu loftlykkju, heklið 1 loftlykkju *, heklið frá *-* meðfram öllu hálsmálinu, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu keðjulykkju í síðustu loftlykkju í vinstri kanti að framan. Klippið og festið þráðinn. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan, tölum er hneppt á milli 2 stuðla í hægri kanti að framan. Fyrsta talan er staðsett ca 2 cm frá kanti í hálsmáli, síðasta talan er staðsett ca 10 cm fyrir ofan neðri kant á peysu. Þær tölur sem eru eftir er skipt jafnt niður á milli fyrstu og síðustu tölu. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluecoastcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.