BAYE Sophie skrifaði:
Pour l' échantillon du carré j' arrive à 7 cm avec crochet 3 Pour le reste 10 cm vécu crochet 3,5 Puis je utiliser 2 tailles différentes de crochet Merci
12.05.2025 - 10:27
BAYE Sophie skrifaði:
Pour l' échantillon du carré j' arrive à 7 cm avec crochet 3 Pour le reste 10 cm vécu crochet 3,5 Puis je utiliser 2 tailles différentes de crochet Merci
12.05.2025 - 10:16DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Baye, vous pouvez tout à fait utiliser plusieurs tailles de crochet si besoin, notez toutefois qu'1 carré doit mesurer 6x6 cm, essayez peut-être avec un crochet plus petit pour avoir les 6x6 cm. Bon crochet!
12.05.2025 - 11:06
Beach Dream#beachdreamset |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður 2-stykkja kjóll úr DROPS Muskat. Stykkið er heklað neðan frá og upp með stuðlum og fastalykkjum með litlum hekluðum ferningum / ömmuferningum. Stærð S - XXXL.
DROPS 257-34 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Munið eftir að mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar heklað er frá röngu. LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju / hálfur stuðull / stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umferð með fastalykkjum byrjar með 1 loftlykkju, þessi loftlykkja kemur í stað fyrstu fastalykkju. Í lok umferðar er heklað með 1 keðjulykkju í þessa loftlykkju. Hver umferð með hálfum stuðlum byrjar með 2 loftlykkjur, þessar 2 loftlykkjur koma í stað fyrsta hálfa stuðul. Í lok umferðar er hekluð 1 keðjulykkja í 2. loftlykkju frá byrjun umferðar. Hver umferð með stuðlum byrjar með 3 loftlykkjur, þessar 3 loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul. Í lok umferðar er hekluð 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út yfir (t.d. 131 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 21,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla í ca 22. hverja lykkju. ÚRTAKA (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið heildarfjölda lykkja í umferð (t.d. 185 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 30,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að hekla ca 30. og 31. hverja lykkju saman þannig: Fækkið um 1 lykkju með því að hekla 2 stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum fyrstu / næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- 2-STYKKJA KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kjóllinn er heklaður í 2 stykkjum (toppur + pils). Kjólinn er hægt að nota sem 2-stykki sett eins og sýnt er á mynd, eða sauma saman þannig að stykkin hanga saman. Bæði í toppnum og pilsinu eru ferningarnir fyrst heklaðir og saumaðir saman í eina lengju / hring. Síðan er heklað í hring meðfram annarri hlið á hringnum, upp á við fyrir sjálfan toppinn / kjól, en til að ná fram réttu áferðinni er heklað í hring til skiptist frá réttu og frá röngu. Í lokin er heklað í hring meðfram hinni hliðinni á hringnum, niður á við að kanti. FERNINGAR TOPPUR: Notið heklunál 4 og DROPS Muskat. Heklið í hring eftir mynsturteikningu A.1. Klippið og festið þráðinn. Heklið alls 12-14-15-17-19-21 ferninga. FRÁGANGUR FERNINGAR TOPPUR: Passið uppá að allir ferningarnir liggi með réttuna út. Saumið ferningana saman einn og einn þannig að þeir myndi langa lengju – saumið 1 spor í hverja lykkju. Lengdin á lengjunni á að jafngilda máli á toppi að neðan = ca 72-84-90-102-114-126 cm. Í lokin er fyrsti og síðasti ferningurinn á lengjunni saumaður saman, þannig að ferningarnir mynda hring. Nú á að hekla toppinn áfram í hring meðfram efri hlið á hringnum með ferningunum og upp að handvegi. TOPPUR: Byrjið frá réttu með 1 keðjulykkju í saumnum á milli 2 ferninga (þessi byrjun skilgreinir aðra hliðina á toppnum), lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 131-151-161-183-205-227 fastalykkjur meðfram kanti á hring – lykkjurnar skiptast þannig: Heklið 1 fastalykkju í sauminn á milli hverra ferninga og 10 fastalykkjur meðfram hverjum ferningi (þ.e.a.s. meðfram 1 ferningi eru heklaðar 2 fastalykkjur um hornbogann, 3 fastalykkjur um hvorn af næstu 2 loftlykkjubogum og 2 fastalykkjur um hornbogann), en til að lykkjufjöldinn gangi jafnt upp verður að hekla 1 fastalykkju færri yfir 1-3-4-4-4-4 ferninga jafnt yfir. Nú er heklað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og heklið frá réttu þannig: Heklið A.2A í fyrstu lykkju, heklið A.2B umferðina hringinn. Haldið svona áfram með mynstur og athugið vel að eftir 2. umferð er stykkinu snúið þannig að síðasta umferð í A.2 er hekluð frá röngu. Þegar A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið þannig: Heklið A.3A í fyrstu lykkju, heklið A.3B umferðina hringinn. Haldið svona áfram með mynstur, til skiptis 1 umferð fastalykkjur frá réttu og 1 umferð stuðlar frá röngu. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. Jafnframt í 2. umferð með stuðlum í A.3 er aukið út um 6-4-6-4-4-4 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Heklið 5 umferðir án útaukningar. Í næstu umferð með stuðlum er aukið út um 6-4-6-4-4-4 lykkjur jafnt yfir = 143-159-173-191-213-235 lykkjur. Heklið A.3 síðan eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm (ásamt kanti með hekluðum ferningum), endið umferð með fastalykkjum frá réttu. Klippið og festið þráðinn. KANTUR NEÐST TOPPUR: Nú er heklaður kantur neðst meðfram annarri hlið á hringnum með ferningum (finnið sömu 2 ferningana þar sem byrjað var á milli þegar efstu stykkin voru hekluð). Byrjið frá réttu með 1 keðjulykkju í saumnum á milli 2 ferninga, munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 131-151-161-183-205-227 fastalykkjur meðfram kanti á hring – lykkjurnar skiptast á sama hátt eins og meðfram ofan á hringnum. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.4A í fyrstu lykkju, heklið A.4B umferðina hringinn. Haldið svona áfram með mynstur (hver umferð er hekluð frá réttu) þar til A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina, ekki klippa þráðinn. Nú er heklaður blúndukantur eins og útskýrt er að neðan. BLÚNDUKANTUR NEÐST TOPPUR: Heklið A.5A í fyrstu lykkju, heklið A.5B umferðina hringinn, stillið af það loftlykkjubogarnir verði á sléttri tölu í umferð. Heklið A.5 til loka á hæðina. Klippið og festið þráðinn. AXLABAND TOPPUR: Fyrst er heklað band fram og til baka með fastalykkjum og stuðlum, síðan er heklaður blúndukantur meðfram langhlið á bandinu. Notið heklunál 4 og DROPS Muskat. Heklið 47-51-53-57-61-67 LOFTLYKKJUR – lesið leiðbeiningar að ofan (loftlykkjuröðin á að mælast ca 26-28-29-32-34-37 cm). Snúið stykkinu og heklið þannig: Heklið A.6A yfir fyrstu lykkju, heklið A.6B þar til eftir eru 2 lykkjur, heklið A.6C í síðustu 2 lykkjur, snúið stykkinu. Heklið svona fram og til baka (munið eftir að mynsturteikningin er lesin frá vinstri til hægri þegar heklað er frá röngu) og heklið þar til A.6 hefur verið heklað til loka á hæðina. Ef óskað er eftir breiðara bandi er hægt að endurtaka síðustu 2 umferðir í A.6 á hæðina að óskaðri breidd á bandinu, endið með umferð með fastalykkjum frá réttu. Nú er hægt að hekla blúndukant meðfram báðum langhliðum á bandinu. Byrjið frá réttu í ystu lykkju í byrjun umferðar, heklið A.7C yfir fyrstu 1½ cm (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri), heklið A.7B þar til ca 3 cm eru eftir, endið með A.7A. Snúið stykkinu og heklið síðustu umferð frá réttu. Klippið og festið þráðinn. Heklið á sama hátt meðfram hinni langhliðinni á bandinu. Heklið hitt bandið á sama hátt. FRÁGANGUR TOPPUR: Saumið axlabandið í hvora hlið á framstykki og bakstykki – það á að vera ca 18-19-20-22-24-26 cm á milli axlabanda fyrir miðu að framan og miðju að aftan. FERNINGAR: Notið heklunál 4 og DROPS Muskat. Heklið hringinn eftir mynsturteikningu A.1. Klippið og festið þráðinn. Heklið alls 15-17-18-20-22-24 ferninga. FRÁGANGUR FERNINGAR PILS: Passið uppá að allir ferningarnir liggi með réttuna út. Saumið ferningana saman einn og einn þannig að þeir myndi langa lengju – saumið 1 spor í hverja lykkju. Lengdin á lengjunni á að jafngilda máli á pilsi að neðan = ca 90-102-108-120-132-144 cm. Í lokin er fyrsti og síðasti ferningurinn saumaður saman, þannig að ferningarnir mynda hring. Nú á að hekla pilsið áfram í hring meðfram efri hlið á hringnum með ferningunum og upp að mitti. PILS: Byrjið frá réttu með 1 keðjulykkju í sauminn á milli 2 ferninga (þessi byrjun skilgreinir upphaf hringsins = vinstri hlið á pilsi þegar það er mátað), lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 163-185-195-217-239-261 fastalykkjur meðfram kanti á hring – lykkjurnar skiptast þannig: Heklið 1 fastalykkju í sauminn á milli hverra ferninga og 10 fastalykkjur meðfram hverjum ferningi (þ.e.a.s. meðfram 1 ferningi eru heklaðar 2 fastalykkjur um hornbogann, 3 fastalykkjur um hvorn af næstu 2 loftlykkjubogum og 2 fastalykkjur um hornbogann), en til að lykkjufjöldinn gangi jafnt upp verður að hekla 1 fastalykkju færri yfir 2-2-3-3-3-3 ferninga jafnt yfir. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Síðan er heklað mynstur, fækkið lykkjum jafnt yfir upp að mitti og það er heklaður teygjanlegur þráður í mitti. Lestu því alla 3 kaflana að neðan áður en heklað er áfram. MYNSTUR: Nú er heklað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og heklið þannig: Heklið A.2A í fyrstu lykkju, heklið A.2B umferðina hringinn. Haldið svona áfram með mynstur og athugið vel að eftir 2. umferð er stykkinu snúið þannig að síðasta umferð í A.2 er hekluð frá röngu. Þegar A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið þannig: Heklið A.3A í fyrstu lykkju, heklið A.3B umferðina hringinn. Haldið svona áfram með mynstur, til skiptis 1 umferð fastalykkjur frá réttu og 1 umferð stuðlar frá röngu. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Þegar stykkið mælist ca 8-10-12-14-16-18 cm (ásamt kanti með hekluðum ferningum) og næsta umferð er umferð með stuðlum, fækkið lykkjum jafnt yfir. Lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2-4-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir = 161-181-191-213-235-257 lykkjur, heklið 7 umferðir án úrtöku. Í næstu umferð með stuðlum er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir = 155-175-185-207-229-251 lykkjur, heklið 7 umferðir án úrtöku. Í næstu umferð með stuðlum er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir = 149-169-179-201-223-245 lykkjur, heklið 5 umferðir án úrtöku. Í næstu umferð með stuðlum er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir = 143-163-173-195-217-239 lykkjur, heklið 5 umferðir án úrtöku. Í næstu umferð með stuðlum er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir = 137-157-167-189-211-233 lykkjur, heklið 3 umferðir án úrtöku. Í næstu umferð með stuðlum er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir = 131-151-161-183-205-227 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 36-38-40-42-44-46 cm (ásamt kanti með hekluðum ferningum). Heklið síðan A.3 eins og áður án þess að fækka lykkjum þar til stykkið mælist 40-42-44-46-48-50 cm (ásamt kanti með hekluðum ferningum). TEYGJANLEGUR ÞRÁÐUR Í MITTI: Bætið við þunnum teygjanlegum þræði (saman með 1 þræði DROPS Muskat) og heklið síðan fram og til baka eins og áður þar til stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm (ásamt kanti með hekluðum ferningum), endið með eina umferð með fastalykkjum frá réttu. Klippið og festið þráðinn. KANTUR NEÐST PILS: Nú er heklaður kantur neðst meðfram annarri hlið á hringnum með ferningum (finnið sömu 2 ferningana þar sem byrjað var á milli þegar efstu stykkin voru hekluð). Byrjið frá réttu með 1 keðjulykkju í saumnum á milli 2 ferninga, munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 163-185-195-217-239-261 fastalykkjur meðfram kanti á hring – lykkjurnar skiptast á sama hátt eins og meðfram ofan á hringnum. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.4A í fyrstu lykkju, heklið A.4B umferðina hringinn. Haldið svona áfram með mynstur (hver umferð er hekluð frá réttu) þar til A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina, ekki klippa þráðinn. Nú er heklaður blúndukantur eins og útskýrt er að neðan. BLÚNDUKANTUR NEÐST PILS: Heklið A.5A í fyrstu lykkju, heklið A.5B umferðina hringinn, stillið af það loftlykkjubogarnir verði á sléttri tölu í umferð. Heklið A.5 til loka á hæðina. Klippið og festið þráðinn. FRÁGANGUR 2-STYKKJA KJÓLL: Það eru jafn margar lykkjur neðst á toppi og efst á pilsi. Leggið pilsið undir toppinn – kantur efst á pilsi á að liggja innan við fastalykkjur sem heklaðar voru meðfram neðri hlið á ferningum neðst á toppi (þ.e.a.s. ca 5 cm kantur neðst á toppi hangir laus utan yfir pils). Saumið stykkin saman frá röngu – saumið með lausu spori í aðra hverja lykkju frá pilsi og í aðra hverja lykkju frá toppi. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #beachdreamset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.