Severine skrifaði:
Bonjour, Je ne comprend pas le diagramme A1, puis A2, puis A3. Cela consiste à refaire un tour de maille en l'air? Qui ne sont reliées à la 1ere chaînette que par la maille coulée de jointure? Comment est-ce qu'on termine ce tour? Par une maille coulée ? On as donc crer 2 chaînettes?
21.05.2025 - 21:32DROPS Design svaraði:
Bonjour, on ne crochète pas chacun des diagrammes tout le tour, on commence le tour par A.1 (3 mailles en l'air pour remplacer la 1ère bride) , puis on répète les 2 mailles de A.2 tout le tour jusqu'à ce qu'il reste 1 maille, on crochète alors A.3 (soit 1 bride soit 1 maile en l'air pour que le motif continue jusqu'à la fin du tour) et on termine par 1 maille coulée dans la 3ème maille en l'air du début du tour (A.1). Bon crochet!
22.05.2025 - 09:03
Simone Fröhlich skrifaði:
Bei Größe M soll ich bei 96 Maschen 42 Maschen zunehmen. Gleichmäßig verteilt, sodass ich auf 138 Maschen komme. Egal, wie ich zunehme, komme ich leider nie auf die gewünschte Anzahl der Maschen. 96 : 42= 2,28 Verdoppel ich jede zweite Masche, werden es zu viele. Mache ich es abwechselnd jede zweite und dritte, werden es zu wenige Maschen :)
14.04.2025 - 18:57DROPS Design svaraði:
Liebe Simone, rechnerisch ergibt sich in etwa ein Rhythmus von "jede 2., jede 2., jede 2., jede 3. Masche verdoppeln", also 3x nacheinander jede 2. Masche, dann 1x die nächste 3. Masche verdoppeln. Am besten markieren Sie sich die Mitte der Maschen und nehmen in jeder Hälfte 21 Maschen zu, dann behalten Sie leichter den Überblick. Viel Spaß beim Weiterhäkeln!
17.04.2025 - 23:02
Abi Allanson skrifaði:
Thank you! That’s much clearer now. I didn’t understand how to follow the pattern. I’ve made a good start now - it’s lovely yarn.
18.02.2025 - 08:04
Abi Allanson skrifaði:
I’m struggling to read the A1 pattern. After I’ve formed a ring to begin, it looks as if I’m trying to create chains in each of the original stitches of the ring. I’ve never seen this before - why is it not just trebles? I’ve tried looking at your videos and pattern notes but I can’t make sense of it.
17.02.2025 - 10:08DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Allanson, diagram A.1 just shorws how to start the round, this means after you have worked the slip stitch creating a large ring of chain, jsut crochet 2 chains (on first round) then 3 chains from next round (see 3rd and 5th symbol), then continue repeating A.2 in the round until 1 stitch remain then end with 1 slip stitch in the2nd/3rd chain from beg of round. Happy crocheting!
17.02.2025 - 14:26
Bliblimama skrifaði:
And you can even print it highlighted, thank you.
09.02.2025 - 12:11
JMFS skrifaði:
The highlight size is such a Magnificent addition to the patterns. Thank you! That's going to be helpful in making DROPs patterns. Less time for us to spend highlighting means more time crocheting!
07.02.2025 - 20:06
Seafoam Whisper#seafoamwhispersweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 258-10 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 hálfum stuðli / stuðli. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir óskaða stærð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út yfir (t.d. 92 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 38) = 2,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla í 1 stuðul til skiptis ca í 2. og 3. hverja lykkju. LEIÐBEININGAR HEKL: Ef heklfestan á hæðina passar ekki er hægt að endurtaka mynstrið áfram á hæðina að réttu máli, en til að gera skiptinguna léttari er best að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar eftir stærðum þannig: STÆRÐ S, M og L: Skiptið eftir 1. eða 2. umferð í A.5. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Skiptið eftir 1., 2. eða 3. umferð í A.5. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið lykkjum í byrjun og lok umferðar þannig: Heklið fyrsta stuðul eins og áður (þ.e.a.s. 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul), heklið saman næstu 2 stuðla þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, það eru 3 lykkjur á heklunálinni. Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri). Heklið eins og áður þar til 3 stuðlar eru eftir í umferð, fækkið um 1 stuðul til viðbótar á sama hátt og heklið 1 stuðul í síðasta stuðul í umferð. Fækkað hefur verið um 2 lykkjur í umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er heklað í hring frá vinstri öxl að aftan og heklað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið heklað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað til loka niður á við í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar heklaðar niður á við í hring. Í lokin er hekluð 1 umferð í kringum hálsmál. BERUSTYKKI: Notið heklunál 4,5 og 1 þráð DROPS Sky og 1 þráð DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Heklið 92-96-100-104-108-112 LOFTLYKKJUR – lesið útskýringu að ofan og tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Nú er heklað MYNSTUR þannig: Heklið A.1, heklið A.2 þar til 1 loftlykkja er eftir, heklið A.3. Heklið síðan eins og útskýrt er í A.4 – í umferð merktri með ör er aukið út um 38-42-46-52-54-58 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING í útskýringu að ofan = 130-138-146-156-162-170 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. Þegar A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið A.5 á sama hátt og endurtekið á hæðina – í umferð merktri með ör eru lykkjur auknar út eins og útskýrt er að neðan: 1. skipti: Heklið A.5 og aukið út 38-42-46-52-54-58 lykkjur jafnt yfir í umferð merktri með ör = 168-180-192-208-216-228 lykkjur. 2. skipti: Heklið A.5 og aukið út 36-40-42-46-50-52 lykkjur jafnt yfir í umferð merktri með ör = 204-220-234-254-266-280 lykkjur. 3. skipti: Heklið A.5 og aukið út 36-40-42-46-50-52 lykkjur jafnt yfir í umferð merktri með ör = 240-260-276-300-316-332 lykkjur. Heklið síðan A.5 án þess að auka út þar til heklaðar hafa verið alls 17-18-18-20-21-22 umferðir og stykkið mælist 19-20-20-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti – lesið LEIÐBEININGAR HEKL. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð í A.5 er hekluð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið 74-80-84-92-98-106 lykkjur (= bakstykki), hoppið yfir 46-50-54-58-60-60 lykkjur (= ermi), heklið 6-6-8-10-12-14 loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið 74-80-84-92-98-106 lykkjur (= framstykki), hoppið yfir 46-50-54-58-60-60 lykkjur (= ermi), heklið 6-6-8-10-12-14 loftlykkjur (= í hlið undir ermi) og endið umferð með 1 keðjulykkju eins og áður. Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 160-172-184-204-220-240 lykkjur. Heklið A.5 hringinn eins og áður. Þegar stykkið mælist 19-20-22-22-22-23 cm frá skiptingunni, endið A.5. Heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul umferðina hringinn þar til peysan mælist 27-28-30-29-30-31 cm frá skiptingunni. Klippið og festið þráðinn. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Byrjið umferð í 4-4-5-6-7-8 loftlykkju í hlið undir ermi. Heklið 3 loftlykkjur (koma í stað fyrsta stuðul), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 1-1-2-3-4-5 loftlykkjum, heklið 1 stuðul í síðustu loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul um hlið á stuðli sem tilheyrir fram- og bakstykki, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (til að loka gatinu), heklið mynsturteikningu A.5 eins og áður yfir næstu 46-50-54-58-60-60 stuðla, heklið 1 stuðul um hlið á stuðli sem tilheyrir fram- og bakstykki, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í fyrstu loftlykkju í hlið undir ermi, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (til að loka gatinu), heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 2-2-3-4-5-6 loftlykkjur undir ermi og endið með 1 keðjulykkju eins og áður = 52-56-62-68-72-74 stuðlar. Setjið einn merkiþráð mitt í 6-6-8-10-12-14 lykkjur undir ermi og látið merkiþráðinn síðan fylgja með – merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum fyrir miðju undir ermi. Haldið áfram að hekla A.5 hringinn, en í 6-6-8-10-12-14 stuðla fyrir miðju undir ermi eru heklaðir stuðlar, JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni er fækkað um 2 lykkjur að neðanverðu á ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA í útskýringu að ofan og fækkið lykkjum í ca hverjum 4-4-5-6-9-9 cm alls 1-1-2-3-4-4 sinnum = 50-54-58-62-64-66 lykkjur. Þegar ermin mælist 38-37-38-36-36-36 cm eru heklaðir stuðlar. Heklið þar til ermin mælist 42-41-42-41-40-40 cm frá skiptingunni. Klippið og festið þráðinn. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið fyrir miðju að aftan, festið þráðinn með 1 keðjulykkju, heklið 2 loftlykkjur (koma í stað fyrsta hálfa stuðul), heklið 1 hálfan stuðul á milli hverra hálfra stuðla frá fyrstu umferð á berustykki, endið umferð með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju, Klippið og festið þráðinn. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seafoamwhispersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 258-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.