Monica Martinsson skrifaði:
Ska jag sy ihop öppningen som blir mellan tummens insida och vanten? Det är ju tidigare avmaskat 3 maskor på vardera del, tummen respektive vanten.
11.11.2025 - 18:45DROPS Design svaraði:
Hej Monica, ja hvis hullet er for stort, så kan du sy det sammen :)
19.11.2025 - 14:55
Winter Whisper Mittens#winterwhispermittens |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónaðir og þæfðir vettlingar með kaðli úr DROPS Lima.
DROPS 253-37 |
||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið er út hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Byrjið 1 lykkju á undan merkiþræði, takið upp þráðinn á milli 2 lykkja og prjónið þráðinn snúinn slétt, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), takið upp þráðinn á milli 2 lykkja og prjónið þráðinn snúinn slétt (= 2 lykkjur fleiri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um op fyrir þumalfingur): Fækkið ystu lykkjum á milli merkiþráða sem merkja op fyrir þumalfingur þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur færri. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá fingurtoppi og niður á við að stroffi. Fyrst er prjónaður þumall ofan frá og niður, síðan er vettlingurinn prjónaður frá fingurtoppi og niður að þumalfingri, áður en stykkin eru sett saman og vettlingurinn prjónaður til loka niður á við. ÞUMALFINGUR: Fitjið upp 8 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með DROPS Lima. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* út umferðina = 12 lykkjur. Prjónið næstu umferð á sama hátt, jafnframt sem uppslátturinn frá fyrri umferð er prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt = 18 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt – munið eftir að prjóna uppsláttinn snúinn. Í næstu umferð er aukið út um 0-2-4 lykkjur jafnt yfir = 18-20-22 lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til þumalfingurinn mælist 7½-8½-9½ cm. Fellið af fyrstu 3 lykkjur í umferð = 15-17-19 lykkjur. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið vettlinginn eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 8 lykkjur á sokkaprjón 4,5. Setjið 1 merkiþráð við byrjun umferðar og 1 merkiþráð fyrir miðju í umferð þannig að það séu jafn margar lykkjur hvoru megin við merkiþræðina. Setjið einnig 1 merki á milli 2. og 3. lykkju sem merkja miðju að framan (þ.e.a.s. mitt ofan á vettlingi). Passið uppá að hægt sé að greina á milli merkja og merkiþráða, merkið fyrir miðju að framan er notað til að prjóna mynstrið samhverft mitt ofan á vettlingi. Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út 4 lykkjur í hverri umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið út alls 10-10-11 sinnum = 48-48-52 lykkjur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm er prjónað A.1 yfir 16 lykkjur fyrir miðju að framan (= 8 lykkjur hvoru megin við merki fyrir miðju að framan), þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2 yfir 14 lykkjur fyrir miðju að framan (= 7 lykkjur hvoru megin við merki fyrir miðju að framan), þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. Munið að fylgja prjónfestunni. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og prjónið mynstur. Þegar stykkið mælist 17-17-18 cm er fellt af fyrir þumalfingur þannig: Byrjið við byrjun umferðar, prjónið 5-5-6 lykkjur slétt, prjónið A.2, prjónið 8-8-9 lykkjur slétt, fellið af næstu 3 lykkjur, prjónið slétt yfir afgang af umferð = 45-45-49 lykkjur. Nú er þumalfingurinn settur saman við vettlinginn þannig: Prjónið sléttprjón og A.2 eins og áður fram að þar sem fækkað var um 3 lykkjur fyrir þumalfingur, setjið 1 merkiþráð, prjónið allar lykkjur frá þumalfingri slétt, setjið 1 merkiþráð, prjónið út umferðina eins og áður = 60-62-68 lykkjur. Það eru 15-17-19 lykkjur fyrir op fyrir þumalfingur á milli merkiþráða. Síðan er prjónað eins og áður í sléttprjóni og A.2 JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við nýjar lykkjur fyrir opi fyrir þumalfingur– lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í 3. hverri umferð alls 6-7-8 sinnum = 48-48-52 lykkjur. Prjónið þar til vettlingurinn mælist ca 25-26-28 cm frá toppi – stillið af að síðasta prjónaða umferðin í mynsturteikningu A.2 sé annað hvort 3. eða 9. umferð JAFNFRAMT er fækkað um 3-3-2 lykkjur jafnt yfir bakhlið á vettlingi = 45-45-50 lykkjur. Síðan er prjónað þannig: 1-1-2 lykkjur snúnar slétt, * 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur snúið slétt *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 4-4-3 lykkjur í umferð, endið með 2-2-2 lykkjur brugðið og 2-2-1 lykkjur snúið slétt. Prjónið stroff svona í 5-6-6 cm. Í næstu umferð er aukið út jafnt yfir þannig: Prjónið 1-1-2 lykkjur snúið slétt, * prjónið 1 lykkju brugðið, takið upp þráðinn á milli tveggja lykkja og prjónið þráðinn snúið brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 3 lykkjur snúið slétt *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 4-4-3 lykkjur, prjónið 1 lykkju brugðið, takið upp þráðinn á milli 2 lykkja og prjónið þráðinn snúið brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 2-2-1 lykkjur snúið slétt = 54-54-60 lykkjur. Prjónið snúnar lykkjur slétt yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist alls 7-8-8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Vettlingurinn mælist ca 32-34-36 cm. HÆGRI VETTLINGUR: Prjónið á sama hátt og vinstri vettlingur fram þar til stykkið mælist 17-17-18 cm. Síðan er fellt af fyrir þumalfingur þannig: Byrjið við byrjun umferðar, prjónið 5-5-6 lykkjur slétt, prjónið A.2, prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, fellið af næstu 3 lykkjur, prjónið slétt yfir síðustu 3 lykkjur í umferð = 45-45-49 lykkjur. Prjónið þumalfingurinn á sama hátt og á vinstri vettlingi og prjónið hann saman við hægri vettling þannig: Prjónið sléttprjón og A.2 eins og áður fram þar sem fækkað var um 3 lykkjur fyrir þumalfingur, setjið 1 merkiþráð í umferð og prjónið síðan allar lykkjur frá þumalfingri slétt, setjið 1 merkiþráð, prjónið út umferðina = 60-66-68 lykkjur. Það eru 15-17-19 lykkjur fyrir op fyrir þumalfingur á milli merkiþráða. Prjónið síðan eins og áður, í sléttprjóni og A.2 JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við op fyrir þumalfingur – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í 3. hverri umferð alls 6-7-8 sinnum = 48-48-52 lykkjur. Prjónið þar til vettlingurinn mælist ca 25-26-28 cm frá toppi – stillið af að síðasta umferðin í mynsturteikningu A.2 sé annað hvort 3. eða 9. umferð, JAFNFRAMT er fækkað um 3-3-2 lykkjur á bakhlið á vettlingi í síðustu umferð = 45-45-50 lykkjur. Prjónið stroff á sama hátt og á vinstri vettlingi. ÞÆFING: Til að koma í veg fyrir að þumalfingurinn þæfist saman, snúið vettlingnum við og leggi í lítinn plastpoka í þumalfingurinn. Festið pokann með nælu – ATH: Festið næluna lóðrétt niður að topp á þumalfingri þannig að auðvelt sé að taka hana úr eftir þæfingu. Snúið vettlingnum til baka þannig að vettlingurinn þæfist með réttuna út. Verkið má þæfa í þvottavél eða þurrkara – lesið útskýringarnar hér að neðan. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og hver önnur ullarflík Í ÞVOTTAVÉL: Þvottavélar þæfa mismunandi. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt GERIÐ ÞANNIG: Settu stykkið í þvottavélina, notaðu þvottakerfi sem tekur um 40 mínútur (ekki ullarþvottakerfi). Þvoðu við 40°C án forþvottar - sápa er valfrjáls. Eftir þvott skaltu móta stykkið á meðan það er enn blautt. Í ÞURRKARA: Að þæfa stykki í þurrkara gefur góða stjórn á því hversu mikið stykkið þæfist. Hægt er að opna þurrkarann á meðan á ferlinu stendur til að athuga stærð verksins. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt. GERIÐ ÞANNIG: Leggið stykkið allt í bleyti í vatn. Setjið stykkið síðan í þurrkara og byrjið að þurrka. Þurrkið þar til stykkið er í þeirri stærð sem óskað er eftir - athugið á meðan á ferlinu stendur. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterwhispermittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 253-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.