Lisbeth Haakonsen skrifaði:
Digram A1 “ der står 1 stangmaske om luftmasken” på 3 omgang. hvilken luftmaske?
09.09.2024 - 14:48DROPS Design svaraði:
Hej Lisbeth, den luftmaske som er imellem de 2 stangmasker på omgang 1 og 5 i A.1 :)
11.09.2024 - 07:44
Torill Lindberg skrifaði:
Har heklet Bella Donna solhatt, tynn ståltråd, hvor får jeg kjøpt det?
17.08.2024 - 13:14DROPS Design svaraði:
Hei Torill, Ståltråd får du kjøpt på jernvarebutikker. God fornøyelse!
19.08.2024 - 06:34
Torill Lindberg skrifaði:
Hei, har heklet Bella Donna solhatt, tynn ståltråd, hvor får jeg kjøpt det ?
17.08.2024 - 13:13
Yvonne Hedman skrifaði:
Jag hittar inte minskningen på mönstret. Min hatt liknar mer en duk än en hatt. Vad har jag missat?
25.07.2024 - 09:47DROPS Design svaraði:
Hej Yvonne, hækler du i DROPS Paris eller Bomull-Lin og har 18 stolpar på 10 cm, så vil den forme sig som på billedet. Det lyder til at du eventuelt hækler lidt for løst... ?
01.08.2024 - 09:57
Saskia skrifaði:
Mijn hoed blijft plat. Vind er ergens stekenvermindering plaats tussen toer 8en A1?Ws maak ik een fout in A1. Hoe krijg ik de vorm in de hoed?
29.06.2024 - 12:39DROPS Design svaraði:
Dag Saskia,
De eerste 7 toeren blijft de hoed plat, daarna buigt hij een beetje af in toer 8 en tot slot haak je steeds A.1 in de rondte waarbij er geen steken meer bij komen of af gaan totdat je bij de rand bent.
02.07.2024 - 21:59
Anna M skrifaði:
What do you mean by 1 double crochet around chain stitch? I looked everywhere on Google and couldn't find an explanation or a video tutorial. Thank you.
22.05.2024 - 05:45DROPS Design svaraði:
Dear Anna, this means you will insert the crochet hook under the chain stitch and not in the chain stitch itself; in this video we show how to crochet in and around a stitch, this might help you. Happy crocheting!
22.05.2024 - 08:16
Alexandra skrifaði:
Beach Day
20.01.2024 - 14:17
Silvanna Barreiro skrifaði:
I would love to try this pattern and would name it "Bella Donna"
18.01.2024 - 23:50
Kelly skrifaði:
Light
18.01.2024 - 21:59
Bella Donna#belladonnahat |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Heklaður hattur úr DROPS Bomull-Lin eða DROPS Paris. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri og stóru barði.
DROPS 247-3 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur sem eiga að koma í stað fyrir stuðul, þ.e.a.s. hoppið yfir fyrstu lykkju frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. Í byrjun á hverri umferð í A.1 eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar 3 loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls, heldur koma til viðbótar. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 (gatamynstur). A.2 = barð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Fyrst er sjálfur hatturinn heklaður, síðan er barðið heklað. Í lokin er stálþráður festur í gegnum kantinn á barðinu, til að kantur verði stífari og formið haldist. HATTUR: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 og tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR. UMFERÐ 1: Heklið 12 stuðla um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla í hvern stuðul = 24 stuðlar. UMFERÐ 3: * 1 stuðull í fyrsta/næsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 36 stuðlar. UMFERÐ 4: * 1 stuðul í hvorn af fyrstu/næstu 2 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 48 stuðlar. UMFERÐ 5: * 1 stuðul í hvern af fyrstu/næstu 3 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 60 stuðlar. UMFERÐ 6: * 1 stuðul í hvern af fyrstu/næstu 4 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 72 stuðlar. UMFERÐ 7: * 1 stuðull í hvern af fyrstu/næstu 5 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 84 stuðlar. STÆRÐ S/M: UMFERÐ 8: * 1 stuðull í hvern af fyrstu/næstu 13 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 90 stuðlar. Heklið síðan hringinn með 1 stuðul í hvern stuðul án þess að auka út, þar til stykkið mælist 10 cm frá miðju og niður. STÆRÐ L/XL: UMFERÐ 8: * * 1 stuðull í hvern af fyrstu/næstu 6 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 96 stuðlar. Heklið síðan hringinn með 1 stuðul í hvern stuðul án þess að auka út, þar til stykkið mælist 11 cm frá miðju og niður. ALLAR STÆRÐIR: Heklið A.1 alls 30-32 sinnum hringinn á hatti. Haldið svona áfram með mynstur. Jafnframt í síðustu umferð í A.1 er aukið út um 3 stuðla jafnt yfir í stærð L/XL (ekki er aukið út í stærð S/M) = 90-99 stuðlar. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka, mælist stykkið ca 18-19 cm frá toppi og niður. Ef stykkið mælist minna en þetta, heklið þá 1 stuðul í hvern stuðul að réttu máli. Heklið síðan barð eins og útskýrt er að neðan. BARÐ: Heklið A.2 alls 10-11 sinnum í kringum barðið. Haldið síðan áfram eins og útskýrt er í mynsturteikningu (munið eftir að fyrsta stuðli í umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur). Þegar A.2 hefur verið heklað til loka eru 200-220 stuðlar í umferð. Leggið þunnan stálþráð meðfram kanti á barði. Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hvern stuðul umferðina hringinn jafnframt því sem heklað er utan um stálþráðinn, endið umferð með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. Klippið frá og festið þráðinn. Tvinnið saman endana á stálþræðinum og felið þá innan í lykkjurnar. Hatturinn mælist ca 27-28 cm frá miðju og niður. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #belladonnahat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 247-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.