Lind skrifaði:
I forgot to mention I am a size small.
06.05.2024 - 00:07
Linda skrifaði:
How much yard do I need for this project? What’s the total yardage amount?
05.05.2024 - 23:32DROPS Design svaraði:
Hi Linda, There is approx. 100 yds per 50 g ball of Drops Cotton Light. 250 g of colour light wash in your size will therefore be approx. 500 yds and 100 g off white 200 yds. Happy crocheting!
06.05.2024 - 06:34
Laura skrifaði:
Gráfico ou vídeo aula por favor?.? Obrigado ❤
23.04.2024 - 20:28
Barbara Trübenbacher skrifaði:
Sehr schick, sommerlich, luftig.
19.01.2024 - 13:46
Barbara Trübenbacher skrifaði:
Kornfeld
19.01.2024 - 13:46
AndruschiMai skrifaði:
Summer dream
19.01.2024 - 06:34
Kelly skrifaði:
Cornflower
18.01.2024 - 21:51
Dominika skrifaði:
Greek trip
18.01.2024 - 18:28
Seaside Daisy#seasidedaisytop |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur með ömmuferningum úr DROPS Cotton Light. Stærð S-XXXL.
DROPS 250-26 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. LITIR: Ferningarnir eru heklaðir í mismunandi stærðum og litasamsetningu þannig: FERNINGUR 1: UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 01, natur UMFERÐ 2: 46, ljós þveginn UMFERÐ 3: 46, ljós þveginn FERNINGUR 2: UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 01, natur UMFERÐ 2: 46, ljós þveginn UMFERÐ 3: 46, ljós þveginn UMFERÐ 4: 01, natur UMFERÐ 5: 46, ljós þveginn FERNINGUR 3: VARV 1 + UPPFITJUN: 01, natur VARV 2: 46, ljós þveginn VARV 3: 46, ljós þveginn VARV 4: 46, ljós þveginn VARV 5: 01, natur VARV 6: 46, ljós þveginn VARV 7: 46, ljós þveginn LITASKIPTI: Til að fá falleg litaskipti þegar skipt er um lit, heklið keðjulykkju í lok umferðar með nýja litnum sem skipta á yfir í. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið samanstendur af nokkrum ömmuferningum sem heklaðir eru saman. ÖMMUFERNINGAR: Notið heklunál 4 og DROPS Cotton Light. Lesið LITIR og LITASKIPTI og heklið ferninga eftir mynsturteikningu A.1 í mismunandi litasamsetningum og endað er eftir oddatölu umferð í mismunandi ferningum. Ferningur 1 er notaður sem lítill ferningur fyrir bæði bönd á öxl og kantur neðst á fram- og bakstykki. Ferningur 2 er notaður sem stór ferningur á fram- og bakstykki í stærð S, M, L og XXL, á meðan ferningur 3 er notaður sem stór ferningur á fram- og bakstykki í stærð XL og XXXL. Heklið alls 36-38-53-42-64-53 ferninga þannig: Ferningur 1: 20-22-23-26-28-26 stykki Ferningur 2: 16-16-30-0-36-0 stykki Ferningur 3: 0-0-0-16-0-27 stykki FRÁGANGUR: Nú á að hekla ferningana saman í rétthyrning sem verður fram- og bakstykkis efri hluti. Skiptið stóru ferningunum (ferningur 2 eða ferningur 3 fer eftir stærð) að auki eiga að vera 2-2-3-2-3-3 ferningar á hæðina og 8-8-10-8-12-9 ferningar á breidd. Notið heklunál 4 og litinn ljós þveginn til að hekla saman stóru ferningana í einn rétthyrning. Heklið ferningana saman fyrst á lengdina þannig: Leggið 2 ferningana að hvorum öðrum með réttu á móti réttu. Heklað er í gegnum báða ferningana frá röngu eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.2. Leggið 2 næstu ferninga að hvorum öðrum með réttu að réttu og haldið síðan áfram að hekla ferningana saman á sama hátt eins og á fyrstu 2 ferningunum þar til allir stóru ferningarnir í röðinni hafa verið heklaðir saman á lengdina. Nú eru stóru ferningarnir heklaðir saman á hæðina á sama hátt. Heklið síðan saman 12-12-15-16-18-18 litlu ferningana (ferningur 1) í lengju sem við frágang er fest neðst á fram- og bakstykki, sjá mynsturteikningu A.3. Þegar litlu ferningarnir hafa verið heklaðir saman, heklið þessa lengju saman með þeim sem voru festið saman, stóru ferningana á lengdina þannig: S, M, L og XXL: Sjá mynsturteikningu A.4a, haldið áfram allri lengdinni. Það eru 3 litlir ferningar á 2 stóru ferningunum. XL og XXXL: Sjá mynsturteikningu A.4b, haldið áfram alla lengdina. Það eru 2 litlir ferningar á 1 stórum ferningi. Þegar allir ferningarnir hafa verið heklaðir saman á hæðina og breiddina í einn stóran rétthyrning, heklið skammhliðarnar saman frá röngu á sama hátt og áður, þannig að fram- og bakstykki verður einn hólkur. Klippið frá og festið þræðina. Það á að gera 2 laus bönd á öxlum, hvert band samanstendur af 4-5-4-5-5-4 smáum ferningum sem heklaðir eru saman í eina lengju frá röngu á sama hátt og áður. Leggið toppinn flatan, þar sem heklað var saman á rétthyrningnum er mitt að aftan. Staðsetjið 2 bönd á öxlum í efri kanti á toppi, ca 6-6-10-13-14-15 cm inni frá hvorri hlið, það eru ca 16-16-18-18-20-21 cm á milli banda á öxl mitt á toppnum. Saumið bönd á öxlum á framhlið og á bakhlið á toppi. Mátið toppinn og jafnið e.t.v. fjölda lykkja á bönd á öxlum. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seasidedaisytop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.