Anita Dersen skrifaði:
Leider ist die Anleitung für mich nicht verständlich. Gibt es hierzu evtl. ein komplettes Strickdiagramm ?
05.09.2024 - 20:34DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Dersen, wir haben hier nicht nur solche Anleitung, gerne stellen Sie aber Ihre Frage hier, wir versuchen gerne, Ihnen weiterzuhelfen. Viel Spaß beim Stricken!
06.09.2024 - 08:41
Carmen Dhainaut skrifaði:
Bonjour j'aimerai bien savoir avec aiguilles circulaires étant alitée je tricote beaucoup ma petite fille me demande pour lui en faire un merci beaucoup pour votre aide 🌹💋
30.08.2024 - 07:10
Carmen Dhainaut skrifaði:
Bonjour j'aimerai bien savoir avec aiguilles circulaires étant alitée je tricote beaucoup ma petite fille me demande pour lui en faire un merci beaucoup pour votre aide 🌹💋
30.08.2024 - 07:09
Andrea skrifaði:
Schade, dass es kein Foto von der Rückseite gibt.
22.05.2024 - 11:47
Helena skrifaði:
Krásny top, určite si ho upletiem k letným sukniam.
16.04.2024 - 06:06
Pearl Strings Top#pearlstringstop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður toppur / vesti úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með kanti í gatamynstri og V-hálsmáli með I-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-21 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. I-CORD: FYRSTU 2 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Lyftið 1 lykkju af þræði eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. SÍÐUSTU 2 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum á sama hátt við hina merkiþræðina. ÚRTAKA-2 (kantur að framan): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 2 lykkjur I-cord eins og áður, 2 lykkjur snúnar slétt saman, prjónið afgang af kanti að framan eins og áður (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkju I-cord eins og áður (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-3 (V-hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 2 lykkjur I-cord eins og áður, 2 lykkjur í garðaprjóni og prjónið 5 fyrstu lykkjur í A.2 eins og áður, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 11 lykkjur eru í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 5 síðustu lykkjur í A.2, prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni og 2 lykkjur I-cord (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-4 (handvegur og síðasti hluti af V-hálsmáli): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 2 lykkjur I-cord og 2 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 2 lykkjur I-cord og 2 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur í garðaprjóni og 2 lykkjur I-cord (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 2, 8, 14 og 20 cm M: 2, 9, 16 og 20 cm L: 2, 9, 16 og 24 cm XL: 3, 10, 17 og 23 cm XXL: 3, 10, 17 og 25 cm XXXL: 3, 10, 17 og 25 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í umferð, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Í lokin eru bönd á öxlum fest við bakstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 201-219-237-261-289-315 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Cotton Light. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 KANTLYKKJUR MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið A.1, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 13 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, A.1, 6 kantlykkjur að framan með I-cord. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 2-2-2-3-3-3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið síðan MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan eins og áður, A.2, prjónið sléttprjón þar til 12 lykkjur eru eftir og fækkið jafnframt um 17-19-21-21-25-27 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.2, prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður = 184-200-216-240-264-288 lykkjur. Nú er settur 1 merkiþráður í hvora hlið á fram- og bakstykki, 49-53-57-63-69-75 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 86-94-102-114-126-138 lykkjur á milli merkiþráða á bakstykki). Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5-5-5-6-6-6 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþræðina – lesið ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri) = 180-196-212-236-260-284 lykkjur. Þegar stykkið mælist 11-11-11-12-12-13 cm, aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20-20-20-20-20-22 cm = 188-204-220-244-268-292 lykkjur. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Síðan er lykkjum fækkað fyrir kanta að framan, fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli og fækkið lykkjum fyrir handvegi. Lestu því kaflann V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en prjónað er áfram. V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 21-23-25-24-26-26 cm, fer fækkað um 2 lykkjur í kanti að framan í hvorri hlið yfir næstu 4 umferðir, þannig að kantur að framan verður 4 lykkjur í stað 6 og það verður minni kantur meðfram V-hálsmáli, þetta er gert þannig: Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 2 sinnum – lesið ÚRTAKA-2 = 184-200-216-240-264-288 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu eftir að lykkjum hefur verið fækkað í kanti að framan (stykkið mælist ca 22-24-26-25-27-27 cm), byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli, þetta er gert þannig: Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 18-19-21-23-25-27 sinnum – lesið ÚRTAKA-3. HANDVEGUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-29 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu, prjónið 3 umferðir GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, yfir miðju 16-18-20-22-24-26 lykkjur í hvorri hlið (8-9-10-11-12-13 lykkjur í garðaprjóni hvoru megin við báða merkiþræðina – aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Í næstu umferð (= rétta) á eftir garðaprjóni, fellið af fyrir handvegi þannig: Prjónið eins og áður þar til 4-5-6-7-8-9 lykkjur eru eftir á undan fyrri merkiþræði (munið eftir úrtaka fyrir V-hálsmáli), fellið af 8-10-12-14-16-18 lykkjur fyrir handvegi, prjónið eins og áður þar til 4-5-6-7-8-9 lykkjur eru eftir á undan næsta merkiþræði, fellið af 8-10-12-14-16-18 lykkjur fyrir handveg og prjónið út umferðina eins og áður. Prjónið framstykkin og bakstykkið til loka hvert fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: Byrjið frá röngu, prjónið kant að framan og A.2 eins og áður, prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni og 2 lykkjur I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið svona áfram fram og til baka með úrtöku fyrir V-hálsmáli eins og áður, jafnframt er lykkjum fækkað fyrir handveg í hlið í annarri hverri umferð alls 11-13-14-17-20-23 sinnum – lesið ÚRTAKA-4. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og V-hálsmáli eru 15 lykkjur í umferð í öllum stærðum. Nú heldur úrtakan áfram fyrir V-hálsmáli í stærð S, M , L og XL (lykkjum er ekki fækkað í stærð XXL og XXXL), lykkjum er fækkað á sama hátt í lok umferðar frá réttu, en lykkjum er fækkað innan við 4 lykkjur í kanti í hálsmáli, þannig að lykkjur í A.2 verða færri – lesið ÚRTAKA-4. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-2-2-0-0 sinnum = 11-11-13-13-15-15 lykkjur í umferð fyrir band fyrir öxl. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 38-40-42-46-45-46 cm. Prjónið garðaprjón fram og til baka með 2 lykkjum I-cord í hvorri hlið eins og áður, þar til band á öxl mælist 12-12-12-14-14-16 cm, fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Byrjið frá röngu. Prjónið 2 lykkjur I-cord, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið A.2 og kantur að framan eins og áður. Haldið svona áfram fram og til baka með úrtöku fyrir V-hálsmáli eins og áður, jafnframt er lykkjum fækkað fyrir handveg í hlið í annarri hverri umferð alls 11-13-14-17-20-23 sinnum – lesið ÚRTAKA-4. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og V-hálsmáli eru 15 lykkjur í umferð í öllum stærðum. Nú heldur úrtaka fyrir V-hálsmáli áfram í stærð S, M , L og XL (lykkjum er ekki fækkað í stærð XXL og XXXL), lykkjum er fækkað á sama hátt í byrjun umferðar frá réttu, en lykkjum er fækkað innan við 4 lykkjur í kanti í hálsmáli, þannig að lykkjur í A.2 verða færri – munið eftir ÚRTAKA-4. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-2-2-0-0 sinnum = 11-11-13-13-15-15 lykkjur í umferð fyrir band á öxl. Á eftir síðustu úrtöku mælist stykkið ca 38-40-42-46-45-46 cm. Prjónið garðaprjón fram og til baka með 2 lykkjur I-cord í hvorri hlið eins og áður, þar til band á öxl mælist 12-12-12-14-14-16 cm, fellið af. BAKSTYKKI: = 80-86-92-102-112-122 lykkjur. Byrjið frá röngu, prjónið 2 lykkjur I-cord, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni og 2 lykkjur I-cord. Haldið svona áfram fram og til baka, jafnframt er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 11-13-14-17-20-23 sinnum – munið eftir ÚRTAKA-4 = 58-60-64-68-72-76 lykkjur. Á eftir síðustu úrtöku mælist stykkið ca 38-40-42-46-45-46 cm. Prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni fram og til baka yfir allar lykkjur með 2 lykkjur I-cord í hvorri hlið eins og áður. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma við bakstykki – byrjið sauminn yst í hvorri hlið og saumið lykkju á móti lykkju. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pearlstringstop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.