Liv Foss skrifaði:
Hvor mange omganger skal det være med striper med hver farge?
02.09.2026 - 21:46DROPS Design svaraði:
Hei Liv, Du strikker 2 omganger med hver av enhjørningsfest og fantasiland (beskrevet i Striper under Forklaringer). Hilsen Drops Team.
05.09.2026 - 07:10
Cathie Castaneda skrifaði:
Which needle size do I use in doing the knitting gauge ? The pattern lists 2 size needles. Thank you!
23.04.2026 - 23:46DROPS Design svaraði:
Hi Cathie, The knitting tension is measured with needle size 3 mm. Regards, Drops Team.
24.04.2026 - 05:55
Caroline Law skrifaði:
Hi, I think there may be a mistake in the instructions for decreasing either side of the stitches for the top of the foot. Should this be to knit 2 twisted BEFORE the first marker for the top of the foot and then knit 2 tog AFTER the second marker after the top of the foot? I have knitted it as stated in the pattern and it results in series of holes along the left side of the ankle which doesn't give a professional appearance. Thanks, Caroline Law
02.11.2024 - 10:51DROPS Design svaraði:
Dear Caroline, the decreases are worked after the heel decreases so further towards the toes and not too close to the ankle. The decreases are correct; you knit 2 together before the first marker and knit 2 together twisted after the 2nd marker. If you knit the stitches together there should be no holes left. Remember that the decreases are technically in the sides of the foot/foot section and not the top of the foot. Happy knitting!
03.11.2024 - 18:30
Spring Carnival Socks#springcarnivalsocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir sokkar úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni. Stærð 35 – 43.
DROPS 247-16 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14-16-16 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Byrjið 3 lykkjum á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur slétt). RENDUR: Rendur eru prjónaðar til skiptist 2 umferðir í litnum einhyrninga partí, 2 umferðir í litnum fantasíuland, látið þráðinn fylgja með þannig að það þarf ekki að festa þráðinn. Stroff, hæll og tá er prjónað í litnum sinnepsgulur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður, frá stroffi niður að tá. Stroff efst, hæll og tá er prjónað í litnum sinnepsgulur, afgangur af sokknum er prjónað í röndum. STROFF – LEGGUR: Fitjið upp 72-76-80 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum sinnepsgulur í DROPS Fabel. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið 1 umferð slétt með litnum sinnepsgulur og fækkið um 8 lykkju jafnt yfir = 64-68-72 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar. Prjónið síðan í sléttprjóni og RENDUR – lesið útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki, fækkið lykkjum svona í hverjum 3 cm alls 4 sinnum – lesið ÚRTAKA = 56-60-64 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 17-18-19 cm. Nú er prjónaður hæll eins og útskýrt er að neðan. Hællinn er prjónaður í litnum sinnepsgulur. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 6-6-6½ cm. Setjið 1 merki mitt í síðustu umferð – stykkið er síðar mælt frá þessu merki. HÆLL OG FÓTUR: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 13-14-15 lykkjur og haldið eftir lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 30-32-34 lykkjur á þráð (miðja ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 13-14-15 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 26-28-30 hællykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 6-6-6½ cm. Setjið 1 merki mitt í síðustu umferð – stykkið er síðar mælt frá þessu merki. Prjónið HÆLÚRTAKA – lesið útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig, nú eru prjónaðar rendur eins og útskýrt er að ofan. Prjónið sléttprjón yfir 14-16-16 hællykkjur, prjónið upp 15-15-17 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttprjón yfir 30-32-34 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 15-15-17 lykkjur meðfram hinni hlið á hæl = 74-78-84 lykkjur. Setjið 1 merki hvoru megin við 30-32-34 lykkjur ofan á fæti. Prjónið hringinn í sléttprjóni og röndum fækkið lykkjum í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra merki ofan á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir seinna merki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 6 sinnum og síðan í annarri hverri umferð 7-7-8 sinnum = 48-52-56 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist ca 18-19-20 cm frá merki á hæl, mælt undir fæti. Það eru ca 4-5-6 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan, táin er prjónuð í litnum sinnepsgulur. TÁ: Setjið 1 merki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 24-26-28 lykkjur ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-7-9 sinnum og síðan í hverri umferð 6-3-2 sinnum = 8-12-12 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 4-6-6 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-26 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springcarnivalsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 247-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.