Jack skrifaði:
Hey I'm sorry to bother you. I'm Jack from PIXIE . We can provide you with cashmere(Merino cashmere blend)knit products. We can quote you first or send free samples. Kind regards Jack
20.06.2025 - 10:44
Cecilia Bracquemont skrifaði:
Hej! Instruktionerna är samma för vänster och höger vante på beskrivningen. Vänligen
03.01.2025 - 11:23DROPS Design svaraði:
Hei Cecilia Nei, det er ikke samme forklaring. På venstre vott settes det 1 merke i den siste masken på omgangen, på høyre vott settes det 1 merke i den første masken. Og når fellingen øverst på votten starter settes merkene ulikt, se oppskriften. mvh DROPS Design
07.01.2025 - 08:47
ANNE Brontér skrifaði:
Hej Jag kan inte utläsa någon skillnad i mönstret på höger och vänster vante? Med vänlig hälsning,
31.12.2024 - 10:40DROPS Design svaraði:
Hei Anne. Jo, det er forskjell. På venstre vott settes det 1 merke i den siste masken på omgangen, på høyre vott settes det 1 merke i den første masken. Og når fellingen øverst på votten starter settes merkene ulikt, se oppskriften. mvh DROPS Design
07.01.2025 - 08:45
Hanne Verløy skrifaði:
Hvor mye såpe (grønnsåpe?) skal man fylle i vaskemaskinen?
27.11.2024 - 17:43DROPS Design svaraði:
Hej Hanne, du behøver kun en dråbe uldvaskemiddel for at filte :)
29.11.2024 - 11:11
Karin skrifaði:
Hei, kan man tove flere vottepar i maskinen samtidig?
21.11.2023 - 11:51DROPS Design svaraði:
Hej Karin, ja du kan sikkert tove et par stykker :)
24.11.2023 - 13:47
Snowslide Mittens#snowslidemittens |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir og þæfðir vettlingar fyrir herra úr DROPS Lima.
DROPS 246-17 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Byrjið 3 lykkjum á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt (merkið er staðsett mitt í miðju á þessum 3 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um op fyrir þumalfingur): Aukið út lykkjur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúið slétt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp að fingurtoppum. Þegar vettlingarnir hafa verið prjónaðir til loka, eru þeir þæfðir. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 54-60 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með DROPS Lima. Prjónið hringinn í stroffprjóni (3 lykkjur snúið slétt / 3 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 2 cm, fækkið lykkjum þannig: * Prjónið 1 lykkju snúið slétt, 2 lykkjur snúið slétt saman, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 45-50 lykkjur. Prjónið síðan stroffprjón með 2 lykkjur snúið slétt / 3 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 8 cm. Setjið 1 merki í síðustu lykkju í umferð. Prjónið síðan sléttprjón jafnframt því sem aukið er út fyrir opi fyrir þumalfingur með því að auka út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki í – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út utan með útauknar lykkjur í 4. hverri umferð alls 6-7 sinnum = 57-64 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 17-18 cm (útaukning á opi fyrir þumalfingur á nú að vera lokið), setjið lykkju með merki í + útauknar lykkjur + 1 lykkja hvoru megin við þessar lykkjur á þráð fyrir þumalfingur = 15-17 þumallykkjur. Prjónið hringinn eins og áður og fitjið jafnframt upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur af þræði = 45-50 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 13½-14 cm frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp yfir opi fyrir þumalfingur. Stykkið mælist ca 30½-32 cm frá uppfitjunarkanti. Nú byrjar úrtaka efst á vettlingi. Setjið 1 merki í hvora hlið á vettlingi þannig: Setjið 1 merki í fyrstu lykkju í umferð og 1 merki í 23.-25. lykkju í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði merkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5 sinnum = 9-10 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 35-37½ cm frá toppi og niður. ÞUMALFINGUR: Setjið 15-17 þumallykkjur á sokkaprjóna 4,5 – prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 3 lykkjum sem fitjaðar voru upp aftan við þumalfingur = 18-20 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til þumalfingurinn mælist ca 6½-7 cm. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 3 lykkjur jafnt yfir = 15-17 lykkjur. Prjónið 3 umferðir án úrtöku. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 5-7 lykkjur jafnt yfir = 10 lykkjur. Prjónið síðan þar til þumalfingurinn mælist 9-9½ cm. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman umferðina hringinn = 5 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 54-60 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með DROPS Lima. Prjónið hringinn í stroffprjóni (3 lykkjur snúið slétt / 3 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 2 cm, fækkið lykkjum þannig: * Prjónið 1 lykkju snúið slétt, 2 lykkjur snúið slétt saman, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 45-50 lykkjur. Prjónið síðan stroffprjón með 2 lykkjur snúið slétt / 3 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 8 cm. Setjið 1 merki í fyrstu lykkju í umferð. Prjónið síðan sléttprjón jafnframt því sem aukið er út fyrir opi fyrir þumalfingur með því að auka út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki í – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út utan með útauknu lykkjurnar í 4. hverri umferð alls 6-7 sinnum = 57-64 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 17-18 cm (útaukning á opi fyrir þumalfingur á nú að vera lokið), setjið lykkju með merki í + útauknar lykkjur + 1 lykkja hvoru megin við þessar lykkjur á þráð fyrir þumalfingur = 15-17 þumallykkjur. Prjónið hringinn eins og áður og fitjið jafnframt upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur af þræði = 45-50 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 13½-14 cm frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp yfir opi fyrir þumalfingur. Stykkið mælist ca 30½-32 cm frá uppfitjunarkanti. Nú byrjar úrtaka efst á vettlingi. Setjið 1 merki í hvora hlið á vettlingi þannig: Setjið 1 merki í 23.-25. lykkju í umferð og setjið 1 merki í síðustu lykkju í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði merkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5 sinnum = 9-10 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 35-37½ cm frá toppi og niður. Prjónið þumalfingurinn á sama hátt og á vinstri vettlingi. ÞÆFING Á VETTLINGI: Til að koma í veg fyrir að þumalfingurinn þæfist saman er vettlingnum snúið við og festur er lítill plastpoki / silkiborði efst í þumalinn með öryggisnælu – opið á öryggisnælunni á að snúa upp að þumalfingrinum svo auðveldara sé að fjarlægja næluna síðar. Snúið vettlingnum við þannig að hann þæfist með réttuna út og plastpokinn / silkiborðinn sé innan í þumalfingrinum. Verkið má þæfa í þvottavél eða þurrkara – lesið útskýringarnar hér að neðan. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og hver önnur ullarflík. Í ÞVOTTAVÉL: Þvottavélar þæfa mismunandi. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt GERIÐ ÞANNIG: Settu stykkið í þvottavélina, notaðu þvottakerfi sem tekur um 40 mínútur (ekki ullarþvottakerfi). Þvoðu við 40°C án forþvottar - sápa er valfrjáls. Eftir þvott skaltu móta stykkið á meðan það er enn blautt. Í ÞURRKARA: Að þæfa stykki í þurrkara gefur góða stjórn á því hversu mikið stykkið þæfist. Hægt er að opna þurrkarann á meðan á ferlinu stendur til að athuga stærð verksins. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt. GERIÐ ÞANNIG: Leggið stykkið allt í bleyti í vatn. Setjið stykkið síðan í þurrkara og byrjið að þurrka. Þurrkið þar til stykkið er í þeirri stærð sem óskað er eftir - athugið á meðan á ferlinu stendur. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowslidemittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 246-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.