Lenka Rýparová skrifaði:
Dobrý den, zajímá mě, jestli tato vlna Drops Merino Soft kouše. Děkuji.
03.12.2023 - 11:07DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Lenko, těžká otázka. Příze DROPS Soft Tweed patří k našim jemným vlněným přízím, bez chlupu, který by mohl dráždit. Obvykle je většinou zákazníků vnímána jako bezproblémová a nekousavá. Hezký den!
03.12.2023 - 12:15
Gaetane skrifaði:
Bonjour, suite à votre réponse , autrement dit je tricote le gousset avant de mettre mes mailles en attente pour le pouce , c est ça ? Et ça veut dire quoi 35m ? Suite de ma question ? Merci
31.10.2023 - 00:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Gaetane, vous tricotez les augmentations du pouce (tricotez bien le point fantaisie comme indiqué dans les explications) et quand elles sont terminées, vous avez 45 ou 47 m en fonction de la taille, glissez les 11 ou 13 m du pouce en attente (comme dans la vidéo), montez 1 maille au-dessus des mailles en attente = vous avez de nouveau 35 mailles sur les aiguilles. Bon tricot!
31.10.2023 - 15:59
Gaetane skrifaði:
Bonjour, Continuer ainsi en rond et monter 1 maille au-dessus des mailles en attente = 35-35 mailles. Je ne saisi pas ça ! J ai mit mes 13 m en attente , et dois je monter 1m , et après je continue le tour comme avant et au retour je remonte une autre m, etc, jusqu’à 35 m ? C est ça ? Merci
30.10.2023 - 13:44DROPS Design svaraði:
Bonjour Gaetane, dans cette vidéo, nous montrons comment tricoter le gousset du pouce, et comment on met les mailles du pouce en attente et comment on monte des mailles au-dessus des mailles en attente (1 seule dans ce modèle, davantage dans la vidéo, mais suivez bien votre modèle) au time code 2:50 environ. Bon tricot!
30.10.2023 - 18:14
Gaetane skrifaði:
Bonjour, , augmenter 1 maille de chaque côté de la première maille du tour (maille du pouce) ça veut tu dire,augmenter au début et à la fin du tour ? Merci
30.10.2023 - 12:31DROPS Design svaraði:
Bonjour Gaétane, non, vous devez bien augmenter avant la 1ère maille, donc faites 1 jeté au début du tour, tricotez la 1ère maille et faites 1 jeté. Bon tricot!
30.10.2023 - 18:10
Savita Khurana skrifaði:
Wow , pretty Mittens
07.08.2023 - 03:12
Kristen skrifaði:
Kis-Mitten
03.08.2023 - 22:46
Slalom Slope Mittens#slalomslopemittens |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaðir vettlingar með köðlum úr DROPS Soft Tweed og DROPS Kid-Silk.
DROPS 242-35 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúið slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum þannig (byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði): 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 40-40 lykkjur á sokkaprjón 3 með 1 þræði DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar. Síðan er prjónað stroff þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum, 2 lykkjur slétt, A.1, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Prjónið stroff svona í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttar lykkjur og fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir fyrstu 22 lykkjurnar, A.2 yfir A.1, prjónið sléttar lykkjur og fækkið um 1 lykkju yfir síðustu 4 lykkjurnar = 35-35 lykkjur. Prjónið 18 lykkjur sléttprjón (innan í hönd), A.2 og 3 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 11-12 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við fyrstu lykkju í umferð (þumallykkja) – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út hvoru megin við þumallykkju í annarri hverri umferð alls 5-6 sinnum = 45-47 lykkjur. Nú eru 11-13 þumallykkjur settar á þráð. Haldið áfram hringinn eins og áður og fitjið upp 1 nýja lykkju aftan við þumal í næstu umferð = 35-35 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 24½-26½ cm (mátið e.t.v. vettlinginn, það eru eftir ca 3½ cm að loknu máli). Setjið 1 merkiþráð eftir fyrstu 17 lykkjur í umferð og 1 merkiþráð eftir næstu 17 lykkjur (það er eftir 1 lykkja í umferð á eftir seinni merkiþræði). Nú er prjónað sléttprjón yfir allar lykkjur og fækkað er um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3 sinnum = 11 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, herðið að og þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið aftur að og festið vel. ÞUMALL. Setjið til baka 11-13 lykkjur frá þræði á sokkaprjón 4. Prjónið að auki upp 4-3 lykkjur aftan við þumal = 15-16 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til þumall mælist ca 4½-5 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, það eru eftir ca ½ cm að loka máli). Prjónið 2 umferðir slétt þar sem allar lykkjur eru prjónaðar saman 2 og 2 = 4-4 lykkjur. Klippið frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri vettlingur, nema spegilmynd – þ.e.a.s. stroffið er prjónað þannig: 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, A.1, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum, 2 lykkjur brugðið. Prjónið stroff svona í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttar lykkjur og fækkið um 1 lykkju yfir fyrstu 4 lykkjurnar, A.2 yfir A.1, prjónið sléttar lykkjur og fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir síðustu 22 lykkjurnar. Prjónið 3 lykkjur sléttprjón, A.2, 18 lykkjur sléttprjón (innan í hönd). Aukið út fyrir þumal hvoru megin við síðustu lykkju í umferð. Á undan úrtöku efst á vettlingi er 1. merkiþráður settur á eftir fyrstu lykkju í umferð og 2. merkiþráður er settur á eftir næstu 17 lykkjum (17 lykkjur eftir í umferð á eftir seinni merkiþráð). |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #slalomslopemittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 242-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.