ML skrifaði:
Ved hælen. Skal der først strikkes 6 cm i glatstrik, og så efterfølgende laves hælindtagning, eller skal indtagningerne laves samtidig med at man måler op til de 6 cm??
11.10.2024 - 11:40
Angela Möbius skrifaði:
Bei 71 M mit dem Garn Nepal wird es eine Monstersocke, ich habe in Gr. 39 bisher 48 M aufgenommen. Könnt ihr das mal bitte prüfen?
08.01.2024 - 17:12
Angela Möbius skrifaði:
Bei 71 M mit dem Garn Nepal wird es eine Monstersocke, ich habe in Gr. 39 bisher 48 M aufgenommen. Könnt ihr das mal bitte prüfen?
08.01.2024 - 16:17DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Möbius, so wurde die Socken gestrickt, beachten Sie nur, daß Ihre Maschenprobe stimmt, damit die Socken passen. Beim Bündchen mit kleineren Nadeln braucht man auch mehr Maschen als fürs glatt rechts mit grösseren Nadeln. Viel Spaß beim stricken!
09.01.2024 - 07:21
Balancing Act#balancingactsocks |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaðir stuttir sokkar úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldu stroffi og köðlum. Stærð 35 - 43.
DROPS 244-37 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 10-10-12 lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA (á við um mitt að aftan og úrtöku fyrir tá): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). Þegar lykkjum er fækkað fyrir tá er úrtakan endurtekin við hitt prjónamerkið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi / legg niður að tá. STROFF – LEGGUR: Fitjið upp 63-71-75 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Nepal. Prjónið 1 umferð brugðið. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (mitt að aftan). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Síðan er prjónað stroff þannig: STÆRÐ 35/37 – 38/40: 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* 6-7 sinnum, A.1, 2 lykkjur brugðið *, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* 5-6 sinnum, prjónið 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið. Haldið svona áfram með stroff. STÆRÐ 41/43: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* 7 sinnum, 2 lykkjur brugðið, A.1, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* 7 sinnum, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stroffið mælist 6 cm (uppábrot efst), prjónið gagnstætt, þ.e.a.s. prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur (prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1). Þegar stroffið mælist 9 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 25-29-31 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 7-9-10 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, prjónið 25-29-31 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt 7-9-10 lykkjur jafnt yfir þessar 25-29-31 lykkjur = 49-53-55 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið þannig: 18-20-21 lykkjur sléttprjón, A.3, 18-20-21 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-17-18 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt að aftan – lesið ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 20-21-22 cm = 45-49-51 lykkjur. Þegar stroffið / leggur mælist 24-25-26 cm, prjónið hæll og fótur eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 10-11-12 lykkjur og haldið þessum lykkjum á prjóni fyrir hæl, prjónið næstu 25-27-27 lykkjur og setjið þær á þráð (mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 10-10-12 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 20-22-24 hællykkjur á prjóni. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 6-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð – síðar á að mæla stykkið frá þessu prjónamerki. Prjónið HÆLÚRTAKA – lesið útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 10-11-12 hællykkjur, prjónið upp 12-12-13 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður yfir 25-27-27 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 12-12-13 lykkjur meðfram hinni hlið á hæl = 59-61-65 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl – umferðin byrjar núna hér. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 25-27-27 lykkjur ofan á fæti. Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður og fækkið lykkjum í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir seinna prjónamerki ofan á fæti snúið slétt saman. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 3 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 6 sinnum = 41-43-47 sinnum. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 17-18-20 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti – ATH: Endið þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir á eftir umferð með snúningi í kaðli. Í næstu umferð er fækkað um 4 lykkjur í A.3, það er gert þannig: Prjónið eins og áður fram að 4 sléttprjónuðu lykkjum í fyrra kaðli, prjónið lykkjur snúnar slétt saman 2 og 2 (2 lykkjur færri), prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið síðan næstu 4 sléttprjónuðu lykkjur í seinni kaðli slétt saman 2 og 2 (2 lykkjur færri), prjónið áfram eins og áður og fækkið að lokum 1 lykkju mitt undir fæti með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman = 36-38-42 lykkjur. Nú er prjónað sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 18-19-21 cm frá prjónamerki á hæl – mælt undir fæti. Nú eru eftir ca 4-5-5 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 18-19-21 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚRTAKA (4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-5-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 2-2-3 sinnum = 12-10-10 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-5-5 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-26 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #balancingactsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.