Emma H skrifaði:
Jeg forstår ikke helt der hvor der står "Hækl fastmasker og tag 6 masker ud på samme måde som før, men på hver 2.omgang totalt 2-2-1 (2) gange.". Jeg laver størrelse 1-3 mdr., og prøvede hvor jeg først lavede fastmasker hele vejen rundt, dernæst 1 fastmaske i hver af de 6 første og 2 fastmasker I næste og så fremdeles hele vejen rundt. Disse to runder lavede jeg to gange pga størrelsen. Men jeg er ikke endt på 90 masker som der står - har mere end 100 masker
23.06.2026 - 17:55DROPS Design svaraði:
HeiEmma. Jo, når du har 78 fastmasker hekler du 1. omgang der du hekler 1 fastmaske i hver av de 12 neste fastmaskene og så hekles det 2 fastmasker i neste fastmaske (akkurrat som før, men med 1 fastmaske mer mellom økningene) = 84 fastmasker. Så hekles det 1. omgang uten å øke (1 fastmaske i hver fastmaske). Så hekles det en omgang der det økes igjen (1 fastmaske i hver av de 13 neste fastmaskene, 2 fastmaske i neste fastmaske (akkurrat som før, men med 1 fastmaske mer mellom økningene) = 90 masker. mvh DROPS Design
29.06.2026 - 09:52
Marion skrifaði:
Ich verstehe folgende Zeilen nicht: wie zuvor feste maschen häkeln und dabei 6 maschen zunehmen, jedoch nur in jederc2.rund3, dies insgesamt 2-2-1(2) Heisst das 1 Reihe häkeln mit 6 MASCHEN Zunahme, dann eine Reihe ohne zunahme, DANN wieder eine Reihe mit 6 maschen Zunahme, DANN WIEDER eine Reihe ohne Zunahme? Ich verstehe die 2-2-1 nicht.
28.04.2026 - 18:45DROPS Design svaraði:
Liebe Marion, in die Größe 0/1 + 1/3 Monate +3/4 Jahre werden Sie diese Zunahmen 2 Mal häkeln, aber in 6/9 Monate häklen Sie diese Zunahmen nur einmal. Viel Spaß beim Häkeln!
29.04.2026 - 07:52
Violetta skrifaði:
Czy mogę sprzedawać wyroby wykonane według wzorów drops oferując je w internecie? Wykonałam po kilka rozmiarów każdego projektu.
01.03.2026 - 23:25DROPS Design svaraði:
Witaj Violetto, jakie masz prawa znajdziesz w Copyright, na końcu każdego wzoru. Jest tam również mowa o sprzedaży: "Sprzedaż gotowej odzieży wykonanej na bazie wzorów DROPS jest dozwolona, o ile są one wytwarzane jednostkowo lub na zlecenie. Każde inne wykorzystywanie naszych wzorów do celów handlowych jest zabronione." Pozdrawiamy!
02.03.2026 - 08:53
Victoria skrifaði:
Efter de 3 første omgange med orange garn står der "fortsæt udtagningen således". Betyder det, at man skal gentage alle 3 omgange? I så fald passer første omgang ikke længere, da maskeantallet har ændret sig. Hvad menes med "dvs. det hækles 1 fastmaske mere mellem hver gang det tages ud på hver omgang, til det er totalt XXX masker på omgangen"? På forhånd tak!
09.06.2024 - 12:30DROPS Design svaraði:
Hej Victoria, vi beskriver 1 fm i hver af 2 masker, 2 fm i næste osv, næste gang er det 1 fm i hver af 3 m, 2 fm i næste, næste gang er det 1 fm i hver af 4 m, 2 fm i næste osv :)
12.06.2024 - 15:48
Sweet Tangerine Hat#sweettangerinehat |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Hekluð appelsínu / mandarínu húfa fyrir börn úr DROPS BabyMernio. Stykkið er heklað ofan frá og niður með stilk og blöðum. Stærð 0 - 4 ára.
DROPS Baby 45-11 |
|||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull/tvíbrugðinn stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR-1: Fyrstu fastalykkju er skipt út fyrir 1 loftlykkju, umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. LITASKIPTI: Þegar skipta á um lit, heklið fram að þar til hekla á 1 keðjulykkju, skipti yfir í nýja litinn og heklið keðjulykkjuna með nýja litnum. HEKLLEIÐBEININGAR-2: Þegar heklað á í hring án þess að enda umferð er heklað þannig: Þegar síðasta fastalykkja í umferð hefur verið hekluð, heklið fyrstu fastalykkju í næstu umferð í fyrstu fastalykkju frá fyrri umferð. Notið prjónamerki eða merkiþráð til að auðvelda að sjá hvar umferðin byrjar / endar. Til að koma í veg fyrir að það myndist „hak“ neðst á húfunni, heklið við byrjun á síðustu umferð með 1 loftlykkju og umferðin endar með 1 keðjulykkju í þessa loftlykkju. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir hvernig blöðin eru hekluð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá stilki efst á húfu og niður. Það eru hekluð 2 laus blöð sem eru saumuð niður við stilkinn í lokin. HÚFA: Notið heklunál 3 og DROPS Baby Merino í litnum ólífa. Heklið 5 LOFTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR-1. Heklið 10 fastalykkjur um hringinn. Haldið áfram að hekla 1 fastalykkju í hverja fastalykkju í hverri umferð þar til stykkið mælist ca 3-3-3-4 (4-4) cm. Lesið LITASKIPTI og skiptið yfir í litinn mandarína. Setjið eitt prjónamerki hér til að mæla frá! Heklið síðan fastalykkjur jafnframt því sem aukið er út þannig – ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 1: Heklið * 1 fastalykkju í hverja af 4 fyrstu / næstu lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 2 sinnum = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 2: Heklið * 1 fastalykkja í fyrstu / næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Heklið * 1 fastalykkju í hverja og eina af 2 fyrstu / næstu lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. Haldið svona áfram með útaukningu – þ.e.a.s. það er hekluð 1 fastalykkja fleiri á milli í hvert skipti sem aukið eru út í hverri umferð, þar til það eru alls 66-78-90-102 (108-102) lykkjur í umferð. Útaukningu er nú lokið í stærð 12/18 mánaða og 2 ára. STÆRÐ 0/1 - 1/3 - 6/9 mánaða og 3/4 ára: Heklið fastalykkjur og aukið út um 6 lykkjur alveg eins og áður, en í annarri hverri umferð alls 2-2-1 (2) sinnum. ALLAR STÆRÐIR: Það eru 78-90-96-102 (108-114) lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 4-5-5-5 (5-6) cm frá prjónamerki. Lestu HEKLLEIÐBEININGAR-2 og heklið síðan með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til stykkið mælist ca 14-15-16-17 (17-18) cm frá prjónamerki. Nú er hekluð 1 umferð í lokin sem gerir það að kanturinn á húfunni rúllast aðeins upp, heklið þannig: * 1 fastalykkja í hverja af 12-14-15-16 (17-18) fyrstu / næstu fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Klippið þráðinn og festið. BLAÐ: Notið litinn salvíugrænn og heklunál 3, heklið 13 loftlykkjur – þessar loftlykkjur eru teiknaðar inn í mynsturteikningu A.1 – fylgið táknum og heklið blaðið eins og mynsturteikningin sýnir. Látið þráðarendann vera ca 15 cm til að hægt sé að nota hann þegar festa á blaðið á toppinn á húfunni. Heklið 1 blað til viðbótar á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið bæði blöðin á húfuna í skiptinguna á milli litnum ólífa og litnum mandarína. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweettangerinehat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 45-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.