Ingrid Mcmillan-ernst skrifaði:
Hello. Can you please tell me, if possible, what size the model in the picture is wearing? Thank you!
27.04.2023 - 17:53DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Mcmillan-ernst, most of the time, our models are wearing either a size S or a size M, but since every body is different, measure a similar garment you have and like the shape and compare to the measurements in the chart (taken flat from side to side - in cm, convert into inches here). read more here. Happy knitting!
28.04.2023 - 09:38
Nayfher skrifaði:
Esta parte no la entiendo *trabajar 2 pliegues sobre los 6-8-9-12-14-16 puntos más externos a cada lado* . A qué se refieren con pliegues
19.04.2023 - 12:04DROPS Design svaraði:
Hola Nayfher, los pliegues están explicados en EXPLICACIONES PARA REALIZAR LA LABOR; 1 pliegue = 2 filas de derecho.
23.04.2023 - 18:10
Agnès skrifaði:
Dune
21.01.2023 - 17:46
Marta skrifaði:
Fawn Top
18.01.2023 - 16:15
Janna skrifaði:
Chocolate Wine
17.01.2023 - 22:09
Huerne Françoise skrifaði:
Menton
17.01.2023 - 18:17
Coconut Adventure Top#coconutadventuretop |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónaður toppur / bolur úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri og I-cord kanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 239-33 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju innan við ystu 2 lykkjurnar í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (2 lykkjur færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur slétt saman, 1 lykkja í garðaprjóni (2 lykkjur færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja í garðaprjóni (1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka, hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Bönd á öxlum / hlýrar er prjónað í snúruprjóni og fellt er af með i-cord kanti meðfram hálsmáli á framstykki og á bakstykki. Böndin á öxlum / hlýrar er saumað við bakstykkið. Að lokum eru hliðarsaumar saumaðir. BAKSTYKKI: Fitjið upp 109-117-129-143-159-179 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 lykkju GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til stykkið mælist 2 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu). Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-16-18-20-22-26 lykkjur jafnt yfir = 93-101-111-123-137-153 lykkjur. Síðan er prjónað sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 6-6-6-8-8-8 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 7-7-8-8-8-8 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 99-107-117-129-143-159 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 6-8-9-12-14-16 lykkjur í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). Eftir 4 umferðir í garðaprjóni eru felldar af 5-7-8-11-13-15 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á næstu tveimur umferðum = 89-93-101-107-117-129 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handvegi – sjá ÚRTAKA. Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) þar til lykkjum hefur verið fækkað alls 17-19-21-21-22-24 sinnum í hvorri hlið = 55-55-59-65-73-81 lykkjur. Geymið lykkjurnar á prjóni. Nú er fellt af með i-cord kanti eins og útskýrt er að neðan. I-CORD KANTUR: Fitjið upp 5 lykkjur á 1 sokkaprjón nr 2,5 (prjónið með hinum). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Snúið prjóni, * prjónið 4 fyrstu lykkjur slétt, prjónið síðustu lykkju snúna slétt saman með fyrstu lykkju sem situr á prjóni á bakstykki (frá réttu), lyftið til baka lykkjum sem prjónaðar voru yfir á vinstri prjón *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur á bakstykki hafa verið felldar af og eftir eru 5 lykkjur á hægri prjóni. Fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 109-117-129-143-159-179 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 lykkju GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til stykkið mælist 2 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu). Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – jafnframt því sem í fyrstu umferð er fækkað um 16-16-18-20-22-26 lykkjur jafnt yfir = 93-101-111-123-137-153 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 27-31-36-42-49-57 lykkjur sléttprjón, A.1, 27-31-36-42-49-57 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6-6-6-8-8-8 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 7-7-8-8-8-8 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 99-107-117-129-143-159 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 6-8-9-12-14-16 lykkjur í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Eftir 4 umferðir í garðaprjóni er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 5-7-8-11-13-15 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 42-44-48-51-56-62 lykkjur eins og áður, setjið 2 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, prjónið 3 næstu lykkjur slétt saman og setjið þessar 43-45-49-52-57-63 lykkjur á þráð = STYKKI-1. STYKKI-2: Prjónið 2 lykkjur af hjálparprjóni snúnar slétt saman, prjónið næstu 41-43-47-50-55-61 lykkjur eins og áður og prjónið síðustu 6-8-9-12-14-16 lykkjur slétt. Snúið stykkinu. Fellið af 5-7-8-11-13-15 lykkjur fyrir handveg, prjónið mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni = 43-45-49-52-57-63 lykkjur. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli og handvegi. Lykkjum er fækkað í hvorri hlið innan við 1 lykkju í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA, en lykkjum er fækkað mismunandi fyrir v-hálsmáli og handvegi. Lestu því kaflann V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram. V-HÁLSMÁL: Fækkið um 2 lykkjur fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 4-2-2-3-6-8 sinnum, síðan er fækkað um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð alls 13-17-19-18-16-16 sinnum. ATH: Næst ysta lykkja meðfram v-hálsmáli (lykkjan innan við garðaprjóns lykkju), er alltaf prjónuð í sléttprjóni. HANDVEGUR: Fækkið um 1 lykkju fyrir handveg í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 17-19-21-21-22-24 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir v-hálsmáli og handvegi eru 5-5-5-7-7-7 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið lykkjur slétt saman 2 og 2 þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkju slétt. Fellið af. STYKKI-1: Setjið til baka 43-45-49-52-57-63 lykkjur frá STYKKI-1 á hringprjón 3,5. Prjónið mynstur fram og til baka eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg og v-hálsmáli. Fækkið lykkjum alveg eins og á STYKKI-2 = 5-5-5-7-7-7 lykkjur eftir. Prjónið þessar lykkjur slétt saman 2 og 2 þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju slétt. Fellið af. Prjónið síðan band á öxl / hlýra og i-cord kant eins og útskýrt er að neðan. BAND Á ÖXL / HLÝRI OG I-CORD KANTUR: Byrjið með að prjóna upp lykkjur frá réttu meðfram v-hálsmáli á framstykki. Notið hringprjón 2,5 og prjónið upp ca 75 til 105 lykkjur innan við 1 lykkju í garðaprjóni (jafngildir ca 1 lykkju í hverja lykkju/umferð frá horni að horni meðfram v-hálsmáli). Klippið þráðinn frá. Fitjið upp 5 lykkjur á 1 sokkaprjón nr 2,5 (prjónið með hinum), prjónið snúruprjón þannig: * Færið lykkjurnar að byrjun á umferð, herðið á þræði og prjónið 5 lykkjurnar slétt frá réttu *, prjónið frá *-* þar til bandið á öxl / hlýrinn mælist ca 12-12-12-14-14-14 cm bandið á að liggja yfir öxlina á milli framstykkis og bakstykkis, mátið e.t.v. toppinn og stillið lengdina af). Ekki klippa þráðinn frá. Nú er fellt af með i-cord affellingu meðfram v-hálsmáli á framstykki þannig: Byrjið frá réttu, * prjónið 4 fyrstu lykkjur frá snúrunni slétt, prjónið síðustu lykkjuna snúna slétt saman með fyrstu lykkju á prjóni frá framstykki. Lyftið til baka lykkjum sem prjónaðar voru á vinstri prjóni *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur meðfram v-hálsmáli á framstykki hafa verið felldar af og 5 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Færið þessar 5 lykkjur yfir á vinstri prjón, prjónið snúruprjón þar til bandið á öxl / hlýri mælist ca 12-12-12-14-14-14 cm (stillið lengdina eftir hinu bandinu á öxl / hlýra). Klippið þráðinn, þræðið í gegnum lykkjurnar, herðið á þræði og festið vel. FRÁGANGUR: Saumið böndin á öxl / hlýra efst á bakstykki – yst í hvora hlið. Saumið hliðarsauma innan við 1 lykkju í garðaprjóni. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #coconutadventuretop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.