Lydia skrifaði:
Hvor stramt strikkes disse? Jeg får 18 masker i bredden på pinne 3,5mm og 19 masker på pinne 2,5mm. Hvor mye forskjell størrelsesmessig vil det utgjøre? Skal strikke den største størrelsen, men er redd de vil bli for store siden jeg har såpass få masker, og pinnene jeg i såfall trenger for å få 22 masker eksisterer ikke.
09.12.2024 - 17:58DROPS Design svaraði:
Hej Lydia, strikker du i DROPS Karisma? Da vil du let få den strikkefasthed vi skriver i opskriften :)
11.12.2024 - 12:27
Sandra Amon skrifaði:
Am Ende des Absatzes „Ferse und Fuß“ hat sich ein kleiner Fehler eingeschlichen. Die Zahl der Maschen nach den Abnahmen stimmen nicht. Sonst eine supergute Anleitung! Danke!
18.10.2023 - 20:24DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Amon, ich habe die richtige Maschenanzahl nach den Abnahmen: es sind 66-72-74 Maschen und dann wird es in jeder Runde 4-4-3 Mal 2 Maschen + in jeder 2. Runde 6-7-6 Mal 2 Maschen abgenommen = insgesamt 20-22-18 Maschen abgenommen = 46-50-56 Maschen sind noch übrig. Viel Spaß beim stricken!
19.10.2023 - 08:34
Lea skrifaði:
Hej! I pindestørrelse står der to forskellige - hvilken af pindene er strikkefastheden målt med?
17.11.2022 - 16:08DROPS Design svaraði:
Hei Lea. Pinne 3 brukes når det strikkes vrangbord (2 rett / 2 vrang), mens pinne 3,5 brukes når resten av sokken strikkes og da er det i glattstrikk, som strikkefastheten er oppgitt i. Du kan ha som huskeregel at strikkesfastheten er til den pinnen som det blir brukt mest av i en oppskrift. Om det da ikke er beskrevet noe annet i oppskriften du strikker etter. mvh DROPS Design
21.11.2022 - 08:00
Snowman Time Socks#snowmantimesocks |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaðir sokkar fyrir herra úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í marglitu mynstri með jólatrjám og snjóköllum. Stærð 38 – 46. Þema: Jól.
DROPS 233-16 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg að sokkarnir missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14-16-16 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um úrtöku fyrir tá): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). Endurtakið við hitt prjónamerkið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi niður að tá. Lengdin á sokknum jafngildir lengd á fæti. Ef þú vilt að sokkurinn teygist aðeins þegar hann er mátaður, þá er hægt að prjóna aðeins styttri lengd áður en úrtakan byrjar fyrir tá. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 60-68-68 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum skógargrænn í DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) jafnframt því sem prjónaðar eru rendur þannig: Prjónið 2 umferðir með litnum skógargrænn, 2 umferðir með litnum ljós grár, 4 umferðir með litnum skógargrænn, síðan heldur stroffið áfram með litnum ljós grár þar til stroffið mælist 4-5-5 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt með litnum ljós grár þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 56-64-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 alls 7-8-8 sinnum hringinn á leggnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2 alls 7-8-8 sinnum hringinn á leggnum. JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 0-8-8 lykkjur jafnt yfir = 56-56-56 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 alls 7 sinnum hringinn á leggnum. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum ljós grár. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 4-0-0 lykkjur jafnt yfir = 52-56-56 lykkjur. Þegar stroffið og leggurinn mælist 16-17-18 cm, prjónið hæl og fót eins og útskýrt er að neðan með litnum ljós grár. HÆLL OG FÓTUR: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 13-14-14 lykkjur og haldið eftir þessum lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 26-28-28 lykkjur á þráð (mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 13-14-14 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 26-28-28 hællykkjur á prjóni. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 6-6½-7 cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð. Stykkið er síðar mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 14-16-16 hællykkjurnar, prjónið upp 13-14-15 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttprjóni yfir 26-28-28 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 13-14-15 lykkjur meðfram hinni hlið á hælnum = 66-72-74 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl – umferðin byrjar núna hér. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 26-28-28 lykkjur ofan á fæti. Prjónið sléttprjón og fækkið lykkjum í hvorri hlið þannig: Prjónið síðustu 2 lykkjur á undan fyrra prjónamerki á fæti slétt saman og prjónið fyrstu 2 lykkjur á eftir seinna prjónamerki á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 4-4-3 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 6-7-6 sinnum = 46-50-56 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 19-21-22 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Nú eru eftir ca 5-5-6 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 23-25-28 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 7-6-7 sinnum og síðan í hverri umferð alls 2-4-5 sinnum = 10-10-8 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum lykkjurnar, herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 24-26-28 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowmantimesocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 233-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.