Rita skrifaði:
Buongiorno, non capisco cosa vuol dire, nella descrizione del collo: Aumentare 1 maglia in ognuna delle 14 sezioni a rovescio centrali, viste dal diritto del lavoro. Può spiegare meglio? Grazie!
30.01.2025 - 08:35DROPS Design svaraði:
Buongiorno Rita, il collo è lavorato a coste e gli aumenti vanno lavorati nelle sezioni a rovescio delle coste. Buon lavoro!
09.02.2025 - 11:25
Dilianne skrifaði:
Bij dit patroon staat als alternatief garen A+A. Moet ik dan 2 garensoorten uit categorie A samenvoegen? Kunt u mij misschien een suggestie doen?
14.11.2024 - 10:45DROPS Design svaraði:
Dag Dilianne,
Ja, als er A+A staat betekent dat dat je 2 draden beide uit garencategorie samen kunt gebruiken, dus met 2 draden tegelijkertijd breien.
21.11.2024 - 20:26
Simone skrifaði:
Oh nee, ik snap het al. De grote maten hebben wijdere mouwen natuurlijk!
25.02.2024 - 21:20
Simone skrifaði:
Bij de mouwen staat het aantal cm voor de hoogte voor de mouwinzet andersom lijkt mij. 46-45-44~42-41-40 moet andersom zijn. De kleinste maat bij 40 cm denk ik
25.02.2024 - 20:30DROPS Design svaraði:
Dag Simone,
Nee, het klopt, want de grotere maten hebben een grotere mouwkop en de kleinere maten hebben een kleinere mouwkop.
28.02.2024 - 20:25
Valen Morentin skrifaði:
Tengo problemas con el cuello si aumento en los puntos centrales como continua el elastico
13.12.2023 - 22:14DROPS Design svaraði:
Hola Valen, aumentas un punto en cada una de las secciones de revés. Por lo tanto, pasas a tener un elástico de 2 derechos, 3 reveses, que es el que vas a continuar hasta el final.
17.12.2023 - 21:13
Noicy Alexandra skrifaði:
Pour le col, que voulez-vous dire par \"...chacune des 14 sections en maille envers au milieu des côtes, vu sur l\'endroit (encolure dos) \" svp ?
08.07.2023 - 17:40DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Noicy, ces sections font références aux 2 mailles envers tricotées au milieu des côtes, autrement dit, vous allez augmenter pour avoir 3 mailles envers / 2 mailles endroit au milieu du col et toujours 2 mailles envers/2 mailles endroit de part et d'autre. Bon tricot!
28.07.2023 - 09:24
Lise skrifaði:
Kan man slå alle masker til bagstykke og forstykker op på en gang og strikke frem og tilbage på rundpind indtil deling til ærmegab så sammensyning i siderne undgåes? Venlig hilsen Lise
02.07.2023 - 00:16DROPS Design svaraði:
Hei Lise. Det kan du, bare husk riktig maskeantall (kantmaske i siden trengs ikke da) og at det felles av riktig antall masker til ermhull i hver side. mvh DROPS Design
03.07.2023 - 10:34
Mia skrifaði:
Hei, vaihdoin tähän ohjeeseen langaksi Nepalin, eikä neulomisesta tule mitään. Olen nyt kokeillut erikokoisia puikkoja koosta 4,5 kokoon 6, ja aina vaan leveys on yli 10 cm vähemmän kuin mitä pitäisi olla koossa xl. Olen neuvoton. Mitä tässä pitäisi tehdä?
18.05.2023 - 10:21DROPS Design svaraði:
Hei, kokeile vieläkin paksumpia puikkoja (nro 6½ tai 7). Tee aluksi koetilkku ja tarkista, että saat seuraavan neuletiheyden: 16 silmukkaa x 20 kerrosta sileää neuletta = 10 x 10 cm.
18.05.2023 - 16:26
Kristine skrifaði:
Hvilken størrelsen bruker modellen på bildet?
08.05.2023 - 09:07DROPS Design svaraði:
Hei Kristine. Hun bruker enten str. S eller M. Husk at dette er en oversized genser. Sjekk målene på målskissen og sammenlig de med en genser du allerede har, så finner du den passformen som du ønsker. mvh DROPS Design
08.05.2023 - 14:02
Sue England skrifaði:
I am not sure how to pick up stitches when doing this pattern particularly from mid way across v neck
11.01.2023 - 20:52DROPS Design svaraði:
Dear Mrs England, you can pick up 1 stitch in every stitch along the V-neck (in every row), and pick up along the "straight" edge after decreases for neck as usual (see video). Should your number of stitches not be the right one, you can adjust it on the very first round increasing/decreasing stitches evenly. Happy knitting!
12.01.2023 - 09:34
November Breeze#novemberbreezesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með sjalkraga. Stærð S - XXXL
DROPS 236-20 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um v-hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN Á UMFERÐ: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni (1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um ermi): Sláið 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 lykkjur í hvorri hlið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ----------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið, bakstykkið og ermar er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka og saumaður saman mitt að framan. BAKSTYKKI: Fitjið upp 90-100-108-116-128-140 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Air. Prjónið stroff þannig – fyrsta umferð er frá réttu: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff fram og til baka í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 10-12-14-14-16-18 lykkjur jafnt yfir = 80-88-94-102-112-122 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið. Fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: Fellið af 4 lykkjur 0-0-0-1-1-1 sinni, 3 lykkjur 0-0-1-0-0-0 sinnum, 2 lykkjur 1-1-1-1-2-3 sinnum og 1 lykkju 0-0-4-3-4-6 sinnum = 76-78-82-84-88-90 lykkjur. Prjónið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm, fellið af miðju 34-34-36-38-38-40 lykkjur fyrir hálsmáli. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 20-22-22-23-25-25 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á bakstykki og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm. Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram! Nú á að fella af fyrir handvegi eins og á bakstykki, JAFNFRAMT því sem felldar eru af 14 miðjulykkjur í hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig, í fyrstu umferð er fitjuð upp 1 kantlykkja í garðaprjóni þar sem lykkjur voru felldar af fyrir hálsmáli (að miðju að framan). Sjá ÚRTAKA og fellið af fyrir v-hálsmáli í hverri umferð frá réttu 9-8-9-10-10-11 sinnum, eftir það í 2. hverri umferð frá réttu 3-3-3-4-4-4 sinnum. Þegar allar affelling / úrtaka hefur verið gerð fyrir handveg og v-hálsmáli eru 20-22-22-23-25-25 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 46-46-50-50-54-58 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Air. Prjónið stroff þannig – fyrsta umferð er frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff svona fram og til baka í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4-2-6-4-6-8 lykkjur jafnt yfir = 42-44-44-46-48-50 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-8-10 cm, aukið út með 1 lykkju innan við 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-4-2½-2½-2½-2 cm millibili alls 9-9-12-12-13-14 sinnum = 60-62-68-70-74-78 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 46-45-44-43-42-40 cm. Í næstu 2 umferðum eru felldar af 4 lykkjur í byrjun á hverri umferð. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-1-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 1-2-2-2-3-3 sinnum, 1 lykkja 1 sinni. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 50 cm í öllum stærðum. Fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist 51 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt framan á vinstri hlið við lykkjur sem felldar voru af mitt að framan fyrir v-hálsmáli. Notið hringprjón 4,5 og DROPS Air. Prjónið upp ca 43-45-46-48-50-52 lykkjur innan við 1 kantlykkju upp að öxl, síðan eru prjónaðar upp 26-27-27-27-29-29 lykkjur aftan í hnakka og að lokum ca 43-45-46-48-50-52 lykkjur innan við 1 kantlykkju frá öxl og niður að lykkjum sem felldar voru af mitt að framan = ca 112-117-119-123-129-133 lykkjur – lykkjur eru ekki prjónaðar upp þar sem fellt var af mitt að framan. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 116-124-124-128-136-140 lykkjur. Síðan er prjónað stroff þannig – fyrsta umferð er frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir og endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til kraginn mælist ca 5 cm. Nú er aukið út um 1 lykkju í hverja af miðju 14 brugðnu einingunum, séð frá réttu (aftan í hnakka) = 130-138-138-142-150-154 lykkjur. Prjónið áfram þar til kraginn mælist 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR-2: Leggið kragann saman tvöfaldan þannig að vinstri hlið liggi yfir hægri hlið neðst í opi í hálsmáli. Saumið hálsmálið fallega niður að framan, saumið í gegnum bæði lögin. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #novemberbreezesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.