Heike Mitteregger skrifaði:
Liebes DROPS-Team, danke für die sehr schnelle Antwort! Jetzt taucht ein weiteres Problem auf: Wenn BEIDSEITIG jeweils 1 Masche 3-3-4 x in den Abständen von 2 u. dann 3 Reihen für den Daumen zugenommen werden, ergeben das 68-70-76 Maschen. Das ist dann auch richtig gerechnet bei den stillgelegten Maschen. Dementsprechend ergeben das dann aber nach Abzug stillgelegten Maschen mit den 3 neuen Maschen 53-53-57 Maschen. Oder sehe ich das falsch?
26.11.2024 - 21:48DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Mittregger, es wird (jeweils 2 Maschen) zuerst in jeder 2. Runde insgesamt 3-3-4 x in der Höhe dann in jeder 3. Runde insgesamt 3-4-4 x in der Höhe zugenommen, dh insgesamt 6-7-8 Mal x 2 Maschen =12-14-16 Maschen + die vorigen 50-50-54 Maschen sind dann 62-64-70 Maschen. Viel Spaß beim Stricken!
27.11.2024 - 07:13
Heike Mitteregger skrifaði:
Liebes DROPS-Team, Beziehen sich bitte die Längenangaben (z. B. "bei einer Länge von 8 cm 3 Maschen gleichmäßig verteilt abnehmen ...") auf die Gesamtlänge des Strickstücks oder erst ab Beginn der Reihen mit dem Muster A.1?
21.11.2024 - 23:14DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Mitteregger, diese 8 cm (sowie die 14-16-19 cm später beschrieben) messen Sie ab Anschlagskante = Gesamthöhe (mit Bündchen). Viel Spaß beim Stricken!
22.11.2024 - 09:51
Snowie Mittens#snowiemittens |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónaðir og þæfðir vettlingar úr 1 þræði DROPS Lima og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með köðlum.
DROPS 234-54 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Aukið út um 2 lykkjur fyrir þumal með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju með prjónamerki í. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Vettlingarnir eru þæfðir í þvottavél. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 56-56-60 lykkjur á sokkaprjón 5 með 1 þræði DROPS Lima og 1 þræði DROPS Kid-Silk (2 þræðir). Prjónið hringinn í stroffprjóni (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið), þar til prjónaðar hafa verið 8 umferðir. Nú er prjónað sléttprjón og mynstur A.1 þannig: Prjónið 20-20-22 lykkjur sléttprjón, A.1, prjónið 20-20-22 lykkjur sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm, fækkið um 3 lykkjur jafnt yfir á undan A.1 og 3 lykkjur jafnt yfir á eftir A.1 = 50-50-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki fyrir þumal í 7.-7.-8. lykkju á undan A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14-16-19 cm, byrjar útaukning fyrir þumal – sjá ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu utan með útauknum lykkjum í annarri hverri umferð alls 3-3-4 sinnum og í 3. hverri umferð alls 3-4-4 sinnum = 62-64-70 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 21-24-28 cm. Setjið þumallykkjur og 1 lykkju hvoru megin við þumallykkjur á þráð (= 15-17-19 lykkjur á þræði). Í næstu umferð eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur á bakhlið á þumallykkjum, þar sem lykkjur voru settar á þráð = 50-50-54 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 35-38-42 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af þannig að nýlega hefur verið snúið í kaðli í A.1 (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli). Nú er prjónað áfram og lykkjum fækkað efst á vettlingi þannig: UMFERÐ 1: Prjónið mynstur A.2 yfir A.1, JAFNFRAMT er prjónað sléttprjón og fækkað um 10 lykkjur jafnt yfir þær lykkjur sem eftir eru = 38-38-42 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið mynstur A.2 og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru = 36-36-40 lykkjur. UMFERÐ 3: Prjónið mynstur A.2, JAFNFRAMT því sem prjónað er sléttprjón og fækkað um 10 lykkjur jafnt yfir þær lykkjur sem eftir eru = 24-24-28 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið mynstur A.2 og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru = 22-22-26 lykkjur. UMFERÐ 5: Prjónið mynstur A.2, JAFNFRAMT því sem prjónað er sléttprjón og fækkað um 10 lykkjur jafnt yfir þær lykkjur sem eftir eru = 10-10-14 lykkjur. UMFERÐ 6: Prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 5-5-7 lykkjur. Klippið þráðinn. Þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 38-41-45 cm frá uppfitjunarkanti að toppi. ÞUMALL: Setjið 15-17-19 þumallykkjur á sokkaprjóna 5 og prjónið upp 5 lykkjur á bakhlið á þumli (þar sem fitjaðar voru upp 3 lykkjur) = 20-22-24 lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni. Þegar þumallinn mælist ca 6½-6½-7 cm fækkið um 4-4-6 lykkjur jafnt yfir (fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman) = 16-18-18 lykkjur. Prjónið 2 umferðir án úrtöku. Í næstu umferð er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 12-14-14 lykkjur. Þegar stykkið mælist 8½-8½-9 cm prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 6-7-7 lykkjur. Þumallinn mælist ca 9-9-9½ cm. Klippið þræðina, þræðið þá í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Prjónið hægri vettlinginn á sama hátt, en setjið prjónamerki fyrir þumal í 7.-7.-8. lykkju á eftir mynstri A.1. ÞÆFING: Til þess að koma í veg fyrir að þumallinn þæfist saman, snúið vettlingnum við og setjið lítinn plastpoka í þumalinn. Festið hann með nælu – ATH: Festið næluna lóðrétt niður að topp á þumli þannig að auðvelt sé að taka hana úr eftir þæfingu. Snúið vettlingnum til baka þannig að vettlingurinn þæfist með réttuna út. Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm. Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi. Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott. EFTIR ÞÆFINGU: Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott. Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowiemittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 234-54
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.