Esther Henriksen skrifaði:
Kan man strikke den oppe fra og kan man strikke den rundt i stedet for at skulle syg den sammen tilsidst ?
11.08.2023 - 19:56DROPS Design svaraði:
Hej Esther, du kan strikke alle disse i samme garn og strikkefasthed oppefra: dame - 11 m - oppefra - dobbelt halskant
16.08.2023 - 10:48
Sabrina skrifaði:
Hvad er den foreslåede “ease” på sweateren? Jeg har brystomkreds på 89 cm, ved ikke om en str. S vil være “nok” med 11 cm ease? Men en medium med 19 cm ease lyder meget baggy.
01.03.2023 - 19:41DROPS Design svaraði:
Hei Sabrina. Her er det vanskelig å gi et korrektsvar. Noen vil nok mene at 11 cm ease er nok, mens andre ikke. Men ta en genser du allerede har og liker målene på, deretter sammenlign med målskissen til denne genseren, så finner du nok de målene du ønsker uten å tenke på str. mvh DROPS Design
06.03.2023 - 13:37
Nathalie Craig skrifaði:
J’adore ce modèle, mais comme dans beaucoup d’autres où il y a mélange de deux laines, c’est très difficile de se faire une idée du rendu d’autres couleurs. Est ce que ça serait possible d’avoir quelques échantillons dans d’autres mélanges ? Merci !
04.11.2022 - 09:59DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Craig, pour toute assistance au choix d'une ou plusieurs couleurs, n'hésitez pas à contacter directement votre magasin DROPS- même par mail ou téléphone, vous pourrez être conseillée au mieux en fonction de vos envies et des possibilités. Bon tricot!
04.11.2022 - 13:37
Vicki skrifaði:
Where can I find the amount of yarn balls I need to knit this pattern please.
02.11.2022 - 20:52DROPS Design svaraði:
Hi Vicki, The yarn amounts are at the top of the page under Materials. Happy crafting!
03.11.2022 - 06:51
Sophie skrifaði:
Hej! Stickas tröjan utan kantmaskor?
05.10.2022 - 09:46DROPS Design svaraði:
Hej Sophie, ja den yderste maske vil automatisk blive en kantmaske, men den strikkes som de andre masker :)
07.10.2022 - 11:41
Cecilie Nissen Jøhnk skrifaði:
Ice Nice - or Ice Queen, like Emanuelle suggested. I love it, and somehow, while I think you'll look very cute in it, it immediately made me think of the riding a sleigh drawn by wolves in Narnia. I love the neckline.
07.08.2022 - 11:21
Beatrice skrifaði:
Nougat glacé
06.08.2022 - 17:18
Emmanuelle skrifaði:
The Ice Queen
06.08.2022 - 11:25
Silvia skrifaði:
Eisprinzessin
05.08.2022 - 14:45
Winter Awakens#winterawakenssweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Wish eða 1 þræði DROPS Snow. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 236-21 |
||||
------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað hvort fyrir sig, fram og til baka á hringprjóna. Prjónað er neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman og prjónaður er kantur í hálsmáli í hring á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 50-54-58-62-66-72 lykkjur með 1 þræði DROPS Wish eða DROPS Snow og 1 þræði DROPS Fabel (2 þræðir) á hringprjón 7. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 9 og prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-36-37 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið, fellið af 1-2-3-3-4-6 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum. Nú eru 48-50-52-56-58-60 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af miðju 18-18-20-20-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Það eru 15-16-16-18-18-19 lykkjur á hvorri öxl. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af 1 lykkju í fyrstu umferð frá hálsmáli. Það eru 14-15-15-17-17-18 lykkjur í umferð. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og prjónið alveg eins og á bakstykki þar til stykki mælist 43-44-45-46-47-48 cm. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af miðju 12-12-14-14-16-16 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Það eru 18-19-19-21-21-22 lykkjur á hvorri öxl. Ekki klippa þræðina frá, hægri öxl er nú prjónuð héðan. HÆGRI ÖXL FRAMSTYKKI: Haldið áfram í sléttprjóni með byrjun frá röngu og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á næstu umferð frá réttu þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og fellið af 1 lykkju 2 sinnum = 14-15-15-17-17-18 lykkjur. Prjónið sléttprjón og fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. VINSTRI ÖXL FRAMSTYKKI: Haldið áfram í sléttprjóni með byrjun frá réttu og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á næstu umferð frá röngu þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og fellið af 1 lykkju 2 sinnum = 14-15-15-17-17-18 lykkjur. Prjónið sléttprjón og fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. ERMI: Fitjið upp 34-36-38-38-40-40 lykkjur með 1 þræði í hvorri tegund á hringprjón 7. Prjónið fram og til baka í stroffprjóni (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 16 cm. Skiptið yfir á hringprjón 9 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 20 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 lykkju í hvorri hlið. Uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð til að koma í veg fyrir göt. Aukið svona út með ca 5 cm millibili alls 0-0-0-1-2-3 sinnum = 34-36-38-40-44-46 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 50-50-50-49-49-49 cm frá uppfitjunarkanti og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi ca 1-2-3-3-4-6 cm niður frá affellingarkanti – þessi prjónamerki eru notuð þegar ermar eru saumaðar við framstykki og bakstykki. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermina niður á framstykki og bakstykki innan við þar sem fellt var af fyrir handvegi. Saumið ermina saman frá uppfitjunarkanti og upp að prjónamerki á ermi – saumi í ystu lykkjubogana. Saumið niður síðustu cm frá prjónamerki og upp að affellingu þar sem lykkjur voru felldar af á framstykki/bakstykki – sjá teikningu. Saumið hliðarsaum – saumið í ystu lykkjubogana. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við sauminn á öxl. Notið stuttan hringprjón 7 og prjónið upp ca 56 til 72 lykkjur í kringum allt hálsmálið (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í ca 18 cm eða að óskaðri lengd. Brjótið hálsmálið e.t.v. inn og festið með nokkrum sporum við hvorn axlasauminn. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterawakenssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.