Hanne Dollerup Larsen skrifaði:
Super fin vest, jeg vil meget gerne lave den.
14.12.2024 - 22:43
Hanne Larsen skrifaði:
Den er så fin
14.12.2024 - 22:42
Ria skrifaði:
Ik zou graag de Hazy Dew slipover haken in XL en dan een centimeter of 2/3 langer. Kunt u zeggen hoeveel gram/bollen ik dan in totaal moet bestellen?
29.10.2024 - 12:40DROPS Design svaraði:
Dag Ria,
Dat weet ik niet precies hoeveel je dan extra nodig hebt, maar je zou bijvoorbeeld 2 bollen extra kunnen bestellen. Meestal kun je overgebleven bollen onder bepaalde voorwaarden terug sturen naar de winkel waar je ze hebt gekocht. Vraag je verkooppunt naar de voorwaarden.
30.10.2024 - 19:30
Helga Eitel skrifaði:
Wieso muss ich nach 24 cm bereits mit dem Armausschnitt beginnen? das ist an der Taille. Ich bin 1,74 m groß und möchte den Pullunder länger haben. Haben Sie einen Tipp für mich wie ich das häkeln kann?
18.10.2024 - 17:02DROPS Design svaraði:
Liebe Freu Eitel, alle fertige Maßnahmen finden Sie in der Skizze - beachten Sie, daß Sie dann dafür mehr Garn brauchen, wenn Sie den Pullunder länger stricken. Viel Spaß beim Häkeln!
21.10.2024 - 07:17
Mariagrazia skrifaði:
Penso che ci sia un errore nella spiegazione del 1° giro bordo del collo, manca l\'indicazione delle catenelle. Non è possibile che si lavori solo maglie basse senza l\'intervallo di catenelle tra l\'una e l\'altra, il bordo risulterebbe troppo tirato.
15.04.2024 - 09:53
Matilda skrifaði:
Stor i storleken och ärmhålen är för stora för mitt tycke. Trots rätt virkfasthet blev plagget pösigt och ser lite märkligt ut. Skulle rekommendera att vänta med att göra hål för ärmar samt att virka med mindre virknål eller färre stolpar.
16.11.2023 - 00:03
Iben Wind skrifaði:
Vest
27.12.2022 - 20:50
Roi skrifaði:
J’aime beaucoup celui-ci
05.08.2022 - 20:13
Hazy Dew Slipover#hazydewslipover |
|
![]() |
![]() |
Heklað vesti úr DROPS Air. Stykkið er heklað neðan frá og upp með klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 236-40 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umferðir með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum, þessar 3 loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul, þ.e.a.s. hoppið yfir fyrsta stuðul frá fyrri umferð. Síðasti stuðullinn í umferð er heklaður í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. Í kanti í kringum handveg (2. umferð) er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. ÚRTAKA (á við um handveg og hálsmál): Í byrjun á umferð: Skiptið út þeim lykkjum sem fækka á um með 1 keðjulykkju. Í lok umferðar: Ekki er heklað yfir þann fjölda lykkja sem á að fækka um. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er heklað fram og til baka hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er heklaður kantur í kringum báða handvegi. BAKSTYKKI: Sjá LOFTLYKKJA og HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 69-75-81-89-97-105 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við) með heklunál 5 með DROPS Air. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju = 66-72-78-86-94-102 stuðlar + 3 loftlykkjur. Heklið síðan stuðla fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, fækkið lykkjum fyrir handvegi eins og útskýrt er að neðan. Fækkið um 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handvegi – sjá ÚRTAKA, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 60-66-70-78-84-92 stuðlum, snúið stykkinu (ekki er heklað yfir síðustu 3-3-4-4-5-5 lykkjur). Fækkið síðan um 1 lykkju fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð 0-0-0-3-3-6 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 2-3-4-4-5-5 sinnum = 56-60-62-64-68-70 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Hvor öxl hekluð til loka hvor fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð): Heklið öxl yfir fyrstu 18-20-20-21-22-23 lykkjur, snúið stykkinu, fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli – munið eftir ÚRTAKA, haldið áfram með stuðla = 17-19-19-20-21-22 stuðlar eftir á öxl. Heklið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Klippið þráðinn og festið. VINSTRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð): Byrjið frá sömu hlið sem byrjun á hægri öxl, hoppið yfir fyrstu 20-20-22-22-24-24 lykkjur á eftir hægri öxl og heklið 1 stuðul í hvern stuðul yfir síðustu 18-20-20-21-22-23 lykkjur. Snúið stykki, heklið stuðla og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í lok fyrstu umferðar – munið eftir ÚRTAKA = 17-19-19-20-21-22 stuðlar eftir á öxl. Heklið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Klippið þráðinn og festið. FRAMSTYKKI: Heklið 69-75-81-89-97-105 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við) með heklunál 5 með DROPS Air. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju = 66-72-78-86-94-102 stuðlar + 3 loftlykkjur. Heklið síðan stuðla fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg alveg eins og á bakstykki = 56-60-62-64-68-70 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 41-43-44-46-47-49 cm. Hvor öxl er hekluð til loka hvor fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL: Heklið öxl yfir fyrstu 21-23-23-24-26-27 lykkjur. Haldið áfram með stuðla fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í hverri umferð þannig: Fækkið um 2 stuðla 1 sinni og 1 stuðul 2-2-2-2-3-3 sinnum – munið eftir ÚRTAKA = 17-19-19-20-21-22 stuðlar eftir á öxl. Heklið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Klippið þráðinn og festið. HÆGRI ÖXL: Byrjið frá sömu hlið sem byrjun á hægri öxl, hoppið yfir fyrstu 14-14-16-16-16-16 lykkjur á eftir vinstri öxl, heklið 1 stuðul í hvern stuðul yfir síðustu 21-23-23-24-26-27 lykkjur. Haldið áfram með stuðla fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í hverri umferð þannig: Fækkið um 2 stuðla 1 sinni og 1 stuðul 2-2-2-2-3-3 sinnum – munið eftir ÚRTAKA = 17-19-19-20-21-22 stuðlar eftir á öxl. Heklið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Klippið þráðinn og festið. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant. Saumið hliðarsauma kant í kant, en skiljið eftir ca 8 cm fyrir klauf neðst í hvorri hlið. KANTUR Í KRINGUM HANDVEG: Heklið kant í kringum báða handvegi. Byrjið neðst í botni á handvegi og heklið með heklunál 4 þannig: UMFERÐ 1: * Heklið 1 fastalykkju mitt í fyrstu/næstu stuðlaumferð, 3 loftlykkjur, hoppið yfir eina stuðlaumferð / ca 2 cm * heklið frá *-* í kringum allan handveginn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. UMFERÐ 2: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 keðjulykkju um fyrsta loftlykkjuboga, heklið síðan 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga, en um 8 miðju loftlykkjuboga yfir hvorri öxl og um 4 neðstu loftlykkjuboga á framstykki/bakstykki, heklið einungis 3 stuðla um hvern loftlykkjuboga. KANTUR Í KRINGUM HÁLSMÁL: Byrjið við annan axlasauminn og heklið með heklunál 4 þannig: UMFERÐ 1: * Heklið 1 fastalykkju mitt í fyrstu/næstu stuðlaumferð, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðlaumferð / ca 2 cm * heklið frá *-* í kringum allt hálsmálið, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. UMFERÐ 2: Heklið 1 keðjulykkju um fyrsta loftlykkjuboga, heklið síðan 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hazydewslipover eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-40
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.