DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5984.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lake View Vest

Heklað vesti úr DROPS Sky. Stykkið er heklað neðan frá og upp með áferðamynstri, V-hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 236-32
DROPS Design: Mynstur sk-173
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-250-300-300-350 g litur 12, gallabuxnablár

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5.

HEKLFESTA:
18 tvíbrugðnir stuðlar/fastalykkjur á breidd og ca 11 umerðir á hæðina (til skiptis 1 umferð tvíbrugðnir stuðlar / 1 umferð fastalykkjur) = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5984.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umferðir með tvíbrugðnum stuðlum byrja með 4 loftlykkjum, þessar 4 loftlykkjur koma sem viðbót við tvíbrugðna stuðla sem eru heklaðir og teljast ekki með í lykkjufjölda.
Allar umferðir með fastalykkjum byrja með 1 loftlykkju, þessi loftlykkja kemur sem viðbót við fastalykkjur sem eru heklaðar og teljast ekki með í lykkjufjölda
Í kanti í kringum handveg og V-hálsmál (2. umferð) er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/tvíbrugðnum stuðli.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚRTAKA-1:
Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkju og sækið þráðinn, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn (3 lykkjur um heklunálina), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 fastalykkja færri).

ÚRTAKA-2 (á við um handveg og hálsmál aftan í hnakka):
Fækkið alltaf lykkjum í umferð með tvíbrugðnum stuðlum!
Í byrjun á umferð: Skiptið út þeim fjölda lykkja sem fækka á um með 1 keðjulykkju.
Í lok umferðar: Ekki er heklað yfir fjölda lykkja sem fækka á um.

ÚRTAKA-3 (á við um V-hálsmál á framstykki):
Fækkið lykkjum innan við ystu lykkju við hálsmál, þ.e.a.s. þegar lykkjum er fækkað í lok umferðar, heklið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, fækkið um 1 fastalykkju eða 1 tvíbrugðinn stuðul eins og útskýrt er að neðan, heklið síðustu lykkju eins og áður.
Þegar fækka á lykkjum í byrjun á umferð, herklið fyrstu lykkju eins og áður, fækkið síðan um 1 fastalykkju/tvíbrugðinn stuðul eins og útskýrt er að neðan.

FÆKKIÐ UM 1 FASTALYKKJU:
Stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 fastalykkja færri).

FÆKKIÐ UM 1 TVÍBRUGÐINN STUÐUL ÞANNIG:
Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju og dragið síðan síðasta uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 tvíbrugðinn stuðull færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkið er heklað fram og til baka hvort fyrir sig, neðan frá og upp.
Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er heklaður kantur í kringum báða handvegi og í kringum hálsmál.

BAKSTYKKI:
Sjá LOFTLYKKJA og HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 87-95-103-111-123-133 loftlykkjur (meðtaldar 4 loftlykkjur til að snúa við) með heklunál 4 með DROPS Sky.
Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í 5. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja loftlykkju = 83-91-99-107-119-129 tvíbrugðnir stuðlar.
Snúið stykkinu og heklið 1 fastalykkju í hvern tvöfaldan stuðul frá fyrri umferð.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Byrjið með 4 loftlykkjur eins og áður. Heklið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, heklið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins.
Heklið A.1 fram og til baka þar til A.1 hefur verið heklað alls 3 sinnum á hæðina – JAFNFRAMT í lok síðustu umferðar með fastalykkjum er fækkað um 1 lykkju með því að hekla 2 fastalykkjur saman – sjá ÚRTAKA-1 = 82-90-98-106-118-128 lykkjur.
Heklið síðan A.2 með til skiptis 1 umferð tvíbrugðnum stuðlum og 1 umferð með fastalykkjum.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist ca 25-26-27-28-29-30 cm, byrjar úrtaka fyrir handveg – stillið af að næsta umferð sé umferð með tvíbrugðnum stuðlum.
Fækkið um 3-4-5-6-8-10 lykkjur fyrir handveg - sjá ÚRTAKA-2, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af næstu 76-82-88-94-102-108 fastalykkjum, snúið stykkinu (ekki er heklað yfir síðustu 3-4-5-6-8-10 lykkjurnar).

Fækkið nú lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum þannig:
Fækkið um 1 tvíbrugðinn stuðul 2-3-4-6-8-9 sinnum í hvorri hlið = 72-76-80-82-86-90 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm og næsta umferð er umferð með tvíbrugðnum stuðlum. Hvor öxl er hekluð til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRI ÖXL:
Heklið öxl yfir fyrstu 24-26-27-28-29-31 lykkjur, snúið stykkinu og heklið fastalykkjur til baka. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju við hálsmál – sjá ÚRTAKA-2 = 23-25-26-27-28-30 lykkjur eftir á öxl. Heklið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Klippið þráðinn og festið.

VINSTRI ÖXL:
Byrjið frá réttu, þ.e.a.s. í umferð með tvíbrugðnum stuðlum, hoppið yfir fyrstu 24-24-26-26-28-28 lykkjur á eftir hægri öxl og heklið tvíbrugðna stuðla yfir síðustu 24-24-26-26-28-28 lykkjur. Snúið stykkinu og heklið fastalykkjur til baka. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju við hálsmál – munið eftir ÚRTAKA-2 = 23-25-26-27-28-30 lykkjur eftir á öxl. Heklið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Klippið þráðinn og festið.

FRAMSTYKKI:
Heklið alveg eins og bakstykki þar til stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm (í stærð L, XL, XXL og XXXL vegna áframhaldandi úrtöku fyrir handveg).
Setjið eitt prjónamerki í stykkið (á milli 2 lykkja). Nú skiptist framstykkið við prjónamerki eins og útskýrt er að neðan og hvor öxl er hekluð til loka hvor fyrir sig.

VINSTRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð):
Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg ef hún heldur áfram og heklið eins og áður fram að prjónamerki mitt að framan. Heklið fram og til baka yfir vinstri öxl með til skiptis 1 umferð tvíbrugðnum stuðlum og 1 umferð fastalykkjum eins og áður.
JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju við hálsmál þannig – sjá ÚRTAKA-3:
Fækkið um 1 lykkju í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) alls 9-9-9-9-10-10 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 4-4-5-5-5-5 sinnum = 23-25-26-27-28-30 lykkjur eftir á öxl.
Heklið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Klippið þráðinn og festið.

HÆGRI ÖXL:
Byrjið mitt að framan við prjónamerki og heklið fram og til baka yfir hægri öxl með til skiptis 1 umferð tvíbrugðnum stuðlum og 1 umferð fastalykkjum eins og áður. Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg ef hún heldur áfram.
JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju við hálsmál þannig – sjá ÚRTAKA-3:
Fækkið um 1 lykkju í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) alls 9-9-9-9-10-10 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 4-4-5-5-5-5 sinnum = 23-25-26-27-28-30 lykkjur eftir á öxl.
Heklið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Klippið þráðinn og festið.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma kant í kant. Saumið hliðarsauma kant í kant með smáu spori, en skiljið eftir ca 10 cm klauf neðst í hvorri hlið.

KANTUR Í KRINGUM HANDVEG:
Heklið kant í kringum báða handvegi. Byrjið neðst í botni á handvegi og heklið með heklunál 3,5 þannig:
UMFERÐ 1: * Heklið 1 fastalykkju umferð, 3 loftlykkjur, hoppið yfir tvíbrugðna stuðlaumferð *, heklið frá *-* í kringum allan handveginn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.
UMFERÐ 2: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 keðjulykkju um fyrsta loftlykkjuboga, heklið síðan 3 stuðla um hvern af fyrstu 3 loftlykkjubogum, heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga fram að 6 miðju loftlykkjubogum yfir öxl, heklið 3 stuðla um hvern af næstu 6 loftlykkjubogum, heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga þar til 3 loftlykkjubogar eru eftir neðst við handveg, heklið 3 stuðla um hvern af síðustu 3 loftlykkjubogum. Heklið alveg eins í kringum hinn handveginn.

KANTUR Í KRINGUM V-HÁLSMÁL:
Byrjið mitt að framan, neðst í V-hálsmáli og heklið með heklunál 3,5 þannig:
UMFERÐ 1: * Heklið 1 fastalykkju í fastalykkju umferð, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 tvíbrugðna stuðlaumferð *, heklið frá *-* í kringum allt hálsmálið neðst í V-hálsmáli, en meðfram hálsmáli aftan í hnakka er stillt af þannig að það séu álíka jafn langt bil á milli fastalykkja (ca 2 cm) eins og þegar heklað er í hverja fastalykkju umferð meðfram V-hálsmáli, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.
UMFERÐ 2: Heklið 1 keðjulykkju um fyrsta loftlykkjuboga, heklið síðan 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga.

Mynstur

symbols = 1 fastalykkja í lykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull í lykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 stuðlakrókur-fjórbrugðinn stuðull (heklað frá réttu). Þ.e.a.s. heklið 1 fjórbrugðinn stuðul um 1 tvíbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með tvíbrugðnum stuðlum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur utan um sjálfa tvíbrugðna stuðulinn að framan) þannig: Bregðið þræðinum 4 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni um lykkjuna, sækið þráðinn, * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 5 sinnum = 1 lykkja
symbols = byrjið í þessari umferð – fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Xinyi wrote:

Hi I'm a newbie and have a question about the pattern; After I finish the first double crochet row in the back piece, what do I do next? Diagram A.1 tells me to start the double-treble & relief row, but it also says that the previous row should've been a double-treble crochet row. Thank you

09.06.2023 - 05:40

DROPS Design answered:

Dear Xinyi, after the foundation chain you have worked 1 row with double treble crochets + 1 row with double crochet, then starting A.1 you will crochet the relief stitches around the very first row worked. Happy crocheting!

09.06.2023 - 09:30

country flag MARTA wrote:

Hola. No entiendo cómo hacer los hombros. Una vez que he hecho 48 cm de la espalda (para la talla S en este caso), ¿giro y hago 24 puntos altos dobles y luego vuelvo a girar con fila de punto bajo? ¿hay que cortar el hilo? ¿hago el hombro derecho o el izquierdo visto por el revés? No sé cómo seguir…necesito ayuda! Gracias!

09.02.2023 - 16:56

DROPS Design answered:

Hola Marta, los hombros se trabajan sobre los 24 pts más externos desde cada lado de la espalda. Para simplificar la labor, recomendamos colocar marcapuntos para los hombros: Contar 24 pts desde el inicio de la fila y colocamos el marcapuntos en el punto 24 (hombro derecho de la labor con la prenda puesta). Contamos los siguientes 24 pts y colocamos el siguiente marcapuntos (escote de la espalda, no se trabaja sobre estos pts. Los pts restantes en la fila son del hombro izquierdo. Primero trabajas el hombro derecho entero, cortas el hilo y después trabajas el hombro izquierdo.

16.02.2023 - 22:41

country flag Francesca wrote:

Salve lo schema A1 prevede che la riga precedente sia di maglie alte doppie invece, sia la prima volta che le ripetizioni, hanno come riga precedente una riga di maglie basse. Devo girare attorno alle maglie alte doppie della riga due volte sotto? Grazie Francesca

24.01.2023 - 22:31

DROPS Design answered:

Buonasera Francesca, può lavorare il motivo nelle maglie basse. Buon lavoro!

13.02.2023 - 22:43

country flag Francesca wrote:

Salve lo schema A1 prevede che la riga precedente sia di maglie alte doppie invece, sia la prima volta che le ripetizioni, hanno come riga precedente una riga di maglie basse. Devo girare attorno alle maglie alte doppie della riga due volte sotto? Grazie Francesca

23.01.2023 - 17:56

DROPS Design answered:

Buonasera Francesca, può lavorare il motivo nelle maglie basse. Buon lavoro!

13.02.2023 - 22:43

country flag Lyse Demers wrote:

Pourquoi les prix sont en euro.

30.12.2022 - 17:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Demers, c'est la devise retenue pour les modèles en français - retrouvez les magasins au Canada (contactez Nordic Yarns) ou expédiant au Canada ici. Bon tricot!

02.01.2023 - 13:32

country flag Ana María Peñas wrote:

No entiendo muy bien como se hace la parte el diagrama A.1. en este patrón. Muchas gracias

20.11.2022 - 18:24

DROPS Design answered:

Hola Ana María, en el diagrama A.1 solo hay 2 filas (la fila de abajo del todo ya está trabajada y solo indica sobre qué puntos tienes que trabajar las dos siguientes filas). Se trata de un patrón de elástico con punto relieve. Puedes ver el siguiente vídeo sobre cómo trabajar este patrón: https://www.garnstudio.com/video.php?id=205&lang=es.

21.11.2022 - 00:56

country flag Krystal Ramirez wrote:

Podrían mostrar comon se ve el tejido por la parte del reves? Para asegurarme de que lo estoy haciendo bien.

20.11.2022 - 00:26

DROPS Design answered:

Hola Krystal, las fotos que están online son las únicas fotos que tenemos disponibles de la labor.

21.11.2022 - 00:52