Hazy Dew Vest |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Heklað vesti úr DROPS Air. Stykkið er heklað neðan frá og upp með V-hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 236-39 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umferðir með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum, þessar 3 loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul, þ.e.a.s. hoppið yfir fyrsta stuðul frá fyrri umferð. Síðasti stuðullinn í umferð er heklaður í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. Í kanti í kringum handveg (2. umferð) er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (kantar að framan). ÚRTAKA-1 (á við um handveg): Í byrjun á umferð: Skiptið út þeim lykkjum sem fækka á um með 1 keðjulykkju. Í lok umferðar: Ekki er heklað yfir þann fjölda lykkja sem á að fækka um. ÚRTAKA-2 (á við um V-hálsmál): Fækkið lykkjum innan við ystu 6 lykkjur við hálsmál. Þ.e.a.s. lykkjum er fækkað í lok umferðar, heklið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, fækkið um 1 stuðul eins og útskýrt er að neðan, heklið síðustu 6 lykkjur eins og áður. Þegar fækka á lykkjum í byrjun á umferð, heklið fyrstu 6 lykkjur eins og áður, síðan er fækkað um 1 stuðul eins og útskýrt er að neðan. HEKLIÐ 2 STUÐLA SAMAN Í 1 STUÐUL ÞANNIG (1 stuðull færri): Heklið 1 stuðul í næstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næstu lykkju, dragið síðan uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. HNAPPAGAT: Fækkið lykkjum fyrir hnappagati í hægri kanti að framan frá miðju að framan þannig: Heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul, heklið næstu 2 stuðla saman (sjá ÚRTAKA-2), 1 loftlykkja, heklið síðan áfram eins og áður. Fækkið lykkjum fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: S: 17, 23, 29 og 35 cm M: 18, 24, 30 og 36 cm L: 16, 23, 30 og 37 cm XL: 17, 24, 31 og 38 cm XXL: 18, 25, 32 og 39 cm XXXL: 16, 24, 32 og 40 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkin eru hekluð fram og til baka hvert fyrir sig, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er heklaður kantur í kringum báða handvegi. BAKSTYKKI: Sjá LOFTLYKKJA og HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 68-74-80-88-96-104 loftlykkjur með heklunál 5 með DROPS Air. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju = 66-72-78-86-94-102 stuðlar (meðtaldar 3 loftlykkjur í byrjun á umferð). Heklið síðan stuðla fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, byrjar úrtaka fyrir handvegi. Klippið þráðinn og festið. Nú er hekluð 1 umferð með stuðlum yfir miðju 60-66-70-78-84-92 stuðla (3-3-4-4-5-5 lykkjur færri í hvorri hlið fyrir handveg). Fækkið síðan um 1 lykkju fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð 0-0-0-3-3-6 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 2-3-4-4-5-5 sinnum – sjá ÚRTAKA-1 = 56-60-62-64-68-70 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm. Hvor öxl er hekluð til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð): Heklið 1 stuðul í hverja og eina af fyrstu 15-16-17-17-19-19 lykkjur, heklið A.1, snúið stykkinu. Heklið svona fram og til baka yfir þessar 20-21-22-22-24-24 lykkjur þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Klippið þráðinn og festið. VINSTRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð): Byrjið frá sömu hlið sem byrjun á hægri öxl, hoppið yfir fyrstu 16-18-18-20-20-22 lykkjur á eftir hægri öxl, heklið A.2 yfir fyrstu 5 lykkjurnar, heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul af síðustu 15-16-17-17-19-19 lykkjum. Heklið svona fram og til baka yfir þessar 20-21-22-22-24-24 lykkjur þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Klippið þráðinn og festið. HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Heklið 40-43-46-50-54-58 loftlykkjur með heklunál 5 með DROPS Air. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju = 38-41-44-48-52-56 stuðlar (meðtaldar 3 loftlykkjur í byrjun á umferð). Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig (miðja að framan): A.2 (kantur að framan), 1 stuðull í hverja af næstu 33-36-39-43-47-51 lykkjum. Haldið svona áfram fram og til baka – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg alveg eins og á bakstykki, þ.e.a.s. fækkið um 3-3-4-4-5-5 lykkjur 1 sinni, fækkið síðan um 1 lykkju í hverri umferð 0-0-0-3-3-6 sinnum, að lokum 1 lykkja í annarri hverri umferð 2-3-4-4-5-5 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli. Fækkið lykkjum innan við A.2 + 1 lykkja – sjá ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 stuðul í hverri umferð 10-11-11-11-11-11 sinnum, fækkið síðan um 1 stuðul í annarri hverri umferð 3-3-3-4-4-5 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og V-hálsmáli eru 20-21-22-22-24-24 lykkjur eftir á öxl. Heklið þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Klippið þráðinn og festið. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Heklið 40-43-46-50-54-58 loftlykkjur með heklunál 5 með DROPS Air. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju = 38-41-44-48-52-56 stuðlar (meðtaldar 3 loftlykkjur í byrjun á umferð). Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig (hlið): 1 stuðull í hverja af fyrstu 33-36-39-43-47-51 lykkjum, A.1 (kantur að framan). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg alveg eins og á hægra framstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli. Fækkið lykkjum innan við A.1 + 1 lykkja – sjá ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 stuðul í hverri umferð 10-11-11-11-11-11 sinnum, fækkið síðan um 1 stuðul í annarri hverri umferð 3-3-3-4-4-5 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og V-hálsmáli eru 20-21-22-22-24-24 lykkjur eftir á öxl. Heklið þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Klippið þráðinn og festið. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant. Saumið hliðarsauma kant í kant, en skiljið eftir ca 18 cm fyrir klauf neðst í hvorri hlið. Saumið tölur í vinstri kant að framan. KANTUR Í KRINGUM HANDVEG: Heklið kant í kringum báða handvegi. Byrjið neðst í botni á handvegi og heklið með heklunál 4 þannig: UMFERÐ 1: * Heklið 1 fastalykkju mitt í fyrstu/næstu stuðlaumferð, 3 loftlykkjur, hoppið yfir eina stuðlaumferð / ca 2 cm * heklið frá *-* í kringum allan handveginn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. UMFERÐ 2: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 keðjulykkju um fyrsta loftlykkjuboga, heklið síðan 3 stuðla um hvern af fyrstu 4 loftlykkjubogum, heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga fram að miðju 8 loftlykkjubogum yfir öxl, heklið 3 stuðla um hvern af 8 loftlykkjubogum, heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga þar til 4 loftlykkjubogar eru eftir neðst við handveg, heklið 3 stuðla um hvern af síðustu 3 loftlykkjubogum. Heklið á sama hátt í kringum hinn handveginn. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Emma wrote:
Nu ik 34 cm van mijn achterpand heb gehaakt moet ik beginnen aan de armsgaten. Er staat dat ik in een toer moet haken. Moet ik dan echt in het rond haken? Zo ja, hoe moet dat dan precies
17.01.2024 - 14:05DROPS Design answered:
Dag Emma,
Nee, je blijft nog steeds heen en weer haken hoor. Je haakt eerst een aantal stokjes over de middelste steken en dan keer je het werk en blijf je heen en weer haken waarbij je steken mindert aan elke kant zoals aangegeven in het patroon.
17.01.2024 - 17:55Antoinette Sluijter wrote:
Ik begrijp niet waarom bij het achterpand, bij de schouders ineens A.1 en A.2 met het reliefstokje gehaakt moet worden.
16.01.2024 - 12:46DROPS Design answered:
Dag Antoinette,
Op het voorpand haak je ook A.1 en A.2 en dit is om de bies te accentueren.
17.01.2024 - 18:04Aga wrote:
ZAMYKANIE OCZEK-2: zamykać 10-11-11-11-11-11 razy 1 słupek w każdym rzędzie - nie rozumiem, co należy teraz wykonać. Robię rozmiar S i obecnie mam 34 oczka. Czy teraz mam przerobić 10 oczek slupkami zamkniętymi + reszta normalnie = 29 oczek ? Następnie w kolejnym rzedzie 6 oczek zamkniętych słupków + reszta normalnie = 26 oczek ? czy słupki zamknięte maja być obok siebie czy jest pomiędzy nimi przerwa z normalnych słupków ?
23.09.2023 - 18:15DROPS Design answered:
Witaj Agnieszko, w każdym rzędzie zamykasz tylko 1 słupek na formowanie dekoltu. Aby zamknąć 1 słupek należy przerobić 2 słupki razem następująco: przerobić 1 słupek w następne oczko, ale nie wykonywać ostatniego narzutu, przerobić 1 słupek w następne oczko, a po ostatnim narzucie przeciągnąć nitkę przez 3 pętelki na szydełku. Zobacz ZAMYKANIE OCZEK-2, w którym miejscu zamykać o. na początku i na końcu rzędu. Jak zamknąć 1 słupek znajdziesz na filmie TUTAJ. Pozdrawiamy!
25.09.2023 - 08:09Janny Spies wrote:
Bij patroon recht schouder staat: de eerste 17 steken stokjes haken. Haak zo heen en weer gehaakt over deze 22 steken tot???????? Ik heb dit meerdere malen gelezen maar snap niet hoe je van 17 steken naar 22 gaat zonder dat er staat meerderen. Mis ik misschien een regel? Alvast bedankt Jannyh
26.03.2023 - 22:37DROPS Design answered:
Dag Janny,
Je haakt eerst over de eerste 17 steken en dan haak je A.1. A.1 is 5 steken, dus in totaal 22 steken.
27.03.2023 - 20:32Lili Marie wrote:
Merci de m'avoir répondu aussi rapidement,. Merci pour se joli modèle que j'adore 🥰🤩❤👍🏽
17.09.2022 - 16:05Lili Marie wrote:
Bjr\r\n Je suis à l\'épaule droite dos , je suis entrain de faire la taille xxl\r\nOn dit de faire une bride dans les 19 1ere mailles, crocheter A1 ensuite crocheter ces 24 mailles.\r\nIl nya pas eu d\'augmentation,pourquoi de 19 m je passe à 24m, je ne comprend pas \r\n\r\nLa double bride en relief avant elle doit être vers le bras ou vers l\'encolure, je suis un peu perdu, \r\nMerci pour votre réponse \r\nBonne journee
13.09.2022 - 10:18DROPS Design answered:
Bonjour Lili Marie, crochetez l'épaule droite ainsi: 19 brides + A.1 (= 5 mailles), autrement dit, vous aurez un total de 24 mailles pour l'épaule. Lorsque vous crochetez A.1, le 1er rang se fait sur l'endroit, la double-bride en relief doit être la 5ème maille à partir du bord, côté encolure (ou bien la 20ème à partir du bord, côté emmanchure). Bon crochet!
13.09.2022 - 12:08Margaretha wrote:
Warm Air
07.08.2022 - 11:50Régine wrote:
L'occasion de se faire plaisir au crochet !
06.08.2022 - 16:44