DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Evening Lakeside Vest

Heklað vesti úr DROPS Sky. Stykkið er heklað neðan frá og upp með áferðamynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 236-31
DROPS Design: Mynstur sk-174
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-250-300-300-350 g litur 12, gallabuxnablár

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5.

HEKLFESTA:
18 tvíbrugðnir stuðlar / fastalykkjur á breidd og ca 11 umerðir á hæðina (til skiptis 1 umferð tvíbrugðnir stuðlar / 1 umferð fastalykkjur) = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umferðir með tvíbrugðnum stuðlum byrja með 4 loftlykkjum, þessar 4 loftlykkjur koma sem viðbót við tvíbrugðna stuðla sem eru heklaðir og teljast ekki með í lykkjufjölda.
Allar umferðir með fastalykkjum byrja með 1 loftlykkju, þessi loftlykkja kemur sem viðbót við fastalykkjur sem eru heklaðar og teljast ekki með í lykkjufjölda
Í kanti í kringum handveg og hálsmál (2. umferð) er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/tvíbrugðnum stuðli.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚRTAKA-1:
Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkju og sækið þráðinn, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 fastalykkja færri).

ÚRTAKA-2 (á við um handveg og hálsmál aftan í hnakka):
Fækkið alltaf lykkjum í umferð með tvíbrugðnum stuðlum!
Í byrjun á umferð: Skiptið út þeim fjölda lykkja sem fækka á um með 1 keðjulykkju.
Í lok umferðar: Ekki er heklað yfir fjölda lykkja sem fækka á um.

ÚRTAKA-3 (á við um hálsmál að framan):
Fækkið alltaf lykkjum í umferð með tvíbrugðnum stuðlum!
Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvora af næstu 2 lykkjum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á hvorum tvíbrugðnu stuðlunum, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju og dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni (2 tvíbrugðnir stuðlar færri).

FÆKKIÐ UM 1 TVÍBRUGÐINN STUÐUL ÞANNIG:
Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju og dragið síðan síðasta uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 tvíbrugðinn stuðull færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkið er heklað fram og til baka hvort fyrir sig, neðan frá og upp.
Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er heklaður kantur í kringum báða handvegi og í kringum hálsmál.

BAKSTYKKI:
Sjá LOFTLYKKJA og HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 87-95-103-111-123-133 loftlykkjur (meðtaldar 4 loftlykkjur til að snúa við) með heklunál 4 með DROPS Sky.
Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í 5. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja loftlykkju = 83-91-99-107-119-129 tvíbrugðnir stuðlar.
Snúið stykkinu og heklið 1 fastalykkju í hvern tvöfaldan stuðul frá fyrri umferð.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Byrjið með 4 loftlykkjur eins og áður. Heklið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, heklið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins.
Heklið A.1 fram og til baka þar til A.1 hefur verið heklað alls 3 sinnum á hæðina – JAFNFRAMT í lok síðustu umferðar með fastalykkjum er fækkað um 1 lykkju með því að hekla 2 fastalykkjur saman – sjá ÚRTAKA-1 = 82-90-98-106-118-128 lykkjur.
Heklið síðan A.2 með til skiptis 1 umferð tvíbrugðnum stuðlum og 1 umferð með fastalykkjum.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist ca 25-26-27-28-29-30 cm, byrjar úrtaka fyrir handveg – stillið af að næsta umferð sé umferð með tvíbrugðnum stuðlum. Klippið þráðinn og festið.
Nú er hekluð 1 umferð með tvíbrugðnum stuðlum yfir miðju 76-82-88-94-102-108 fastalykkjum (3-4-5-6-8-10 lykkjur færri í hvorri hlið fyrir handveg).
Fækkið nú lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum þannig:
Fækkið um 1 tvíbrugðinn stuðul 2-3-4-6-8-9 sinnum í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-2 = 72-76-80-82-86-90 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm og næsta umferð er umferð með tvíbrugðnum stuðlum. Hvor öxl er hekluð til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð):
Heklið öxl yfir fyrstu 22-24-25-26-27-29 lykkjur, snúið stykkinu og heklið fastalykkjur til baka. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju við hálsmál – sjá ÚRTAKA-2 = 21-23-24-25-26-28 lykkjur eftir á öxl. Heklið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Klippið þráðinn og festið.

VINSTRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð):
Byrjið frá réttu, þ.e.a.s. í umferð með tvíbrugðnum stuðlum, hoppið yfir fyrstu 28-28-30-30-32-32 lykkjur á eftir hægri öxl og heklið tvíbrugðna stuðla yfir síðustu 22-24-25-26-27-29 lykkjur. Snúið stykkinu og heklið fastalykkjur til baka. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju við hálsmál – munið eftir ÚRTAKA-2 = 21-23-24-25-26-28 lykkjur eftir á öxl. Heklið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Klippið þráðinn og festið.

FRAMSTYKKI:
Heklið 87-95-103-111-123-133 loftlykkjur (meðtaldar 4 loftlykkjur til að snúa við) með heklunál 4 með DROPS Sky.
Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í 5. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja loftlykkju = 83-91-99-107-119-129 tvíbrugðnir stuðlar.
Snúið stykkinu og heklið 1 fastalykkju í hvern tvöfaldan stuðul frá fyrri umferð.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Byrjið með 4 loftlykkjur eins og áður. Heklið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, heklið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins.
Heklið A.1 fram og til baka þar til A.1 hefur verið heklað alls 2 sinnum á hæðina (framstykkið er styttra en bakstykkið) – JAFNFRAMT í lok síðustu umferðar með fastalykkjum er fækkað um 1 lykkju með því að hekla 2 fastalykkjur saman – sjá ÚRTAKA-1 = 82-90-98-106-118-128 lykkjur.
Heklið síðan A.2 með til skiptis 1 umferð tvíbrugðnum stuðlum og 1 umferð með fastalykkjum.
Þegar stykkið mælist ca 23-24-25-26-27-28 cm, byrjar úrtaka fyrir handveg – stillið af að næsta umferð sé umferð með tvíbrugðnum stuðlum. Klippið þráðinn og festið.
Nú er hekluð 1 umferð með tvíbrugðnum stuðlum yfir miðju 76-82-88-94-102-108 fastalykkjum (3-4-5-6-8-10 lykkjur færri í hvorri hlið fyrir handveg).
Fækkið nú lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum þannig:
Fækkið um 1 tvíbrugðinn stuðul 2-3-4-6-8-9 sinnum í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-2 = 72-76-80-82-86-90 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 42-44-45-47-48-50 cm og næsta umferð er umferð með tvíbrugðnum stuðlum. Hvor öxl er hekluð til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð):
Heklið öxlina yfir fyrstu 26-28-29-30-32-34 lykkjur, snúið stykkinu og heklið fastalykkjur til baka.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar með tvíbrugðnum stuðlum eins og útskýrt er að neðan (þegar fækkað er um 2 tvíbrugðna stuðla er heklað yfir síðustu 3 lykkjur að hálsmáli og þegar fækkað er um 1 tvíbrugðinn stuðul er heklað yfir síðustu 2 lykkjur við hálsmál):
Fækkið um 2 tvíbrugðna stuðla við hálsmál 2 sinnum, síðan er fækkað um 1 tvíbrugðinn stuðul við hálsmál 1-1-1-1-2-2 sinnum – sjá ÚRTAKA-3. Eftir síðustu úrtöku eru 21-23-24-25-26-28 lykkjur eftir á öxl. Heklið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Klippið þráðinn og festið.

HÆGRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð):
Byrjið frá réttu, þ.e.a.s. í umferð með tvíbrugðnum stuðlum, hoppið yfir fyrstu 20-20-22-22-22-22 lykkjur á eftir vinstri öxl og heklið tvíbrugðna stuðla yfir síðustu 26-28-29-30-32-34 lykkjur. Snúið stykkinu og heklið fastalykkjur til baka.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum þannig: Fækkið um 2 tvíbrugðna stuðla við hálsmál 2 sinnum, síðan er fækkað um 1 tvíbrugðinn stuðul við hálsmál 1-1-1-1-2-2 sinnum – munið eftir ÚRTAKA-2. Eftir síðustu úrtöku eru 21-23-24-25-26-28 lykkjur eftir á öxl. Heklið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Klippið þráðinn og festið.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma kant í kant. Saumið hliðarsauma kant í kant, en skiljið eftir ca 10 cm klauf neðst í hvorri hlið á framstykki (12 cm á bakstykki).

KANTUR Í KRINGUM HANDVEG:
Heklið kant í kringum báða handvegi. Byrjið neðst í botni á handvegi og heklið með heklunál 3,5 þannig:
UMFERÐ 1: * Heklið 1 fastalykkju umferð, 3 loftlykkjur, hoppið yfir tvíbrugðna stuðlaumferð *, heklið frá *-* í kringum allan handveginn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.
UMFERÐ 2: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 keðjulykkju um fyrsta loftlykkjuboga, heklið síðan 3 stuðla um hvern af fyrstu 3 loftlykkjubogum, heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga fram að 6 miðju loftlykkjubogum yfir öxl, heklið 3 stuðla um hvern af næstu 6 loftlykkjubogum, heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga þar til 3 loftlykkjubogar eru eftir neðst við handveg, heklið 3 stuðla um hvern af síðustu 3 loftlykkjubogum. Heklið á sama hátt í kringum hinn handveginn.

KANTUR Í KRINGUM HÁLSMÁL:
Byrjið við annan axlasauminn og heklið með heklunál 3,5 þannig:
UMFERÐ 1: * Heklið 1 fastalykkju í fyrstu/næstu lykkju, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 tvíbrugðna stuðlaumferð / ca 2 cm * heklið frá *-* í kringum allt hálsmálið, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.
UMFERÐ 2: Heklið 1 keðjulykkju um fyrsta loftlykkjuboga, heklið síðan 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 08.04.2024
Texti í mynsturteikningu og mynsturteikning hefur verið uppfært. A.1.

Mynstur

symbols = 1 fastalykkja í lykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull í lykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 stuðlakrókur-fjórbrugðinn stuðull (heklið frá réttu). Þ.e.a.s. heklið 1 fjórbrugðinn stuðul um 1 tvíbrugðinn stuðul frá umferðinn að neðan með tvíbrugðnum stuðli (ekki er heklað í lykkjubogann, heldur utan um sjálfa tvíbrugðna stuðulinn framan frá) þannig: Bregðið þræðinum 4 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni um lykkjuna, sækið þráðinn, * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 5 sinnum = 1 lykkja
symbols = byrjið í þessari umferð - fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð
symbols = þetta er málið á framstykki. Bakstykkið er 2 cm lengra
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Asta wrote:

Hej. Jeg har svært ved at forstå A1. Skal det forstås som om at den sidste maske i anden række skal være en relief-firedobbeltstangmaske? Eller skal det læses som hver anden maske i rækken skal være en relief-firedobbeltstangmaske? Jeg kan ikke læse mig frem til hvordan jeg skal forstå diagrammet

31.03.2024 - 20:18

DROPS Design answered:

Hej Asta, Ja hver 2.maske i A.1 er en relief-firedobbeltstangmaske :)

05.04.2024 - 12:16

country flag Sofie wrote:

Jeg er i tvivl om rækken før første række af A.1: Af opskriften fremgår, at man skal hækle "1 fastmaske i hver dobbeltstangmaske fra forrige række". Men af diagrammet ser det ud til, at første række med A.1 skal hækles ned i en række med dobbeltstangmasker (og altså ikke i en række med fastmasker). Hvordan skal man korrekt gøre? (vistnok samme spørgsmål som Daniella 03.01.2024)

12.03.2024 - 09:03

DROPS Design answered:

Hej Sofie, jo hver. 2 række er fastmasker, så du hækler 1 række fastmasker inden du starter A.1 :)

19.03.2024 - 14:40

country flag Klaudia wrote:

Cześć, kiedy należy wykonać słupek poczwórny w części a1? Nie do końca rozumiem kiedy należy go zrobić. Czy należy go zrobić jako ostatni w rzędzie podwójnych słupków czy jako ostatni w rzędzie oczek ścisłych? Proszę o pomoc. Czy jeżeli od początku będę robić schemat a2 to robótka się uda ?

22.01.2024 - 23:17

DROPS Design answered:

Witaj Klaudio, słupki poczwórne są wykonywane w rzędzie słupków podwójnych, naprzemiennie raz słupek podwójny, raz słupek poczwórny. Dzięki nim brzeg robótki będzie miał wygląd ściągacza. Jak wykonać słupki nakładane (na filmie są zwykłe słupki, a nie poczwórne, ale technika jest analogiczna) znajdziesz TUTAJ. Oczywiście możesz wykonać kamizelkę bez tego ściągacza na dole i wtedy zacznij od schematu A.2. Pozdrawiamy!

23.01.2024 - 08:07

country flag Daniella wrote:

Hej! Jag föstår inte hur man ska börja med A1. I diagrammen står det att man ska börja med relief fyrstolparna (och att dubbelstolpar innan är redan virkade). Men i beskrivningen så står det att man ska virka en rad fastmaskor och sen direkt börja med A1. Hur ska man göra?

03.01.2024 - 17:47

country flag Diminution Pour Les Emmanchures wrote:

Pour le dos il est écrit " diminuer pour les emmanchures tous les rangs de double brides (D2) jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 48cm" La diminution D2 répétée sur de nombreux rangs entraîne la création d'un décalage en escalier, est ce normal ou devrais je faire une autre sorte de diminution plus diagonale ?

21.11.2023 - 11:17

DROPS Design answered:

Bonjour, vous pouvez procéder soit comme dans les explications, et les "escaliers" seront ensuite compensés/cachés lors de la bordure des emmanchures, ou bien vous pouvez diminuer différemment si vous le préférez. Bon crochet!

21.11.2023 - 16:01

country flag Nel wrote:

Bij de tekening van 1.A en 2.A is er telkens een pijl. Is dat op weer te geven dat je eerst een vaste haakt en dan een dubbel stokje. En als allerlaatste steek weer een 2X een dubbel stokje haakt?

14.08.2023 - 17:22

DROPS Design answered:

Dag Nel,

Nee, de pijl geeft aan wat patroon A.1 of A.2 is. De toer die eronder staat is dus niet patroon A.1 of A.2; deze staat er alleen bij om te laten zien hoe je de steken in de vorige toer haakt.

20.08.2023 - 15:48

country flag Helga Eitel wrote:

Das Bündchen kann ich nicht erkennen und es ist in der Anleitung nicht beschrieben. Wie wird das gehäkelt? Bedanke mich für eine Beschreibung.

18.03.2023 - 14:48

DROPS Design answered:

Liebe Frau Eitel, Bündchen wird wie in A.1 gehäkelt, dh: *1 Doppelstäbchen in die nächste Masche, 1 Relief-Doppelstäbchen in die nächste Masche*, von *-* wiederholen. In diesem Video zeigen wir, wie man solche Bündchen häkelt, aber im Video wird es Stäbchen gehäkelt, in dieses Modell will man Doppelstäbchen häkeln. Viel Spaß beim häkeln!

20.03.2023 - 08:21

country flag Phil wrote:

Hi again, The pattern above says its alternating rows of double treble crochet and double crochet (treble crochets and single crochets in the US English version) rather than the repeat of a row of treble and then row of double crochets as you suggested in the previous answer. Could you confirm which one it is please? Thank you :)

29.09.2022 - 13:12

DROPS Design answered:

Dear Phil, yes correct, sorry, it should be treble crochets/single crochets (US) or double-treble crochets / double crochets (UK) . Happy crocheting!

29.09.2022 - 13:41

country flag Phil wrote:

Are the instructions for the gauge swatch definitely correct? 11 rows makes it far too long and rectangular. 10cm is about 8.5-9 rows on my swatch (which is 10cm wide). Would just like to make sure I’m not totally off before starting the vest!

28.09.2022 - 22:05

DROPS Design answered:

Dear Phil, make sure you work alternately (1 row with treble crochets, 1 row with double crochets), repeat from (to) to get the structured pattern; you should then get 11 rows with that pattern = 10 cm in height. Try to make longer stitches in height if yours are too tight. Happy crocheting!

29.09.2022 - 08:43

country flag Kirsten Jensen Lihme wrote:

Hæklet vest med rund hals

06.08.2022 - 02:58