Claudia skrifaði:
Si può fare con i ferri lineari..?
29.12.2024 - 15:37DROPS Design svaraði:
Buonasera Claudia, questo modello è lavorato in tondo: se preferisce può lavorarlo in piano aggiungendo 1 maglia per lato per la cucitura. Buon lavoro!
30.12.2024 - 00:13
Maj Svensson skrifaði:
Hur kan det gå åt 250 gram av garnet Lima? Alltså 5 nystan för att tvinna en snodd! Är kjolen stickad i Kid Silk? Och det går bara åt 75 gram, alltså 3 nystan? Verkar vara något fel här?
07.12.2023 - 15:40DROPS Design svaraði:
Hej Maj, Kjolen strikkes i 1 tråd DROPS Lima + 1 tråd DROPS Kid-Silk :)
07.12.2023 - 15:42
Jadwiga skrifaði:
Witam, jak zrobic spódnicę dłuższą? Pozdrawiam
03.12.2023 - 17:40DROPS Design svaraði:
Witaj Jadwigo, należy przerabiać dalej, na długość jakiej potrzebujesz. Pozdrawiamy!
04.12.2023 - 08:51
Regine skrifaði:
Liebes Drops Team, ich habe diesen wirklich schönen Rock gestrickt, doch leider klappt der untere Rand hoch. Egal ob ich fest oder locker abkette. Was kann ich tun? Das gleiche passiert, wenn ich als Abschlußreihen Perlmuster wähle. Lg, Regine
28.09.2022 - 20:31DROPS Design svaraði:
Liebe Regine, Sie können den Rock mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen, danach entfernen Sie die Stecknadeln, dann sollte sich der Rand nicht mehr rollen.
29.09.2022 - 08:34
Sigrid skrifaði:
Zimt und Zucker! Eine wunderschöne Kombination!
13.09.2022 - 12:16
Sandra Gauder skrifaði:
Granddaughter chose this cute skirt to make
05.08.2022 - 21:20
Cinnamon Tea#cinnamonteaskirt |
|
![]() |
![]() |
Prjónað pils úr DROPS Lima og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 237-25 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Til að pilsið verði aðeins hærra mitt að aftan, eru prjónuð upphækkun. Að lokum er tvinnuð snúra sem er þrædd í gatakant í mitti. KANTUR: Fitjið upp 120-128-144-152-168-176 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt. Þegar stroffið mælist 3 cm, prjónið eina gataumferð fyrir snúru þannig: 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt. Haldið áfram með stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til kanturinn mælist 6 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-10-6-10-6-10 lykkjur jafnt yfir = 126-138-150-162-174-186 lykkjur. PILS: Skiptið yfir í hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt að aftan. Prjónið upphækkun þannig: 8-9-10-11-12-13 lykkjur slétt, snúið stykki, herðið á þræði, prjónið 16-18-20-22-24-26 lykkjur. Snúið stykki, herðið á þræði, prjónið 24-27-30-33-36-39 lykkjur slétt, snúið stykki, herðið á þræði, prjónið 32-36-40-44-48-52 lykkjur brugðið. Snúið stykki, herðið á þræði, prjónið 40-45-50-55-60-65 lykkjur slétt, snúið stykki, herðið á þræði, prjónið 48-54-60-66-72-78 lykkjur brugðið. Snúið stykki, herðið á þræði, prjónið 56-63-70-77-84-91 lykkjur slétt, snúið stykki, herðið á þræði, prjónið 64-72-80-88-96-104 lykkjur brugðið. Snúið stykki, herðið á þræði, prjónið 72-81-90-99-108-117 lykkjur slétt, snúið stykki, herðið á þræði, prjónið 80-90-100-110-120-130 lykkjur brugðið. Snúið stykki, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. Pilsið mælist nú ca 5 cm hærri mitt að aftan. Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út. Teljið 11-12-13-14-15-16 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, * teljið 21-23-25-27-29-31 lykkjur, setjið 1 prjónamerki *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum. Nú eru 10-11-12-13-14-15 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki = 6 prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm á eftir stroffi mitt að framan, aukið út um 1 lykkju á UNDAN hverju prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (6 lykkjur fleiri). Þegar stykkið mælist 4½-4½-4½-4½-4-4 cm eftir stroff mitt að framan, aukið út um 1 lykkju á EFTIR hverju prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING (6 lykkjur fleiri). Aukið svona út til skiptist á undan og á eftir 6 prjónamerkjum með 2½-2½-2½-2½-2-2 cm millibili alls 8-9-10-12-14-16 sinnum = 174-192-210-234-258-282 lykkjur. Prjónið sléttprjón án útaukningar þar til stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Prjónið 2 umferðir stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Fellið af aðeins laust. Pilsið mælist ca 42-44-46-48-50-52 cm frá uppfitunarkanti mitt að framan. TVINNUÐ SNÚRA: Klippið 3 þræði Lima ca 4-4-4½-4½-5-5 metra hvern, tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið þræðina saman tvöfalda þá koma þeir til með að tvinna sig aftur. Hnýtið hnút í hvorn enda. Byrjið mitt framan á pilsi og þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferð í stroffkanti. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cinnamonteaskirt eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.