Alex skrifaði:
“Brei 1 naald averecht aan de verkeerde kant. “, staat er aan het begin na het opzetten. Betekent dit dat je de eerste naald gewoon averecht breit en vanaf de tweede naald boordsteek? Of moet je voor die averechte naald eerst nog 1 naald recht breien ?
30.09.2024 - 20:25DROPS Design svaraði:
Dag Alex,
Ja, dat klopt. Je breit eerst 1 naald averecht. De volgende naald begin je met boordsteek en dat is aan de goede kant.
30.10.2024 - 19:36
Elisabeth skrifaði:
Bonjour, Pourquoi diminuer le travail de 10 mailles dès le 1er rang, du jersey ? Merci
30.09.2024 - 07:58DROPS Design svaraði:
Bonjour Elisabeth, il faut plus de mailles pour tricoter des côtes avec les aiguilles 4 que pour le jersey avec des aiguilles 5, raison pour laquelle on va diminuer, on évite ainsi que la bordure en côtes ne resserre le bas du gilet. Bon tricot!
30.09.2024 - 10:14
Glenda skrifaði:
What ply wool is silver surfer
12.07.2024 - 06:11DROPS Design svaraði:
Hi Glenda, Drops Air is 10 ply. Happy knitting!
12.07.2024 - 13:36
Anna skrifaði:
I like this pattern very much!
22.05.2024 - 02:17
Resplandy skrifaði:
Bonjour Les chiffres mis sur le schéma sont des numéros de tailles, cm, ou mailles, car je voudrais savoir en cm le tour du gilet que je tricote actuellement merci beaucoup
29.01.2024 - 12:26DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Resplandy, les mesures indiquées dans le schéma correspondent à celles de l'ouvrage posé à plat et mesuré d'un côté à l'autre. Si votre échantillon est juste, vous aurez ces mêmes mesures en conservant la même tension. Retrouvez plus d'infos sur les schémas des mesures ici. Bon tricot!
30.01.2024 - 07:25
Catherine skrifaði:
Je tricote Silver Surfer en taille L et au moment de remonter les mailles (devants et encolure) , j’en remonte 177 au lieu des 244 indiquées dans les explications. Je ne vois vraiment pas comment je pourrais relever autant de mailles en plus : y a-t-il une erreur ? Je ne sais pas quoi faire .
30.09.2023 - 13:02DROPS Design svaraði:
Bonjour Catherine, cela semble effectivement peu, notez que vous devez relever les mailles avec l'aiguille (tension plus serrée que pour le reste du gilet), n'hésitez pas à en relever davantage pour être bien certaine que la bordure des devants ne resserre pas l'ouverture du gilet par la suite. Bon tricot!
02.10.2023 - 09:49
MARIE ROMAN skrifaði:
S'il vous plait, comment tricoter avec des aiguilles droites et surtout le nombre de mailles en taille S ? merci beaucoup.
13.09.2023 - 18:46DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Roman, ce modèle se tricote en allers et retours sur aiguille circulaire, vous pouvez donc tout à fait choisir de le tricoter sur aiguilles droites, vos mailles seront juste plus serrées, vous en saurez plus grâce à cette leçon. Bon tricot!
14.09.2023 - 09:41
Maike skrifaði:
Hallo liebes Drops-Team, wieviel positive Weite ist in diesem Modell mit eingerechnet? Könnt ihr mir sagen, welche Größe das Model auf dem Foto trägt? Ich möchte die Weste als Überraschung für meine Großmutter stricken, die sehr entfernt wohnt und die ich nicht nach ihren Maßen Fragen kann. Normalerweise trägt sie Größe (36-)38 und ist eher zierlich. Viele Grüße Maike
08.03.2023 - 10:57DROPS Design svaraði:
Liebe Maike, sowas rechnen wir nicht mit - am besten messen Sie immer eine Kleidung, die Sie/Ihre Mutter gerne trägt, und damit finden Sie die passende Größe - meistens tragen unsere Modelle S oder M, jeder Körper ist aber anders, helfen Sie sich am besten an einem ähnlichen Kleidungsstück. Viel Spaß beim stricken!
08.03.2023 - 13:34
Hansson skrifaði:
My everyday vest, and Christmas gift to frozen friends.
06.08.2022 - 10:23
Silver Surfer#silversurfervest |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með v-hálsmáli og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 236-17 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT (á við um hægri kanti að framan þegar flíkin er mátuð): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn – ATH: Það er fallegast er að fella af fyrir hnappagötum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í einingu með 2 lykkjur brugðið (séð frá réttu). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Neðsta hnappagatið er staðsett ca 6 cm frá neðri kanti, efsta hnappagatið er staðsett áður en úrtaka byrjar fyrir v-hálsmáli, staðsetjið 2-2-2-3-3-3 síðustu hnappagötin jafnt yfir miðað við þessi tvö hnappagöt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, neðan frá og upp að handvegi. Síðan eru framstykkin og bakstykkið prjónað til loka hvert fyrir sig. Að lokum er prjónaður kantur að framan / kantur í hálsmáli og kantar á ermum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 160-176-188-204-224-244 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið um 10 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 150-166-178-194-214-234 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 24-25-26-28-27-29 cm frá uppfitjunarkanti. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið fyrstu 35-39-42-45-50-55 lykkjur, fellið af næstu 6-6-6-8-8-8 lykkjur, prjónið næstu 68-76-82-88-98-108 lykkjur, fellið af 6-6-6-8-8-8 lykkjur og prjónið síðustu 35-39-42-45-50-55 lykkjur í umferð. Héðan eru nú framstykkin og bakstykkið prjónað fram og til baka hvert fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 35-39-42-45-50-55 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan og fellið af fyrir handvegi í hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-1-2-2-2 sinnum og fellið af 1 lykkju 4-7-8-7-10-14 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm, fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli við miðju að framan, með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman innan við kantlykkju. Fækkið lykkjum svona með 1½ cm millibili alls 13-14-14-15-15-16 sinnum. Eftir allar úrtöku eru 16-16-18-19-21-21 lykkjur eftir í umferð. Fellið af þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm (22-23-24-25-26-27 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handvegi). HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema í gagnstæða átt. BAKSTYKKI: = 68-76-82-88-98-108 lykkjur. Prjónið sléttprjón og fellið af fyrir handvegi í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-1-2-2-2 sinnum og fellið af 1 lykkju 4-7-8-7-10-14 sinnum = 56-58-62-66-70-72 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm. Í næstu umferð frá réttu er fellt af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið fyrstu 17-17-19-20-22-22 lykkjur, fellið af næstu 22-24-24-26-26-28 lykkjur og prjónið síðustu 17-17-19-20-22-22 lykkjur. Axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Prjónið sléttprjón og fellið af 1 lykkju í byrjun á næstu umferð frá hálsmáli = 16-16-18-19-21-21 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR AÐ FRAMAN / KANTUR Í HÁLSMÁLI: Setjið 1 prjónamerki mitt aftan í hnakka á bakstykki, prjónamerkið er notað þegar helmingur af lykkjum í kanti að framan / hálsmáli er talinn. Byrjið neðst í hægra framstykki frá réttu með hringprjón 4. Prjónið upp ca 112-118-122-126-130-136 lykkjur innan við 1 kantlykkju, meðfram öllum kanti að framan upp að prjónamerki í hnakka. Haldið áfram að prjóna upp ca 112-118-122-126-130-136 lykkjur frá prjónamerki og meðfram öllu framstykki niður að kanti í vinstra framstykki, heildarfjöldi lykkju á að vera deilanlegur með 4 = 224-236-244-252-260-272 lykkjur. Prjónið frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist ca 1 cm, fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til stroffið mælist ca 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR Í KRINGUM HANDVEG: Byrjið frá réttu þar sem stykkið skiptist fyrir handveg. Notið hringprjón 4 og prjónið upp ca 84 til 124 lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið kant í kringum hinn handveginn á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #silversurfervest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.