Alena skrifaði:
Hæhæ ég er komin á þennan stað í bakstykki =Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 14-(16)-16-18-18-22 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur) = 70-76-84-90-98-110 lykkjur. Ég er semsagt núna með 92 lykkjur á prjón og á að fækka niðri 76 með því að fækka um 16 lykkjum. Ég er með það reiknað út að ég sleppi kantlykkju,prjóna 4, 2 slétt saman en sama hvað þá enda ég alltaf með 77?
04.07.2024 - 01:09DROPS Design svaraði:
Blessuð Alena. Ef þú fitjar upp 92 lykkjur í stærð S og tvær af þeim eru kantlykkjur þá ertu með 90 lykkjur þar sem þú fækkar um 16 lykkjur jafnt yfir á prjóni (90-16 = 74) = 1 kantlykkja + 74 lykkjur + 1 kantlykkja = 76 lykkjur á prjóni með kantlykkjum. Gangi þér vel.
05.07.2024 - 11:42
Lena skrifaði:
Hallo zusammen, Ich habe dieses Top gestrickt und mich exakt an die Angaben gehalten. Leider passen die Maße vorne und hinten nicht. Das Top ist viel zu kurz und die Armausschnitte viel zu eng!! Meine Maschenprobe ist korrekt und das Strickstpck passt mit den Maßen von dem Diagramm exakt zusammen. Also aufpassen beim Sticken, man muss hier etwas phantasievoll variieren. Ansonsten super Wolle und schönes Muster, aber den Pullover habe ich jetzt einer Fünfjährigen mitgebracht ;-)
04.10.2023 - 20:19
Anne Dachelet skrifaði:
Bonjour, je viens de lire qu'une d\'une dame trouve le top trop court. Sur les explications il est indiqué : Tricoter jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 21-23-24-25-26-26 cm depuis le rang de montage ... ensuite : Rabattre pour les emmanchures 2-2-4-4-6-6 mailles au début des 2 rangs suivants = 66-72-76-82-86-98 mailles. Est ce qu'il n'y a pas une erreur sur le nombre de cm pour commencer les emmanchures ? Cela me semble bien tôt pour rabattre. Merci d'avance.
07.08.2023 - 23:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Dachelet, il n'y a pas d'erreurs dans les mesures indiquées dans les explications, vérifiez les mesures finales d'après le schéma en vous basant sur un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme pour pouvoir adapter, si besoin, les différentes mesures. Bon tricot!
08.08.2023 - 09:31
Amanda skrifaði:
Hej! När man minskar till ärmhål (och hals), ska första maskan på varven vara rätstickning? Dvs, ska första och sista maskan stickas räta när man stickar från avigsidan?
09.07.2023 - 08:41DROPS Design svaraði:
Hei Amanda I denne oppskriften er det kun sidesømmene som har kantmaske i rille (rett på hver rad). Disse sidesømmene skal senere sys sammen. På erm og halskanten, der skal det plukkes opp masker for videre å strikke en vrangbord er det ingen kantmaske. mvh DROPS Design
24.07.2023 - 11:59
Mairy skrifaði:
Assez déçue de ce modelé, je me retrouve avec un crop top et pourtant j’ai suivi à la lettre. Je fais même souvent un peu plus long, mais on parle de 5 à 10cm manquant et malheureusement je n’ai plus 16ans!
27.06.2023 - 15:31DROPS Design svaraði:
Bonjour Mairy, désolée que ce modèle n'ait pas répondu à vos attentes, aviez-vous pensé à bien vérifier les mesures du schéma? En fonction de la taille, il doit mesurer de 41 à 51 cm de hauteur totale. Bon tricot!
27.06.2023 - 15:41
Cha skrifaði:
Hi. Does the decreasing for the neck comes before or after the bind off of the neck? “Continue to decrease for the armhole and decrease 1 stitch for the neck on each row from the right side 5-5-6-6-7-7 times” I have decreased 13x for the armholes but hasn’t reached 36cm yet so I’m wondering how can I proceed. Thanks.
31.05.2023 - 23:02
Cha skrifaði:
Hi. Does the decreasing for the neck comes before or after the bind off of the neck? “Continue to decrease for the armhole and decrease 1 stitch for the neck on each row from the right side 5-5-6-6-7-7 times” I have decreased 13x for the armholes (as per decrease tip) but hasn’t reached 36cm yet so I’m wondering how can I proceed. Thanks.
31.05.2023 - 22:59DROPS Design svaraði:
Dear Cha, neck will be shaped when piece measures 36 cm from cast on edge, if you have finished to decrease for armhole, just continue working until piece measures 36 cm, then start cast off stitches for neck. Happy knitting!
01.06.2023 - 09:12
Patricia skrifaði:
Hola, en la explicación, al comienzo dice: hasta que resten 4 puntos, tejer 2 derechos y 1 punto de orillo en punto musgo. Me queda 1 punto y no se que hacer con el. Me ayudan?
15.11.2022 - 00:55DROPS Design svaraði:
Hola Patricia, parece que hay una errata, debería ser hasta que queden 3 puntos, no 4.
20.11.2022 - 22:57
Sylvie Audet skrifaði:
Est ce que on peux faire ce model sans couture
18.06.2022 - 02:10DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Audet, vous pouvez fort probablement adapter les explications, mais notez bien qu'il y a ici 5 cm de fente de chaque côté du bas du top; et qu'il faudra coudre les épaules à la fin, avant de tricoter le col/la bordure des emmanchures; Bon tricot!
20.06.2022 - 08:23
Sophy L skrifaði:
Sunshine On My Shoulders!
18.01.2022 - 23:19
Outdoor Love#outdoorlovetop |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður toppur úr 2 þráðum DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni. Stærð XS - XXL.
DROPS 230-43 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um handveg og hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum innan við 3 lykkjur í byrjun á umferð þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). Fækkið lykkjum innan við 3 lykkjur í lok umferðar þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. Stykkin eru saumuð saman á öxlum og í hlið. Prjónaður er kantur á ermum og kantur í kringum hálsmál í hring á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 84-92-100-108-116-132 lykkjur á hringprjóna 4 með 1 þræði í hvorum lit með DROPS Safran (2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 4 lykkjur eru efir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 5 cm og næsta umferð er frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 14-16-16-18-18-22 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur) = 70-76-84-90-98-110 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 21-23-24-25-26-26 cm frá uppfitjunarkanti og næsta umferð er frá réttu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fellið af 2-2-4-4-6-6 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 66-72-76-82-86-98 lykkjur. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Haldið áfram að fækka lykkjum fyrir handveg, en áður en öll útaukning hefur verið gerð til loka er lykkjum einnig fækkað fyrir hálsmáli. Sjá ÚRTAKA! Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu alls 12-13-13-15-15-19 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 34-36-37-39-40-42 cm og næsta umferð er frá réttu eru felldar af miðju 18-20-20-20-20-22 lykkjur fyrir hálsmáli. Axlirnar eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig – setjið fyrstu lykkjur á þráð (hægri öxl). Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu þar til fækkað hefur verið alls 5-5-6-6-7-7 sinnum fyrir hálsmáli – munið eftir ÚRTAKA. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð fyrir handveg og hálsmáli eru 7-8-9-10-11-12 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. HÆGRI ÖXL (bakstykki): Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjón 5, byrjið frá röngu og haldið áfram með úrtöku fyrir handveg og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu þar til fækkað hefur verið alls 5-5-6-6-7-7 sinnum. Þegar öll úrtaka fyrir handveg og hálsmáli hefur verið gerð eru 7-8-9-10-11-12 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 21-23-24-25-26-26 cm frá uppfitjunarkanti og næsta umferð er frá réttu. Fellið af 2-2-4-4-6-6 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 66-72-76-82-86-98 lykkjur. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Haldið áfram að fækka lykkjum fyrir handveg, en áður en öll útaukning hefur verið gerð til loka er lykkjum einnig fækkað fyrir hálsmáli. Sjá ÚRTAKA! Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu alls 12-13-13-15-15-19 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 27-29-30-32-33-35 cm og næsta umferð er frá réttu eru felldar af miðju 10-12-14-14-16-18 lykkjur fyrir hálsmáli. Axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig – setjið fyrstu lykkjur á þráð (vinstri öxl). Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu þar til fækkað hefur verið alls 9 sinnum. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð fyrir handveg og hálsmáli eru 7-8-9-10-11-12 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. VINSTRI ÖXL (framstykki): Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjón 5, byrjið frá röngu og haldið áfram með úrtöku fyrir handveg og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu þar til fækkað hefur verið alls 9 sinnum fyrir hálsmáli. Þegar öll úrtaka fyrir handveg og hálsmáli hefur verið gerð eru 7-8-9-10-11-12 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma og skiljið eftir 5 cm klauf neðst. KANTUR ERMI: Byrjið við hliðarsaum og frá réttu, notið hringprjón 4 og prjónið upp ca 76-84-92-96-104-116 lykkjur í kringum allan handveginn – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt – 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. KANTUR HÁLSMÁL: Byrjið við axlasauminn og frá réttu, notið hringprjón 4 og prjónið upp 92-100-104-108-112-116 lykkjur í kringum allan kant í hálsmáli – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #outdoorlovetop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-43
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.