Summer Date#dropssummerdatetop |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Heklaður toppur úr DROPS Safran. Stykkið er heklað ofan frá og niður með laskalínu og pífu. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-43 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR: Fyrsta umferð er hekluð frá réttu á stykki. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu á stykki. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá réttu á stykki. Haldið svona áfram fram og til baka, til skiptist í umferð frár réttu og í umferð frá röngu. HEKLLEIÐBEININGAR: Í hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Síðasti stuðull í umferð er heklaður í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Í hverri umferð með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Síðasta fastalykkjan í umferð er hekluð í fyrstu loftlykkju frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul. ÚTAUKNING-2 (á við um í hlið á fram- og bakstykki): Heklið þar til 2 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 stuðla í næstu lykkju, heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 2 lykkjum, heklið 2 stuðla í næstu lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er heklað í hring, en snúið er við í hverri umferð, þannig að heklað er bæði frá réttu og frá röngu, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram hringinn, frá réttu og frá röngu. Að lokum er hekluð pífa í kringum berustykki og 1 pífa meðfram hvorum kanti á ermum. BERUSTYKKI: Heklið 152-164-176-176-188-200 loftlykkjur - lesið LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan, með heklunál 3,5 með DROPS Safran – lesið HEKLLEIÐBEININGAR og LEIÐBEININGAR. Heklið nú mynstur og aukið út fyrir laskalínu þannig: Heklið A.1 yfir 18-20-20-20-20-22 lykkjur (hálft bakstykki), A.2, A.1 yfir 36-40-44-44-48-52 lykkjur (ermi), A.2, A.1 yfir 36-38-40-40-42-44 lykkjur (framstykki), A.2, A.1 yfir 36-40-44-44-48-52 lykkjur (ermi), A.2, A.1 yfir 18-18-20-20-22-22 lykkjur (hálft bakstykki). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Í 4. umferð í A.1 og A.2 er aukið út þannig: Heklið yfir lykkjur frá hálfu bakstykki og aukið út um 0-0-6-0-6-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, A.2 eins og áður, heklið yfir ermi og næsta A.2 eins og áður, heklið yfir framstykki og aukið út um 0-2-10-0-12-22 lykkjur jafnt yfir, heklið A.2 eins og áður, heklið yfir ermi og næsta A.2 eins og áður, heklið síðustu lykkjur á bakstykki og aukið út um 0-0-4-0-6-12 lykkjur jafnt yfir. Útauknar lykkjur eru síðan heklaðar inn í A.1. Þegar A.2 hefur verið heklað til loka, eru 248-262-292-288-324-358 lykkjur í síðustu umferð. Heklið A.3 yfir miðjulykkjur af A.2, þær lykkjur sem eru eftir eru heklaðar í A.1. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka eru 316-330-360-388-424-458 lykkjur í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 9-9-9-10-10-10 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 41-43-49-52-58-66 lykkjur, hoppið yfir næstu 76-80-84-90-94-98 lykkjur fyrir ermi, heklið 8 loftlykkjur undir ermi, 1 stuðul í hverja af næstu 82-86-96-104-118-130 lykkjur, hoppið yfir næstu 76-80-84-90-94-98 lykkjur fyrir ermi, heklið 8 loftlykkjur undir ermi, heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 41-41-47-52-60-66 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 180-186-208-224-252-278 lykkjur. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul í hverja loftlykkju undir ermi. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8 nýrra lykkja undir ermi. Þegar fram- og bakstykki mælist 12-13-14-15-16-17 cm frá skiptingu, aukið út um 1 stuðul hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2! Aukið svona út með 5-2-2-2-2-2 cm millibili alls 3-6-6-6-6-6 sinnum = 192-210-232-248-276-302 lykkjur. Þegar fram- og bakstykki mælist ca 27-28-29-28-29-30 cm, heklið A.1 yfir allar lykkjur. Klippið þráðinn og festið þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. PÍFA Á BERUSTYKKI: Nú er hekluð pífa í fyrstu umferð með gatamynstri á berustykki, með byrjun frá réttu þannig: Heklið 1 keðjulykkju um fyrsta stuðul mitt að aftan séð frá réttu, 1 loftlykkja (kemur í stað fyrstu fastalykkju), * heklið 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta stuðul *, heklið frá *-* í kringum allt berustykkið og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið A.4 um hvern loftlykkjuboga, fram og til baka, en hver umferð er hekluð saman. Klippið þráðinn og festið þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Heklið alveg eins pífu í hina umferðina með gatamynstri á berustykki. PÍFA Á KANTI Á ERMUM: Nú er hekluð pífa yfir lykkjur sem hoppað var yfir á ermi, með byrjun frá réttu þannig: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju sem hoppað var yfir á ermi, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 lykkju, heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju *, heklið frá *-* yfir allar lykkjur sem hoppað var yfir á ermi og endið með 1 fastalykkju í fyrstu lykkju sem var hekluð undir ermi = 38-40-42-45-47-49 loftlykkjubogar. Heklið A.4 fram og til baka um hvern loftlykkjuboga. Klippið þráðinn og festið þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Heklið alveg eins pífu meðfram hinum kanti á ermi. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið kant, með byrjun mitt að aftan frá réttu þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju í kringum hálsmál. Klippið þráðinn og festið. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropssummerdatetop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-43
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.