Ola skrifaði:
Dzień dobry, nie rozumiem jak wykonać główkę rękawa. Czy ta metoda jest podobna do robienia karczku? Na logikę główka powinna być na ramieniu, ale jeśli zacznę ją robić od markera, to będzie zrobiona pod pachą. W przypadku rozmiaru S mam wykonać 3cm w sumie czy 3 cm w jedną i 3 cm w drugą stronę, czyli 6?
06.11.2022 - 14:01DROPS Design svaraði:
Witaj Olu, zobacz video TUTAJ. To powinno Ci pomóc. Pozdrawiamy!
07.11.2022 - 12:08
Marilyn Brandt skrifaði:
I am unable to find the new patterns that we voted upon. Please help. Those for Fall Winter 22-23
15.08.2022 - 14:26DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Brandt, we will start publishing the new patterns at the end of the month. Stay tuned!
16.08.2022 - 08:14
Line skrifaði:
L'échantillon doit-il être fait avec aiguille 4 ou 5 ? Merci beaucoup !
03.07.2022 - 03:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Line, utilisez les aiguilles 5 pour l'échantillon jersey - mais rappelez-vous de bien adapter la taille des aiguilles si besoin. Bon tricot!
04.07.2022 - 08:08
Nelly Vn Der Van Der Vlugt skrifaði:
Ik wil graag deze teui met korte mouwen breien en met dat zelfde garen hoe kan ik dat bestellen
30.05.2022 - 20:45DROPS Design svaraði:
Dag Nelly,
Het bestellen van garens gaat via een van de verkooppunten die onze artikelen verkopen; wij verkopen geen garens via de site. Via deze link vind je een lijst met verkooppunten.
05.06.2022 - 21:21
Heini skrifaði:
After Rain
17.01.2022 - 21:37
Sandra Heggen skrifaði:
Soft Cloud
15.01.2022 - 04:53
Dream in Rose#dreaminrosesweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með röndum, sléttprjóni og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-13 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG (hægri öxl): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG (vinstri öxl): Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 103-113-123-133-145-161 lykkjur á hringprjón 4 með litnum hveiti í DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Haldið áfram með stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 17-19-21-23-25-27 lykkjur jafnt yfir = 86-94-102-110-120-134 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm prjónið 4 umferðir með litnum bleikur sandur, 4 umferðir með litnum hveiti, síðan er bakstykkið prjónað til loka með litnum bleikur sandur. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handvegi þannig: Fellið af 5-7-9-10-12-17 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum = 76-80-84-90-96-100 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm fellið af miðju 26-28-30-32-34-36 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 24-25-26-28-30-31 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 103-113-123-133-145-161 lykkjur á hringprjón 4 með litnum hveiti í DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Haldið áfram með stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 17-19-21-23-25-27 lykkjur jafnt yfir = 86-94-102-110-120-134 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm prjónið 4 umferðir með litnum bleikur sandur, 4 umferðir með litnum hveiti, síðan er bakstykkið prjónað til loka með litnum bleikur sandur. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handvegi þannig: Fellið af 5-7-9-10-12-17 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum = 76-80-84-90-96-100 lykkjur. Þegar stykkið mælist 44-46-47-49-50-52 cm fellið af miðju 16-18-20-22-24-26 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum í hálsmáli í hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 1 lykkju 6 sinnum – sjá ÚRTAKA = 24-25-26-28-30-31 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 60-64-68-70-72-74 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með litnum bleikur sandur. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á stuttan hringprjón 5 og prjónið sléttprjón. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 6 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 10-10-10-9-4-2 cm millibili alls 2-2-2-2-3-4 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Þegar ermin mælist 22-21-20-18-16-13 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjón að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 25-25-25-24-23-23 cm, þ.e.a.s. það er klauf 3-4-5-6-7-10 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermi við handveg. Síðan er klaufin saumuð efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 4 og litinn bleikur sandur, byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 68 til 88 lykkjur í kringum hálsmál. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 4 cm. Fellið af. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dreaminrosesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.