Diana skrifaði:
Píšete, že v prípade veľkosti L/XL treba hačkovať vzor A5b a potom 1-2x poslednú radu zo schématu. O ktorý schémat ide a pre veľkosť L/XL mám opakovať raz či dvakrát? Koľko oblúčikov má mať potom dokončený kruh?
03.04.2025 - 21:45
Erika skrifaði:
This has to be one of the most confusing patterns I have ever read and tried to understand! To start you ch 5 and join with a slip stitch. Then you chain 3 (which says it counts as your first stitch) the pattern then shows 2 double crochets... From what I understand, this is repeated 8 times... So then am 8 repeating 3 stitches I times or the 2 double crochet 8 times? It is not specific enough ... So I don't know if my first round has 16 sts, 17 sts or 24...? Help pls!!
02.04.2025 - 01:56DROPS Design svaraði:
Dear Erika, diagram A.1 shows how to start and end the rounds, so at the beginning of the round crochet A.1 then A.2 with just 1 stitch (as the first one was made with A.1), then repeat A.2 7 more times = 8 times in total = 16 double crochets (US English terminology) join in the round with 1 sl st in the 3rd chain from beg of round. Then 2nd round starts the same way: 3 ch + 1 dc in the first dc, then 2 chains, skip 1 dc and repeat (2 dc in the next dc, 2 ch, skip 1 dc) to the end of the round and end with 1 sl st as before. On next round start with 3 chains and repeat 8 times A.3 (these 3 chains do not replace first stitch here). Hope it can help. Happy crocheting!
02.04.2025 - 08:07
Lisa skrifaði:
What the heck did I just read?? 50 years crocheting and I couldn't understand a thing!!!
20.02.2025 - 22:35
Bella skrifaði:
Oh my gosh this is with out a doubt the most confusing pattern I’ve ever read!!!!
28.01.2025 - 23:00
Izabela skrifaði:
Witam, czy mogę prosić o wytłumaczenie jak zrobić pierwsze okrążenie brzegu? W instrukcji jest napisane że wzdłuż schematów boków trzeba równomiernie przerabiać 5 razy jak w 10-tym okrążeniu schematu A.2. W schemacie A.2 dziesiąte okrążenie ma 4 łuki, razy 5 to 20 łuków, a bok ma 43 łuki. Nie rozumiem jak to wykonać. Z góry dziękuję za odpowiedź
12.06.2024 - 23:44DROPS Design svaraði:
Witaj Izo, w każdy łuk przerabiasz 2 słupki i rozdzielasz je 3 oczkami łańcuszka (czyli jak w 10-tym rzędzie schematów A.1 i A.2). Pozdrawiamy!
14.06.2024 - 09:02
Izabela skrifaði:
Witam, dlaczego liczba słupków w ostatnim okrążeniu schematu A.3b jest taka sama dla wszystkich rozmiarów skoro nad łańcuszkami na podkrój rękawów robimy różną liczbę motywów w zależności od rozmiaru? Pozdrawiam
19.05.2024 - 18:38DROPS Design svaraði:
Witaj Izo, tak to zostało rozliczone, że wychodzimy od 56 luków w okrążeniu, a następnie gdy wykonujemy podkroje rękawów dopasowujemy liczbę powtórzeń schematu A.3b na górze swetra (od strony dekoltu tylu - patrz fragment 'przerabiać A.3b aż zostaje 14-15-17 łuków', liczba łuków nie jest sprecyzowana, będzie się zmniejszać w kolejnych rozmiarach), tak aby ogólnie liczba łuków pozostała taka sama dla każdego rozmiaru. Dlatego podana liczba 324 słupków będzie identyczna w każdym rozmiarze. Pozdrawiamy!
22.05.2024 - 09:38
Izabela skrifaði:
Witam, mam problem ponieważ jestem przed ostatnim okrążeniem w schemacie A.3b, w instrukcji jest napisane żeby równomiernie zamykać oczka w ostatnim okrążeniu i że powinno być 324 oczka, ja mam 449. Czy gdzieś zrobiłam błąd? Jak to teraz naprawić? Robię rozmiar S/M Pozdrawiam
08.05.2024 - 22:08DROPS Design svaraði:
Witaj Izo, musisz ustalić, w którym miejscu miałaś właściwą liczbę oczek (w tym łuków) > oczka są liczone jako słupki + łuki (3 oczka łańcuszka każdy), czyli 10 słupków + 10 łuków da nam 40 oczek. Może było to po przerobieniu schematów A.1 i A.2?
10.05.2024 - 08:42
Gigi skrifaði:
K begrijp de boord afwerking niet ! Boord een en terug is gedaan… maar dan Hoe moet ik de boord afwerken ? En waar beginnen als je 6 toeren heen een terug hebt ???? Dank u
21.04.2024 - 19:26DROPS Design svaraði:
De eerste toer van de boord (of rand) doe je net zoals toer tien in telpatroon A.1 en A.2. Dus je kunt gewoon naar de telpatronen kijken. Toeren 2 tot en met 5 haak je volgens A.7a en A.7b. De rand heeft 5 toeren, dus ik begrijp niet wat je bedoelt met dat je 6 toeren heen en weer gehaakt hebt, of bedoel je aan andere rand of boord?
22.04.2024 - 21:09
Ginette Merckx skrifaði:
Country flag Gigi wrote: Ik begrijp de boord afwerking niet ! Boord een en terug is gedaan… maar dan Hoe moet ik de boord afwerken ? En waar beginnen als je 6 toeren heen een terug hebt ????
18.04.2024 - 09:11
Gigi skrifaði:
Country flag Gigi wrote: Ik begrijp de boord afwerking niet ! Boord een en terug is gedaan… maar dan Hoe moet ik de boord afwerken ? En waar beginnen als je 6 toeren heen een terug hebt ????
17.04.2024 - 13:09
Summer Sunset#summersunsetjacket |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð hringpeysa úr DROPS Paris. Stykkið er heklað með röndum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-33 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju / hálfur stuðull / stuðull. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. RENDUR: UMFERÐ 1-2: Heklið með litnum eyðimerkurrós. UMFERÐ 3: Heklið með litnum ryð. UMFERÐ 4-5: Heklið með litnum natur. UMFERÐ 6-7: Heklið með litnum sjávarblár. UMFERÐ 8: Heklið með litnum kóngablár. UMFERÐ 9-10: Heklið með litnum natur. UMFERÐ 11-20: Heklið eins og umferð 1-10. UMFERÐ 21-30: Heklið eins og umferð 1-10. ÚRTAKA (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 336 stuðlar), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 28. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að hekla 27. og 28. hvern stuðul í 1 stuðul. Fækkið um 1 stuðul þannig: * Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar, en þegar bregða á þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá miðju á hring (= mitt að aftan). Þegar hringurinn hefur verið heklaður til loka, heklið hægra og vinstra hliðarstykki. Hliðarstykkin eru hekluð fram og til baka. Síðan er heklaður kantur í kringum allan hringinn og hliðarstykkin. Að lokum eru ermar heklaðar í hring, ofan frá og niður. HRINGUR: Heklið 5 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 5,5 með litnum eyðimerkurrós í DROPS Paris og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í 5. loftlykkju. Heklið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan og mynstur þannig: Heklið A.1 (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.2 alls 8 sinnum umferðina hringinn. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 56 loftlykkjubogar í umferð (= 224 lykkjur) og stykkið mælist ca 42 cm að þvermáli. Heklið nú handveg þannig: Heklið 1 keðjulykkju um næsta loftlykkjuboga, heklið síðan A.3a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.3b um fyrstu 7-8-8 loftlykkjuboga, heklið 28-32-36 lausar loftlykkjur og hoppið yfir næstu 7-8-9 loftlykkjuboga fyrir handveg, heklið A.3b þar til eftir eru 14-15-17 loftlykkjubogar í umferð, heklið 28-32-36 lausar loftlykkjur og hoppið yfir næstu 7-8-9 loftlykkjuboga fyrir handveg, heklið A.3b yfir síðustu 7-7-8 loftlykkjuboga. Haldið síðan áfram hringinn með A.3a og A.3b, en yfir 28-32-36 lausar loftlykkjur eru heklaðar 7-8-9 mynstureiningar með A.3b. Í síðustu umferð er jafnframt fækkað um 12 stuðla jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 324 stuðlar. Heklið nú þannig: Heklið A.4a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), A.4b umferðina hringinn. Þegar A.4a og A.4b hefur verið heklað til loka eru 162 loftlykkjubogar í umferð. Stykkið mælist ca 100 cm að þvermáli. Stærð S/M er nú lokið – heklið áfram eins og útskýrt er að neðan. Heklið eins og útskýrt er í stærð L/XL og XXL/XXXL ef óskað er eftir að stykkið verði lengra (nú er eftir kantur ca 8 cm mitt að aftan). Klippið þráðinn. Í stærð L/XL og XXL/XXXL er heklað þannig: STÆRÐ L/XL og XXL/XXXL: Heklið með litnum natur. Heklið A.5b umferðina hringinn – hver umferð byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð (= kemur í stað fyrsta stuðul í fyrstu umferð og síðasta stuðul í síðustu umferð). Heklið síðustu 2 umferðir í mynsturteikningu alls 1-2 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 06-113 cm að þvermáli. Klippið þráðinn. ALLAR STÆRÐIR: Heklið nú einungis yfir 49 loftlykkjuboga í hvorri hlið. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig, án þess að hekla: Hoppið yfir fyrstu 16-17-17 loftlykkjuboga (= upp við hnakka), setjið eitt prjónamerki í næsta loftlykkjuboga, hoppið yfir næstu 47 loftlykkjuboga, setjið eitt prjónamerki í næsta loftlykkjuboga (= vinstri hlið), hoppið yfir næstu 32-31-30 loftlykkjuboga (= niður á fram- og bakstykki), setjið eitt prjónamerki í næsta loftlykkjuboga, hoppið yfir næstu 47 loftlykkjuboga, setjið eitt prjónamerki í næsta loftlykkjuboga (= hægri hlið), nú eru 16-16-17 loftlykkjubogar eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= upp við hnakka). VINSTRI HLIÐ: = 49 loftlykkjubogar. Öll vinstri hliðin er hekluð með litnum natur og heklað er fram og til baka. Byrjið frá réttu í loftlykkjuboga með prjónamerki, festið þráðinn með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í loftlykkjubogann og heklið þannig: Heklið A.5a yfir fyrstu 2 loftlykkjubogana, A.5b yfir næstu 45 loftlykkjuboga, A.5c yfir síðustu 2 loftlykkjuboga. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið síðustu 2 umferðir á hæðina 2 sinnum til viðbótar (= alls 6 umferðir á hæðina). Klippið þráðinn og festið. HÆGRI HLIÐ: Heklið á sama hátt og vinstri hlið – byrjið frá réttu í loftlykkjuboga með prjónamerki. KANTUR: Heklið kant frá réttu, í kringum allan hringinn og hliðarstykkin. Byrjið með litnum natur og festið þráðinn með 1 keðjulykkju í byrjun á umferð frá heklaða hringnum (= upp við hnakka). UMFERÐ 1: Heklið eins og útskýrt er í 10. umferð í A.1 og A.2 umferðina hringinn (= A.1 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar). Meðfram hliðar mynsturteikningu á hægri og vinstri hlið (þ.e.a.s. A.5a og A.5c) eru heklaðar ca 5 mynsturteikningar með (2 stuðlum + 3 loftlykkjur = fyrstu 5 lykkjur í 10. umferð í A.2) jafnt yfir = ca 170 loftlykkjubogar í umferð. UMFERÐ 2-3: Skiptið yfir í litinn eyðimerkurrós og heklið með A.7a og A.7b. UMFERÐ 4: Skiptið yfir í litinn ryð. Heklið næstu umferð í A.7a og A.7b. UMFERÐ 5: Skiptið yfir í litinn natur: Heklið síðustu umferð í A.7a og A.7b. Klippið þráðinn og festið. ERMI: Ermar eru heklaðar í hring frá handvegi og niður með litnum natur og með heklunál 5,5. Festið þráðinn með 1 keðjulykkju mitt undir hægri ermi og heklið þannig: Heklið A.6a (= sýnir hvernig umferðin byrjar og endar) yfir fyrstu 2 loftlykkjuboga, A.6b um hvern af næstu 5-6-7 loftlykkjubogum upp að toppi á ermi, haldið áfram með 5-6-7 mynstureiningar A.6b um loftlykkjuboga sem voru heklaðir fyrir handveg og endið með A.6c um síðustu 2 loftlykkjuboga = 14-16-18 einingar með 3 stuðlum + 1 loftlykkju fyrir ermi. Haldið svona áfram hringinn – lykkjum er fækkað eins og útskýrt er í A.6a og A.6c. Í umferð með stjörnu í mynsturteikningu (= umferð með stuðlum) er fækkað um 4-8-8 stuðla jafnt yfir í umferð – munið eftir ÚRTAKA = 42-46-54 stuðlar í umferð. Þegar öll mynsturteikningin hefur verið hekluð á hæðina, heklið mynsturteikningu frá umferð með ör upp að umferð á undan umferð með stjörnu. Endurtakið síðan 2 umferðir á undan umferð með stjörnu þar til ermin mælist ca 26-27-28 cm – eða að óskaðri lengd (nú er eftir kantur ca 7 cm að loka máli). Stillið af að endað sé eftir umferð á undan umferð með stjörnu, þannig að mynstrið á kanti sem á að hekla gangi jafnt upp. Heklið nú kant þannig: UMFERÐ 1: Skiptið yfir í litinn eyðimerkurrós. Heklið umferð með stjörnu í A.6a til A.6c = 34-38-46 stuðlar. UMFERÐ 2: Heklið næst síðustu umferð í A.6a til A.6c. UMFERÐ 3. Skiptið yfir í litinn ryð. Heklið síðustu umferð í A.6a til A.6c. UMFERÐ 4: Skiptið yfir í litinn natur. Heklið umferð með ör í A.6a til A.6c. Klippið þráðinn og festið. Ermin mælist ca 33-34-35 cm. Heklið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summersunsetjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.