Neysa skrifaði:
When I achieved the knitting tension required by using stockinette stitch, is the needle going to be my main needle size (in this pattern, the 3mm one) or the ribbing needle (the 2.5 mm in this pattern). thanks!
18.04.2022 - 11:25DROPS Design svaraði:
Dear Neysa, you measure the tension for the main needle size, with which you will work in stocking stitch, among other things. Happy knitting!
18.04.2022 - 19:48
Ali Altink skrifaði:
Die zet ik op mijn te maken- lijst. Vind hem geweldig.
11.03.2022 - 21:23
Chris skrifaði:
Pumpernickel
01.02.2022 - 17:47
Sophy L skrifaði:
Graceful Gilet
18.01.2022 - 23:18
Charlaine skrifaði:
"Comme un garçon"
14.01.2022 - 19:15
Maarit skrifaði:
Den är stilren.
14.01.2022 - 13:57
Poetry Night#poetrynightslipover |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónað vesti úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með mynstri, v-hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.
DROPS 231-48 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um v-hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG (frá réttu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið út umferðina eins og áður. FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG (frá réttu): Prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt saman, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman á öxlum og í hliðum. Að lokum er prjónaður kantur í stroffprjóni í kringum v-hálsmál og í kringum báða handvegi. BAKSTYKKI: Fitjið upp 115-129-139-153-167-181 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Baby Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 lykkjur í GARÐAPRJÓN - sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 3 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 20-22-24-26-28-30 lykkjur jafnt yfir = 95-107-115-127-139-151 lykkjur. Skiptið yfir á prjón 3. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 24-26-27-29-31-32 cm, fellið af fyrir handveg í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-2-2-3 sinnum og 2 lykkjur 1-1-2-2-4-4 sinnum í hvorri hlið. Fellið síðan af í 4. hverri umferð þannig: Fellið af 1 lykkju 4-8-7-8-7-8 sinnum í hvorri hlið = 77-81-87-91-97-101 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm. Í næstu umferð eru felldar af miðju 37-39-41-43-47-49 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 18-19-21-22-23-24 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á bakstykki og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 24-26-27-29-30-32 cm. Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju í umferð (í lykkju í sléttprjóni séð frá réttu). Fellið nú af fyrir handvegi í hvorri hlið alveg eins og á bakstykki. Smám saman er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli. Lestuð því HANDVEGUR og V-HÁLSMÁL áður en þú prjónar áfram. HANDVEGUR: Fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-2-2-3 sinnum og 2 lykkjur 1-1-2-2-4-4 sinnum í hvorri hlið. Fellið síðan af í 4. hverri umferð þannig: Fellið af 1 lykkju 4-8-7-8-7-8 sinnum í hvorri hlið. V-HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 30-32-33-35-36-38 cm, fellið af miðjulykkjuna í umferð, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður fram að lykkju með prjónamerki í og setjið síðan prjónuðu lykkjurnar á þráð eða hjálparprjón (Hluti-1), fellið af 1 lykkju (lykkja með prjónamerki), prjónið eins og áður út umferðina (Hluti-2). Prjónið áfram eins og áður á Hluti-2 og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá réttu alls 18-19-20-20-22-23 sinnum – sjá ÚRTAKA. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á annarri hverri umferð frá réttu alls 2-2-2-3-3-3 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og v-hálsmáli eru 18-19-21-22-23-24 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af. HLUTI-1: Setjið til baka lykkjur frá Hluti-1 á prjón 3. Haldið áfram með mynstur fram og til baka, fækkið lykkjum fyrir handveg og v-hálsmál alveg eins og á Hluti-2, en þegar fækka á lykkjum fyrir v-hálsmáli er það gert í lok umferðar frá réttu. Eftir allar úrtökur eru 18-19-21-22-23-24 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana – byrjið sauminn efst við handveg og saumið þar til 6 cm eru eftir neðst á framstykki/bakstykki (klauf). KANTUR Í HÁLSMÁLI. Kanturinn er prjónaður fram og til baka á hringprjóna. Byrjið frá réttu neðst í v-hálsmáli og prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, ca 138-140-148-150-158-162 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 2,5 – byrjið og endið mitt að framan. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út jafnt yfir til ca 159-161-171-173-181-185 lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 3 cm. Fellið aðeins laust af. Leggið aðra hliðina á kanti í hálsmáli yfir hina mitt að framan – sjá mynd og saumið niður. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið frá réttu í hlið neðst á handvegi og prjónið upp innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, ca 124-124-130-130-136-136 lykkjur í kringum handveg á stuttan hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út jafnt yfir til ca 144-144-150-150-156-156 lykkjur (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið aðeins laust af. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #poetrynightslipover eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-48
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.