Annette Schøler skrifaði:
Hej. Slidsen på ærmet, hvordan dem skal passe med ærmegabet har jeg problemer med at finde ud af? Skal slidsen først sys sammen inden ærmet monteres? Mvh. Annette Schøler
12.06.2023 - 14:08DROPS Design svaraði:
Hej Annette, først syr du ærmet i og bagefter syr du B til b (se billedet nederst i opskriften) :)
13.06.2023 - 13:47
Solveig Berg skrifaði:
Hej, Varför ska man använda rundstickor och inte vanliga stickor? Mvh Solveig Berg
01.06.2023 - 10:37DROPS Design svaraði:
Hej Solveig, det bestemmer du jo selv, men ærmerne strikkes rundt og så slipper du det tunge arbejde på raka/"vanliga" stickor :)
01.06.2023 - 15:07
Tuli skrifaði:
"Bind off 1 stitch on the next row from the neck = 24-25-26-28-30-31 stitches on the shoulder. Bind off when the piece measures 52-54-56-58-60-62 cm = 20 1/2"-21 1/4"-22"-22 3/4"-23 5/8"-24 3/8". Work the other shoulder in the same way." For the Back piece, does this mean bind off one stitch right before and after the neck bind-off area on the next row and then just bind off the whole thing?
03.01.2023 - 23:37DROPS Design svaraði:
Dear Tuli, for the neck you will cast off 1 stitch at the beginning of next row starting from the neck (from RS on left shoulder/from WS on right shoulder - back piece); then continue working until piece measures 52-54-56-58-60-62 cm = 20 1/2"-21 1/4"-22"-22 3/4"-23 5/8"-24 3/8" and cast off the remaining stitches for shoulder. Happy knitting!
04.01.2023 - 09:10
Elaine Jan skrifaði:
Hello, after working the sleeve for 19”, the pattern says “work the sleeve cap back and forth from mid-under sleeve” I’m not sure what this means. Should I keep working the sleeve in the round as I have been? Please help me. Thank you
02.01.2023 - 19:44DROPS Design svaraði:
Hi Elaine, To work the sleeve cap you turn when you get to the end of the round (under the sleeve) and work back from the wrong side. Then turn when you get to the start of the row and work from the right side again. Continue like this until the sleeve cap is finished. Happy New Year!
03.01.2023 - 06:52
Julia skrifaði:
Hallo, ich möchte diesen schönen Pullover stricken, ist es möglich, Diesen in Runden zu stricken anstatt in Hin und Rück Reihen ? Danke für die Antwort im Voraus, Julia
06.08.2022 - 08:49DROPS Design svaraði:
Liebe Julia, gerne können Sie das Rumpfteil in Runden stricken, aber dann sollen Sie die beide Teilen für das Armloch teilen und jedes Teil separat bis zum Schulter stricken. Viel Spaß beim stricken!
08.08.2022 - 08:26
Els Bakker skrifaði:
Ik ben het eens met Marga Hoogeboom. De truien worden zeer slecht getoond. Ik wil graag weten hoe de trui van achteren valt en hoe hij valt als je staat. De meeste modellen zitten en de foto's zijn hetzelfde en niet duidelijk. Het is zo zonde als je een trui breit, die later tegenvalt.
10.06.2022 - 15:20
Marga Hoogeboom skrifaði:
Ik denk dat ik het een leuk patroon vindt, maar ; Wáárom staan er 4(!) foto's bij die eigenlijk allemaal hetzelfde zijn. Waarom staat het model niet, en een foto van de achterkant. Dit is niet het enige patroon waarbij ik mij afvraag hoe lang het is, en hoe het vest of de trui valt, of het wijdt is of smal. Ik weet niet of jij als beantwoorder van vragen daar enige invloed op heb, maar misschien kun je het eens opnoemen?
03.05.2022 - 19:41
Mette skrifaði:
Fluffy Friend
19.01.2022 - 22:18
Dusky Rose#duskyrosesweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með röndum og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-34 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG (hægri öxl): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG (vinstri öxl): Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 103-113-123-133-145-161 lykkjur á hringprjón 4 með litnum hveiti í DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Haldið áfram með stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 17-19-21-23-25-27 lykkjur jafnt yfir = 86-94-102-110-120-134 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm, prjónið 4 umferðir með bleikur sandur, 4 umferðir með hveiti, síðan er bakstykkið prjónað til loka með bleikur sandur. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af 5-7-9-10-12-17 lykkjur í byrjun á hvorri af 2 næstu umferðum = 76-80-84-90-96-100 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 26-28-30-32-34-36 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er felld af 1 lykkja í næstu umferð frá hálsmáli = 24-25-26-28-30-31 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 103-113-123-133-145-161 lykkjur á hringprjón 4 með litnum hveiti í DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Haldið áfram með stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 17-19-21-23-25-27 lykkjur jafnt yfir = 86-94-102-110-120-134 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm, prjónið 4 umferðir með bleikur sandur, 4 umferðir með hveiti, síðan er bakstykkið prjónað til loka með bleikur sandur. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af 5-7-9-10-12-17 lykkjur í byrjun á hvorri af 2 næstu umferðum = 76-80-84-90-96-100 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-49-51-52-53 cm, fellið af miðju 16-18-20-22-24-26 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu þannig: Fækkið um 1 lykkju 6 sinnum – sjá ÚRTAKA = 24-25-26-28-30-31 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 64-66-68-70-72-74 lykkjur á sokkaprjóna 4 með litnum bleikur sandur. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið sléttprjón. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir = 58-60-62-64-66-68 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 32-30-28-26-24-22 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3½-3-3-2½-2 cm millibili alls 4-5-6-6-7-8 sinnum = 66-70-74-76-80-84 lykkjur. Þegar ermin mælist 48-47-46-44-42-39 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá mitt undir ermi) á hringprjóna að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 51-51-51-50-49-49 cm, þ.e.a.s. það er klauf 3-4-5-6-7-10 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermi við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsaumana. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 4 og litinn bleikur sandur, byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 68 til 88 lykkjur í kringum hálsinn. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið áfram með stroffið þar til kanturinn mælist 4 cm. Fellið af. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #duskyrosesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.