Susanna skrifaði:
Il titolo è fuorviante: il lavoro è eseguito all'uncinetto, non ai ferri. Nonostante l'errore, è un bel soggetto da realizzare. Grazie
10.12.2021 - 10:59DROPS Design svaraði:
Buongiorno Susanna, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il titolo. Buon lavoro!
10.12.2021 - 13:16
Barbara Couser skrifaði:
I saw this pattern and immediately thought of my daughter. I was wondering how many placemats you get from the yarn indicated? Do I need to multiply it by some number to be able to make her 8?
08.12.2021 - 22:24DROPS Design svaraði:
Dear Barbara, 1 ball of red should be enough for 8. Maybe for off white you should need 1 more, only 1 ball may be too little. You use approx. 1 and half balls of taupe for each placemat, so you would need approx. 3 balls of taupe for 2 placemats. To make 8 placemats, you would need approx. 12 balls of taupe. Happy crochetting!
11.12.2021 - 20:45
Wanda skrifaði:
Still no diagram A.1
08.12.2021 - 13:21DROPS Design svaraði:
Dear Wanda, remember to refresh your page - eventually you might have to clean your cache or use another browser, then you should be able to see diagram A.1. Happy crocheting!
08.12.2021 - 13:52
Schuhegger skrifaði:
Leider ist der Chart A1 immer noch nicht ersichtlich, dafür aber die Charts 2a und 2b doppelt. \r\nLiebe Grüße \r\nPetra Schuhegger
08.12.2021 - 11:28DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Schuhegger, ja doch, aber Sie sollen sicher den Cache leeren (oder mit einem anderen Browser versuchen), so können Sie A.1 und beide A.2 sehen. Viel Spaß beim häkeln!
08.12.2021 - 13:35
Birte Gj skrifaði:
Ser ikke diagram om A1.
07.12.2021 - 20:41DROPS Design svaraði:
Hej Birte, A.1 er det runde diagram som ligger først af de 3 diagrammer :)
08.12.2021 - 08:05
Dagmar Weber skrifaði:
Where is the chart A1?
07.12.2021 - 09:20DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Weber, thanks for noticing, diagram A.1 is now visible. Happy crocheting!
07.12.2021 - 12:57
Bright Heart Placemat#brightheartplacemat |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð piparköku - diskamotta með hjarta úr DROPS Muskat. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1549 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull/tvíbrugðinn stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umferð með fastalykkjum byrjar með 1 loftlykkju – þessi loftlykkja er talin sem fyrsta fastalykkja í umverð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í þessa loftlykkju. Hver umferð með stuðlum byrjar með 3 loftlykkjum – þessar 3 loftlykkjur eru taldar sem fyrsti stuðull í umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. LITASKIPTI: Til að fá fallega litaskiptingu þegar skipt er um lit er síðasta keðjulykkjan hekluð í umferð með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu loftlykkju frá byrjun á umferð, sækið nýja þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna á heklunálinni. LITAMYNSTUR (heklað í hring): Þegar heklað er með tveimur litnum í umferð með fastalykkjum er heklað þannig: Heklið síðustu fastalykkju með fyrsta lit, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og heklið síðasta uppslátt með nýja litnum, heklið síðan næstu fastalykkju. Þegar heklað er með tveimur litum í umferð með stuðlum er heklað þannig: Heklið síðasta stuðul með fyrsta lit, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og heklið síðasta uppslátt með nýja litnum, heklið síðan næsta stuðul. Þegar heklað er með tveimur litnum er þráðurinn lagður á þann lit sem ekki er lengur heklað með yfir lykkjur frá fyrri umferð og heklað er utan um þráðinn, þannig að hann er falinn innan í lykkjum – með þessu er þráðurinn dreginn áfram með hringinn. HEKLIÐ 3 STUÐLA SAMAN Í 1 STUÐUL (í sömu lykkju): * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu/sömu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 3 sinnum í sömu lykkju, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni (= 2 stuðlar færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- DISKAMOTTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá miðju og út. Fyrst er hjartað heklað og gatamynstur, síðan er hekluð einlit eining með stuðlum, áður en endað er með kanti í gatamynstri. HJARTA OG GATAMYNSTUR: Byrjið með heklunál 3,5 og litnum rauður í DROPS Muskat. Heklið 5 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið A.1 hringinn (A.x sýnir byrjun á umferð og lokin) – ATH: 1. og 2. umferð (hjarta) eru heklaðar með litnum rauður, síðan er heklað með litnum moldvarpa, en í 5. og 7. umferð er litamynstrið heklað með litnum natur og litnum moldvarpa – sjá LITASKIPTI, LITAMYNSTUR. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka, hafa verið heklaðar 7 umferðir hringinn og það eru 72 lykkjur í umferð. Heklið síðan með einlita einingu með stuðlum eins og útskýrt er að neðan. EINLIT EINING MEÐ STUÐLUM. Lestu HEKLLEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið með litnum moldvarpa þannig: UMFERÐ 8: Heklið * 1 stuðul í hverja af fyrstu/næstu 5 lykkjum, 2 stuðlar í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 84 stuðlar. UMFERÐ 9: Heklið * 1 stuðul í hverja af fyrstu/næstu 6 lykkjum, 2 stuðlar í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 96 stuðlar. UMFERÐ 10-15: Heklið stuðla hringinn og aukið út um 12 stuðla í hverri umferð alveg eins og útskýrt er í 8. og 9. umferð, þ.e.a.s. í hverri umferð er heklaður 1 stuðull fleiri á milli hverra útaukninga. Þegar síðasta umferð hefur verið hekluð til loka, eru 168 stuðlar. Heklið síðan kant með gatamynstri eins og útskýrt er að neðan. KANTUR MEÐ GATAMYNSTRI: Heklið A.2A yfir fyrstu 14 lykkjur, heklið síðan A.2B alls 11 sinnum í umferð. Eftir fyrstu umferð eru 180 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina, hafa verið heklaðar alls 19 umferðir frá miðju og út og það eru 204 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn og festið. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #brightheartplacemat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1549
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.