Rosella Matt skrifaði:
Come si realizza l'appendino per Santa's parade? Avrei bisogno di un video
19.12.2022 - 16:56DROPS Design svaraði:
Buonasera Rossella, per l'appendino deve seguire le istruzioni riportate nel relativo paragrafo. Buon lavoro!
28.12.2022 - 19:25
Susan skrifaði:
If y'all count the crochet projects on the Christmas calendar versus the knitted you will find there are more. Granted there are usually more knitted patterns in their other booklets. Do like I did, teach yourself to knit from YouTube. I come from a family of crocheters, no knitters and I'm a lefty to boot. I now knit more than I crochet. Just a suggestion.
29.12.2021 - 13:12
Marijke Veldman skrifaði:
Leuk om te zien maar hoe komt de kleurovergang zo mooi bij de ribbels?
21.12.2021 - 12:28DROPS Design svaraði:
Dag Marijke,
Je wisselt aan de goede kant steeds van kleur, zodat je de overgang aan de verkeerde kant hebt.
23.12.2021 - 15:40
Debbie skrifaði:
I Love all of your patterns
12.12.2021 - 00:30
Roliene skrifaði:
Volgens mij is kleur 12 gebruikt ipv kleur 37 klopt dat?
08.12.2021 - 11:32DROPS Design svaraði:
Dag Roliene,
Nee, kleur 37 is gebruikt hier; wijnrood. Kleur 12 is feller. Natuurlijk ben je vrij om je eigen kleur te kiezen :) Veel breiplezier!
09.12.2021 - 14:31
Maria Polerube skrifaði:
Jeg har tilladt mig at udvide jeres sjove lille opskrift lidt. Jeg har strikket en mere , men uden snor og næse og syet den fast som bagside. Lidt fyld giver en god virkning.
04.12.2021 - 10:36
Val skrifaði:
Bonjour. Les vidéos correspondantes au modèle, oui. Mais en cliquant en haut à gauche de l'écran, puis sur astuce et aide et enfin sur vidéos, celles-ci sont en anglais. Merci de faire le nécessaire.
02.12.2021 - 17:24DROPS Design svaraði:
Oups, merci pour votre retour, le nécessaire va être fait effectivement!
03.12.2021 - 07:55
Val skrifaði:
Bonjour, le site est en français sauf le texte des vidéos. Est-ce normal ? Merci.
02.12.2021 - 07:41DROPS Design svaraði:
Bonjour Val, les vidéos sont également disponibles en français, vous y avez accès, en français dès la page des explications - en français. Bon tricot!
02.12.2021 - 09:08
JMFS skrifaði:
@GH Pool You get what you get and don't pitch a fit! :D We crocheters would love more love, but it's a knitting world out there. Knitting has been around far longer than crochet so we're lagging behind. There will be some crochet patterns in the Christmas Calendar as previous years have shown us. I get it, though, I certainly wouldn't complain if we had more crochet than knit patterns! However, I'm thankful for Every pattern we crocheters can get our hands on. :)
02.12.2021 - 05:08
Kat skrifaði:
Fun! Thank you!
01.12.2021 - 22:16
Santa's Parade#dropssantasparade |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónaðir jólasveinar / jólaskraut úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1543 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KÚLA: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* í sömu lykkjur þar til 7 lykkjur eru í kúlu, snúið stykki, prjónið 7 lykkjur brugðið, snúið stykki, prjónið 7 lykkjur slétt, snúið stykki, prjónið 7 lykkjur brugðið, snúið stykki, prjónið 7 lykkjur slétt (= 4 umferðir sléttprjón yfir kúlu). Nú er 2. lykkju lyft á hægri prjóni yfir 1. lykkju, lyftið 3. lykkju yfir 1. lykkju, o.s.frv. þar til 1 lykkja er eftir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- JÓLASVEINAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er prjónuð lykkja efst, síðan er jólasveinninn sjálfur prjónaður í garðaprjóni með útaukningu mitt í stykki. Skipt er um lit fyrir andlit og prjónuð er kúla fyrir nef. Að lokum eru augun saumuð út. LYKKJA: Fitjið upp 1 lykkju á prjón 3,5 með litnum vínrauður í DROPS Paris. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, steypið lykkjunni yfir uppsláttinn *, endurtakið frá *-* þar til lykkjan mælist ca 5 til 6 cm. Stingið síðan inn vinstri prjóni í lykkjuna sem var fitjuð upp í byrjun á lykkju og prjónið þessa lykkju slétt = 2 lykkjur á prjóni. Prjónið síðan jólasvein eins og útskýrt er að neðan. JÓLASVEINN: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 3 lykkjur – til að fá fallegustu útkomuna verður að prjóna ystu lykkjuna í hvorri hlið fast í hverri umferð. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið uppsláttinn snúinn slétt, svo ekki myndist gat, prjónið 1 lykkju slétt, snúið stykkinu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 2 lykkjur mitt í stykki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt frá röngu, svo það ekki myndist gat. Aukið svona út í 6. hverri umferð alls 4 sinnum á hæðina = 11 lykkjur í umferð. Prjónið síðan andlit eins og útskýrt er að neðan. ANDLIT: Þegar prjónaðar hafa verið 25 umferðir með litnum vínrauður á eftir lykkju og það eru 11 lykkjur í umferð, prjónið andlit frá réttu þannig: Skiptið yfir í lit natur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón og aukið út alveg eins og áður hvoru megin við lykkju með prjónamerki í, prjónið KÚLA í næstu lykkju – sjá útskýringu að ofan (= nef), prjónið sléttprjón út umferðina. Snúið stykkinu og prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir í lit vínrauður. Prjónið 4 umferðir garðaprjón og aukið alveg eins út eins og áður hvoru megin við lykkju með prjónamerki, í síðustu umferð frá réttu = 15 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, en til að halda fallega forminu, verður að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju með prjónamerki í jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Klippið þráðinn og festið. AUGU: Notið litinn skógargrænn og saumið út augu á jólasveininn með 2 sporum flatsaum í hvoru auga – sjá mynsturteikningu A og útskýringu á mynsturtáknum. Hvort auga er saumað út með 4 lykkjur inn frá hvorri hlið og yfir 4 umferðir garðaprjón á hæðina. STREKKING: Til að jólasveinninn hangi fallega og verði stífur, er hægt að dýfa jólasveininum í sykurvatn eða litlausan gosdrykk og leggja flatan til þerris. TVINNUÐ SNÚRA: Klippið 1 þráð í litnum vínrauður og 1 þráð í litnum natur – ca 3 metra hvor. Hnýtið þræðina saman á öðrum endanum. Tvinnið báða þræðina stíft saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur snúran til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í annan endann. Prjónaðu eins marga jólasveina og þig langar til og þræddu snúruna í gegnum lykkjuna efst á hvern jólasvein, en til að jólasveinarnir haldist á réttum stað, er gerður lítill hnútur í kringum lykkjuna á jólasveinum með snúrunni. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropssantasparade eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1543
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.