Stephanie Krens - De Bruijn skrifaði:
Goedemiddag, ik heb je antwoord gezien op de laatste vraag (mijn vraag). Maar ik begrijp het antwoord echt niet… hopelijk kun je me verder helpen. Groeten Stephanie
06.05.2025 - 16:29DROPS Design svaraði:
Dag Stephanie,
Als het goed is heb je het gezicht vanaf een bepaald punt heen en weer gebreid. Dus steeds keren en terug breien. Waar je het werk steeds keerde zijn de zijkanten. Daar langs haak je nu de hals. Dus ook weer heen en weer haken maar dan dwars op het gezicht.
07.05.2025 - 21:24
Stephanie Krens - De Bruijn skrifaði:
Goedenavond, ik vind het patroon wat lastig te lezen. Ik moet nu naar de hals, maar het is me niet duidelijk hoe. Door het heen en weer haken van het gezicht, hebben als het ware twee ‘flapjes’ (er zit een opening tussen). Maar hoe haak ik nu de hals? En wat wordt er bedoeld met 16 toeren? En er staat ook: haak toer 2 en 3 totdat je 6 toeren hebt. Is dit de bedoeling: toer 1 - 2 - 3 - 2 - 3 - 2 - 3? Ik zag er al eerder een vraag over maar ik snap het antwoord niet. Bedankt! Groeten Steph
01.05.2025 - 20:31DROPS Design svaraði:
Dag Stephanie,
De hals haak je als het ware dwars tegen de zijkant van het gezicht. Het gezicht haakte je heen en weer en nu haak je de hals over de zijkanten waar steeds het begin en einde was van het gezicht. (En je haakt onder de neus door naar naar de andere zijkant van het gezicht.) Zoals je de 6 toeren beschrijft klopt precies.
04.05.2025 - 09:21
Anna skrifaði:
W polskiej wersji jest błąd. Zamiast oczek ścisłych powinny być słupki. Sprawdziłam w angielskiej wersji. Miłego dnia:)
15.11.2024 - 14:01DROPS Design svaraði:
Witaj Aniu, dinozaur jest wykonany oczkami ścisłymi (zwanymi w polskiej terminologii także półsłupkami). Słupki i słupki podwójne (treble crochet / double-treble crochet) występują tylko na grzebieniu na grzbiecie dinozaura. Pozdrawiamy!
15.11.2024 - 15:24
Claudia skrifaði:
In der Anleitung steht, dass der Dino 48cm hoch ist. Jetzt bin ich mildem Körper fertig, er misst jetzt ca 18cm 🙈 Und:ja, die Maschenprobe war korrekt!! Habe ich etwas falsch gemacht. Oder bleibt das so ein kleiner Dino? Bin verwirrt, weil es ja den kleinen Dino auch gibt.
04.11.2024 - 21:13DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, sollte Ihre Maschenprobe richtig sein, dann sollte das Dino auch richtig sein. Beachten Sie, daß das 1. Teil vom Kopf von der Schnauze gehäkelt zuerst in Runden dann in Reihen, und ab die SEiten vom 2. Teil Kopf wird der Körper gehäkelt. Viel Spaß beim Häkeln!
05.11.2024 - 09:42
Ana Silva skrifaði:
Muito obrigada pela publicação, está fácil de entender e muito bonito o trabalho.
22.08.2024 - 08:16
Anne-Li Blind skrifaði:
Draken var lätt att göra och beskrivningen lätt att förstå.
30.05.2024 - 00:32
Lisa skrifaði:
När jag gör nosen, varför behövs en luftmaska i början av varvet? Det känns som att hur jag än gör blir det för många maskor. Gissar att jag virkar lurfätmaskan men den ska jag hoppa över eller?
22.05.2024 - 21:52DROPS Design svaraði:
Hei Lisa. Du starter med en luftmaske, men du avslutter hver omgang med en kjedemaske i 1. fastmaske (så ja, du "hopper" over luftmasken). mvh DROPS Design
27.05.2024 - 08:14
Donna skrifaði:
I don't understand the assembly and the tail. Please help. This pattern is very confusing
16.05.2024 - 09:44DROPS Design svaraði:
Dear Donna, after bottom of body has been worked, sew the stitches together making sure seam is flat, leaving an opening towards back piece (opposed to side where the snout is); then work tail along the 8 rows worked at the end of bottom = 16 sts (with 1 st in each row) decreasing to create a tip. Happy crocheting!
16.05.2024 - 14:01
Martje skrifaði:
Ik zit vast bij toer 6 van het lijf. Het patroon en aantal steken vermeerderen lijkt hier niet te kloppen?
24.04.2024 - 19:59DROPS Design svaraði:
Dag Martje,
Waar loop je precies tegenaan? Heb je 42 steken op de toer als je klaar bent met toer 6, of te veel of te weinig?
27.04.2024 - 09:02
Jantiene skrifaði:
Hallo, Ik wil heel graag de dino voor me zoontjes maken alleen loop ik steeds vast wanneer de neus klaar heb en verder ga .ik snap niet goed hoe de hals er aan gehaakt word.. Hopelijk kunt u mij verder helpen. Groeten Jantiene
17.04.2024 - 16:48DROPS Design svaraði:
Dag Jantiene,
Het gezicht haak niet in de rondte zoals de neus, maar heen en weer, waarbij je dus steeds bij elke toer keert, zodat je een opening onderaan hebt. Langs deze opening haak je de hals.
24.04.2024 - 18:03
Dino Cuddles#dropsdinocuddles |
|
![]() |
![]() |
Hekluð risaeðla Tyrannosaurus Rex (T-Rex) / leikfang úr DROPS Snow. Stykkið er heklað frá nefi að hala með einungis einum saum. Þema: Leikföng.
DROPS Children 41-29 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR (á við um loftlykkjur): 1 loftlykkja á að jafngilda 1 fastalykkju á breidd. Passið uppá að lykkjan sem er gerð í loftlykkju dragist aðeins upp á heklunálina svo að hún verði ekki of stíf. Ef loftlykkjurnar eru heklaðar of fast, kemur mynstrið til með að dragast saman í þeim einingum þar sem margar loftlykkjur eru HEKLAÐ SAMAN: Heklið 2 fastalykkjur saman að 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkjuna og sækið þráðinn, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn (= 3 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). LYKKJUSPOR: Saumið með einföldum þræði í litnum svartur. Augun eru saumuð út yfir 1. og 2. umferð í andliti og það eru 5 lykkjur á milli augna. Sjá mynsturteikningu sem sýnir hvernig lykkjusporið er gert. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- RISAEÐLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað með 2 þráðum. Heklað er frá nefi að hala með einungis 1 saum mitt undir búk. Fyrstu eru heklaðir 4 fætur sem lagðir eru til hliðar um stund. Risaeðlan byrjar við nef, síðan er höfuðið heklað. Hálsinn og búkurinn er heklað í framhaldi á höfði jafnframt því sem fram- og afturfætur eru heklaðir fastir. Síðan er neðri hlutinn heklaður á búk, halinn og bakið heklað saman. Að lokum eru gaddarnir heklaðir meðfram baki. FRAMFÓTUR: Heklið 2 loftlykkjur með heklunál 8, með 2 þráðum DROPS Snow í litnum karrí – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Í fyrstu loftlykkju eru heklaðar 5 fastalykkjur, þetta verður lítill hringur með lykkjum. Endið hringinn með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, þar með er hringurinn fastur og 1. umferð er lokið. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 2 fastalykkjur í hverja lykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, það eru 10 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn frá og skiptið yfir í 2 þræði í litnum sægrænn. UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, * 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn (= 15 lykkjur). Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. UMFERÐ 4-9: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 15 lykkjur). Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Heklið annan fót á sama hátt og fyllið fæturna með vatti. AFTURFÆTUR: Heklið á sama hátt og FRAMFÆTUR, nema nú er hekluð umferð meira í litnum karrí áður en skipt er yfir í litinn sægrænn. NEF: Heklið 2 loftlykkjur með heklunál 8 með 2 þráðum í litnum sægrænn. Í fyrstu loftlykkju eru heklaðar 5 fastalykkjur, þetta verður lítill hringur af lykkjum. Endið hringinn með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, þar með er hringurinn fastur og 1. umferð er lokið. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, síðan eru heklaðar 2 fastalykkjur í hverja lykkju (= 10 lykkjur). Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, * heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 15 lykkjur). UMFERÐ 4: Heklið 1 loftlykkju, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 2 lykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 20 lykkjur). UMFERÐ 5: Heklið 1 loftlykkju, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 lykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 25 lykkjur). UMFERÐ 6: Heklið 1 loftlykkju, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 lykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 30 lykkjur). UMFERÐ 7-11: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 30 lykkjur). UMFERÐ 12: Heklið 1 loftlykkju, * heklið 1 fastalykkju í hvora af 2 næstu fastalykkjum, heklið 2 næstu fastalykkjur saman til 1 fastalykkju – sjá HEKLAÐ SAMAN í útskýringu að ofan *, heklið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir. Heklið 1 fastalykkju í hvora af 2 síðustu fastalykkjum og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 23 lykkjur í hring). UMFERÐ 13: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 23 lykkjur). ANDLIT: Nú er ekki lengur heklað í hring, stykkið er heklað fram og til baka héðan. UMFERÐ 1-4: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af 23 lykkjum. Snúið stykkinu. UMFERÐ 5-6: 1 loftlykkja, heklið 2 lykkjur í fyrstu lykkjuna, 1 fastalykkja í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir og heklið 2 lykkjur í síðustu lykkjuna (= 2 lykkjur fleiri í hverri umferð) (= 27 lykkjur). Snúið stykkinu. UMFERÐ 7-8: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju. Snúið stykkinu. Nú eru saumuð út 2 augu í andlitið með LYKKJUSPORI – sjá útskýringu að ofan. HÁLS: Meðfram hlið á ANDLIT hafa verið heklaðar 8 umferð, nú á að hekla áfram fram og til baka meðfram báðum að 2 hliðum á andliti, þ.e.a.s. meðfram alls 16 umferðum: UMFERÐ 1: Heklið 2 fastalykkjur í síðustu umferð sem var hekluð í andliti, * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 umferðum í andliti, 2 fastalykkjur í næstu umferð á andliti *, heklið frá *-* út umferðina = 22 lykkjur. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu. UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir, heklið 2 fastalykkjur í síðustu lykkjuna (= 2 lykkjur fleiri). Snúið stykkinu. Heklið umferð 2 og 3 þar til heklaðar hafa verið alls 6 umferðir í hálsi (= 26 lykkjur í 6. umferð). Snúið stykkinu. BÚKUR: Nú eru báðir framfæturnir heklaðir á búkinn, heklað er fram og til baka. UMFERÐ 1: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 lykkjum, brjótið annan framfótinn saman tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 lykkjur sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja lykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjur (= mitt að framan/á milli framfóta), brjótið hinn framfótinn saman tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 lykkjurnar sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af 4 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 28 lykkjur). Snúið stykkinu. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju. Snúið stykkinu. UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir, 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 2 lykkjur fleiri). Snúið stykkinu. Heklið umferð 2 og 3 þar til heklaðar hafa verið alls 5 umferðir á búk (= 32 lykkjur í 5. umferð). Snúið stykkinu. UMFERÐ 6: Í þessari umferð er aukið út fyrir maga þannig: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 7 sinnum, heklið 2 fastalykkjur í næstu lykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 7 lykkjum, 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 10 lykkjur fleiri, það eru 42 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu. UMFERÐ 7: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu. UMFERÐ 8: Í þessari umferð er einnig aukið út fyrir maga þannig: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 16 lykkjum, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 4 sinnum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 16 lykkjum, 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 6 lykkjur fleiri, nú eru 48 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu. UMFERÐ 9: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu. UMFERÐ 10: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir, heklið 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 2 lykkjur fleiri, það eru 50 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu. UMFERÐ 11: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu. UMFERÐ 12: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir, 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 2 lykkjur fleiri, það eru 52 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu. UMFERÐ 13: Nú eru afturfæturnir heklaðir á búkinn. Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 15 lykkjum, brjótið saman annan afturfótinn tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 fastalykkjur sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja lykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 10 lykkjum (= mitt að framan/á milli afturfóta), brjótið hinn afturfótinn saman tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 fastalykkjur sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja lykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 15 fastalykkjum. Snúið stykkinu. NEÐRI HLUTI: UMFERÐ 1-3: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju. Snúið stykkinu. UMFERÐ 4: Í þessari umferð er lykkjum fækkað fyrir flatan botn þannig: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 18 lykkjum, * næstu 2 fastalykkjur eru heklaðar saman í 1 fastalykkju – sjá HEKLAÐ SAMAN í útskýringu að ofan *, heklið frá *-* alls 8 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 18 lykkjum (= 8 lykkjur færri, það eru 44 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu. UMFERÐ 5: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu. UMFERÐ 6: Í þessari umferð er lykkjum fækkað fyrir flatan botn þannig: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 14 lykkjum, * næstu 2 fastalykkjur eru heklaðar saman í 1 fastalykkju *, heklið frá *-* alls 8 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 14 lykkjum (= 8 lykkjur færri, það eru 36 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu. UMFERÐ 7: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu. UMFERÐ 8: Í þessari umferð er lykkjum fækkað fyrir flatan botn þannig: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 14 lykkjum, * næstu 2 fastalykkjur eru heklaðar saman í 1 fastalykkju *, heklið frá *-* alls 4 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 14 lykkjum (= 4 lykkjur færri, það eru 32 lykkjur í umferð). Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið botninn saman á lengdina og saumið lykkju í lykkju þannig að botninn verði flatur. HALI: Notið heklunál 8 og 2 þræði í litnum sægrænn. Meðfram hlið á NEÐRI HLUTI hafa verið heklaðar 8 umferðir (hvoru megin við saum), nú á að heklað áfram fram og til baka meðfram báðum 2 hliðum á neðri hluta, þ.e.a.s. meðfram alls 16 umferðum: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja umferð (= 16 lykkjur). Snúið stykkinu. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, fyrstu 2 fastalykkjur eru heklaðar saman að 1 lykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 2 lykkjur eru eftir, síðustu 2 lykkjurnar eru heklaðar saman í 1 lykkju (= 2 lykkjur færri). Snúið stykkinu. Heklið umferð 1 og 2 þar til heklaðar hafa verið alls 12 umferðir og það eru 4 lykkjur í umferð. Klippið frá og festið enda. BAK: Notið heklunál 8 og 2 þræði í litnum sægrænn. Heklið 1 umferð með fastalykkjum meðfram öllu opinu á baki, byrjið við halann (það er heklað meðfram annarri hliðinni í einu) þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 lykkju í hverja umferð eða í hverja lykkju – frá hala að toppi á höfði og aftur niður meðfram hinni hliðinni á baki að hálsi. Það eru ca 45 lykkjur hvoru megin á baki, alls ca 90 lykkjur í kringum allt opið. Snúið stykkinu. Nú verður að fylla risaeðluna með vatti á meðan heklað er áfram þannig: UMFERÐ 2: Brjótið risaeðluna saman tvöfalda og heklið 1 umferð með fastalykkjum frá hala að topp á höfði (heklað er í gegnum bæði lögin þannig að bakið er heklað saman) = ca 45 fastalykkjur. Klippið þráðinn frá í toppi á höfði og festið enda. GADDAR: Notið heklunál 8 og 2 þræði í litnum karrí. Byrjið yst á hala og heklið þannig: * Heklið 1 fastalykkju, hoppið yfir 1 lykkju og í næstu lykkju er heklað þannig: 2 stuðlar, 1 tvíbrugðinn stuðull, 2 loftlykkjur, 1 tvíbrugðinn stuðull og 2 stuðlar. Hoppið yfir 1 lykkju og heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, síðan er endurtekið frá *-* upp yfir bak, en hoppið yfir 2 lykkjur í stað 1 lykkju afgang af leiðinni að höfði. Þegar ekki eru til nægilega margar lykkjur fyrir heilan gadd í lokin á höfði þá á að hekla umferðina til loka með fastalykkjum alveg upp að toppi á höfði. Klippið frá og festið enda. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsdinocuddles eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 41-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.