Marie-Françoise HOMASSEL skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas la réalisation du point, sur l'endroit du travail, matérialisé sur le schéma par un rond noir. = en piquant dans la maille sous la maille suivante, tricoter: 1 maille endroit, 1 jeté, 1 maille endroit (= on augmente 2 mailles). Merci de me donner une explication plus claire.
14.01.2025 - 18:18DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Homassel, retrouvez cette façon de faire et ce motif dans cette vidéo qui devrait vous aider à visualiser comment procéder. Bon tricot!
15.01.2025 - 08:14
Sarah skrifaði:
Hei! Jeg strikker venstrehendt og lurer på hvordan jeg da skal strikke diagrammet. Det blir vel ikke riktig å bare lese diagrammet fra venstre til høyre. Må jeg rett og slett lese fra høyre samtidig som jeg strikker fra venstre?
03.11.2023 - 22:17DROPS Design svaraði:
Hei Sarah, Siden diagrammene er så godt som symmetriske, kan du både lese dem og strikke dem fra venstre til høyre. God fornøyelse!
06.11.2023 - 06:46
Sally Johnson skrifaði:
Would you please explain to me how you can use either Alpaca which is sport weight yarn or Nord which is fingering weight yarn for this pattern. In the U.S. fingering weight yarn is classified a (1) and sport yarn is classified as (2).
19.11.2021 - 15:24DROPS Design svaraði:
Dear Ms. Johnson, in fact the difference between this two qualities is very small (it is mainly determined by the weight of the material used) and both of them gives the same gauge. So you can easily use one or the other without any change in the pattern instructions. You can also look at our Yarn groups - this tab shows a comparison of all DROPS yarns and makes it easier to find alternative yarn. Happy knitting!
20.11.2021 - 18:47
Blue Shells#blueshellshat |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð húfa og hálsklútur úr DROPS Alpaca eða DROPS Nord. Stykkið er prjónað með gatamynstri.
DROPS 226-50 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1. Hálsklútur: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 83 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 6 lykkjur) og deilið þeim 77 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 3,9. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 4. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi 3. og 4. hver lykkja slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 144-154 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca eða DROPS Nord. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 9-11 cm. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 24-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 120-128 lykkjur. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3 og prjónið A.1 hringinn (= 15-16 mynstureiningar með 8 lykkjum). Prjónið þar til stykkið mælist ca 27-29 cm frá uppfitjunarkanti. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 1 umferð sléttprjón. * Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 60-64 lykkjur eftir, prjónið sléttprjón hringinn í 2 cm *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 30-32 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar aftur slétt saman = 15-16 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 31-33 cm ofan frá og niður. ------------------------------------------------------- HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. HÁLSKLÚTUR: Fitjið upp 83 lykkjur á prjóna 3 með DROPS Alpaca eða DROPS Nord. Skiptið yfir á prjón 2,5. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 63 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur eru prjónaðar slétt). Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2 (= 9 lykkjur), prjónið A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð (= 6 mynstureiningar með 8 lykkjum) og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til hálsklúturinn mælist ca 147 cm – endið eftir umferð merktri með ör í A.2 þannig að mynstrið endi fallega. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 20 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 83 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur eru prjónaðar slétt og uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið). Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Hálsklúturinn mælist ca 150 cm. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blueshellshat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-50
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.