Silvia skrifaði:
Precioso, me encanta
24.08.2021 - 13:45
Mille skrifaði:
Cable slipover
17.08.2021 - 02:03
Christina Birkved skrifaði:
Smukke snoninger.
05.08.2021 - 19:15
Lynn skrifaði:
Great it is a little more fitted and love the color also!
03.08.2021 - 19:52
Kim Bisson skrifaði:
This is my favorite! It looks really cozy and I love the color
03.08.2021 - 16:55
Sage Strings#sagestringsvest |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Wish eða DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, sléttprjóni og köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-47 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Vestið er prjónað fram og til baka í 2 stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. Síðan er kantur prjónaður í stroffprjóni í kringum handveg og hálsmáli. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 60-68-68-80-80-88 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Wish eða DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 10-14-14-18-18-22 lykkjur, prjónið A.1 (= 38-38-38-42-42-42 lykkjur), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 10-14-14-18-18-22 lykkjur, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 10-14-14-18-18-22 lykkjur, jafnframt er fækkað um 0-2-0-3-0-0 lykkjur (= 10-12-14-15-18-22 lykkjur sléttprjón), A.2 ( = 38-38-38-42-42-42 lykkjur), sléttprjón yfir næstu 10-14-14-18-18-22 lykkjur, jafnframt er fækkað um 0-2-0-3-0-0 lykkjur (= 10-12-14-15-18-22 lykkjur sléttprjón), 1 kantlykkja í garðaprjóni = 60-64-68-74-80-88 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur í A.2 yfir miðju 38-38-38-42-42-42 lykkjur, 10-12-14-15-18-22 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3-3-3-4-5-6 sinnum og 1 lykkja 1-2-3-3-3-4 sinnum í hvorri hlið = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm. Fækkið nú um 2 lykkjur yfir miðju kaðal í A.2, síðan eru miðju 8-8-10-12-12-14 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 11-12-12-12-13-13 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm, fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir kaðal í A.2 = 9-10-10-10-11-11 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: Fitjið upp 60-68-68-80-80-88 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Wish eða DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 10-14-14-18-18-22 lykkjur, prjónið A.1 (= 38-38-38-42-42-42 lykkjur), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 10-14-14-18-18-22 lykkjur, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 10-14-14-18-18-22 lykkjur, jafnframt er fækkað um 0-2-0-3-0-0 lykkjur (= 10-12-14-15-18-22 lykkjur sléttprjón), A.2 ( = 38-38-38-42-42-42 lykkjur), sléttprjón yfir næstu 10-14-14-18-18-22 lykkjur, jafnframt er fækkað um 0-2-0-3-0-0 lykkjur (= 10-12-14-15-18-22 lykkjur sléttprjón), 1 kantlykkja í garðaprjóni = 60-64-68-74-80-88 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3-3-3-4-5-6 sinnum og 1 lykkja 1-2-3-3-3-4 sinnum í hvorri hlið = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm. Fækkið nú um 2 lykkjur yfir miðju kaðal í A.2, síðan eru felldar af miðju 14-14-16-18-18-20 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í byrjun á næstu umferð frá hálsmáli = 11-12-12-12-13-13 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm, fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir kaðal í A.2 = 9-10-10-10-11-11 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, en skiljið eftir neðstu 10 cm í hvorri hlið = klauf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við annan axlasauminn. Notið stuttan hringprjón 7 og prjónið upp ca 44 til 56 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) innan við 1 lykkju í kringum allt opið við hálsmál (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR Í HANDVEG: Byrjið frá réttu við hliðarsaum undir handveg. Notið stuttan hringprjón 7 og prjónið upp ca 60 til 72 lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sagestringsvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-47
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.