Filippa Payne skrifaði:
Hejsa! Jeg sidder og strikker og sidder fast ved følgende - “Tag ind således på hver 4.pind 1-1-1-1-1-2 gange, på hver 2.pind 22-24-25-30-32-32 gange og på hver 4.pind 1-1-1-1-1-1 gang (= 24-26-27-32-34-35 masker taget ind skrå forstykke).” - hvad skal det betyde ig hvilke masker skal jeg tage ind? Jeg forstår det ikke helt? 😔
10.02.2025 - 16:11DROPS Design svaraði:
Hej Filippa, vælg størrelse øverst i opskriften, så får du en ring rundt om det tal som gælder din størrelse :)
12.02.2025 - 14:26
Sterre skrifaði:
“Decrease like this every 4th row 1-1-1-1-1-2 times, every 2nd row 22-24-25-30-32-32 times and every 4th row 1-1-1-1-1-1 time (= 24-26-27-32-34-35 stitches decreased).” I don’t understand this part.m, especially the row with 24 decreases. Can you please explain? Thank you!
30.01.2025 - 21:07DROPS Design svaraði:
Hi Sterre, You decrease 1 stitch for the neckline every 4th row once in your size. Then you decrease 1 stitch every 2nd row, 24 times (work 48 rows), then finally decrease every 4th row one more time. This gives you a total of 26 stitches decreased for the neckline and 56 rows worked. Hope this helps and happy knitting!
31.01.2025 - 07:33
Tanja skrifaði:
I’m at the front right panel right now and the pattern says to “Decrease inside the 6 purled stitches (= rolled-edge)” does that mean the 6 stitches become less and the rolled edge becomes smaller, or do I decrease at the 6th and 7th stitch?
14.11.2024 - 18:14DROPS Design svaraði:
Hi Tanja, the 6 sts for the rolled-edge should stay the same all the time, decrease at th 6th and 7th st. Happy knitting!
14.11.2024 - 20:57
Mund skrifaði:
"Wie zuvor über die ersten 15-16-18-17-18-20 Maschen stricken, * 2 Maschen links, 2 Maschen rechts *, von *-* über die nächsten 20-20-20-24-24-24 Maschen stricken, 2 Maschen links, wie zuvor über die letzten 15-16-18-17-18-20 Maschen stricken. " Kann mir bitte dies einer erklären? Ich verstehe nicht was das *-* bedeutet und wie ich das stricken soll. Wie soll das aussehen? Hinten Rückenteil Kragen verzweifelte Grüße soraya
06.11.2021 - 08:47DROPS Design svaraði:
Liebe Soraya, *-* bezeichnet die Wiederholung, die gestrickt werden soll. Beispiel: für die kleinste Größe werden 20 Maschen benötigt. Diese sollen durch Wiederholung von 2x Links und 2x Rechts gestrickt werden - also 5 Wiederholungen. Viel Spaß beim Stricken!
06.11.2021 - 19:08
Susanne Vollmer skrifaði:
I love this cosy wrap, cannot wait to start.
24.08.2021 - 17:21
Maria skrifaði:
Cuddly hug
10.08.2021 - 01:23
Sara skrifaði:
Wow
05.08.2021 - 08:08
Kjersti L Johnsen skrifaði:
Soft wrap sweater
04.08.2021 - 09:28
Patricia Thibert skrifaði:
Matin cocooning
03.08.2021 - 17:19
River Hill#riverhilljacket |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð vafningspeysa úr DROPS Melody. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-21 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 70 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 7. Í þessu dæmi eru prjónaðar 6. og 7. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING (á við um hliðar á ermum): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúin svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka hringprjón hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. Stykkin eru saumuð saman. Prjónaðar eru 2 snúrur sem eru saumaðar niður á peysuna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 72-80-84-92-104-112 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 10-12-12-12-16-18 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 62-68-72-80-88-94 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð brugðið (kantlykkjur eru prjónaðar slétt). Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni – sjá ÚTAUKNING = 64-70-74-82-90-96 lykkjur. Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af lykkjur fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3-4-4-5-6-7 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-2-2-2 sinnum = 52-54-58-60-62-66 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, prjónið stroffprjón yfir miðju 22-22-22-26-26-26 lykkjur þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 15-16-18-17-18-20 lykkjur, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið yfir næstu 20-20-20-24-24-24 lykkjur, prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið eins og áður yfir síðustu 15-16-18-17-18-20 lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 14-14-14-18-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 19-20-22-21-22-24 lykkjur eftir fyrir öxl. Haldið áfram með mynstur eins og áður, þ.e.a.s. prjónið 2 lykkjur slétt við háls og 2 lykkjur brugðið innan við þessar lykkjur, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni (séð frá réttu). Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 57-61-65-73-81-85 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni og 6 lykkjur í rúllukant) á hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 6 lykkjur brugðið (= rúllukantur, prjónaður brugðið frá réttu og slétt frá röngu), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 lykkjur brugðið, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 50-54-58-66-74-78 lykkjur og fækkið jafnframt um 7-6-7-8-10-10 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA, 1 kantlykkja garðaprjón = 50-55-58-65-71-75 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð brugðið (kantlykkja og 6 lykkjur í rúllukanti mitt að framan eru prjónaðar slétt). Prjónið nú sléttprjón með 6 lykkjur í rúllukanti við miðju að framan og 1 kantlykkju garðaprjón í hlið eins og áður. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Fækkið núna lykkjum fyrir vafning, jafnframt eru lykkjur auknar út í hlið og lykkjur felldar af fyrir handveg – lestu því allan næsta kafla áður en þú heldur áfram að prjóna. VAFNINGUR: Þegar stykkið mælist 10-10-10-9-8-8 cm, byrjar úrtaka fyrir vafning. Fækkið lykkjum innan við 6 lykkjur brugðið (= rúllukantur) með því að lyfta 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1-1-1-1-1-2 sinnum, í annarri hverri umferð 22-24-25-30-32-32 sinnum og í 4. hverri umferð 1-1-1-1-1-1 sinnum (= 24-26-27-32-34-35 lykkjur færri fyrir vafning). ÚTAUKNING Í HLIÐUM: Þegar stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm, aukið út um 1 lykkju í hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni – munið eftir ÚTAUKNING. AFFELLING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælis 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af lykkjur fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 3-4-4-5-6-7 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-2-3-3 sinnum og 1 lykkju 1-2-2-2-2-2 sinnum (= 6-8-8-11-14-15 lykkjur felldar af fyrir handvegi). Þegar öll affelling / úrtaka hefur verið gerð fyrir handveg og vafningurinn er tilbúinn, eru 21-22-24-23-24-26 lykkjur fyrir öxl. Nú eru 2 lykkjur fleiri á öxlum á framstykki en á bakstykki. Þessar 2 auka lykkjur á framstykki eru síðar saumaðar inn í axlasauminn þannig að rúllukanturinn haldist upprúllaður frá axlasaumi og niður. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 57-61-65-73-81-85 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni og 6 lykkjur í rúllukant) á hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 6 lykkjur brugðið (= rúllukantur, prjónast brugðið frá réttu og slétt frá röngu). Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 50-54-58-66-74-78 lykkjur og fækkið jafnframt um 7-6-7-8-10-10 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA, 6 lykkjur brugðið = 50-55-58-65-71-75 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð brugðið (kantlykkja og 6 lykkjur í rúllukanti mitt að framan eru prjónaðar slétt). Prjónið nú sléttprjón með 6 lykkjur í rúllukanti við miðju að framan og 1 kantlykkju garðaprjón í hlið eins og áður. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Fækkið núna lykkjum fyrir vafning, jafnframt eru lykkjur auknar út í hlið og lykkjur felldar af fyrir handveg – lestu því allan næsta kafla áður en þú heldur áfram að prjóna. VAFNINGUR: Þegar stykkið mælist 10-10-10-9-8-8 cm, byrjar úrtaka fyrir vafning. Fækkið lykkjum innan við 6 lykkjur brugðið (= rúllukantur) með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1-1-1-1-1-2 sinnum, í annarri hverri umferð 22-24-25-30-32-32 sinnum og í 4. hverri umferð 1-1-1-1-1-1 sinnum (= 24-26-27-32-34-35 lykkjur færri fyrir vafning). ÚTAUKNING Í HLIÐUM: Þegar stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm, aukið út um 1 lykkju í hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni – munið eftir ÚTAUKNING. AFFELLING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælis 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af lykkjur fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 3-4-4-5-6-7 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-2-3-3 sinnum og 1 lykkju 1-2-2-2-2-2 sinnum (= 6-8-8-11-14-15 lykkjur felldar af fyrir handvegi). Þegar öll affelling / úrtaka hefur verið gerð fyrir handveg og vafningurinn er tilbúinn, eru 21-22-24-23-24-26 lykkjur fyrir öxl. Nú eru 2 lykkjur fleiri á öxlum á framstykki en á bakstykki. Þessar 2 auka lykkjur á framstykki eru síðar saumaðar inn í axlasauminn þannig að rúllukanturinn haldist upprúllaður frá axlasaumi og niður. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. ERMI: Fitjið upp 42-46-46-50-50-54 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 0-3-3-5-3-6 lykkjur jafnt yfir = 42-43-43-45-47-48 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð brugðið (kantlykkjur eru prjónaðar slétt). Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 26-21-21-21-18-18 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3-3-2-2-2-1½ cm millibili alls 6-7-9-9-10-11 sinnum = 54-57-61-63-67-70 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 44-42-41-40-38-36 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu). Prjónið nú ermakúpu þannig. Prjónið sléttprjón fram og til baka og fellið af lykkju í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 3-4-4-5-6-7 sinnum 1 sinni, 1 lykkja 0-0-0-2-4-6 sinnum, 2 lykkjur 0-3-2-4-3-2 sinnum og 3 lykkjur 3-1-2-0-0-0 sinnum = 30-31-33-33-35-36 lykkjur. Fellið af. Ermin mælist ca 49-49-48-49-49-48 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma þannig: Það eru 2 lykkjur fleiri á öxlum á framstykki en á bakstykki. Brjótið inn 2 ystu lykkjurnar í rúllukanti á framstykki að réttu, þannig að þessar 2 lykkjur liggja tvöfaldar yfir næstu 2 lykkjur í rúllukanti (nú eru eftir 2 brugðnar lykkjur á undan sléttprjónuðu einingunni á framstykki). Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – passið uppá að 2 ystu lykkjur við hálsmál sem voru brotnar tvöfaldar festist inn í axlasauminn. Saumið ermar við fram- og bakstykki innan við affellingarkantinn á ermum og 1 kantlykkja í garðaprjóni á fram- og bakstykki. Saumið sauminn undir ermum og síðan niður yfir hliðarsaum – saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, en skiljið eftir smá op ca 3 cm til að þræða snúruna í gegnum hægri hlið ca 10 cm upp frá uppfitjunarkanti. SNÚRA: Fitjið upp 6 lykkjur á hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið sléttprjón fram og til baka í 120 til 150 cm – eða að óskaðri lengd. Snúran kemur til með að rúllast inn. Fellið af. Prjónið aðra snúru á sama hátt. Festið hvora snúruna að röngu á hvort framstykki nákvæmlega í skiptinguna á milli rúllukants ca 10 cm upp frá uppfitjunarkanti. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #riverhilljacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.