Lisa skrifaði:
In the engloish pattern it said to decrease for the foot every other round, but in dutch it just said to repeat the decreases 8-8-10 times. Should it be decreased every round or should it be 1 normal round and 1 decrease round?
31.12.2024 - 00:31DROPS Design svaraði:
Dear Lisa, it should be every 2nd round. So you work 1 round normally and 1 round with decreases. Happy knitting!
31.12.2024 - 01:18
Fernanda skrifaði:
Hola! Hice las disminuciones del talón, y luego dice que debo recoger 16 puntos de los lados pero que pasa si tengo mas de 16 puntos en el lado? Con 16 puntos recogidos aún no llego hasta el borde donde estan los puntos del empeine
29.12.2024 - 20:20DROPS Design svaraði:
Hola Fernanda, tienes que repartir 16 puntos sobre cada lado del talón, saltando de vez en cuando 1 pt (fila). De esta forma no se pierde la forma del calcetín. Si recogieras todos los puntos, la labor quedará deformada porque quedará floja, ya que te sobrarán puntos para trabajar en los lados.
30.12.2024 - 23:17
Carla Josdel skrifaði:
No me sale el talón, no se si tena un error el patrón, dice que tengo que tener 7puntos pero hasta abajo que se finaliza con 14 puntos
19.09.2024 - 20:57DROPS Design svaraði:
Hola Carla, tienes 26-28-30 puntos en el patrón, según la talla. Por ejemplo, para la talla 35/37, trabajas como sigue: Trabajas de derecho sobre 18 pts, quedan 7 pts para terminar la fila, disminuye 1 punto como se indica para terminar, gira, trabaja de revés sobre 11 pts, disminuye 1 pt y gira. Tienes que tener 14 pts en total. Por lo tanto, tienes que trabajar 12 filas con disminuciones, disminuyendo 1 pt en cada fila. Puedes ver el siguiente vídeo sobre cómo se trabaja esta disminución: https://www.garnstudio.com/video.php?id=307&lang=es.
23.09.2024 - 00:19
Wilma skrifaði:
Super leuk patroon. Ik heb het patroon ook omgerekend om voor maat 24 te breiden, zodat mijn dochtertje en ik dezelfde sokken hebben. Die vouwrand breien was nieuw voor mij, maar dankzij de video wel makkelijk te leren.
04.09.2024 - 21:22
Marie-Helené Öberg skrifaði:
Hej! Tycker dessa sockor är så himla söta. Men jag skulle vilja sticka dem i ännu mindre storlek. Till en tjej som är 5. Hur gör jag då?
23.06.2024 - 06:29DROPS Design svaraði:
Hej Marie-Helene, vi skriver dem på ønskelisten :) Prøv at følge en opskrift på sokker til barn i samme strikkefasthed og så strikke selve volangen ind :)
25.06.2024 - 14:00
Heidi Nielsen skrifaði:
Har netop strikket et par fine strømper med flæser 🥰 Men forstår ikke hvorfor der skal slåes masker op med 2 tråde?
10.03.2024 - 11:11DROPS Design svaraði:
Hej Heidi, det gør du for at få kanten mere elastisk (men det er naturligvis frivilligt ;) )
13.03.2024 - 15:12
Deborah skrifaði:
Hello, I've just ordered several balls your wool and so selected several of your free patterns to knit with my purchases, these socks being one of them. I saved the patterns, by tapping the heart, but the problem is i dont know where or how to find my saved/ liked patterns! Help please!
26.06.2023 - 16:57DROPS Design svaraði:
Dear Deborah, you can find them by clicking on the heart in the top right corner - after entering your email, all your saved patterns will be displayed. Happy knitting!
26.06.2023 - 18:33
Josie skrifaði:
Bonjour, j'apprends le tricot en circulaire, est-ce que je peux réaliser ces chaussettes en faisant le magic loop ? Merci et belle journée à vous.
26.05.2023 - 13:54DROPS Design svaraði:
Bonjour Josie, tout à fait, vous pouvez tricoter toutes les petites pièces (chaussettes, mitaines, moufles, etc...) en rond sur aiguille circulaire à l'aide du magic loop au lieu des aiguilles doubles pointes. Bon tricot!
26.05.2023 - 15:18
Thea skrifaði:
Når man er ferdig med vrangbordet og snur arbeidet for å fortsette med glattstrikk, så kan man unngå hul der ved å lage et kast om pinnen eller anvende samme teknikk man bruker når man strikker med vendepinner ("german short rows" ). Da slipper man å sy etterpå.
24.01.2023 - 12:08
Undine skrifaði:
Socken in so weichem Garn zu stricken, noch dazu mit Handwäsche (!) ist doch eigentlich nicht wirklich praktikabel? Ich hätte Reste in Drops Nord und Flora, aber die kalte Wäsche mit der Hand ist doch für Socken kaum hygienisch, oder ? Sonst stricke ich immer mit Drops Fabel, aber die Reste locken... Was schlagen Sie vor :-(
22.01.2023 - 13:06DROPS Design svaraði:
Liebe Undine, wenn Sie die Socken etwas robuster stricken möchten, benutzen Sie DROPS Fabel, so können Sie die Socken, im Schonwaschgang, in der Waschmaschine waschen. Viel Spaß beim stricken!
23.01.2023 - 09:34
Rosy Ruffles#rosyrufflessocks |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaðir sokkar með pífu úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð 35-42.
DROPS 223-47 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14-14-16 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. STROFF: Fitjið upp 180-198-216 lykkjur með 2 þráðum Nord á sokkaprjóna 2,5. Takið frá annan þráðinn, prjónið nú með 1 þræði. Prjónið nú 1 umferð þannig: * lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 90-99-108 lykkjur. Prjónið mynsturteikningu A.1 (= 10-11-12 mynstureiningar). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka eru 60-66-72 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 2½ cm. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkjuna í síðustu umferð sem var prjónuð, prjónamerkið er notað síðar til að mæla frá. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju brugðið þar til stykkið mælist 5 cm frá prjónamerki. Nú á að gera kant fyrir uppábrot þannig: Brjótið uppá byrjun á stykki að röngu á stykki, þannig að lykkjur eru teknar upp í fyrstu umferð í stroffi eftir A.1 (stykkið liggur nú uppábrotið að röngu á móti röngu og bylgjukanturinn snýr upp yfir prjónana). Prjónið 1 umferð slétt jafnframt sem hver lykkja slétt rá fyrstu umferð í stroffi er prjónuð slétt saman með næstu lykkju í umferð (þ.e.a.s. 3. hver lykkja frá fyrstu umferð í stroffi er fest við umferð sem nú er prjónuð). Snúið stykkinu, þannig að pífan komi nú utan á stykki, þetta verður núna réttan á sokknum. Prjónið 1 umferð slétt (þar sem umferðin er nú snúin getur myndast lítið gat í skiptingunni, þetta gat er saumað saman í lokin). Prjónið 1 umferð slétt og fækkið janframt um 6-8-10 lykkjur jafnt yfir = 54-58-62 lykkjur. Setjið 1 nýtt prjónamerki í stykkið mælt er frá. Prjónið áfram í sléttprjóni (þ.e.a.s. sléttar lykkjur frá þessari hlið á sokkum) þar til stykkið mælist 3 cm frá seinna prjónamerki (= prjónamerkið sem var sett í eftir að stykkinu var snúið við). HÆLL: Haldið nú eftir fyrstu 26-28-30 lykkjum á prjóni fyrir hæl og síðustu 28-30-32 lykkjurnar eru settar á þráð (= mitt ofan á fæti). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjurnar í 5-5½-6 cm. Setjið 1 nýtt prjónamerki í stykkið til að mæla lengdina á sokknum frá. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 13-14-16 lykkjur hvoru megin við hæl og þær 28-30-32 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 68-72-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 28-30-32 lykkjur á fæti. FÓTUR: Haldið áfram í sléttprjóni hringinn, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki á fæti snúnar slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á fæti slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 8-8-10 sinnum = 52-56-60 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 18-19-21 cm frá prjónamerki sem var sett í hæl (= 4-5-6 cm að loka máli). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig: Á undan prjónamerki: 2 lykkjur slétt saman. Á eftir prjónamerki: 2 lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 4-7-9 sinnum og síðan í hverri umferð 6-3-2 sinnum = 12-16-16 lykkjur eftir á prjóni. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar saman 2 og 2 = 6-8-8 lykkjur. Klippið þráðinn frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið nokkur spor ef það hefur myndast gat í stroffi þar sem stykkinu var snúið við. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rosyrufflessocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-47
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.