Karen skrifaði:
Hi, I'm crocheting size S of the cardigan and I am near the end of ALL SIZES. I am confused about the part of dividing the yoke. Should the part of skipping stitches for the sleeve with the chain stitches be on the 3rd or 4th row of A1? Thanks!
20.04.2026 - 03:08DROPS Design svaraði:
Hi Karen, The yoke is divided for the body and sleeves while working row 3 in A.1. Regards, Drops Team.
20.04.2026 - 05:52
Christine skrifaði:
Hurra, es hat geklappt und die Maschenanzahl stimmt auch ! Danke für ihre Bemühungen. Einen schönen Tag und viele Grüße !
24.03.2026 - 12:34
Christine skrifaði:
Danke ! Dann sieht das Muster also doch so aus, wie ich schon am 18.03. gefragt habe. Ich werde es ausprobieren und bin mal gespannt, ob es dann auch mit der Maschenanzahl aufgeht ! Viele Grüße !
20.03.2026 - 11:10
Christine skrifaði:
Gut, also noch einmal, z.B. bei der 3.Reihe in A.1 : 1 Stb um die Luftmasche, 1 Stb in das Stb, 1 Stb um die Luftmasche ( =1 Rapport ); 1 Stb um die Luftmasche, 1 Stb in das Stb, 1 Stb um die Luftmasche; 1 Stb um die Luftmasche, 1 Stb in das Stb, 1 Stb um die Luftmasche usw. ?
19.03.2026 - 21:18DROPS Design svaraði:
Liebe Christine, ja genau, in A.1 haben Sie jeweils 2 Stb um jede Luftmasche, wenn Sie aber A.2 häkeln sollen Sie (2 Stäbchen um die 2 Luftmasche, 1 Stb in das Stb und 2 Stäbchen um die Luftmasche) häkeln, so bei ber 1. A.2 nach einem A.1 haben Sie 3 Stb um die 2 Luftmaschen (1 von A.1 + 2 von A.2, zwischen jedem A.2 sind es 4 Stb um die 2 Luftmaschen und im letzten A.2 vor nächsten A.1 sind es 3 Stb um die 2 Luftmaschen (2 von A.2 und 1 von A.1). Viel Spaß beim Häkeln!
20.03.2026 - 07:28
Christine skrifaði:
Danke für die schnelle Antwort ! Sie haben genau das beschrieben, was aufgezeichnet ist und was ich auch verstehe. Ich wollte aber gern wissen, wie der Rapport dann in der REIHE weitergeführt werden soll. Wenn dies immer von Anfang bis Ende sein soll, würde z.B. Reihe 3 in A.1 so gehen : Stäbchen um den Luftmaschenbogen, Stäbchen in die Masche, Stäbchen um den Luftmaschenbogen, Rapport zu Ende. Neuer Rapport beginnt wieder mit Stäbchen um den Luftmaschenbogen ??
19.03.2026 - 10:23DROPS Design svaraði:
Liebe Christine, also A.1 wird dann immer über die bestimmte Maschenanzahl wiederholt, so z.B. bei der 3. Reihe (1 Stb um die Luftmasche, 1 Stb in das Stb und 1 Stb um die Luftmasche) von (bis) genauso viel mal stricken als man A.1 stricken muss; gerne können Sie Markierer zwischen jedem Rapport A.1/A.2 anbringen, so könnnen Sie immer am besten die Maschenanahl prüfen. Viel Spaß beim Häkeln!
19.03.2026 - 16:21
Christine skrifaði:
Das Muster entsteht doch durch die Weiterführung der Rapporte. Außer am Beginn der Reihe kämen dann z.B. in Reihe 3 des Diagramms in A.1 jeweils zwei und in A.2 vier Stäbchen in die Luftmaschenbögen der Vorrunde. Ist das so gemeint ? Viele Grüße !
18.03.2026 - 10:55DROPS Design svaraði:
Liebe Christine, in jedem A.1 sind es keine Zunahmen = jedes A.1 wird über 3 Maschen gehäkelt, dh bei der 3. und 4. Reihe sind es immer noch 3 Stb in jedem A.1, bei jedem A.2 wird man aber 2 Stb bei der 3. Reihe (= 5 Stäbchen in jedem A.2) und 2 Stb bei der 3. Reihe (= 6 Stäbchen in jedem A.2 wenn das Diagram fertig ist). Kann das Ihnen helfen?
18.03.2026 - 16:16
Sigrid skrifaði:
Hej! Jag behöver hjälp! Jag får inte ihop det där första mönstret, hur många hålrum ska det va före markören när man ska virka A:2 över de nästa 12 maskorna. Jag får ihop 14 maskor o ojämnt antal hålrum på vardera sida.
15.12.2025 - 16:19DROPS Design svaraði:
Hei Sigrid. Vi skal hjelpe deg så godt vi kan, men hvilken str. hekler du? mvh DROPS Design
22.12.2025 - 10:32
SOLVEIG skrifaði:
Hei, jeg skal begynne med fellingen, men når det står at jeg skal felle "6 masker totalt 2 ganger", betyr dette at jeg skal felle 6 masker etter hverandre to steder, eller 12 ganger fordelt over hele omgangen? Jeg hekler størrelse L. På forhånd takk for svar!
10.11.2025 - 00:57DROPS Design svaraði:
Hei Solveig, Du feller 6 masker jevnt fordelt på 3. rad i A.1, fortsette med diagram og neste gang to hekler 3. rad i A.1 feller du 6 masker jevnt fordelt (dette er 6 masker x 2). Deretter feller du 1 eller 0 staver neste gang du hekler 3. rad (som beskrevet for din størrelse). Hilsen Drops Team.
10.11.2025 - 06:46
Jasmin skrifaði:
Hallo, ich häkle die Jacke in Größe M und habe beim ersten Muster Probleme. Ich bin in Reihe zwei und im Text steht leider nichts dazu geschrieben, bedeutet das einfach, dass ich eine Luftmasche mit einem Stäbchen abwechseln muss? Es ist das erste Mal für mich, dass ich mit so einem Diagramm arbeite. Ich habe zudem durch Reihe eins insgesamt 218 Maschen, passt das? Vielen Dank im Voraus!
06.11.2025 - 13:55DROPS Design svaraði:
Liebe Jasmin, A.1 sowie A.2 werden jeweils über 3 Maschen gehäkelt, dh bei der 1. Reihe (für beide Diagramme): *1 Stäbhcen überspringen, (1 Stäbchen + 1 Lm + 1 Stäbchen in die nächste Masche, 1 Stäbchen überspringen*, von *bis* wiederholen (so sind es jeweils 2 unbearbeiten Stäbchen zwischen 2 Stäbchen-Gruppe; die Zunahmen entstehen nur jeweils Sie die 3. Reihe häkeln und zwar nur in A.2, A.1 bleibt immer mit 3 Maschen. Setzen Sie Markierer zwischen jedem Rapport, das kann Ihnen helfen, die Maschenanzahl zu prüfen. Viel Spaß beim Häkeln!
18.11.2025 - 11:18
Ylva skrifaði:
Hej! Storlek xl. Har före 1:a mönster 178 stolpar. Efter 3:e varv diagram har jag 278 stolpar. Ser att på 4:e varv ökas 24 stolpar, därefter 250 stolpar totalt. Ser inte vad jag gör fel, vart 52 stolpar ska bort? Bilden på virkade mönstret blir suddigt vid förstoring men det ser ut som jag också gjort. Tacksam för hjälp!
30.10.2025 - 17:36DROPS Design svaraði:
Hei Ylva. Du starter bærestykket med 153 staver, så økes det med 22 masker = 175 staver. Det settes 4 merketråder og det fortsettes å hekles etter diagram A.1 og A.2 + stolpemaskene. A.2 hekles 16 ganger og det økes det med 3 masker hver gang A.2 hekles når A.2 er heklet 1 gang i høyden = 16 ganger med A.2 = 16 x 3 masker = 48 økte masker + de 175 maskene man startet med = 223 masker, og på siste rad i diagrammet økes det i tillegg 12 masker = 223 + 12 = 235 masker når man er ferdig med 1. mønster. mvh DROPS Design
10.11.2025 - 14:47
Rocky Trails Cardigan#rockytrailscardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Fabel. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð XS - XXL.
DROPS 220-19 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls, heldur eru heklaðar sem viðbót við stuðlana í umferð. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig auka/fækka eigi lykkjum jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út/fækka á yfir (t.d. 18 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 3) = 6. Í þessu dæmi þá er lykkjum aukið út með því að hekla 2 stuðla í 6. hverja lykkju. Ef fækka á lykkjum, er í þessu dæmi hekluð 5. og 6. hver lykkja saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykkið er heklað fram og til baka, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar í hring, ofan frá og niður. Að lokum er heklaður kantur í kringum hálsmál. BERUSTYKKI: Heklið 134-143-146-155-155-158 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 3,5 með Fabel sjá HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU. Snúið og heklið fyrstu umferð þannig: Heklið 1 stuðul í 4. Loftlykkju frá heklunálinni – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja af þeim loftlykkjum sem eftir eru = 132-141-144-153-153-156 stuðlar. Setjið eitt prjónamerki innan við 5 lykkjur í annarri hlið á stykki. HÉÐAN ER STYKKIÐ MÆLT! Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 stuðul í hvern og einn af fyrstu 24-27-27-30-30-30 stuðlum, * heklið 2 stuðla í næsta stuðul, 1 stuðull í næsta stuðul *, heklið frá *-* yfir næstu 22 stuðla (= 11 lykkjur fleiri), heklið 1 stuðul í hvern og einn af næstu 40-43-46-49-49-52 stuðlum, * heklið 2 stuðla í næsta stuðul, 1 stuðul í næsta stuðul *, heklið frá *-* yfir næstu 22 stuðla (= 11 lykkjur fleiri), heklið 1 stuðul í hvern og einn af síðustu 24-27-27-30-30-30 stuðla = 144-154-163-166-175-175-178 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið – setjið prjónamerki á milli 2 lykkja þannig: Fyrsta prjónamerki: Hoppið yfir fyrstu 29-32-32-35-35-35 lykkjur, setjið 1. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og ermi). Annað prjónamerki: Hoppið yfir næstu 24 lykkjur, setjið 2. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli ermi og framstykkis). Þriðja prjónamerki: Hoppið yfir næstu 48-51-54-57-57-60 lykkjur, setjið 3. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og ermi). Fjórða prjónamerki: Hoppið yfir næstu 24 lykkjur, setjið 4. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli ermi og framstykkis). Það eru 29-32-32-35-35-35 lykkjur eftir í umferð á eftir 4. prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í stykkinu. Heklið nú 1. mynstur þannig: Heklið 1 stuðul í hvern og einn af fyrstu 5 stuðlum, * heklið * A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 12 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 3 lykkjum) *, heklið frá *-* alls 4 sinnum, heklið A.1 þar til 5 lykkjur eru eftir, 1 stuðull í hverja og eina af síðustu 5 lykkjum. Í síðustu umferð í mynsturteikningu eru auknir út að auki alls 0-12-12-12-12-24 stuðlar jafnt yfir þannig: Aukið út 0-3-3-3-3-6 stuðla jafnt yfir lykkjur á hvoru framstykki (en ekki yfir ystu 5 lykkjurnar í kanti að framan) og aukið út 0-6-6-6-6-12 stuðla jafnt yfir lykkjur á bakstykki – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 202-223-226-235-235-250 stuðlar. Heklið nú 2. mynstur þannig: Heklið 1 stuðul í hvern og einn af fyrstu 5 stuðlum, * heklið A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 12 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 3 lykkjum) *, heklið frá *-* alls 4 sinnum, heklið A.1 þar til 5 lykkjur eru eftir, 1 stuðul í hverja og eina af síðustu 5 lykkjum. Þegar mynstureiningin hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 250-271-274-283-283-298 lykkjur í umferð. Heklið nú 3. mynstur þannig: Heklið 1 stuðul í hvern og einn af fyrstu 5 stuðlum, heklið A.1 þar til eftir eru 6-6-6-6-6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12-12-12-12-12 lykkjur (= 3-4-4-4-4-4 mynstureiningar með 3 lykkjum), heklið A.1 þar til eftir eru 3-6-6-6-6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12-12-12-12-12 lykkjur (= 3-4-4-4-4-4 mynstureiningar með 3 lykkjum), heklið A.1 þar til eftir eru 3-6-6-6-6-6 lykkjur á undan Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 286-319-322-331-331-346 lykkjur í umferð. Nú er útaukning í XS og S lokið – heklið nú frá ALLAR STÆRÐIR. Í stærð M, L, XL og XXL, heldur útaukning áfram þannig: Heklið nú 4. mynstur þannig (á við um stærð M, L, XL og XXL): Heklið 1 stuðul í hverja og eina af fyrstu 5 lykkjum, heklið A.1 þar til eftir eru 6-6-6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12-12-12 lykkjur (= 3-4-4-4 mynstureiningar með 3 lykkjum), heklið A.1 þar til eftir eru 3-6-6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12-12-12 lykkjur, heklið A.1 þar til eftir eru 6-6-6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12-12-12 lykkjur (= 3-4-4-4 mynstureiningar með 3 lykkjum), heklið A.1 þar til eftir eru 3-6-6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12-12-12 lykkjur, heklið A.1 þar til 5 lykkjur eru eftir, 1 stuðul í hverja og eina af síðustu 5 lykkjum. Í síðustu umferð í mynsturteikningu eru auknir út að auki alls 0-6-6-18 stuðlar jafnt yfir þannig: Aukið út 0-3-3-9 stuðlar jafnt yfir lykkjur á hvorri ermi. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 358-385-385-412 lykkjur. Nú er útaukningu í M og L lokið – heklið áfram frá ALLAR STÆRÐIR. Í stærð XL og XXL, heldur útaukningin áfram þannig: Heklið nú 5. mynstur þannig (á við um stærð XL og XXL): Heklið 1 stuðul í hverja og eina af fyrstu 5 lykkjum, heklið A.1 þar til eftir eru 6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12 lykkjur (= 3-4 mynstureiningar með 3 lykkjum), heklið A.1 þar til eftir eru 3-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12 lykkjur, heklið A.1 þar til eftir eru 6-6 lykkjur á undan prjónamerki, helklið A.2 yfir næstu 9-12 lykkjur (= 3-4 mynstureiningar með 3 lykkjum), heklið A.1 þar til eftir eru 3-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12 lykkjur, heklið A.1 þar til 5 lykkjur eru eftir, 1 stuðul í hverja og eina af síðustu 5 lykkjum = 421-460 lykkjur. Nú er útaukningu í XL og XXL lokið – heklið áfram frá ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Eftir alla útaukningu eru 286-319-358-385-421-460 lykkjur í umferð. Haldið áfram fram og til baka með mynstur A.1 og 5 stuðla fyrir kant að framan í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 18-18-20-22-24-26 cm frá prjónamerki við hálsmál – stillið af að síðasta umferð sem er hekluð sé 2. umferð í A.1. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 stuðul í hvern og einn af fyrstu 5 stuðlum, heklið A.1 yfir næstu 39-45-48-54-60-66 lykkjur (= 13-15-16-18-20-22 mynstureiningar með A.1 = framstykki), hoppið yfir næstu 57-66-75-81-84-90 lykkjur (= 19-22-25-27-28-30 mynstureiningar A.1 = ermi), heklið 12 loftlykkjur undir ermi, heklið A.1 yfir næstu 84-87-102-105-123-138 lykkjur (= 28-29-34-35-41-46 mynstureiningar með A.1 = bakstykki), hoppið yfir næstu 57-66-75-81-84-90 lykkjur (= 19-22-25-27-28-30 mynstureiningar A.1 = ermi), heklið 12 loftlykkjur undir ermi, heklið A.1 yfir næstu 39-45-48-54-60-66 lykkjur (= 13-15-16-18-20-22 mynstureiningar A.1 = framstykki), heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 5 lykkjum. Heklið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 196-211-232-247-277-304 lykkjur. Heklið 1 stuðul í hvern og einn af fyrstu 5 stuðlum, heklið A.1 eins og áður þar til 5 stuðlar eru eftir (= 62-67-74-79-89-98 mynstureiningar með A.1), endið með 1 stuðul í hvern og einn af síðustu 5 stuðlum. Í næsta skipti sem 3. umferð í A.1 er hekluð, byrjar úrtaka – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Fækkið lykkjum jafnt yfir í hvert skipti sem 3. umferð í A.1 er hekluð þannig: Fækkið um 6 stuðla alls 3-3-3-2-2-2 sinnum og 0-0-3-0-3-3 stuðla alls 0-0-1-0-1-1 sinni = 178-193-211-235-262-289 lykkjur. A.1 er nú endurtekið 56-61-67-75-84-93 sinnum í umferð. Þegar stykkið mælist 14 cm frá þar sem ermar skiptust frá fram- og bakstykki er aukið út í 3. hverri umferð í A.1 þannig: Aukið út 15 stuðla jafnt yfir alls 0-0-1-1-0-0 sinnum, aukið út 9 stuðla jafnt yfir alls 3-3-3-2-4-3 sinnum, aukið út um 6 stuðla jafnt yfir alls 1-1-0-1-0-1 sinnum = 211-226-253-274-298-322 lykkjur. Útauknar lykkjur eru heklaðar í A.1. Mynsturteikning A.1 er endurtekin alls 67-72-81-88-96-104 sinnum á breiddina. Heklið áfram þar til stykkið mælist 34-36-36-36-36-36 cm frá skiptingu – endið eftir umferð með stuðlum. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. Klippið þráðinn frá og festið. ERMI: Ermin er nú hekluð í hring, ofan frá og niður. Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fastalykkju í 7. loftlykkju við 12 loftlykkjur sem voru heklaðar undir ermi á fram- og bakstykki, 3 loftlykkjur (= 1. stuðull), heklið 1 stuðul í hverja af 5 næstu loftlykkjum, heklið A.1 eins og áður yfir 57-66-75-81-84-90 lykkjur, endið með 1 stuðul í hverja af 6 loftlykkjum undir ermi = 69-78-87-93-96-102 lykkjur. Haldið áfram með A.1 hringinn (= 23-26-29-31-32-34 mynstureiningar með 3 lykkjum). Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um stuðla jafnt yfir í hvert skipti sem A.1 er endurtekið á hæðina – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Fækkið lykkjum í 3. umferð í A.1 þannig: Fækkið um 6 stuðla alls 0-1-3-5-6-6 sinnum og 3 stuðla alls 5-6-4-2-0-0 sinnum = 54-54-57-57-60-66 stuðlar. Mynsturteikning A.1 er endurtekið alls 18-18-19-19-20-22 sinnum á breidd. Heklið A.1 þar til stykkið mælist 39-39-38-36-35-33 cm frá skiptingu (mátið e.t.v. stykkið og heklið að óskaðri lengd). Stillið af að síðasta umferð sé 1 umferð einungis með stuðlum. Heklið síðan kant í kringum ermar þannig: Heklið 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja í fyrsta/næsta stuðul, 4 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* í kringum alla ermina og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Klippið þráðinn frá og festið. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. Saumið fyrstu töluna ca 1½-2 cm niður frá kanti í hálsmáli, síðan eru næstu 5-5-5-6-6-6 tölur festar niður með ca 9-9-9½-8½-8½-9 cm millibili. Tölum er hneppt á milli 3. og 4. stuðuls frá kanti í hægri kanti að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu og yst í kanti að framan og heklið kant í hálsmáli með Fabel og heklunál 3,5 þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju. Klippið þráðinn frá og festið. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rockytrailscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.