DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3828.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Rocky Trails

Hekluð peysa úr DROPS Fabel. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð XS - XXL.

DROPS 220-20
DROPS Design: Mynstur fa-469
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-400-400-450-500 g litur 651, sandur

HEKLFESTA:
22 stuðlar á breidd og 12 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3828.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðull.

LEIÐBEININGAR:
Stykkinu er snúið eftir hverja umferð sem er hekluð. Þ.e.a.s. önnur hver umferð er hekluð frá réttu og röngu þannig:
Fyrsta umferð er hekluð frá réttu á stykki.
Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu á stykki. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá réttu á stykki.
Haldið svona áfram fram og til baka, til skiptist með umferð frá réttu og með umferð frá röngu.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls, heldur eru heklaðar sem viðbót við stuðlana í umferð. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til að reikna út hvernig auka/fækka eigi lykkjum jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út/fækka á yfir (t.d. 18 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 3) = 6.
Í þessu dæmi þá er lykkjum aukið út með því að hekla 2 stuðla í 6. hverja lykkju.
Ef fækka á lykkjum, er í þessu dæmi hekluð 5. og 6. hver lykkja saman þannig:
* Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykkið er heklað ofan frá og niður frá miðju að aftan. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar í hring, ofan frá og niður. Að lokum er heklaður kantur í kringum hálsmál.
Allt stykkið er heklað í hring, jafnframt er stykkinu snúið í hverri umferð – sjá LEIÐBEININGAR.

BERUSTYKKI:
Heklið 123-132-135-144-144-147 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU, með heklunál 3,5 með Fabel og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð.
Heklið fyrstu umferð þannig: Heklið 3 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju = 122-131-134-143-143-146 stuðlar. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Næsta umferð er hekluð þannig:
Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 19-22-22-25-25-25 stuðlum, * heklið 2 stuðla í næsta stuðul, 1 stuðull í næsta stuðul *, heklið frá *-* yfir næstu 22 stuðla (= 11 lykkjur fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 40-43-46-49-49-52 stuðlum, * heklið 2 stuðla í næsta stuðul, 1 stuðul í næsta stuðul *, heklið frá *-* yfir næstu 22 stuðla (= 11 lykkjur fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af síðustu 19-22-22-25-25-25 stuðla = 144-153-156-165-165-168 stuðlar.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið – setjið prjónamerki á milli 2 lykkja þannig:
Fyrsta prjónamerki: Hoppið yfir fyrstu 24-27-27-30-30-30 lykkjur, setjið 1. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hálfs bakstykkis og ermi).
Annað prjónamerki: Hoppið yfir næstu 24 lykkjur, setjið 2. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli ermi og framstykkis).
Þriðja prjónamerki: Hoppið yfir næstu 48-51-54-57-57-60 lykkjur, setjið 3. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og ermi).
Fjórða prjónamerki: Hoppið yfir næstu 24 lykkjur, setjið 4. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli ermi og hálfs bakstykkis).
Það eru 24-27-27-30-30-30 lykkjur eftir í umferð á eftir 4. prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í stykkinu.

Heklið nú 1. mynstur þannig:
Heklið * A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 12 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 3 lykkjum) *, heklið frá *-* alls 4 sinnum, heklið A.1 út umferðina. Í síðustu umferð í mynsturteikningu eru auknir út að auki alls 0-12-12-12-12-24 stuðlar jafnt yfir þannig: Aukið út 0-6-6-6-6-12 lykkjur jafnt yfir á bakstykki (þ.e.a.s. 0-3-3-3-3-6 stuðlar á hálfu bakstykki í byrjun á umferð og 0-3-3-3-3-6 stuðlar á hálfu bakstykki í lok umferðar) og aukið út 0-6-6-6-6-12 stuðla jafnt yfir lykkjur á framstykki – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 192-213-216-225-225-240 stuðlar.

Heklið nú 2. mynstur þannig:
Heklið * A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 12 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 3 lykkjum) *, heklið frá *-* alls 4 sinnum, heklið A.1 út umferðina. Þegar mynstureiningin hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 240-261-264-273-273-288 lykkjur í umferð.

Heklið nú 3. mynstur þannig:
Heklið A.1 þar til eftir eru 6-6-6-6-6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12-12-12-12-12 lykkjur (= 3-4-4-4-4-4 mynstureiningar með 3 lykkjum), heklið A.1 þar til eftir eru 3-6-6-6-6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12-12-12-12-12 lykkjur, heklið A.1 þar til 6-6-6-6-6-6 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12-12-12-12-12 lykkjur (= 3-4-4-4-4-4 mynstureiningar með 3 lykkjum), heklið A.1 þar til eftir eru 3-6-6-6-6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12-12-12-12-12 lykkjur, heklið A.1 út umferðina. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 276-309-312-321-321-336 lykkjur í umferð.
Nú er útaukningu fyrir XS og S lokið – heklið áfram frá ALLAR STÆRÐIR. Í stærð M, L, XL og XXL, heldur útaukning áfram þannig:

Heklið nú 4. mynstur þannig (á við um stærð M, L, XL og XXL):
Heklið A.1 þar til eftir eru 6-6-6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12-12-12 lykkjur (= 3-4-4-4 mynstureiningar með 3 lykkjum), heklið A.1 þar til eftir eru 3-6-6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12-12-12 lykkjur, heklið A.1 þar til eftir eru 6-6-6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12-12-12 lykkjur (= 3-4-4-4 mynstureiningar með 3 lykkjum), heklið A.1 þar til eftir eru 3-6-6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12-12-12 lykkjur, heklið A.1 út umferðina.
Í síðustu umferð í mynsturteikningu eru auknir út að auki alls 0-6-6-18 stuðlar jafnt yfir þannig: Aukið út 0-3-3-9 stuðlar jafnt yfir lykkjur á hvorri ermi.
Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 348-375-375-402 lykkjur.
Nú er útaukningu í M og L lokið – heklið áfram frá ALLAR STÆRÐIR. Í stærð XL og XXL, heldur útaukning áfram þannig:

Heklið nú 5. mynstur þannig (á við um stærð XL og XXL):
Heklið A.1 þar til eftir eru 6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12 lykkjur (= 3-4 mynstureiningar með 3 lykkjum), heklið A.1 þar til eftir eru 3-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12 lykkjur, heklið A.1 þar til eftir eru 6-6 lykkjur á undan prjónamerki, helklið A.2 yfir næstu 9-12 lykkjur (= 3-4 mynstureiningar með 3 lykkjum), heklið A.1 þar til eftir eru 3-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12 lykkjur, heklið A.1 út umferðina = 411-450 lykkjur.
Nú er útaukningu í XL og XXL lokið – heklið áfram frá ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
Eftir alla útaukningu eru 276-309-348-375-411-450 lykkjur í umferð. Haldið áfram hringinn með mynstur A.1 þar til stykkið mælist 18-18-20-22-24-26 cm frá prjónamerki við háls – stillið af að síðasta umferð sem er hekluð sé 2. umferð í A.1. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Næsta umferð er hekluð þannig:
Heklið A.1 yfir fyrstu 39-45-48-54-60-66 lykkjur (= 13-15-16-18-20-22 mynstureiningar A.1 = hálft bakstykki), hoppið yfir næstu 57-66-75-81-84-90 lykkjur (= 19-22-25-27-28-30 mynstureiningar A.1 = ermi), heklið 12 loftlykkjur undir ermi, heklið A.1 yfir næstu 84-87-102-105-123-138 lykkjur (= 28-29-34-35-41-46 mynstureiningar A.1 = framstykki), hoppið yfir næstu 57-66-75-81-84-90 lykkjur (= 19-22-25-27-28-30 mynstureiningar A.1 = ermi), heklið 12 loftlykkjur undir ermi, heklið A.1 yfir næstu 39-45-48-54-60-66 lykkjur (= 13-15-16-18-20-22 mynstureiningar A.1 = hálft bakstykki).
Heklið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 186-201-222-237-267-294 lykkjur. Heklið A.1 eins og áður fram og til baka frá miðju að aftan (= 62-67-74-79-89-98 mynstureiningar með A.1).
Í næsta skipti sem 3. umferð í A.1 er hekluð, byrjar úrtaka – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Fækkið lykkjum jafnt yfir í hvert skipti sem 3. umferð í A.1 er hekluð þannig:
Fækkið um 6 stuðla alls 3-3-3-2-2-2 sinnum og 0-0-3-0-3-3 stuðla alls 0-0-1-0-1-1 sinni = 168-183-201-225-252-279 lykkjur. A.1 er nú endurtekið 56-61-67-75-84-93 sinnum í umferð. Þegar stykkið mælist 14 cm frá þar sem ermar skiptust frá fram- og bakstykki er aukið út í 3. hverri umferð í A.1 þannig: Aukið út 15 stuðla jafnt yfir alls 0-0-1-1-0-0 sinnum, aukið út 9 stuðla jafnt yfir alls 3-3-3-2-4-3 sinnum, aukið út um 6 stuðla jafnt yfir alls 1-1-0-1-0-1 sinnum = 201-216-243-264-288-312 lykkjur. Útauknar lykkjur eru heklaðar í A.1. Mynsturteikning A.1 er endurtekin alls 67-72-81-88-96-104 sinnum í umferð.
Heklið áfram þar til stykkið mælist 34-36-36-36-36-36 cm frá skiptingu – endið eftir umferð með stuðlum. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.
Klippið þráðinn frá og festið.

ERMI:
Ermin er nú hekluð í hring, ofan frá og niður. Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fastalykkju í 7. loftlykkju við 12 loftlykkjur sem voru heklaðar undir ermi á fram- og bakstykki, 3 loftlykkjur (= 1. stuðull), heklið 1 stuðul í hverja af 5 næstu loftlykkjum, heklið A.1 eins og áður yfir 57-66-75-81-84-90 lykkjur, endið með 1 stuðul í hverja og eina af 6 loftlykkjum undir ermi = 69-78-87-93-96-102 lykkjur. Haldið áfram með A.1 hringinn (= 23-26-29-31-32-34 mynstureiningar með 3 lykkjum).
Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um stuðla jafnt yfir í hvert skipti sem A.1 er endurtekið á hæðina – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Fækkið lykkjum í 3. umferð í A.1 þannig: Fækkið um 6 stuðla alls 0-1-3-5-6-6 sinnum og 3 stuðla alls 5-6-4-2-0-0 sinnum = 54-54-57-57-60-66 stuðlar.
Mynsturteikning A.1 er endurtekið alls 18-18-19-19-20-22 sinnum á breidd.
Heklið A.1 þar til stykkið mælist 39-39-38-36-35-33 cm frá skiptingu (mátið e.t.v. stykkið og heklið að óskaðri lengd). Stillið af að síðasta umferð sé 1 umferð einungis með stuðlum. Heklið síðan kant í kringum ermar þannig:
Heklið 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja í fyrsta/næsta stuðul, 4 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* í kringum alla ermina og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
Klippið þráðinn frá og festið. Heklið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu mitt að aftan og heklið kant í hálsmáli með Fabel og heklunál 3,5 þannig:
Heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju. Klippið þráðinn frá og festið.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.09.2021
Leiðrétting í 1. mynstri á berustykki

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja - Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.
symbols = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 stuðull um loftlykkju eða 1 stuðull um loftlykkjuboga
symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð, byrjið á næstu umferð
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Rocky Trails

Elina, Estonia

Rocky Trails

Jutte, Netherlands

Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Mariska wrote:

Goedemiddag, Ik ben begonnen met deze leuke trui voor mijn dochter in maat xs, ik begrijp dat ik na de pas niet hoef te meerderen (moest even opzoeken wat de pas was), maar ik kom niet uit het patroon a.1 en a.2. In de 1ste toer snap ik namelijk wel, 1 overslaan en dan 2 stokjes met een losse en 1 overslaan. Maar naar de volgende toe moet ik dan 1 overslaan of 2? Had met 1 overslaan gedaan maar dan heb ik veels te veel steken. Help, ik kom er niet uit!

06.09.2023 - 17:46

DROPS Design answered:

Dag Mariska,

Op de tweede toer haak je om en om lossen en stokjes en het stokje haak je steeds om de losse die je tussen de 2 stokjes van de vorige toer had gehaakt.

07.09.2023 - 19:46

country flag Romana Simoncelli wrote:

Ik kom niet uit met de meerderingen, ik kom telkens aan het eind van het patroon 16 meerderingen te kort. In de laatste 2 toeren van A2 zitten in totaal 32 (16+16) meerderingen. Waar of hoe maak ik die resterende 16 meerderingen? Niet door het patroon (bijv. patroon 1) te herhalen, dan heb ik aan het eind immers nog eens 32 steken gemeerderd in plaats van 16. Alvast dank!

30.06.2023 - 18:00

DROPS Design answered:

Dag Romana,

Om eerlijk te zijn snap ik niet precies wat je bedoelt met dat je 16 meerderingen te kort komt. Waar wordt aangegeven dat er 32 meerderingen zijn? Welke maat ben je aan het haken?

01.08.2023 - 19:59

country flag Addy wrote:

Ik kom bij patroon 1 op het inde van de toer uit op 21 steken. Dus 3 steken te kort. Wat doe ik verkeerd?

05.10.2022 - 16:09

DROPS Design answered:

Dag Addy,

Als ik het goed heb brei je maat S en heb je 24 steken voordat je met patroon 1 begint. Je breit in totaal . Je haakt A.2 en A.1 en dus in totaal 7 herhalingen van 3 steken. Hierdoor kom je op 24 stkeen uit.

08.10.2022 - 16:43

country flag Jennifer wrote:

Ich möchte die Anleitung gerne häkeln, verstehe aber die Anweisungen nicht so ganz. Wenn ich das 1. Muster häkeln soll, * A.1 bis noch 6 Maschen vor dem Markierungsfaden übrig sind, A.2 über die nächsten 12 Maschen (= 4 Rapporte à 3 Maschen) *, von *-* insgesamt 4 x arbeiten, A.1 bis Rundenende. Was bedeutet das? Muss ich 1. Reihe von A1 bis zum 1. Markiere arbeiten und dann 1. Reihe A2 oder den ganzen rapport von A1? Bitte um Hilfe

15.09.2022 - 21:01

DROPS Design answered:

Liebe Jennifer, jede Reihe wird zuerst in jedem Diagram gehäkelt: die 1. Reihe A.1 bis 6 Maschen vor der Markierung übrig sind, dann die 1. Reihe A.2 über die nächsten 12 Maschen häkeln, und so weiterhäkeln, dh bei der nächsten Runde häkeln Sie 2. Runde usw. Hier lesen Sie mehr über Diagramme. Viel Spaß beim häkeln!

16.09.2022 - 09:33

country flag Annemiek Van Rijn wrote:

Hallo, ik haak patroon 220 20 en ik begrijp er niet veel van. Bij patroon 1 wordt gezegd dat ik tot 6 steken voor de markeerdraad A1 moet volgen daarna A2 over 12 steken?? Is dat bij elke toer of alleen de laatste?? Dat zou betekenen dat ik bij 1 mouw elke 3e steek vermeerder!! Graag makkelijke uitleg. Groetjes Annemiek

01.09.2022 - 15:18

DROPS Design answered:

Dag Annemiek,

Je haakt inderdaad op elke toer A.2 tussen de mouwen en het pand. Op de 4e toer (ik reken de eerste toer met het sterretje niet mee) in A.2 meerder je 1 stokje. Dat betekent dus 2 stokjes per raglanlijn en 8 stokjes in totaal op de toer.

14.09.2022 - 20:54

country flag Lauranne wrote:

Bonjour, Pourriez vous juste me confirmer qu'une fois les augmentations faites on continue en rond jusqu'au emmenchures avec juste A1 et non plus A1 et A2 ? Merci

07.06.2022 - 15:10

DROPS Design answered:

Bonjour Lauranne, tout à fait, quand toutes les augmentations (faites dans les A.2 précédents) sont terminées, continuez jusqu'à la hauteur indiquée pour votre taille avec juste A.1. Bon crochet!

07.06.2022 - 16:53

country flag Gsiyag wrote:

Hello, Thank you for the pattern. I wanted to confirm if we are turning the piece after each round? So, I worked the first round (of the yoke) from the right side. Then, for the second round, I turn the piece and work from the wrong side, but this would mean that the wrong side of the treble crochets in the second round are visible on the outside (right side). Is that right? This is also creating a ridge from the second round on the right side, which is something we don't need?

07.05.2022 - 08:28

DROPS Design answered:

Dear Gsiyag, yes, the pattern is correct, you turn after each round. First is the cast-on round, with the chain stitches, after which you don't turn. You work the treble crochet round and then you start turning after each round. The increase round is worked on the wrong side. Happy crocheting!

08.05.2022 - 19:25

country flag Krentner wrote:

Bonjour, pour faire un échantillon vous dites, si vous avez trop de mailles essayez avec un crochet plus gros. Si vous n'avez pas assez de mailles pour 10 cm, essayez avec un crochet plus fin. Je l’ai fait, et je crois que c’est tout le contraire, quand on augment la taille du crochet ça fait beaucoup plus grand. Merci de vérifier vos propos. Bonne soirée.

27.01.2022 - 16:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Krentner, si vous avez trop de mailles pour 10 cm, cela veut dire que vous crochetez trop serré et que vos mailles sont trop petites, il vous faut donc essayer avec un crochet plus gros pour que vos mailles prennent "plus de place" et que vous ayez ainsi la bonne largeur. À contrario, si vous n'avez pas assez de mailles, vous crochetez trop lâche, vos mailles sont trop larges, essayez à nouveau avec un crochet plus fin pour les "rétrécir" et ainsi avoir le bon nombre pour 10 cm. Bon crochet!

27.01.2022 - 17:39

country flag Linda Manhartsberger wrote:

I don't understand the increase in the 1st and 2nd round of the diagram. A1 and A2 are the same pattern. After placing the markers I did have the required 144 stitches. After working the round for pattern 1 and was 14 stitches short of the required 192 stitches. After working Pattern 2 I have 222 stitches instead of 240. I assume I am missing increases in the 1st two rounds of the diagram.

31.12.2021 - 15:30

DROPS Design answered:

Dear Mrs Manhartsberger, on the 3rd row in A.1 you have still 3 sts but in the 3rd row in A.2 you are supposed to increased (= 2 sts around the chain, 1 st in the st, 2 sts around the chain = 2 sts increased). After A.1/A.2 are worked one time in height you have increased 3 sts 16 times = 192 sts. Then work A.1 and A.2 as explained and increase again 3 sts a total of 16 times = 240 sts. Can this help?

03.01.2022 - 10:29

country flag Jet wrote:

Moet de mouw ook bij elke toer gekeerd worden?

18.11.2021 - 16:00

DROPS Design answered:

Dag Jet,

Je vraag begrijp ik niet precies, maar je haakt het werk van boven naar beneden, waarbij je dus eerst de pas breit. Na de pas splits je het werk voor het lijf en de mouwen.

23.11.2021 - 12:35