Lena Falck skrifaði:
Hej. På bakstycket börjar man maska av för halsen efter 5cm. Sedan stickar man till 9cm,maskar av 10m, läger sedan upp 10 ny m. Men ska börja maska av för halsen efter 1 1/2 cm efter man lagt upp dom nya 10 m. Är det rätt? Då blir dom ju inte lika eller? Tacksam för hjälp. Mvh Lena Falck
19.09.2021 - 13:17DROPS Design svaraði:
Hej Lena. Jo jag tror det ska bli riktigt. Du börjar då att lägga upp nya maskor till halsringningen ca 1,5 cm efter sprundet i mitten. Sedan fortsätter du att lägga upp maskor på varven efter så att när när du lagt upp färdigt så kommer det vara ca 5 cm kvar att sticka på axeln som på den andra sidan. Hoppas du förstår vad jag menar. Mvh DROPS Design
23.09.2021 - 09:56
Enchanted Time Dress#enchantedtimedress |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónaður kjóll fyrir börn úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað frá hlið í garðaprjóni og gatamynstri. Stærð 0 – 4 ára.
DROPS Baby & Children 38-3 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. PICOTKANTUR (prjónaður fram og til baka): UMFERÐ1 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, þær eru prjónaðar þannig: 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, síðan eru 2 lykkjur prjónaðar í hverja og af 2 síðustu lykkjum = 2 nýjar lykkjur í umferð. UMFERÐ 3 (= rétta): Lyftið fyrstu lykkjunni af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, 1 lykkja slétt og lyftið öftustu lykkjunni á hægri prjóni yfir fremstu lykkjuna, fækkað hefur verið um 2 lykkjur – prjónið síðan sléttar lykkjur út umferðina. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið slétt. Endurtakið umferð 1 til 4. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig. Stykkið er prjónað frá hlið með stuttum umferðum í garðaprjóni og gatamynstri. BAKSTYKKI: Fitjið upp 68-72-80-89 (97-105) lykkjur á hringprjón 4 með litnum púðurbleikur Cotton Merino. STUTTAR UMFERÐIR: Setjið 1 prjónamerki innan við 4 fyrstu lykkjur í byrjun á umferð séð frá réttu (= prjónamerki-1). Prjónið síðan PICOTKANTUR – sjá útskýringu að ofan, yfir þessar lykkjur JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þannig: * Prjónið 46-50-56-62 (68-74) lykkjur (prjónaður er picotkantur fram að prjónamerki 1 – (picotkanturinn er frá 4 lykkjum til 6 lykkjur), setjið 1 nýtt prjónamerki (= prjónamerki-2), snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið yfir allar lykkjur, snúið stykkinu og prjónið til baka *, prjónið frá *-* (þ.e.a.s. 1 mynstureining = 4 umferðir garðaprjón yfir neðstu lykkjurnar og picotkanti og 2 umferðir garðaprjón yfir efstu lykkjurnar). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 5-5-5-6 (6-6) cm þar sem stykkið er minnst, fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu þegar prjónað er til baka yfir allar lykkjur þannig (stuttar umferðir halda áfram eins og áður): Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1 sinni = 62-66-74-83 (91-99) lykkjur. Haldið áfram með stuttar umferðir eins og áður. GATAMYNSTUR OG OP MITT AÐ AFTAN: Þegar stykkið mælist alls ca 9-9-10-11 (12-12) cm þar sem stykkið er minnst (= mitt að aftan) – stillið af að næsta umferð sé frá réttu, prjónið yfir allar lykkjur þannig: Prjónið picotkant fram að prjónamerki-1, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 12-12-12-13 (13-13) lykkjur, prjónið sléttar lykkjur út umferðina, snúið stykkinu, fellið af fyrstu 10 lykkjurnar í byrjun á umferð og prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Haldið áfram með stuttar umferðir eins og áður, en í lok umferðar sem prjóna á yfir allar lykkjur, fitjið upp 10 nýjar lykkjur = 62-66-74-83 (91-99) lykkjur. Haldið áfram með stuttar umferðir eins og áður. HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist ca 1½ cm frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp fyrir opi, fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu þar sem prjónað er yfir allar lykkjur (stuttar umferðir halda áfram eins og áður): Fitjið upp 1 lykkju 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og síðan 3 lykkjur 1 sinni = 68-72-80-89 (97-105) lykkjur. Haldið áfram með stuttar umferðir eins og áður. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 9-9-10-11 (12-12) cm þar sem stykkið er minnst, setjið 1 prjónamerki eftir 18-18-20-23 (25-27) lykkjur frá röngu – þetta prjónamerki sýnir hvar hliðarsaumurinn endar. Fellið af – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Stykkið mælist 18-18-20-22 (24-24) cm þar sem stykkið er minnst og 36-36-40-44 (48-48) cm þar sem stykkið er breiðast. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki, en ekki er lykkjum fækkað yfir opi í hálsi, þ.e.a.s. lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli eins og á bakstykki þegar stykkið mælist 5-5-5-6 (6-6) cm. Þegar stykkið mælist 9-9-10-11 (12-12) cm – stillið af að næsta umferð sé frá réttu yfir allar lykkjur, prjónið þannig: Prjónið picotkant fram að prjónamerki-1, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 2-2-2-3 (3-3) lykkjur eru eftir í umferð, prjónið sléttar lykkjur út umferðina, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist alls 11½-11½-13½-14½ (16½-16½) cm þar sem stykkið er minnst, fitjið upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli eins og á bakstykki, í lok hverrar umferðar frá réttu yfir allar lykkjur. Haldið áfram með stuttar umferðir eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist alls 18-18-20-22 (24-24) cm þar sem stykkið er minnst og 36-36-40-44 (48-48) cm þar sem það er breiðast. Setjið 1 prjónamerki eftir 18-18-20-23 (25-27) lykkjur frá röngu – þetta prjónamerki sýnir hvar hliðarsaumurinn endar. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma í ystu lykkjubogana. Saumið hliðarsauma í lykkjubogana, saumið upp að prjónamerki. KANTUR Í HANDVEGI: Heklið kant í kringum handveg með litnum natur Cotton Merino með heklunál 3,5 þannig: Byrjið mitt undir ermi, heklið 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, heklið 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja í næstu lykkju, 1 loftlykkja, hoppið fram ca 1 cm *, heklið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Passið uppá að heklaði kanturinn dragi ekki handveginn saman, heklið e.t.v. fleiri loftlykkjur á milli fastalykkja. Heklið á sama hátt í kringum hinn handveginn. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið neðst í opi og heklið í kringum hálsmál og niður meðfram annarri hlið á opi. Heklið með litnum natur Cotton Merino með heklunál 3,5 þannig: Heklið 1 keðjulykkju neðst í opi, 1 loftlykkja, * 1 fastalykkja í næstu lykkju / umferð, 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fastalykkju, hoppið fram ca 1 cm *, heklið frá *-* og endið með 1 fastalykkju neðst í opi. Saumið tölu efst í opi, tölunni er hneppt í gegnum heklaða kantinn |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #enchantedtimedress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby & Children 38-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.