Silvia skrifaði:
Ciao, sono ancora io... Le istruzioni parlano di 8 cm a coste per il collo, 1 cm a maglia rasata, poi A.1 (ossia 4 ferri). Non capisco cosa significhi (e copio) \"Continuare a maglia rasata fino a quando il lavoro misura circa 8½-9½ cm.\" Da dove si misura il \"LAVORO\"? Intendete dal segnapunti dello SPRONE?
01.02.2026 - 17:34DROPS Design svaraði:
Buonasera Silvia, le misurazioni successive si fanno dal segnapunti sul collo come indicato. Buon lavoro!
01.02.2026 - 20:22
Silvia skrifaði:
Quando in Aumento 1 dite "quando è stato lavorato il giro 3 in A.1" cosa intendete? Giro 3? Giro 1 aumento, ok. Giro 2 lavoro a dritto con aumenti lavorati a ritorto. Giro 3? Grazie!
31.01.2026 - 10:40DROPS Design svaraði:
Buonasera Silvia, il giro 3 di A.1 è quello con i gettati. Buon lavoro!
31.01.2026 - 20:35
Regula Hänggi skrifaði:
Guten Tag Ich habe eine Frage zu den Nadeln. Ich kann auf der Webseite vom Bestellshop keine Nr finden zu den Nadeln. Ist mit DROPS NADELSPIEL Nr. 6. denn durchmesser gemeint also 6 mm? Vielen Dank und liebe Grüsse Regula
18.01.2025 - 07:45DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Hängt, ja genau :) Viel Spaß beim Stricken!
20.01.2025 - 07:32
Marion Mørk skrifaði:
Når jeg har 264 m som det står i oppskriften På pinnen str xl og inndeling av 1/2 rygg ,33 m , erme 44m , forstykket. 66m. Erme 44m. Og 1/2 rygg 33m. Da blir det tilsammen 220 masker, pluss de seks to ganger som skal legges opp under ermene Hva sier dere til det? Hva er det som gjør at det ikke stemmer?
02.10.2023 - 22:28
Aili skrifaði:
Hei! Olisiko mahdollista saada kokomerkinnät myös senttimetreinä, eli esim. montako cm on koon XXL rinnanympärys.
18.11.2021 - 13:59DROPS Design svaraði:
Koot senttimetreinä löytyvät ohjeen alapuolella olevasta mittapiirroksesta. Eli koon XXL rinnanympärys on 126 cm.
07.12.2021 - 17:13
Regula skrifaði:
Hallo 1. Ich versteh nicht was mit "= 16-17 Rapporte in der Breite" gemeint ist. 2. Bedeutet A1, dass ich 2 Runden stricke, dann in der 3. Runde: 2 Maschen (M) stricken - 1M aufnehme, 4 M. stricken, dann 2 Runden stricken, das ganze total 3 Mal wiederholen? 3. In der nächsten Runde 0-2-0-2 Maschen gleichmäßig ?? verteilt zunehmen, wo genau nehme ich die 2 Maschen auf (es sind ja nur 2M)?
09.11.2021 - 17:39DROPS Design svaraði:
Liebe Regula, es bedeutet, daß A.1 insgesamt 16 Mal in S und 17 Mal in M in der Breite/Runde gestrickt wird: 16-17 x 4 M A.1 bei der 1. Reihe = 64-68 M. Bei der 3. Reihe stricken Sie wie im Diagram gezeigt insgesamt 16-17 Mal x (1 re, 1 Umschlag, 1 re, 1 Umschlag, 2 re) = so nehmen Sie 16-17 Mal 2 Maschen = 6 M in jedem A.1 x 16-17=96-102 M. Nach der letzten Runde A.1 stricken Sie 1 Runde recht und -nur - in M nehmen Sie 2 Maschen zu = 104 Maschen (und immer noch 96 in S). Viel Spaß beim stricken!
10.11.2021 - 07:29
Martina skrifaði:
Für mich ist das laut Anleitung ein "Stehkragen", nicht wie auf dem Foto, oder?
06.11.2021 - 20:15DROPS Design svaraði:
Liebe Martina, stimmt Ihre Maschenprobe? Beachten Sie, daß der Anschlagsrand nicht zu eng wird. Viel Spaß beim stricken!
08.11.2021 - 07:34
Marcsi skrifaði:
Szép napot! Mit jelent az 1RH ?
16.06.2021 - 14:47DROPS Design svaraði:
Kedves Marcsi! 1RH = 1 ráhajtás. Sikeres kézimunkázást!
17.06.2021 - 01:27
Mette Steffensen skrifaði:
Kan man bruge garnet adriafil Sierra andina til denne opskrift?
01.01.2021 - 16:22DROPS Design svaraði:
Hola Mette. Lee nuestra lección: ¿Cómo cambiar de hilos o de cantidades de hilos? <
Angela skrifaði:
Thank you and sorry, my mistake, I do not consider that the pattern continues with explanation for all sizes.
15.12.2020 - 15:34
Casual Indulgence#casualindulgencesweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 218-30 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 64-68-72-76-80-84 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Alpaca Bouclé og 1 þræði Kid-Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið áfram hringinn þar til stroffið mælist 8 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 6. Haldið áfram hringinn með sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 1 cm er prjónað mynstur og aukið út þannig: STÆRÐ S-M: FYRSTA ÚTAUKNING: Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 16-17 mynstureiningar á breidd). Þegar umferð 3 í A.1 hefur verið prjónuð til loka á hæðina, hafa verið auknar út 32-34 lykkjur = 96-102 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 0-2 lykkjur jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat) = 96-104 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með sléttprjóni þar til stykkið mælist 8½-9½ cm. ÖNNUR ÚTAUKNING: Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 24-26 mynstureiningar á breidd). Þegar umferð 3 í A.1 hefur verið prjónuð til loka á hæðina, hafa verið auknar út 48-52 lykkjur = 144-156 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er lykkjufjöldinn jafnaður út til 145-155 lykkjur. Haldið áfram fram með sléttprjóni þar til stykkið mælist 15-17 cm. ÞRIÐJA ÚTAUKNING: Prjónið A.2 yfir allar lykkjur (= 29-31 mynstureiningar á breidd). Þegar umferð 3 í A.2 hefur verið prjónuð til loka á hæðina, hafa verið auknar út 58-62 lykkjur = 203-217 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1-3 lykkjur jafnt yfir = 204-220 lykkjur. STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL FYRSTA ÚTAUKNING: Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 18-19-20-21 mynstureiningar á breidd). Þegar umferð 3 í A.1 hefur verið prjónuð til loka á hæðina, hafa verið auknar út 36-38-40-42 lykkjur = 108-114-120-126 lykkjur. Í næstu umferð er aukið út um 0-2-0-2 lykkjur jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat) = 108-116-120-128 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með sléttprjón þar til stykkið mælist 10-11-12-13 cm. ÖNNUR ÚTAUKNING: Prjónið, A.1 yfir allar lykkjur (= 27-29-30-32 mynstureiningar á breidd). Þegar umferð 3 í A.1 hefur verið prjónuð til loka á hæðina, hafa verið auknar út 54-58-60-64 lykkjur = 162-174-180-192 lykkjur. Í næstu umferð er aukið út um 2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn = 164-176-180-192 lykkjur. Haldið áfram fram með sléttprjóni þar til stykkið mælist 18-20-22-24 cm. ÞRIÐJA ÚTAUKNING: Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 41-44-45-48 mynstureiningar á breidd). Þegar umferð 3 í A.1 hefur verið prjónuð til loka á hæðina, hafa verið auknar út 82-88-90-96 lykkjur = 246-264-270-288 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 2-0-18-24 lykkjur jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn = 248-264-288-312 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón eins og áður þar til stykkið mælist 17-19-20-22-24-26 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig: Prjónið fyrstu 30-33-36-39-43-48 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 42-44-52-54-58-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 60-66-72-78-86-96 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 42-44-52-54-58-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 30-33-36-39-43-48 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 132-144-156-172-188-208 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón þar til stykkið mælist 25-25-26-26-26-26 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. ATH! SJÁ AFFELLING – það er mikilvægt að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist alls 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl. ERMI: Setjið 42-44-52-54-58-60 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 6 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48-50-58-62-66-68 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 6½-6½-3½-3-2½-2 cm millibili alls 5-5-9-10-11-12 sinnum = 38-40-40-42-44-44 lykkjur. Prjónið með sléttprjóni þar til ermin mælist 36-34-34-33-32-30 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-0-0-2-0-0 lykkjur = 40-40-40-44-44-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur - sjá AFFELLING. Ermin mælist ca 40-38-38-37-36-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #casualindulgencesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.