DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

December Moon

Prjónuð peysa með laskalínu og v-hálsmáli úr DROPS Lace og DROPS Kid-Silk eða DROPS Sky. Stærð S - XXXL.

DROPS 206-12
DROPS Design: Mynstur la-040
Garnflokkur A + A eða B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS LACE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-150-150-150-150-200 g litur 0100, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-150-150 g litur 01, natur

Eða notið:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-250-300-300-350 g litur 01, hvítur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði Lace + 1 þráð Kid-Silk (= 2 þræðir) eða 1 þráð Sky = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5: Fyrir uppfitjunarkant/rúllukant.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: Lengd 80 cm fyrir uppfitjunarkant/rúllukant.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki situr hér, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Endurtakið við hvert og eitt af prjónamerkjum sem eftir eru (= 8 lykkjur færri).

V-HÁLSMÁL:
Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli á framstykki. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir A.2 þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan A.3 þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.3, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón upp að v-hálsmáli, síðan er stykkið prjónað fram og til baka þar til berustykkið hefur verið prjónað til loka. Að lokum kantur í hálsmáli prjónaður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna /stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 184-200-220-236-260-288 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði Lace + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) eða 1 þræði Sky. Prjónið rúllukant þannig:
Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 3 umferðir slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
Nú er prjónað sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 31-31-31-31-30-30 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið fyrstu 42-46-50-54-59-64 lykkjur í umferð (= hálft bakstykki), fellið af næstu 8-8-10-10-12-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 84-92-100-108-118-128 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 8-8-10-10-12-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið 42-46-50-54-59-64 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 50-52-54-56-56-60 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með 1 þræði Lace + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) eða 1 þræði Sky. Prjónið rúllukant þannig:
Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið 3 sléttar umferðir. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 10-10-10-8-9-9 cm, aukið út 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 10-13-16-17-18-18 sinnum = 70-78-86-90-92-96 lykkjur. Þegar ermin mælist 46-45-44-43-40-39 cm, fellið af miðju 8-8-10-10-12-16 lykkjur undir ermi (= 4-4-5-5-6-8 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 62-70-76-80-80-80 lykkjur.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 292-324-352-376-396-416 lykkjur. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið á milli framstykkis, bakstykkis og erma, en prjónamerkin færast til þannig að 1-1-1-2-4-6 lykkjur í hvorri hlið á framstykki og bakstykki koma í hvorri hlið á ermum. Þ.e.a.s. það verða 82-90-98-104-110-116 lykkjur fyrir framstykki og bakstykki og 64-72-78-84-88-92 lykkjur fyrir hvora ermi. Byrjið umferð mitt að aftan og haldið áfram hringinn með sléttprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar úrtaka fyrir laskalínu og þegar stykkið mælist 6-7-8-9-11-12 cm frá þar sem ermar voru settar á sama hringprjón og fram- og bakstykki, prjónið v-hálsmál á framstykki.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 2-1-1-1-3-4 sinnum og í annarri hverri umferð 22-27-30-33-33-34 sinnum (= alls 24-28-31-34-36-38 sinnum).

V-HÁLSMÁL:
Þegar berustykkið mælist 6-7-8-9-11-12 cm, prjónið A.1 yfir miðju 8 lykkjur á framstykki – passið uppá að fyrsta umferð í A.1 sé prjónuð í umferð með úrtöku (laskalína). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið til baka að byrjun á umferð mitt að aftan. Klippið frá. Nú skiptist framstykki mitt í A.1 og prjónað er áfram fram og til baka með byrjun frá réttu, við v-háls á framstykki þannig: Prjónið A.2 yfir fyrstu 4 lykkjurnar frá skiptingu mitt á framstykki, fækkið um 1 lykkju fyrir V-HÁLSMÁL – sjá útskýringu að ofan, prjónið sléttprjón (haldið áfram með úrtöku fyrir laskalínu eins og áður) þar til 6 lykkjur eru eftir að skiptingu mitt á framstykki í gagnstæðri hlið, fækkið um 1 lykkju – munið eftir V-HÁLSMÁL, prjónið A.3 yfir síðustu 4 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka svona og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð 7-6-7-5-6-6 sinnum og í 4. hverri umferð 5-6-6-8-8-9 sinnum (= alls 12-12-13-13-14-15 lykkjur færri fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið).

Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli og laskalínu hefur verið gerð eru 76-76-78-78-80-82 lykkjur í umferð. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 3 lykkjur, prjónið næstu 2 lykkjur brugðnar saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið næstu 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri), prjónið næstu 3 lykkjur slétt = 74-74-76-76-78-80 lykkjur. Prjónið 1 umferð með sléttum lykkjum fyrir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur til baka frá röngu. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Setji eitt prjónamerki mitt aftan. Setjið síðustu 4 lykkjur í umferð á þráð og prjónið fram og til baka yfir fyrstu 4 lykkjur fyrir kant í hálsmáli, jafnframt sem kantur í hálsmáli er prjónaður saman við þær lykkjur sem eftir eru á ermi og hálsmáli á bakstykki þannig:
Prjónið frá réttu þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir fyrstu 3 lykkjur, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).
UMFERÐ 2: Snúið og prjónið brugðið yfir 4 lykkjur.
UMFERÐ 3: Prjónið slétt yfir fyrstu 3 lykkjur, prjónið næstu 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri).
UMFERÐ 4: Snúið og prjónið brugðið yfir 4 lykkjur.
UMFERÐ 5 - 8: Prjónið alveg eins og umferð 3 og 4.
Endurtakið umferð 1-8 þar til prjónað hefur verið fram að prjónamerki mitt aftan í hnakka. Fellið af 4 lykkjur frá kanti í hálsmáli.

Setjið til baka 4 lykkjur af þræði á prjón 4 og prjónið frá röngu þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið brugðið yfir fyrstu 3 lykkjur, prjónið næstu 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri).
UMFERÐ 2: Snúið og prjónið slétt yfir 4 lykkjur.
UMFERÐ 3: Prjónið brugðið yfir fyrstu 3 lykkjur, prjónið næstu 3 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri).
UMFERÐ 4: Snúið og prjónið slétt yfir 4 lykkjur.
UMFERÐ 5 - 8: Prjónið alveg eins og umferð 3 og 4.
Endurtakið umferð 1-8 þar til prjónað hefur verið fram að prjónamerki mitt aftan í hnakka. Fellið af 4 lykkjur í kanti í hálsmáli. Saumið saman affellingarkantinn á 2 köntum í hálsi mitt aftan í hnakka. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (123)

country flag Wietske wrote:

Goedenavond, ik ben bezig met de eerste helft van de halsrand, maar ik begrijp niet wat ik met de 4 eerste steken moet doen die op de hulpdraad staan.

14.04.2024 - 19:23

DROPS Design answered:

Dag Wietske,

Je breit de vier steken die op de naald staan heen en weer waarbij je de laatste steek van die 4 steeds samen breit met de steken die je op een hulpdraad hebt gezet. Na 4 keer heen en weer breien zijn de steken die op de hulpdraad stonden allemaal samengebreid.

15.04.2024 - 21:16

country flag Carola Kaandorp wrote:

De instructie voor de halsrand snapte ook ik niet. Heb de trui inmiddels mooi afgewerkt. Voegde een markeerdraad middenachter in en volgde de instructie vanaf “Brei als volgt aan de goede kant”, waarbij ik de instructie negeerde om steken op een hulpdraad te zetten.

01.04.2024 - 18:11

country flag Annarosa wrote:

Per favore, aiutatemi. Non riesco a capire come terminare il collo. Devo mettere un segnapunti a metà dietro. E poi? Cosa vuol dire mettere da parte gli ultimi 4 punti? E lavorare i primi 4? Forse è una domanda stupida, ma non sono molto esperta e non riesco a finire. Grazie per l'aiuto

26.03.2024 - 23:20

DROPS Design answered:

Buonasera Annarosa, deve mettere in sospeso le ultime 4 maglie su un fermamaglie o un filo di scarto, e deve lavorare sulle prime 4. Buon lavoro!

28.03.2024 - 19:13

country flag Journeau wrote:

Bonjour j’aimerais faire ce modèle en lace et kid Silk mais je vois que la lace n’est plus dispo. Par quoi peut elle être remplacée?

11.02.2024 - 16:17

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Journeau, utilisez notre convertisseur pour voir les alternatives possibles et les quantités correspondantes; n'oubliez pas de bien faire votre échantillon au préalable. Bon tricot!

12.02.2024 - 08:51

country flag Journeau wrote:

Bonjour j’aimera faire ce modèle en laine drops lace et kid Silk mais je vois que la lace n’est plus disponible. Par quoi peut on la remplacer? Merci pour votre réponse Anne Journeau

11.02.2024 - 16:16

country flag Piia wrote:

Mikä on puseron ympärysmitta koossa XL ja XXL? Ohjeessa on vain silmukka määrä. Noin mitta käy.

31.01.2024 - 15:36

DROPS Design answered:

Mitat löytyvät ohjeen alapuolella olevasta mittapiirroksesta. Koon XL ympärys on 112 cm ja koon XXL ympärys on 124 cm.

08.02.2024 - 18:07

country flag Annette wrote:

Ich komme beim V Ausschnitt nicht weiter.Es wird in Hin- und Rückreihen gestrickt,also wird die Arbeit geteilt.Dann habe ich aber am Rückenteil einen riesen Schlitz.

15.01.2024 - 15:57

DROPS Design answered:

Liebe Annette, die Passe wird zuerst in Runden gestrickt, aber dann nach 6 bis 12 cm (siehe Grösse) wird man für den V-Ausschnitt auch abnehmen, d.h. Am ende der letzten Runde schneiden Sie den Faden (die Reihen werden nicht mehr in der Mitte vom Rückenteil anfangen) und jetzt beginnen Sie in Hin- und rückreihen in der Mitte vorne mit den letzten Maschen A.1 stricken Sie die 4 Maschen A.2, dann stricken Sie die ganze Hin-Reihe mit Abnahmen wie zuvor, und enden die Reihe mit A.3. So stricken Sie weiter, mit Raglan- und V-Halsausschnitt- Abnahmen. Viel Spaß beim stricken!

15.01.2024 - 16:33

country flag Anna wrote:

Hallo, Bin bei der Passe und möchte die Raglanabnahme starten...verstehe in jeder 2 ten Reihe 1x und jede 4 Reihe 33x nicht so ganz.

14.12.2023 - 20:26

DROPS Design answered:

Liebe Anna, für die Raglanabnahmen, nehmen Sie zuerst in jeder 4. Runde ab (= *1 Runde mit Abnahmen, 3 Runden ohne Abnahmen* so oft wie für die Größe beschrieben; dann nehmen Sie in jeder 2. Runde (und später in jeder 2. Reihe = in jeder Hinreihe) ab (= *1 Runde mit Abnahmen, 1 Runde ohne Abnahmen) x 33 Mal. Viel Spaß beim stricken!

15.12.2023 - 08:22

country flag Wiviann Björklund wrote:

När jag skriver ut mönstret klipps 1 cm på vänster sida av pga av marginalen på papperet. layouten måste ändras tack

31.10.2023 - 10:55

DROPS Design answered:

Hej Wiviann, vi skall se på det - tack för info :)

31.10.2023 - 11:40

country flag Dorthe Koch wrote:

Jeg har virkelig kigget grundigt på de foreslåede omregnere. Men kan ikke finde ud af det Jeg har brug for hjælp til hvor meget Drops Alpaca jeg skal bruge i stedet for Lace. Der er ingen data om Lace da den er udgået. Håber du vil hjælpe mig. Mvh Dorthe

06.10.2023 - 11:10

DROPS Design answered:

Hei Dorthe. Du klikker på: Brug vores garn-omregner her. I første rubrikk fyller du inn det garnet du vil erstatte: Lace. Deretter skriver du inn antall gram du ser er brukt i oppskriften, 150 gram i str M. Deretter velger du 1 tråd, siden det er brukt 1 tråd av DROPS Lace i oppsrkiften. Du vil da få opp 6 garnalternativer. 360g DROPS Alpaca (1 tråd), 286g DROPS Flora (1 tråd), 343g DROPS Baby Merino (1 tråd), 353g DROPS Nord (1 tråd), 293g DROPS Fabel (1 tråd), eller 143g DROPS Kid-Silk (1 tråd). Altså, du kan erstatte 150 gram Lace med 360 gram DROPS Alpaca. Men husk strikkefastheten. mvh DROPS Design

16.10.2023 - 13:22