Marianne De Jonge wrote:
Bij Raglan staat, minder iedere andere naald. Betekent dit iedere naald aan de goede kant?
12.11.2023 - 09:37DROPS Design answered:
Dag Marianne,
Dit betekent de ene naald wel en de andere naald niet, dus in dit geval inderdaad aan de goede kant en aan de verkeerde kant niet.
12.11.2023 - 17:31Cristina Bernini wrote:
Buongiorno, non capisco la corrispondenza tra le misure a le maglie avviate: (CORPO) Se avvio 193 maglie (corrispondenti ad una S), essendo il campione 21 maglie = 10cm , ottengo una misura di 193/21 x10 cm cioè 92 cm mentre la misura sul modello è di 44cm davanti e 44 dietro quindi 88 cm. Sempre nel corpo la spiegazione dice di fare delle diminuzioni ; devo farle solo sulla maglia di diritto o anche sul rovescio? e dove? al centro o sui bordi? Grazie, saluti
29.05.2023 - 10:57DROPS Design answered:
Buongiorno Cristina, deve considerare il bordino da sormontate, nella circonferenza finale. Per le diminuzioni, sul corpo viene diminuita una sola maglia per una sola volta. Buon lavoro!
30.05.2023 - 08:57Helena wrote:
Chtěla bych Vás moc poprosit, zda by bylo možné publikovat tento návod a variantu bez knoflíků v českém jazyce. Jako začátečnici by mi to velmi pomohlo. Děkuji.
19.01.2023 - 15:16DROPS Design answered:
Dobrý den, Heleno, díky za zprávu - oba návody přidáme v čj během několika dnů - sledujte, prosím, naše stránky. Hezký večer! Hana
22.01.2023 - 19:43Tina wrote:
Jeg har brug for hjælp til at kunne forstå beskrivelsen af halskanten på jakken. Sæt en mærketråd midt bag på halskanten. Sæt de sidste 4 masker fra pinden på en tråd, og strik frem og tilbage over de første 4 masker til halskant, samtidig med at halskanten strikkes sammen med de resterende masker på ærmet og halsudskæringen på bagstykket således osv... Med venlig hilsen Tina
27.09.2022 - 09:30DROPS Design answered:
Hej Tina, du strikker de 4 masker fra halskanten i den ene side færdig om til mærket i nakken, samtidig som du strikker dem sammen med halsudskæringen (både maskerne over ærmerne og bag i nakken) følg forklaringen til HALSKANT :)
27.09.2022 - 10:51Martine Frijters wrote:
In het patroon staat eerst 12 cm de pas te breien vóór te beginnen met de V-hals. Klopt dit? Ik zie dit niet terug op de tekening
27.06.2021 - 16:35DROPS Design answered:
Dag Martine,
Ja, dit klopt, de V-hals begint zeg maar een stukje boven de oksel.
28.06.2021 - 12:11Lone Jensen wrote:
Tak for svar....men hvor, hvorfor og hvordan skal der også tages ind!?
05.05.2021 - 17:39DROPS Design answered:
Hej Lone, Du starter ved: START ARBEJDET HER: Når du følger opskriften, beskriver vi nøje skridt for skridt. Her kan du se: Hvordan følger man en opskrift og nederst i opskriften har vi instruktionsvideoer på hvordan man tager ind osv...
06.05.2021 - 11:10Lone Jensen wrote:
Hvordan skal Diagram A og diagram B forstås???
05.05.2021 - 12:27DROPS Design answered:
Hej Lone, Når du skal strikke A.1 fra retsiden, som der står i opskriften, så strikker du 3 ret og 1 vrang. Det vil sige at den 4. maske ind fra hver side mod midt foran altid skal være vrang (set fra retsiden). God fornøjelse!
05.05.2021 - 15:36Lone Jensen wrote:
Hvordan skal diagram A og B forstås?
05.05.2021 - 12:25Claudia wrote:
Ich verstehe das Abnehmen beim Rumpfteil nicht. Muss ich einmalig 1 Maschen abnehmen? Oder nehme ich dann laufend in jeder Reihe 1 Maschen ab? Warum man das man überhaupt abnehmen beim Rumpfteil?
22.04.2021 - 20:29DROPS Design answered:
Liebe Claudia, bei der 1. Reihe A.1 und A.2 sollen Sie 1 Masche zwischen den beiden Diagrammen abnehmen. Diese Abnahme wird nicht wiederholt; dh Sie stricken dann glatt rechts mit A.1 und A.2 über die 192-208-228-244-268-296 Maschen. Viel Spaß beim stricken!
23.04.2021 - 07:59
December Moon Jacket |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa með laskalínu og v-hálsmáli úr DROPS Lace og DROPS Kid-Silk eða DROPS Sky. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-34 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LASKALÍNA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki situr hér, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Endurtakið við hvert og eitt af prjónamerkjum sem eftir eru (= 8 lykkjur færri). V-HÁLSMÁL: Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli á framstykki. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir A.1 þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á undan A.2 þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.2, prjónið 2 lykkjur slétt saman. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 3, 11, 20, 28 og 37 cm M: 2, 11, 20, 29 og 38 cm L: 3, 12, 21, 30 og 39 cm XL: 2, 11, 21, 30 og 40 cm XXL: 3, 12, 22, 31 og 41 cm XXXL: 2, 12, 22, 32 og 42 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Fyrst er fram- og bakstykki prjónað. Síðan eru ermarnar prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Síðan eru ermarnar settar á sama hringprjón og fram- og bakstykki áður en berustykkið er prjónað. Að lokum er kantur í hálsi prjónaður. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 193-209-229-245-269-297 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði Lace + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) eða 1 þræði Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið rúllukant þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið allar lykkjur brugðið. UMFERÐ 3: Prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 4: Prjónið 3 lykkjur brugðið, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið * þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið. Prjónið nú frá réttu þannig: A.1 (= 4 lykkjur), sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir, jafnframt því sem fækkað er um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman A.2 yfir síðustu 4 lykkjurnar = 192-208-228-244-268-296 lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 31-31-31-31-30-30 cm, fellið af fyrir handveg í næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 46-50-54-58-63-68 lykkjur í umferð (= vinstra framstykki), fellið af næstu 8-8-10-10-12-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 84-92-100-108-118-128 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 8-8-10-10-12-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið 46-50-54-58-63-68 lykkjur sem eftir eru (= hægra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 50-52-54-56-56-60 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með 1 þræði Lace + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) eða 1 þræði Sky. Prjónið rúllukant þannig: Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið 3 sléttar umferðir. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 10-10-10-8-9-9 cm, aukið út 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 10-13-16-17-18-18 sinnum = 70-78-86-90-92-96 lykkjur. Þegar ermin mælist 46-45-44-43-40-39 cm, fellið af miðju 8-8-10-10-12-16 lykkjur undir ermi (= 4-4-5-5-6-8 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 62-70-76-80-80-80 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 300-332-360-384-404-424 lykkjur. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið á milli framstykkis, bakstykkis og erma, en prjónamerkin færast til þannig að 1-1-1-2-4-6 lykkjur í hvorri hlið á fram-/bakstykki koma í hvorri hlið á ermum. Þ.e.a.s. það verða 82-90-98-104-110-116 lykkjur fyrir bakstykki, 45-49-53-56-59-62 lykkjur á hvoru framstykki og 64-72-78-84-88-92 lykkjur fyrir hvorri ermi. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og A.1 og A.2 í hvorri hlið eins og áður. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir laskalínu og þegar stykkið mælist 7-8-9-10-12-13 cm frá þar sem ermar voru settar á sama hringprjón og fram- og bakstykki, prjónið v-hálsmál á framstykki. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNU – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 2-1-1-1-3-4 sinnum og í annarri hverri umferð 22-27-30-33-33-34 sinnum (= alls 24-28-31-34-36-38 sinnum). V-HÁLSMÁL: Þegar berustykkið mælist 7-8-9-10-12-13 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli á framstykkjum með byrjun frá réttu þannig: Prjónið A.1 eins og áður yfir fyrstu 4 lykkjurnar, fækkið um 1 lykkju fyrir V-HÁLSMÁL – sjá útskýringu að ofan, prjónið sléttprjón (haldið áfram með úrtöku fyrir laskalínu eins og áður) þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, fækkið um 1 lykkju – munið eftir V-HÁLSMÁL, prjónið A.2 yfir síðustu 4 lykkjurnar. Haldið áfram fram og til baka svona og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð 15-14-15-13-14-14 sinnum og í 4. hverri umferð 1-2-2-4-4-5 sinnum (= alls 16-16-17-17-18-19 lykkjur færri fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið). Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli og laskalínu hefur verið gerð eru 76-76-78-78-80-82 lykkjur í umferð. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 3 lykkjur, prjónið næstu 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið næstu 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri), prjónið næstu 3 lykkjur slétt = 74-74-76-76-78-80 lykkjur. Prjónið 1 umferð með sléttum lykkjum fyrir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur til baka frá röngu. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Setji eitt prjónamerki mitt aftan í kanti í hálsmáli. Setjið síðustu 4 lykkjur í umferð á þráð og prjónið fram og til baka yfir fyrstu 4 lykkjur fyrir kant í hálsi, jafnframt sem kantur í hálsi er prjónaður saman við þær lykkjur sem eftir eru á ermi og hálsmáli á bakstykki þannig: Prjónið frá réttu þannig: UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir fyrstu 3 lykkjur, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). UMFERÐ 2: Snúið og prjónið brugðið yfir 4 lykkjur. UMFERÐ 3: Prjónið slétt yfir fyrstu 3 lykkjur, prjónið næstu 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). UMFERÐ 4: Snúið og prjónið brugðið yfir 4 lykkjur. UMFERÐ 5 - 8: Prjónið alveg eins og umferð 3 og 4. Endurtakið umferð 1-8 þar til prjónað hefur verið fram að prjónamerki mitt aftan í hnakka. Fellið af 4 lykkjur frá kanti í hálsmáli. Setjið til baka 4 lykkjur af þræði á prjón 4 og prjónið frá röngu þannig: UMFERÐ 1: Prjónið brugðið yfir fyrstu 3 lykkjur, prjónið næstu 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri). UMFERÐ 2: Snúið og prjónið slétt yfir 4 lykkjur. UMFERÐ 3: Prjónið brugðið yfir fyrstu 3 lykkjur, prjónið næstu 3 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri). UMFERÐ 4: Snúið og prjónið slétt yfir 4 lykkjur. UMFERÐ 5 - 8: Prjónið alveg eins og umferð 3 og 4. Endurtakið umferð 1-8 þar til prjónað hefur verið fram að prjónamerki mitt aftan í hnakka. Fellið af 4 lykkjur í kanti í hálsmáli. Saumið saman affellingarkantinn á 2 köntum í hálsmáli mitt aftan í hnakka. Klippið frá og festið enda. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Tove Søndergaard Bak wrote:
XXXX
20.02.2023 - 09:05