DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Holding Hearts

Prjónuð peysa úr DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með köðlum, kúlum og laskalínu. Stærð S - XXXL.

DROPS 206-29
DROPS Design: Mynstur mb-057
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-600-650-750-800-900 g litur 19, beige

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
Allt A.2 mælist ca 24 cm á breidd.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón/mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------<br />
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 78 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 10 = 7,8.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 7. og 8. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma, þ.e.a.s. í útauknings umferð er fækkað um alls 8 lykkjur.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= 1 lykkja færri).

LEIÐBEININGAR:
Endurtakið A.2B eins langt og hægt er upp að hálsmáli að framan. Hluti af mynstrinu minnkar og hverfur í hvorri hlið þegar lykkjum er fækkað í laskalínu. Til þess að fá fallegan endi á A.2B mitt að framan endar miðju kaðallinn með kúlum (þ.e.a.s. miðju 16 lykkjur) eftir heila mynstureiningu á hæðina (mínus síðustu umferð í mynsturteikningu) þegar ekki er lengur pláss fyrir nýja mynstureiningu á hæðina áður en úrtöku fyrir laskalínu er lokið. Síðan er prjónað brugðið yfir miðju 16 lykkjur í mynstureiningu til loka.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Síðan eru ermarnar prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Að lokum eru fram- og bakstykki og ermar sett saman og berustykkið er prjónað til loka í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 162-178-198-218-234-258 lykkjur á hringprjón 4,5 með Big Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og eitt prjónamerki eftir 78-86-98-110-118-134 lykkjur til að merkja bakstykki (= 84-92-100-108-116-124 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki – ATH: Það er mismunandi fjöldi lykkja á fram- og bakstykki vegna mynsturs). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 92-104-120-136-148-168 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt (nú hafa 16-20-24-28-32-36 lykkjur verið prjónaðar fram hjá prjónamerki í hlið), prjónið A.1A (= 52 lykkjur), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir 16-20-24-28-32-36 lykkjur sem eftir eru í umferð.
Haldið svona áfram með stroff þar til A.1A er lokið. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 78-86-98-110-118-134 lykkjurnar (þ.e.a.s. lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki) og fækkið jafnframt um 10-12-18-22-20-26 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 16-20-24-28-32-36 lykkjur og fækkið jafnframt 1-2-3-3-2-1 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.1B (= 52 lykkjur) og prjónið sléttar lykkjur yfir 16-20-24-28-32-36 lykkjur sem eftir eru jafnframt er fækkað um 1-2-3-3-2-1 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 150-162-174-190-210-230 lykkjur í umferð, þ.e.a.s. 68-74-80-88-98-108 lykkjur á bakstykki og 82-88-94-102-112-122 lykkjur á framstykki.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur á bakstykki (þ.e.a.s. fram að prjónamerki í hlið), prjónið 15-18-21-25-30-35 lykkjur sléttprjón eftir prjónamerki, prjónið A.2A (= 52 lykkjur) og endið með 15-18-21-25-30-35 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.2A hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2B yfir A.2A, þær lykkjur sem eftir eru halda áfram í sléttprjóni eins og áður, A.2B er síðan endurtekið á hæðina. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm í öllum stærðum er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 8 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 162-174-186-202-222-242 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 29 cm í öllum stærðum. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg, prjónið sléttprjón eins og áður yfir næstu 68-74-78-86-94-104 lykkjur (þ.e.a.s. nú eru eftir 3-3-4-4-5-5 lykkjur á undan prjónamerki í hlið), fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handveg, prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður yfir næstu 82-88-92-100-108-118 lykkjurnar og fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar eins og útskýrt er að neðan.

ERMI:
Fitjið upp 36-36-40-40-44-48 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Big Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-3-4-4-4 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 40-40-43-44-48-52 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar auka á út undir ermi.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 10-8-7-7-9-9 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6 -4-3½-2½-2½-2½ cm millibili alls 6-9-10-12-11-11 sinnum = 52-58-63-68-70-74 lykkjur. Prjónið áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 44-42-41-39-37-36 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg, prjónið 46-52-55-60-60-64 lykkjur slétt og fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur sem eftir eru fyrir handveg.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón 5,5 og fram- og bakstykki þar sem lykkjur eru felldar af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjur) = 242-266-280-306-322-350 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau þegar lykkjum er fækkað fyrir laskalínu.
Byrjið við prjónamerki í lok bakstykkis fyrir vinstri ermi (þegar flíkin er mátuð).
Haldið áfram hringinn eins og áður með sléttprjón og A.2B að framan (passið uppá að A.2B haldi áfram í réttri umferð miðað við þar sem það endaði á undan skiptingu fyrir ermum).
Þegar prjónaðar hafa verið 4-2-4-4-6-4 umferðir er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA í næstu umferð – sjá útskýringu að ofan = 8 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 16-19-20-22-23-26 sinnum. Sjá LEIÐBEININGAR! Eftir síðustu úrtöku fyrir laskalínu eru 114-114-120-130-138-142 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-14-15-15-13-12 lykkjur jafnt yfir lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki = 100-100-105-115-125-130 lykkjur eftir í umferð. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4,5 og prjónið kant í hálsi eins og útskýrt er að neðan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið), en passið uppá að það koma 2 lykkjur slétt nákvæmlega mitt að framan. Þegar stroffið mælist ca 1½ cm er lykkjum fækkað í annarri hverri einingu með 3 lykkjum brugðið til 2 lykkjur brugðið (fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman) = 90-90-95-104-113-117 lykkjur. Þegar stroffið mælist ca 3 cm er þeim 3 lykkjum brugðið sem eftir eru fækkað til 2 lykkjur brugðið = 80-80-84-92-100-104 lykkjur. Haldið áfram með stroff hringinn með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til kantur í hálsmáli mælist ca 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (ef affellingarkanturinn verður stífur er hægt að fella af með grófari prjónum).

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = aukið út 1 lykkju með því að prjóna 1 lykkju slétt framan í og aftan í sömu lykkju
symbols = Kúla: Aukið út um 3 lykkjur með því að prjóna 1 lykkju slétt framan í og aftan í sömu lykkju þar til 4 lykkjur eru á prjóni, prjónið 4 umferð sléttprjón fram og til baka yfir þessar 4 lykkjur. Fellið síðan af frá réttu þannig: Lyftið annarri lykkjunni á hægra prjóni yfir fyrstu lykkjuna, lyftið þriðju lykkjunni yfir fyrstu lykkjuna og lyftið að lokum fjórðu lykkjunni yfir fyrstu lykkjuna (= 1 lykkja eftir)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð

symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Marie-Claude Gignac wrote:

Rabattre les mailles pour l'emmanchure. Début rang 3 mailles, et 3 mailles à la fin. Le fil reste au milieu ??? Idem pour les manches ? Merci de préciser si je coupe le fil ? Dois je prendre un nouveau fil une fois que le dos et devant ainsi que les manches sont sur le même câble ?

16.02.2024 - 03:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gignac, à la fin du dos /devant, coupez le fil à la fin du dernier tour, après avoir rabattu les 3 dernières mailles; de même pour la manche: rabattez les 3 premières mailles, tricotez jusqu'à ce qu'il reste 3 mailles et rabattez les 3 dernières mailles. Placez ensuite les mailles des manches au-dessus des mailles rabattues pour les emmanchures - cf vidéo et tricotez l'empiècement en rond. Bon tricot!

19.02.2024 - 15:53

country flag Agnieszka Janicka wrote:

Dzien dobry, prosze mi powiedziec jak mam zakonczyc oczko po zamknieciu podkroju pachy, zrobilam jak w opisie, czyli zamknelam 3 oczka, przerobilam 68, zamknelam 6 i przerobilam przod i zamknelam kolejne 3 oczka i na srodku podkroju zostalo mi oczko jak je zamknac, czy co z nim zrobic, z gory dziekuje za pomoc

26.02.2022 - 14:18

DROPS Design answered:

Witaj Agnieszko, odetnij nitkę i przeciągnij ją przez to oczko. Pozdrawiamy!

27.02.2022 - 09:09

country flag Nora wrote:

Como disminuir en orilla de escote a los 1.5 cm y a los 3cm primero en la parte delantera y luego en la espalda?

13.07.2021 - 21:17

DROPS Design answered:

Hola Nora, cuando el resorte mida 1½ cm, disminuir 1 punto cada segunda sección de 3 puntos reveses (disminuir 1 punto tejiendo 2 puntos juntos de revés). Cuando el resorte mida 3 cm, disminuir 1 punto en todos los secciones de 3 puntos reveses (disminuir 1 punto tejiendo 2 puntos juntos de revés). Buen trabajo!

14.07.2021 - 13:43

country flag Agnes DIRICQ wrote:

Y a-t-il une erreur ? en taille M, au début du tricot, si l'on fait *2m end, 2 m env* et répété sur les 104 mailles suivantes, 2m end, A1 (52 m), *2m end, 2m env* répété au dessus des 20 restantes = total de 182 m et non 178. Et aussi 20 mailles après le 2e marqueur -> 96 mailles et non 110. Merci d'avance de votre réponse

27.12.2020 - 22:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Diricq, vous tricotez: 104 m en côtes 2 m end/2 m env puis 2 m end, puis les 52 m de A.1 et vous terminez par 20 m en côtes 2/2, autrement dit vous avez: 104+2+52+20=178 mailles. Bon tricot!

04.01.2021 - 09:56

country flag Susana wrote:

Hola! No veo qué medidas se consideran para cada talla en las prendas y me sería de mucha utilidad (quizás no lo se encontrar yo). También además de verla en la modelo sería bueno saber las medidas porque ellas suelen ser altas y delgadas y con frecuencia lo que a les llega a la cadera a nosotras nos resulta bastante más largo o la proporción de los dibujos varía mucho. Muchas gracias.

31.12.2019 - 09:48

DROPS Design answered:

Hola Susana. Para elegir la talla correcta tienes que mirar las medidas que están en el diagrama bajo cada patrón. Siempre viene el largo de la prenda, las medidas del pecho, las medidas de las sisas etc. Si tienes dudas entre dos tallas , siempre recomendamos elegir la talla más grande.

09.02.2020 - 19:44

country flag Anna wrote:

Dzień dobry, w opisie jest "po zakończeniu zamykania oczek na reglan zostaje 114-114-120-130-138-142 oczka. Przerobić 1 okrążenie na prawo, równomiernie zamykając 14-14-15-15-13-12 oczek ponad oczkami przodu między markerami = zostaje 100-100-105-115-125-130 oczek" . Czy te 14 oczek zamykam tylko ponad 46 oczkami przodu ( w rozmiarze S) czy ponad całością (114 oczkami)?

07.12.2019 - 10:46

DROPS Design answered:

Witaj Anno! Zamykasz te oczka tylko ponad oczkami przodu. Pozdrawiamy serdecznie!

07.12.2019 - 23:10

country flag Lidia wrote:

W opisie przy karczku, piszecie, ze po 4 (rozmiar L) okrążeniu zamykamy 8 oczek i później mam zamykać po 8 oczek 20 razy co dwa okrążenia. Czy to znaczy, że 1 rząd przerabiam bez zamykania a w kolejnym zamykam 8 oczek i znów 1 bez zamykania i 1 z zamykaniem, czyli po 40 rzędach uzyskuję pożądaną liczbę oczek? Czy też może w jednym rzędzie zamykam oczka, potem przerabiam dwa rzędy bez zamykania i w kolejnym znów zamykam 8 oczek?

23.11.2019 - 13:47

DROPS Design answered:

Witaj Lidio! W okrążeniu 1 zamykasz 8 oczek, w okrążeniu 2 nie zamykasz oczek, w okrążeniu 3 zamykasz 8 oczek, w okrążeniu 4 nie zamykasz oczek, itd. Po 40 okrążeniach uzyskasz pożądaną liczbę oczek. Powodzenia!

24.11.2019 - 23:22

country flag Ellen Groot wrote:

Wanneer komt dit patroon online? Ik wil zo graag starten maar het duurt zoooo lang.

23.10.2019 - 17:41

DROPS Design answered:

Dag Ellen,

De verwachting is dat hij deze maand online komt, maar ik kan dat niet met 100% zekerheid toezeggen.

23.10.2019 - 20:16

country flag Jeanette wrote:

Very nice patten, I can’t wait to start with it! Nice elegant model!

22.10.2019 - 10:55

country flag Ellen wrote:

Why is it taking so long to post the instructions? I really want to start this one...

18.10.2019 - 12:48