France wrote:
Raglan: une fois le premier tour complété, si les grilles A.B comptent 20 rangs,comment arriver à 328 mailles? Pour les 17 mailles (2 tours= 17 x 20)et 5 mailles(4 tours=5 x 4), j'arrive à 358 mailles. Merci de m'indiquer où est mon erreur.
08.02.2024 - 18:44DROPS Design answered:
Bonjour France, vous répétez les diagrammes B en hauteur tout du long, et en même temps, augmentez pour le raglan de chaque côté de chacun des A.1B/A.2B (8 augmentations par tour): 17 x 8 m + 5 x 8 m autrement dit, vous aurez 152 mailles (après le 1er tour de A.1A/A.2A) + 17x8 + 5x8 = 328 mailles. Bon tricot!
09.02.2024 - 07:44Sasha wrote:
Hello! I need help with this. I don't understand this part. 'On next round decrease 24 stitches. This is done to decrease the stitches added as compensation to make the cables contract the work in the raglan lines. Distribute the decrease so that 6 stitches are decreased in A.1B and A.2B (it is best to decrease by knitting the stitches over the cable together 2 by 2)' How do i decrease them? Is it the 8 stitches of the cable part need to be decreased? But how?
25.08.2023 - 20:36DROPS Design answered:
Dear Sasha, knit together the stitches from the cable 2 by 2. So, work the first 2 stitches in the cable together, the next 2 stitches also together, e.t.c. Happy knitting!
28.08.2023 - 00:17Judy wrote:
I haven't started yet but would I get myself in trouble if I were to begin mid-back, with 11 of the 22 sts for the small size , instead of with the cable panel ? Thx
24.05.2023 - 00:54DROPS Design answered:
Dear Judy, I guess you can, but just remember that the explanation of the rounds always start with the raglan stitches, so just remember to adapt on your own work. Happy knitting!
24.05.2023 - 08:28Marie Louise wrote:
Bonjour j avais mis mon tricot de côté, et maintenant je me remet à la tâche ma question est: est-ce que le diagramme fait partie de la manche qu on met à attente ou bien les diagrammes seulement pour le corsage dos et devant. Merci
19.05.2023 - 17:01DROPS Design answered:
Bonjour Marie-Louise, les tours commencent par le diagramme A.2B, et, lors de la division, vous allez conserver les 8-9-9-8-6-5 premières mailles du tour (= de A.2B) pour la manche droite et montez les mailles sous la manche, le reste des mailles de A.2B appartient au dos. Bon tricot!
22.05.2023 - 08:12Marie wrote:
Is there any way I can knit this jumper bottom up plz?
04.02.2023 - 00:19DROPS Design answered:
Dear Marie, we don't make custom patterns. You can start reading from the end of the body and work increases instead of decreases in the yoke. Also, the sleeves are joined as you start the yoke and both body and sleeves are worked together to finish the yoke. Happy knitting!
06.02.2023 - 00:00Emanuela Pierantognetti wrote:
Buongiorno per favore dove si inserisce la correzione dello sprone? Grazie
11.01.2023 - 12:22DROPS Design answered:
Buonasera Emanuela, le spiegazioni sono già corrette. Buon lavoro!
12.01.2023 - 21:17Marie Louise wrote:
Si j ai bien compris l info, se sont les 9 premières mailles après le premier diagramme de A.1b que je dois placer en attente, est-ce exact? Merci infiniment de votre aide
10.11.2022 - 15:08DROPS Design answered:
Bonjour Marie-Louise, ce sont les 9 premières mailles du tour, donc ce sont les 9 premières mailles de A.1B au début du tour que vous allez mettre en attente (pas les 9 mailles après le 1er A.1B). Bon tricot!
10.11.2022 - 17:04Marie Louise wrote:
Tout défait pour mieux recommencer, je ne comprends pas trop de passer les 9 premières mailles sur aiguille aux pour la manche à partir du marqeur dos Merci pour l entraide
09.11.2022 - 17:06DROPS Design answered:
Bonjour Marie-Louise, vous en êtes à la division, correct? les 9 premières mailles du début du tour appartiennent à la manche, mettez les en attente sur un fil et montez 12 mailles, tricotez les 108 mailles suivantes pour le dos, glissez les 80 m suivantes en attente pour la 2ème manche, montez 12 mailles, tricotez les 108 mailles du devant, il reste 71 mailles, glissez ces 71 mailles sur le même fil que les 9 premières m du tour = vous avez ainsi bien 80 mailles pour chaque manche. Bon tricot!
10.11.2022 - 10:50Marie Louise wrote:
Bonjour Je fais la taille L ,empiètement,27x et 3x ts les 4 tous je ne comprends pas pouvez vous expliquer. Merci
26.09.2022 - 10:48DROPS Design answered:
Bonjour Marie-Louise, augmentez ainsi: (1 tour avec augmentations, 1 tour sans augmentations), tricotez ces 2 tours 26 fois au total, puis tricotez 1 tour avec augmentations (= vous avez augmenté 27 fois), puis tricotez ainsi (3 tours sans augmenter, 1 tour avec augmentations), tricotez 3 fois ces 4 tours = vous avez augmenté 3 fois supplémentaires. Bon tricot!
26.09.2022 - 11:50
White Rose |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-30 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 116 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 9,7. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 9. og 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við mynstuborða meðfram hverri laskalínu, þ.e.a.s. aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1B og A.2B (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 116-120-124-128-136-140 lykkjur á hringprjón 2,5 með Nord. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 128-132-136-140-148-152 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt án útaukningar. Setjið 1 prjónamerki í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT FRÁ PRJÓNAMERKI. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð þannig (frá vinstri laskalínu að aftan þegar stykkið er mátað): Prjónið A.1A (= 20 lykkjur), prjónið 22-24-26-28-32-34 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), prjónið A.2A (= 20 lykkjur), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= mitt á ermi), prjónið A.1A (= 20 lykkjur), prjónið 22-24-26-28-32-34 lykkjur sléttprjón (= framstykki), prjónið A.2A (= 20 lykkjur) og endið með 2 lykkjur sléttprjón (= mitt á ermi). Nú eru 152-156-160-164-172-176 lykkjur í umferð. Prjónið næstu umferð eins og útskýrt er í mynsturteikningu – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan mynstur eins og útskýrt er að neðan – JAFNFRAMT byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1B (= 26 lykkjur), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 22-24-26-28-32-34 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2B (= 26 lykkjur), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= mitt á ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1B (= 26 lykkjur), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 22-24-26-28-32-34 (= framstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2B (= 26 lykkjur), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= mitt á ermi) og aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 17-24-27-32-33-37 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 5-3-3-2-3-3 sinnum (útauknar lykkjur eru prjónaðar snúnar og í sléttprjóni). Eftir síðustu útaukningu eru 328-372-400-436-460-496 lykkjur í umferð. Prjónið síðan án útaukninga þar til berustykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm frá prjónamerki í hálsi. Í næstu umferð er fækkað um 24 lykkjur. Þetta er gert til að fækka lykkjum sem hafa verið bættar við sem viðbót þar sem kaðlarnir draga stykkið saman í laskalínu. Úrtakan skiptist þannig að fækkað er um 6 lykkjur í A.1B og A.2B (best er að fækka lykkjum með því að prjóna lykkjurnar yfir sjálfa kaðlana slétt saman 2 og 2) = 304-348-376-412-436-472 lykkjur eftir í umferð. Klippið frá. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 8-9-9-8-6-5 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir næstu 90-100-108-120-132-144 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 62-74-80-86-86-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir næstu 90-100-108-120-132-144 lykkjur (= framstykki) og setjið 54-65-71-78-80-87 lykkjur sem eftir eru á sama þráð og fyrri hluti á ermi í byrjun á umferð, fyrir ermi. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-220-240-264-292-320 lykkjur. Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 5-5-6-6-7-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Umferðin byrjar nú hér. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í annarri hliðinni. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á út í hliðum. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 6 cm millibili alls 5 sinnum í hvorri hlið = 220-240-260-284-312-340 lykkjur. Prjónið áfram þar til fram- og bakstykki mælist 27 cm frá skiptingu. Í næstu umferð er aukið út um 56-60-64-68-76-84 lykkjur jafnt yfir = 276-300-324-352-388-424 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 62-74-80-86-86-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-84-92-98-100-108 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-1½-2-2½-0-0 cm millibili alls 5-7-6-5-1-1 sinnum = 62-70-80-88-98-106 lykkjur. Þegar stykkið mælist 16 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 1 cm millibili alls 24-23-20-18-16-14 sinnum = 110-116-120-124-130-134 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 41-39-38-36-35-33 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 6 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-12-8-12-10-6 lykkjur jafnt yfir = 104-104-112-112-120-128 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 52-52-56-56-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 47-45-44-42-41-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Marie Louise wrote:
Merci tellement pour votre aide,c est très apprécié. 👍😀
28.09.2022 - 02:10